Tíminn - 23.12.1947, Side 4
4
TÍMINN, þriðjudaginn 23. des. 1947
240. blaff
Merk bók eftir Reykja-
víkurkonu
Guörún Borgfjörð: Minn-
ingar. Agnar Kl. Jónsson
gaf út. — Hlaðbúö —
Reykjavík 1947.
Minningar og ævisögur
teljast tíl þeirra bókmennta,
sem i mestum hávegum eru
hafðar með íslendingum.
Ýmsir þekktustu rithöfundar
okkar nafa á síðari árum
beinlínis keppzt um að færa
í letur lifssögur meðbræðra
sinna og sumir hverjir farið
þeim snillihöndum um efnið,
að hst þeirra, nýtur sín hvergi
betur. Vél rituð ævisaga er
jafnan happafengur þeim, er
bókum unna.
Pyrir skömmu barst mér í
hendur bókin Minningar eftir
Guðrúnu Borgfjörð. Segir þar
frá bernsku og uppvaxtarár-
um höfundar á tímabilnu
1660—1888. Guðrún var dóttr
Jóns Borgfirðings fræði-
manns og konu hans, Önnu
Guörúnar Eiríksdóttur, en
börn þeirra gáfuðu hjóna
voru óll merk og mannvæn-
leg og sum þj óðkunn, svo sem
Finhur prófessor við Hafnar-
háskóla og Klemenz land-
ritari, siðar ráðherra.
Guðrún ólst að mestu leyti
npp í Reykjavík, og fjallar
þvx meginhluti bókai’innar
um lixið hér í bæ.
í fyrstu er þorpsbragur á
öllu. Þegar kona eignast fall-
egt sjal eða svuntu, er það
flogiö um bæinn á samri
stuixd. Ef óbreytt vinnukona
tekur upp á því að greiða
sér á sama hátt og húsmóð-
irin, vekur þaö hneyksli og
umtal. Allir vita, eða þykjast
vita, ailt um alla
Verzlunarhættir eru mjög
frumstæðir. í búðunum ægir
saman hinum ólíkustu hlut-
um, kjöti og slifsum, mjöli
og neftóbaki, skreið og
„skroi“ — og svo eru þær þar
að auki helztu samkomu-
staðir þeirra, sem lítið hafa
að gerg. En rétt eftir 1870
fer þetta smámsaman að
breytast. Um 1873 kemur
fyrsti skósmiðurinn og fjór-
um arum síðar fyrsti skradd-
arinn, sérverzlanir eru stofn-
aðar og kaupmenn byrja að
flytja mn vörur, sem aldrei
höi'öu sézt hér áður. Og
svom er það á fleiri sviðum.
Litla vikurþorpið er að rétta
sig úr kútnum, þótt hægt
í'arí.
Guörxindvaldist langdvölum
hjá Jóni Guðmundssyni rit-
stjóra Þjóðólfs og konu hans
Hólmtfíði Þorvaldsdóttur.
lýsír hún hinu fjöruga mann-
margá menntaheimili af
dótturiegri ástúð. Dvölin þar
hefir .verið gáfuðum ungl-
ingi góður skóli. Yfirleitt
virðist jafnan líf cj> fjör á
ferðum þar, sem Guðrún er.
Hún kynnist mörgum og eru
þar á meðal ýmsir þjóðkunn-
ir menn t. d. Jón Sigurðsson,
Hallgrímur Sveinsson biskup,
Matthías Jochumsson, Sig-
urður Guðmundsson málari,
Þorbjörg Sveinsdóttir ljós-
móðir, Bertel Þorleifsson
skáld og fjöldi annarra, sem
oflangt yrði upp að telja.
Mannlýsingar Guðrúnar eru
flestar stuttar, en afar glögg-
ar. Hún er næm á aðalein-
kenni manna og segir
þannig frá, að eftirminni-
legt verður, má þar til nefna
lýsingu hennar á Sigurði
Guðmundssyni málara, þessu
olnbogabarni hamingjunnar,
„sem enginn sómi var sýnd-
ur.“
Guðrún fæddist árið 1856
en lézt 1930. Hún höf að rita
endurminningarnar 1926 en
entist ekki heilsa til að lýsa
meiru en þrem fyrstu ára-
tugum ævi sinnar. Það er
ekki vandalaust verk fyrir
sjötuga konu, lítt vana rit-
störfum, að færa í letur ævi-
minningar sínar svo vel sem
hér er gert. Stíllinn er
hreinn og tilgerðarlaus, setn-
ingar stuttar og orðaröð eðli-
leg. Allt hjálpast þetta að til
þess að auka hraða og fjör
frásagnarinnar. Bókin er
hlutaðeigendum til mikils
sóma. Bróðursonur höfund-
ar, Agnar Kl. \Tónsson ritar
fróðlegan eftirmála, þar sem
hann í stuttu móli rekur feril
frænku sinnar og gerir grein
fyrir tilhögun útgáfunnar.
