Tíminn - 11.01.1948, Side 2
z
2
/ > v' ,* ’i' r r r ■» ire .1' / '*' vc
TÍMINN, mánudaginn II. jan. 1948
% ''' i >:
8. blað
^drcí degi tii cL
ci
m
í dag:
Sólin kom upp kl. 10.06. Sólarlag
kl. 15.10. Árdegisflóð kl. 6.05. Síð-
degisflóð kl. 18.22.
í nótt:
Næturakstur annast Litla bíla-
stöðin, sími 1380. Næturlæknir er í
læknavarðstoíu læknafélagsins í
Austurbæjarskólg.num, sími 5030.
Næturvörður er í Lyfjabúðinni Ið-
unní, sími 1911.
Útvarpið í kvöld:
Fastir liðir eins og venjulega. Kl.
20.30 Útvarpshl jómsveitin: Dönsk
alþýðulög. 20.45 Um daginn og veg-
Úin. (Vilhjálmur Þ. Gíslason). 21.05
Einsöngur (Jóhann Konráðsson frá
Akureyri): a) Lindin (Eyþór Stef-
xnsson). b) í rökkurró (Björgvin
Guðmundsson). c) Kveðja (Þórar-
ínn' Guðmundsson). d) í fjarlægð
(Karl O. Runólfsson). e) Vögguvísa
(Sigurður Þórðarson). 21.20 Erindi:
Férðaþættir frá Júgóslavíu. Hátíð
íþróttamanna (Sigurður Róberts-
son rithöfundur). 21.45 Tónleikar
^plötur). 21.50 Spurningar og svör
um náttúrufræði (Ástvaldur Eydal
Jicensiat). 22.00 Préttir. 22.05 Prá
sjávarútvegihum (Davíð Ólafsson
fSkimálastjóri). Létt lög (plötur).
22.30 Dagskrárlok.
ió
Skipafréttir:
Brúarfoss var i Stykkishólmi um
helgina, lestar frosinn fisk. Lagar-
foss.íór frá Antwerpen 9. jan. til
Kaupmannahafnar. Selfoss er í
ííeykjavik. Fjallfoss er í Reykjavík.
Réykjafoss fór frá Reykjavík 8. jan
til New York. Salmon Knot kom til
Réýkjávíkur 6. jan. frá Halifax.
True Knot er á Aðalvík, á leið frá
Réykjavík til Siglufjarðar. Knob
Knot er í Reykjavík. Linda Dan
fór frá Siglufirði 6. des. til Dan-
merkup. Lyngaa er í Reykjavík, fer
15, -jan. vestur og norður. Horsa
kom til Reykjavíkur á laugardag
frá Leith. Baltara fór frá Hafnar-
firði 8. jan. til Hull.
>-1 >/
Þérhaliur Ásgeirsson,
• sonur Ásgeirs Ásgeirssonar al-
bingismanns hefir verið skipaður
skrifstofustjóri í viðskiptamálaráðu
neytinu. Hann var áður fulltrúi í
útanríkismálaráðuneytinu.
Tíljá talstöð í Sandgerði.
“■•Aðálfundur verkalýðs- og sjó-
mannafélags Gerða- og Mið-
nGSlirepps var nýlega haldinn. Var
4:;fúndinum samþykkt áskorun tU
Landsímans frá sjómönnum, um
að komið verði upp talstöð í Sand-
gfiEði." 'til. öryggis fyrir sjómenn.
*?éiár Sándgerðisbátarnir koma að
Táiiíii ‘í brimi, er aðstaða þannig, að
ekki verður séð til lands, svo áð
iTægfsé að fylgjast með því, hvort
súúdíð sé 'fært eða ekki. Úr landi
ér hins vegar auðvelt að fylgjast
með því, og væri hægt að hafa
samband við bátana í gegnum tal-
stöðina, áður en þeir leggja í
sundið í gegnum brimið. En úr því
í sundið er komið, er oft ekki hægt
að'snúa við. Að slíkri talstöð yrði
storaukið öryggi, og er það ekki
nema réttmnett, að Landsíminn
vorði við þessari kröfu Sandgerðis-
sjómanna. í stjórn félagsins voru
kosnir Karl Bjarnason, Elías Ó.
