Tíminn - 19.02.1948, Blaðsíða 1
R itstjóri:
Þórarinn Þóraririsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi
Framsóknarflokkurinn
Skrifstofur í Edduhúsinu
Ritstjórnarsímar:
4373 og 2353
Afgreiðsla og auglýsinga-
sími 2323
Prentsmiðjan Edda
32. árg.
Reykjavík, fimmtudaginn 19. febr. 1948
39 blaft'
GsIíésbí0 ófærar í ©lafsvfk og ’vaíissleiftslisr1
rifnai* upp
Á mánudag og þriðjudag gerði úrhellis úrkomu og bíe-
viðri víða um land. Á Snæfellsnesi var úrkoman svo miki!,
að víða urðu skemmdir af vatns- og snjóflóðum. Kinna
mestar skemmdir urðu þó í Ólafsvík og í Fróðárhreppi. Átií
tíðindamaður Tímans í morgun tal við Kristján Þórðarsoi*
símstöðvarstjóra í Ólafsvík um vatnsflóðin, sem eru þau
mestu, er orðið hafa lengi á þessum slóðum.
Gyðingar eru alltaf annað veifið að reyna að komast til Palestínu á ólöglegan hátt. llér sjást brezkir
hermcnn á verði, en i fiaeðarmálinu er Gyðingaskip, sem rennt lieíir verið á land.
Akureyrarbær hefur í hyggju
aö virkja efra fai! Laxár
hiö fyrsta
SssEBmingai" cim virkjnniiia hafniir við raf-
orkuinálastjóira
Rafveitustjórn og bæjarráð Akureyrar hafa nú ákveðið
að óska þess, að Akureyrarbær fái að virkja efra fall Laxár
fyrir eigin reikning. Ákveðið var einnig að senda nefnd til
Reykjavíkur til þess að ræða við raforkumálastjóra.
Akureyrarbær hafði fyrir
nokkru afsalað sér í hendur
ríkisins réttindum til þess að
halda áfram virkjun Laxár í
Suður-Þingeyjarsýslu. Þó hef
ir alltaf öðru hverju verið um
það rætt, að bærinn héldi á-
fram virkjun þarna með
sama sniði og verið hefir, í
stað þess að fela ríkinti fram-
kvæmdir i sambandi við hin
nýju raforkulög.
Nýlega hafa þó bæjarstjórn
og rafveitustjórn Akureyrar
samþykkt að óska eftir því,
að bærinn fái leyfi til að full-
virkja efra fall Laxár. Einnig
var ákveðið að senda nefnd
frá bænum suður til Reykja-
víkur til viðræðna við raf-
orkumálastjóra til þess að
leita hófanna um samning
við ríkið um þessa virkjun.
Lögð verði sérstök áherzla á
að hraða þessum samningum
og hefja framkvæmdir sem
fyrst, vegna hinna brýnu
þarfar bæjarins fyrir meira
rafmagn.
Raforkustjóri hefir einnig
tilkynnt, að hann sé reiðuhú-
inn að hefja umræður um
þetta mál, og að áætlanir. um
þessa virkjun séu.nú þegar til
búnar frá hendi raforku-
stjórnarinnar.
Lenti í strauvél
Fyrir nokkrum dðgum vildi
það slys til, að stúlka, sem var
að ’ vinna í þvottahúsi Elli-
heimilisins Grund, lenti með
hárið í rafmagnsstrauvél.
Dró vélin hárið inn á milli
valsanna og svipti hárinu á-
samt skinninu ofan af höfð-
inu á stúlkunni. Varð það ljótt
sár og kvalafullt en ekki lífs-
hættulegt. Var stúlkan flutt á
Landsspítalann og er nú á all-
góðum batavegi.
Fundur verzlunar-
staðanna sendir
Fjárhagsráði til-
lögíir sínar
Fulltrúafundur verzlunar-
staðanna norðan lands og
austan, sem haldinn er hér í
bænum um gjaldeyris- og
siglingamál, samþykkti í gær
ýmsar ákvarðanír og tillögur
um þessi mál. Hafa þær verið
sendar Fjárhagsráði og Við-
skiptanefnd. Vonast þeir eftir
svari við málaleitunum sínum
innan fárra daga, og verður
fundurinn þá kvaddur saman
að nýju til að ræða þau svör.
Fundarmenn munu bíða hér í
Reykjavík á meðan og ekki
fara heim, fyrr en svörin eru
fengin.
I Olafsvík urðu skemmd-
irnar mestar. Svokallað Ól-
afsvíkurgil, sem venjulega er
litið vatnsfall, óx svo í rign-
ingunum og leysingunni, að
það flæddi með miklum
þunga út úr farvegi sínum.