Agnar hefir og samið nafna-
skrá við bókina og auk þess
nokkrar skýringar í sam-
bandi við menn og málefni,
er við sögu koma, hvort-
tveggja prýðilega úr garði
gert.
Ytri frágangur bókarinnar
er óvenju vandaðúr. Hún er
prentuð þéttu letri á góðan
pappír og lesmáli skipt niður
í kafla með greinagóðum fyr-
irsögnum. Útgáfustjóri Hlað-
búðar, Ragnar Jónsson, hefir
valið bókaskraut við byrjun
hvers kafla, en skrautið hef-
ir gert Hafsteimx Guðmunds-
son eftir uppdráttum Sigurð-
ar málara Guðmundssonar
til íslenzka faldbúningsins.
Er að því mikið augnayndi.
Minningar Guðrúnar Borg-
fjörð ættu að vera öllum
Reykvíkingum aufúsugestur.
Og illa er íslenzkum bóka-
vinum aftur farið ef þeir
hafa ekki ánægju af þessari
bók.
L. E.
HáSarar!
Innritun og innborgun stofngjalds í innkaupasam-
band málara fer fram á skrifstofu Landsambands iðn-
aðarmanna í Kirkjuhvoli frá kl. 1,30—5 daglega.
Stfórnin
Vinir vorsins
Vinir vorsins eftir Stefán
Jónsson, kennara. Útgéf-
andi ísafoldarprentsmiðja.
Stefán Jónsson, kennari, er
fyrir alllöngu orðinn þjóð-
kunnur barnabókahöfundur
og hefir unnið sér mikillar
vinsældar meðal yngstu les-
endánna. Hefir hann bæði
skrifað sögur fyrir börn og
ort kvæöi, sem • landfleyg
hafa orðið, svo sem kvæðið
um Gutta, sem allir kannast
við, jafnt ungir sem gamlir.
Nú eru nýkomnar xit hjá
forlagi ísafoldarprentsmiðju
öðru sinni tvær sögur hans í
einni bók, enda eru þær sam-
stæðar. Eru það unglingasög-
urnar Vinir vorsins og Skóla-
dagar. Halldór Pétursson hef
ir teiknaö margar ágætar
myndir í þessa nýju útgáfu.
Eykur það gildi hennar mjög
og gerir unglingum hana enn
hugþekkari.
Vinir vorsins er saga strák
hnokka.semheitir Skúli Bjart
mar. Hann fæðist og elst upp
fyrstu æviárin í sveit, en
flyzt síðan til Reykjavíkur,
og frá ævi hans þar segir
seinni sagan, sem nefnist
Skóladagar.
Það er óhætt að mæla með
þessari unglingabók, en það
er þó raunar alveg óþarfi.
Hún gerir það bezt sjálf.
Unglingarnir. sem nú eru
farnir að nálgast tvítugt,
muna líka vel eftir þessum
sögum og munu segja yngri
systkinum sínum frá þeim.
Þeim var tekið með fögnúði,
er þær komu fyrst út, og sú
útgáfa er uppseld fyrir löngu.
Allir krakkar kannast líka við
Stefán og sögurnar hans, og
mér er kunnugt um, að þeir
fylgjast með framhaldssög-
unni, sem hann er að lesa í
útvarpið í barnatímanum
núna, af miklum áhuga.
Vinir vorsins er ekki að-
eins skemmtileg og viðburða-
rík saga skynugs og tápmik-
ils drengs, sem öðlast reynslu
lífsins, bæði í sveit og borg.
Það er vel rituð bók, líka frá
sjónarmiði fullorðins manns,
blæbrigðarík og hugmynda-
auðug. Lífsmyndii-nar eru
skýrar og ljóslifandi, en þó
ekki dregnar upp með litríku
orðskrúði eða langræðum.
Oftast aðeins drepið á fáein
örugg kennimerki, sem kalla
fram í huga lesaixdans heila
mynd. Það er nög að minnast
á vatnsfyllt hófspor á hlaö-
inu til þess aö maður sjái
fyrir sér umhverfi íslenzks
sveitabæjar á sumarmorgni
eftir rigningárnótt. Sú mynd
verður að vísu harla ólíkt í
augum lesendanna, og fer
það eftir reynslu og minning-
um hvers og eins. En myndin
er heil og fellur inn í umgerð
sögunnar, og þá er nóg feng-
ið. Þessi mynd verður líka
lesandanum miklu hugþekk-
ari, af því hún kemur að veru
legu leyti frá honum sjálf-
um, heldur en sú mynd, sem
höfundúrinn hefði skapað
með því að lýsa hverju smá-
atriði út í yztu æsar með sín-
um orðum frá eigin brjósti.
Þetta tekst Stefáni víða vel
í þessari bók.
Þetta er líka siöbætandi
bók fyrir hvern heilbrigðan
dreng. En þó er þar engin
prédikun, nei, síður en svo.