Guðmundsson, Sumarliði Lárusson,
Sumarliði Eiiíksson og Bjarni Sig-
urðsson.
Aheit
á Strandakirkju kr. 50.00 sent
Tímanum af G. M. J.
Frá happdrætti N.L.F.f.
Þegar Náttúrulækningafélag fs-
lands efndi til happdrættis síns sl.
sumar til stj.'ktar heilsuhælissjóði
^élagsins, var búizt við, að hinir er-
Iendu happdrættismunir, bíllinn og
heimilisvé’.arnar, kæmust í hendur
nefndarinnar með haustinu. Var
-ætlunin að hafa bílinn og vélarnar
til sýnis hér í bænum til að örva
sölu happdrættismiðanna. En nú
kom bíllinn ekki fyrr en rétt fyrir
jól, og vegna dráttar á yfirfærslu
gjaldeyris hafa vélarnar ekki feng-
izt afhentar enn. Er sala happ-
drættismiða af þessum óviðráðan-
legu ástæðum skammt á veg komin,
svo að nefndin sá sig tilneydda að
fá leyfi ráðuneytisins til frestunar
á drætti. Verður dregið hinn 17.
júní næstk. þótti rétt að hafa frest-
inn þetta ríflegan, til þess að örugt
væri, að happ.drættið næði tilgangi
sínum, enda skiptir það í sjálfu sér
ekki miklu, ú\ því fresta þarf drætti
á annað borð, hvort dregið er mán-
uöinum fyrr eða seinna.
Nefndinni fi:r ljóst, að þetta muni
valda óánægju hjá þeim, sem keypt
hafa happdrættismiða. Og sök
hennar er sú, að hafa verið of bjart
sýn á loforð um ’ fljóta afgréiðslu
hinna erlendi^muna. En af tvennu
illu kaus nefndin-að baka sér óvin-
sældir, heldur en að hætta sölu
happdrættisnj 5a í miðju kafi, ein-
mitt þegar hún er að fá í hendur
þau táeki, ser^. líklegust eru til að
örva söluna, ekki sízt þar sem það
; cr að verulijfa leyti undir árangri
; þessa happdrættis komið, hvenær
t hægt verður ao hefjast handa um
byggingu h\is langþráða heilsu-
hælis félagsins.
Björn L. Jónsson.
SÍæm færð á götum bæjariris
urn helgina.
j Á laugardaginn gerði hláku í
bænum og h>'ssviðri, þegar leið á
j daginn. Við hlákuna gerði hina
! mestu ófærð á götunum, svo fólk,
I sem þurfti að komast leiðar sinnar
gat varla fr«*ið sig á hálkunni í
stormiifrm.
Arnað heilia
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband af síra Ragnari Ófeigs-
syni að Fellsmúla, Sigríður Páls-
dóttir og Elimar Helgason, Hvammi
í Holtum.
Hjúskaparheit sitt hafa gert
kunnugt.
Ungfrú Sigriður Hafstað frá Vík
í Skagafiröi og Hjörtur Eldjárn
búfræðikandidat frá Tjörn í
Svarfaðardal.
Svo bar til...
„Herfilegt velsæmisbrot.“
Tveir prestar í New York þykja
hafa brotið herfilega af sér, og
hafa aðrir prestar sömu kirkju-
deildar opinberlega vítt „hneyksl-
ið“. Þessir prestar gerðu sér sem
sagt lítið fyrir og kvæntust frá-
skildum konum. Prestar þessir
heita Benedict Hanson, af skandi-
navískum ættum, og Kirk O’Ferral,
írskur maður. Kona Hansons er
Elísabet Winsor, fyrri kona Elliotts
Roosevelt.
Þakkir tjáðar.
Ef til vill muna lesendur Tímans
eftir kettinum í Santander. Hann
átti að hafa lært að segja: „Haldið
þið kjafti og látið mig í friði,“ enda
voru þetta þau orð, sem oftast voru
sögð á heimiiinu. Ýmsir spakvitrir
menn þar suður á Soáni deildu úm
það, hvort þetta gæti verið satt, og
þekktur læknir vottað, -að hann ,
hefði heyrt köttinn segja þetta. j
Nú virðist amerísk rotta hafa
gert betur -— ef hún hefir ekki
notið ncinnar aðstoðar. í Norwich
í Ontario e^__ maður, sem heitir
Basil Baines og á burstaverksmiðju.