Á bakka Ólafsvíkurgils,
stendur bærinn Ólafsvíkur-
kot, og stendur fjósiö þar
| nær bakkanum en sjálf bæj-
! arhúsin. Þegar gilið breytti
farvegi sínum, tók það fjósið
og reif það til grunna. Var
það gert úr torfveggjum, en
með járn og timburþaki. —
Veggirnir hrundu niður, og
þakið féll niður á kýrnar,
sem voru í fjósinu, en þær
voru tvær. Skipti það engum
togum að flóðið tók þakið
stíflur í hæðunum fyrii ofan
þorpiö, og rann það i stríð-
um straumum niðui eftir
götunum, eins og stærstu
lækir. Eru margar götur að
heita má ófærar eftir flóðiö,
sökum þess hve sundurgrafn
ar þær eru. Vegir í nágrenni
Ólafsvíkur eru líka stór-
skemmdir og illfærir bifreið-
um, nema helzt jeppabilum.
Vegurinn frá Ólafsvík um
Fróðárhrepp er til dæmis að
heita má ófær eftir flóðið.
í Fróðársveit urðu líka mikl-
ar skemmdir. í Mávahlíð í
Fróðárhreppi urðu rniklar
skemmdir á túni. Breytti svo-
nefnt Mávahiíðargil farvegi
sínum vesma vatnavaxtanna,'
svo að það rann yfir bezta
hlutann af túninu í Mávahlíð,
með sér í fjósrústunum, ásamt
kúnum, sem urðu fast- ; um leið og gilið myndaði nýj
V atnsagi á vegum
undanfarna daga
Framsóknarvistin
Kl. S i kvöld hefst Fram-
sóknarvistin i MjólkurstöS-
inni. Að vistinni lokinni verð-
ur flutt rœða en þvi nœst
syngur Sigurður Skagfield ó-
perusöngvari.
Framsóknarmenn! Sœkið
aðgöngumiðanana í dag fyrir
kl. 5 í skrifstofu flokksins.
Allir vegir eru nú færir hér
í nánd viö Reykjavík og aust-
: ur yfir Fjall. Einnig Mosfeils-
heiði og Ilvalfjörður. Þíðviðr-
ið, sem verið hefir undanfarna
daga, hefir þó valdið þvi, að j
i töluverður vatnsagi hefir ver- !
j iö á vegunum. Hefir snjóinn I
lleyst mjög ört og vatn víða!
runnið yfir'vegi, en ekki hafa
orðið nema smáskemmdir, j
sem gert var við i gær.
Norðurleiðin er nú talin á-
gæt til Sauðárkróks, og hafa
áætlunarbifreiðar póststj órn-
árinnar, sem fara á þriðju-
dögum og föstudögum, farið
þangað frá Akranesi i ein-
um áfanga.
Öxnadalsheiði er þó ófær
enn og ekki talið ráðlegt að
opna hana með snjóýtum fyrr
en lengra kemur fram á vet-
urinn og minni hætta á stór-
felldri snjókomu.
ar í brakinu og bar allt'sam-
an 40—50 faðma niður í átt-
ina til sjávar.
Skeði þetta einhvern tíma
þriðjudagsnæturinnar og
varð fólk í Ólafsvíkurkoti
ekki þess vart fyrr en um
morguninn klukkan átta, er
farið var á fætur. Kýrnar
voru þá enn með lífsmarki,
fastar í brakinu. En líðan
þeirra var slæm, eins og gef-
ur að skilja. Lágu leifarnar
af brakinu, ásamt kúnum í ár-
farveginum, þar sem vatnið
flæddi um.
Gilið braut sér nýjan far-
veg milli fjóssins og íbúðar-
hússins í Ólafsvíkurkoti, og
gekk það svo nærri íbúðaf-
húsinu, að það sópaði burt
nýbyggðum skúr, sem var á-
fastur við íbúðarhúsið. Hvarf
skúr þessi meö öllu til sjávar
og hefir ekki til hans spurzt
síðan. Hann var þó ramlega
gerr á grjóthlöðnum grunni.
Bóndinn í Ólafsvíkurkoti,
Þórarinn Guðmundsson hef-
ir því orðið fyrir miklu tjóni,
þar sem allt er eyðilagðist var
óvátryggt.
Þar, sem Ólafsvíkurgil
rénnur gegnum þorpið, urðu
all miklar skemmdir en sjálft
vatnsfallið flæddi þó ekki út
um þorpið. Vatnsmagnið jókst
svo mikið, að flóðið tók meö
sér ramgera fiskhjalla, sem
voru á bakkanum og reif upp
vatnsleiðslur, sem lágu yfir
gilið.
Samt sem áður varð mikiö
vatnsflóð á götum þorpsins.
an farveg niður hlíðina. Segir
bóndinn þar, að skemmdirnar
séu svo miklar á túninu, að
það geti a’drei orðið nothæt't
aftur. Bóru’.mn í Mávahiíð
er Ávúst Ólafsson póstur.
Hefir Mávahlíðarpil aldrei í
mannaminnum fyrr breytt
farvegi sínrm.
I Vatn safnaðist fyrir við snjó-
Agnes Sigurðsson
væntanleg í maí
Allar líkur eru til þess,- að
• vestur-íslenzki píanóleikar-
inn, Agnes Sigurðsson, komi
hingað heim til lands í maí í
vor og haldi hér hljómleika.
I Hefir Tónlistarfélagið átt
bréfaskipti við hana, og verð-
ur för hennar hingaö senni-
. lega á vegum þess.