Skúli Bjartmar er ekkert
furðuljós. Hann er gallagrip-
ur og gull að manni í senn,
eins og flestir drengir. Ferill
hans er ekki heldur í neinu
í das cr messudagur hins bless-
aða Þorláks biskups í Skálholti.
Þá hafa Vestfiröingar skötu á
borðum og á hún aö vera vel
kæst og til þess aö réttum regl-
um sé fylgt, á aö sjóða hana í
hangikjötssoði og stappa síðan í
mörfloti og hafa hana eins feita
og "feitustu kæfu, svo að hún verði
hörð eins og ostur, þegar
hún kólnar og storknar, ef
eitthvað er eftir skilið.
Matreiðsluþ,átturinn veröur samt
ekki lengri hjá mér í dag.
Nú er harðasta lotan í undirbún-
ingi jólanna og það á að vísu
við þessa dagana, sem einhver góð
ur maður sagði í jólabréfi:
Nálgast jólin helg og há
höfuðbóli og koti á,
þvottasólum höldar hjá
hafa skjólin ill og fá.
En út í þá hrakninga fer ég
ekki lengra.
Menn eru í óðaönn að kaupa
jólagjafir og finnst sumum að það
sé úr fáu að velja. Ég ætla ekki
að ræða gjafasiðinn rækilega að
þessu sinni. Það er faliegt og gott
að vilja gleðja aðra og ber sízt
að lasta það, en þegar þess er
gætt, hversu nýtilegir eru sumir
þeir hlutir; sem menn skiptast á
sem jólagjöfum, þá er ekki laust
við, að ýmsum finnist eftirsjá að
þeim fjármunum. Svo mikið er
víst, að fólki eru oft gefnar gjafir
sem þannig eru valdar, að það
hefði sjálft varið peningunum
öðruvísi.
Það greip suma núna um dag-
inn óvenjuleg umhyggja fyrir
börnunum og angur þeirra vegna,
af því að ekki yrðu flutt inn jóla-
tré. Það er ástæða til að gleðjast
yfir allri sannri umhyggju í þá
átt, og vonandi stendur ekki á
þessum jólatréshetjum, þegar
börnin þurfa þess með, að barizt
sé fyrir menningarskilyrðum þeirra
á öðrum sviðum. Ég nefni í því
sambandi eina stofnun, sem sums
staöar setur. svip sinn á jólin á
þann veg, að það samræmist ekki
umhyggjunni fyrir börnunum. Sú
stofnun er áfengisverzlunin. Og á
sviði uppeldismálanna er fjölþætt
verk að vinna og þá má ekki
gleyma skemmtistöðum og skemmt
analífi barna og unglinga utan
heimilanna. — Já, það er sannar-
lega gott hvað umhyggjan fyrir
börnunum er orðin víðfeðm, tær
og djúp og hrein. Við ræðum þau
mál betur eftir hátíðirnar.
En það skulum við öll muna,
að við gerum ekki jólin að hátíð
eins og þau eiga að vera, þrátt
fyrir allt jólaskrautið, jólagjafirn-
ar og jólamatinn, nema við berum
gæfu til að gefa hvert öðru ein-
hvern bjarma af jólabirtunni. En
það er aðeins ein leið til að gefa
öðrum slíka jólagjöf, og það er að
geta opnað hug sinn og hjarta
fyrir jólaljósinu eilífa, samúðinni,
mannúðinni, kærleikanum. — Ef
samúð og góðvilji býr í hugum
ok!:ar þá höfum við nóg. ráð lil
að halda jólin hátíðleg.
Gleðileg jól!
Pétur landshornasirkill.
o
< *
' I
o
O
o
o
O
O
o
I >
o
o
' I
O
II
O
o
o
o
O
(>
o
O
I
O
O
o
o
o
O
o
o
*
!
TILKYNNING
frá Rafmagnsveituimi
Athygli rafmagnsnotenda skal vakin á því að búast
má við venju fremur lágri spennu á aðfangadag á tím-
anum 5—6 em., er stafar af mikilli samtimanotkun bök-
unar eða steikaraofna. Með því að dx'eifa þessari notkun
sem bezt yfir allan eftirmiðdaginn, má draga mikið úr
mestu spennulækkuninni og eins með því að notendur
noti ekki rafofna til herbergjahitunar á meðan. Eru
rafmagnsnotendur vinsamlega beðnir um að gæta
þessa. Eftir fyrri ára reynslu má búast við hinu sama á
gamlársdag.
/
Rafinagnsveita Reykjavíkur.
\
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin
AMERICAN OVERSEAS AIRIJAES
óskar öllum viðskiptavinum sínum á íslandi gleðilegra |
jóla og farsæls komandi árs, með þakklæti fyrir við- f
skiptin á árinu sem nú kveður.
Umboðsmenn
G. Helgason & Melstetí h.f.
Hafnarstræti 19, — Sími 1644. I
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii 11111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111
(Framhald á 6. síðu)