Tíminn - 05.03.1948, Page 2
'? á5í
TIMINN, fösiudaginn 5. marz 1948.
32. blað
í dagKT
Sólin kom upp kl. 7.22. Sólarlag
kl. 17.59. Árdegisflóð kl. 1.30. Síð-
degisflóð kl. 14.05.
í nótt:
Nætunakstur fellur niður. Næt-
urlæánir er í læknavarðstofunni í
AustuAæjarskólanum, sími 5030.
Næturvöröur er í Reykjavíkur
ÁpótbH' “sínii 1760.
Útvárpið í kvöld.
Fastár liðir eins og venjulega.
Kl. 20i3Ð Útvarpssagan: „Töluð
orð“;eýtir Johann Bojer, IX. (Heigi
Hjöryaju. 21.00 Strokkvartett út-
varpsins: Kvartett nr. 29 í F-dúr
eftir Hgydn. 21.15 Bækur og menn
(Vilhjálmur Þ. Gíslason). 21.35
Tónleikar (plötur). 21.40 Tónlist-
arþáttur (Jón Þórarinsson). 22.00
Fréttir. 22.05 Passíusálmar. 22.15
Symfónískir tónleikar (plötur): a)
Píanókorisert nr. 2 í B-dúr op. 19
eftir Beethoven. b) Symfónía nr. 3
eftir. Mendelssohn. 23.20 Dagskrár-
lok.
Skipafréttir.
Brúarfoss kom til Gautaborgar
1. matz frá Fáskrúusfirði. Fjall-
foss er í Reykjavík. Goðafoss fer
frá ''■Kaupmannahöfn 7. marz til
Aalborg, Gautaborgar, Leith og
Reykjavíkur. Lagarfoss er á leiö
frá Kaupmannaiiöfn til Odense.
Reykjafoss fór fram hjá Cape
Race á Nýfundnalandi á leið frá
Reykjávík .til Baltimore. Selfoss er
í Reykjavík. Tröllafoss fór frá
Guayamas í Mexico í gær til Kúba.
Knob Knot fór frá Reykjavik í
gær til Siglufjaröar. Salom Knot
kom til Reykjavíkur 3. marz frá
Halifax. True Knot fór frá Siglu-
firið 19 feb. til Baltimore. Horsa
er á Siglufirði. Betty lestar í New
ork 3—6 marz. Vatnajökull lestar í
New Ýork i byrjun marz. __
Félag veg'gfóörara 20 ára.
Aðalfundur Félags veggfóðrara
í Reykjavík var haldinn 22. íebrú-
ar siðastliðinn. Var öll stjórn fé-
lagsins endurkjörin. Hana skipa
þessir menn: Formaður Ólafur
Guðlaugsson, varaformaður Þor-
bergur Guölaugsson, ritari Sæm-
mundur Kr. Jónsson, gjaldkeri
Friðrik Sigurðsson og meðstjórn-
andi Guðmundur Björnsson.
Félagið minnist 20 ára afmælis
síns með hófi að Röðli laugardag-
inn 6. marz.
Námskeið í Esperanto.
Esperantistafélagið Auroro hefir
ákveöið að stofna til námskeiða í
ekþferanto. Hefir fé’.agið fengið
hirigað pólskan kennara, dr.
MildWurf að nafni. Hann mun
nota ‘Hiha svoneíndu Cshe-kennslu
aðferðy en Iiún hefir átt mikinn
þáttyí útbreiðslu esperanto. Aö-
ferðin -er nriðuo við, að kennari
kunni ekki móðurmál nemanda og
er þvi auðsætt, að hún er allffá-
brúg&i'n þeim aðferðum er hér hafa
véríð notaðar við kennslu erlendra
mála. Námskeiðin verða bæði fyr-
ir byrjendur og þá, sem eitthvaö
hafá lært í málinu áður.
Frá aðalfundi
Sjómannadagsráðsins.
Aðalfundur Sjómannadagsráðs-
var haldinn að Tjarnarcafé s.l.
þriðjudag, 2. marz.
Á aðalfundinum,voru lagðir fram
reikningar Sjómannadagsins.
Hagnaður af þsim 10 sjómanna-
dögum er haldnir. hafa verið nem-
ur aíís kr. 365.212,54. Um kr. 300
þús. eru handbærar, hitt er fó'giö
í ' ýinsum eignúm sem sjómanna-
dagurinn á.
Hagnaður af síðasta sjómanna-
degi var kr. 31.834,78 þegar búið er
að., 'draga frá um kr. 26 þús. kr.
vegna hugmyndasamkeppni, vegna
dvalarheimilis aldraðra sjómanna
og annað því viðvíkjandi.