í haust var stærðarrotta sífellt að
þvælast í kringum vélarnar, sem
hann notar við burstagerðina.
Honum var orðið hvimleitt kvik-
indið, svo að hann hugsaði sér að
veiða hana í gildru. Egndi hann
fyrir rottuna með vænum ostbita
eitt kvöldið.
En honum brá í brún, þegar hann
gáði í gildruna morguninn eftir.
Osturinn var horfinn, en í stað j
hans kominn pappírsmiði, sem á
var letrað: „Ástarþakkir fyrir góða
máltíð — nú er ég scdd.“
Vinnur ekkert á þeim?
Það viröist ganga illa að vinna á
þýzku herskipunum, er Rússar
fengu til niðurrifs í lok styrjaldar-
innar. Níu kafbátar, vasaorrustu-
skipið Lutzow og herskipið Schles-
wig-Holstein eru enn heil í höfn í
Kronstadt. Rússar færast undan
því að svara, hvernig þessu víki við.
En orðrómurinn segir, að Rússar
muni telja það frágangssök að rífa
þau. Það er hart, þýzka stálið!
FéSagslíf
Stúkan
Víkingur heldur fund í kvöld í
G.T.-húsinu.
íþróttafélag
kvenna hefir handboltaæfingu kl.
7.30 í kvöld í Austurbæjarskólan-
um.
I.R.
hefir jólatrésfagnað fyrir yngri
félaga í Sjálfstæðishúsinu kl. 4 á
morgun.
Ódýrar auglýsingar
2 Isiarf&fr
til sölu. Karmur á aðra eða
járn á báðar getur fylgt. Uppl.
í síma 4392.
Vil ksaaspsa
ljóðabækur ýmsra höfunda. Þeir,
sem kynnu að vilja selja sendi
vitneskju um það í umslagi til
afgr. Tímans, merkt „Ljóða-
bækur.“
iiHiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiii || iiiiui,, ihii,,i, iiuuih, iiuinuunmunnnuunnnmmmmnm
Á förnum vegi
Þá er blessuðum peningaskiptun-
um lokiö, nema ef einhverjir kynnu
að hafa orðið seinir fyrir í Vopna-
firði og Borgarfirði eystra. En þá i
er það aðeiiis' þeirra sök, er sjá
Úttu um, að nýju seðlarnir væru
komnir í tæka tíö á alla þá staði, j
þar .sem unnt átti að vera að.skipta
peningum. Þess er því að vænta,
að réttmæt tilhliðrun verði við-
höfð, þar sem svo stendur á.
Seðlaskiptiri ' eru sem sagt um
garð gengiri. Alls er talið, að skipt
hafi verið rösklega 100 miljónum
króna þessa níu daga, er skiptin
fóru fram.
Ýmsar skrítnar sögur hafa kom-
izt á kreik um peningaskiptin og
eignakönnunina, og þó að ég birti
hér fáein sýnishorn af þeim, þá
sel ég þetta ekki dýrara en ég
keypti það. Flestar sögurnar eiga
jafnvel við lítil eða engin rök að
styðjast, heldur eru aðeins árangur
af viðleitni léttlyndra manna til
þess að láta alvöru lífsins verða sér
til dálítillar skemmtunar.
Miklar sögur hafa verið á sveimi
um menn, sem eiga að liafa komið
í skiptistöðvarnar eða bankana
með vænar peningafúlgur í kodda-
verum, handtöskum og skjóðum.
Einn þessara náunga á að hafa
komið nieð væna skjóðu og snarað
henni á afgreiðsluborðið. Þegar
hann var spurður, hversu mikiö
myndi vera í henni, á hann að
hafa sagt: „Ég gæti trúað að það
væri ekki mikið undir fimmtiu
þúsundum." Það fylgir sögunni, að
vel hafi talizt úr skjóðunni — í
henni hafi verið 64 þúsundir króna.
Síðan hafi eigandinn raðað nýju
peningunum í skjóðuna, bundið
rækilega fyrir hana, stungið henni
í handarkrikann og þrammað út.
Frumlegri var þó sá, sem kom
með aura sína í sundskýlunni sinni.
Hann hafði þrætt fyrir skálmar og
bundið fyrir með teygjubandinu að
oían. En ekki fylgdi það sögunni,
hversu fjáður hann var.
Ein þessara sögusagna segir frá
miklum relca á fjörur hinna svo-
kölluöu róna í Hafnarstræti. Fínir
menn eiga að hafa komið til þeirra
nú eftir áramótin, fengið þeim
þetta 10—15 þúsund krónur hverj-
um og bcðið þeim 5—10% .ágóða-
hlut af þessari upphæð,. ef beir
vildu nú bregða sér með hana 1
bankann og skipta henni þar fyrir
nýja peninga.
Sagt er einnig, að sumir hafi
gert býsna rífleg áfengiskaup hjá
Áfengisverzlun ríkisins, áður en
skorður voru við því settar fyrir
jólin. Á ekki að hafa verið eins-
dæmi, að sami maður keypti full-
fermi á vörubíl.
Margt mætti fleira tína til af
svipuðu tagi. En þetta er aðeins
sýnishorn af því, sem menn segja
hver öðrum, sér og öðrum til gam-
ans — hvort heldur þeir trúa því
eða ekki.
En þó allar skjóður, koddaver og
sundskýlur, hafi verið tæmdar af
peningum, svo að ekki séu nefndar
hversdagslegri peningahirzlur, þá
er hætt við, að eitthvað hafi orðið
cftir af seðlunum, sem ekki hefir
komið til skipta. Sumir geyma til
rninja sinn seðil af hverri gerð.
Aðrir hafa fundið seðil og seðil í
vösum gamalla fata, eftir að skipt-
in voru um garð gengin. Einstaka
menn, sem búa við erfiðar sam-
göngur fjarri skiptistöðvum, munu
og hafa orðið of seinir að koma
seðlaeign sinni á framfæri. Við
getum því búizt við að sjá gömlu
seðlunum, sem verið hafa yndi
okkar og ó; kadraumur á liðnum
árum, einstökú sinnum bregða fyr-
ir í framtíðinni, þegar verið er að
róta upp í skúffum og hirzlum.
J. H.
TrésmaifSafé!a|* SS©yIíjavÁksrr:
reááfeemm tun
félugsins verour í Sjálfstæðishúsinu fimmtudaginn I
15. janúar kl. 4—9 fyrir börn. 1
Dansleikur fyrir fullorona hefst kl. 10. 1
Aðgöngumiðar verða seldir í verzluninum Brynju og |
Jes Zimsen. Sömuleiðis í skrifstofu félagsins Kirkju- |
hvoli. |
SkesEamtiiBefaadÍBi. 1
iiiiiiiiiiiimimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiimmiiiiiiiiiimiiiimiiiiiiiiiiiiii 11111111111111111111111111111 .
fyrir yngri félaga og börn eldri félaga verður í Sjálf-
stæðishúsinu þriðjud. 13. þ. m. kl. 4. e. h.
Jólasveinn og fleiri heimsækja börnin.
Aðgöngumiðar seldir í dag, mánudag, kl. 5—6 í and-
dyri hússins.
Kl. 10 um kvöldið verður dansleikur fyrir eldrifélaga.
Aðgöngumiðar seldir í anddyri SjálfstæðLshússins á
þriðjudag kl. 5—6.
Stjornm.
til Prestvíkur, Kaupmannahafnar og Stokkhólms
14. janúar.
Til Reykjavíkur 16. janúar frá Stokkhólmi um Kaup-
mannahöfn og Stafangur.
Pantaðir farseðlar óskast sóttir sem ailra fyrst.
oftleiiir 7r.
Hafnarstræti 23.
Símar: 2469 og 6971.
MIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIl
óskast nú þegar eða næstkomandi vor.
Söluféfag Garöyrkjumanna
Símar 5036 og 5837.
•111111111111111111111111111111111111111111111ii11111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111,111111111111111111111111