Sjómánnadagsráðið efndi til
dýrasýningar dí Örfirisey;. á s.l
sumri. Um kr. 70 þús. kr. hagnaö-
ur varð af henni. Verður það fé
lagt í byggingársjöðT 7T
Stjórn Sjómannadagsráðsins var
endurkjörin og er hún þannig
skipuð: Formaður Henry Hálfdáns-
son, gjalökeri Bjarni Stefánsson,
ritari Jón Halldórsson, varaíor-
maður Þorvárður Björnsson, vara-
gjaldkeri’ Böðvar Steinþórsssn,
vararitari Pálmi Jónsson. Endur-
skoðendur Kristmundur Guð-
mundsson og Jónas Jónasson.
Þá var einnig kosin fjársöfn-
unarnefnd dvalarheimilisins og
aðrar nefridir til undirbúnings
næsta sjómannadegi, er haldinn
verður 6. júní n. k.
Þráðlaus tæki handa
slökkviliðinu.
SjökkviliðSstjóri hefir farið fram
á gjaldeyrisleyfi til kaupa á þráð-
lausum tækjum handa slökkvilið-
inu. Bréf um þetta efni var lagt
fyrir bæjarráðsfund s.l. mánudag.
Rafvirkjaverkfall
hófst í morgun. *
Tilraunir til samkomulags milli
rafvirkjameistara og rafvirkja fóru
út um þúíur í gærkvöldi, og hófst
verkfall hjá rafvirlcjum því í
morgun. Félag löggiltra rafvirkja-
meistara í Reykjavík sagði upp
samningum sínum við Félag ís-
lenzkra rafvirkja í janúarlok, og
gengu' þeir samningar úr gildi 1.
þessa mánaðar. *
Framsóknarvist
var í mjó’kurstöðinni í gær. Sam-
koman hófst á vistinni. Síðan flutti
Bernharð Stefánsson ræðu. Að því
búnu var verðlaunum úthlutað og
að lokum dansað til klukkan eitt.
Húsfyllir var.
Bátum veitt aðstoð.
Varðbáturinn Faxaborg hefir ný-
lega drégið 3 báta til hafnar hér
við Faxaflóa vegna vélbilunar.
Voru þetta:
1. 23. febr. m.b. Nanna, SU. 24,
skipstjóri Bogi Finribogason. Bil-
aður var hringur í skiptingu vél-
ar. Báturinn var dreginn til Hafn-
arfjarðaú
2. 25. febr. m.b. Mummi, GK. 120,
skipstjóri Gasðar Guðmundsson.
Báturinn dreginn undir Vogastapa,
en þá komst vélin í lag, og var ekki
upp’ýst.hvað að henni heföi verið.
3. 28. febrv m.b. Hilmir, GK. 498,
skipstjóri Þorsteinn , Þorsteinsson.
Báturinn dreginn til Keflavíkur.
Kælivatnsdæla var jriluð.
Þá hefir varðskipið Ægir að-
stoðað þessa báta:
1. 17. febr. m.b. Skaftfellingur,
VE. 33, skipstjóri Brynjólfur Guð-
laugsson. Báturinn dreginn til
Vestmannaeyja vegna brotins
sveifaráss í vél.
2. 24 febr. m.s. Jökull, VE. 163,
skipstjóri Steingrímur Björnsson.
Báturinn dregirin til Vestmanna-
eyja, vegna þess að brætt var úr
legum í vélinni.
Gerhardsen varar
Norðmenn við
kommúnistum
Ejnar Gerhardsen forsætis-
ráðherra Norðmanna hefir
birt aðvörun til norsku þjóð-
arinnar um að vera vel á verði
gegn kommúnistahættunni.
tSegir hann, að nauösynlegt sé
að minnka áhrif kommúnism-
ans, ef varðveita eigi iýðræði
og sjálfstæði Noregs.
Háskólafyrirlestrar
A undanförnum árum hafa ver-
ið fluttir i háskólanum margir
efnismikilir og merkilegir fyrir-
lestrar, sem almenningur nefir
getað sótt. Mun reyndin hafa ver-
ið sú, að sjaldan hafi áheyrendur
skort.
Nú bar svo til í gær, að maður
sunnan úr Kefiavík, Sigurður j
Þórðarson, kom að máli við mig-
um almenningsfyrirlestrana í há-
skólanum. Hann hafi tillögu fram
að færa viðvíkjandi þeim, og ég
verð fúslega við þeim tilmælum
hans að koma henni á farmfæri. !
Sigurður mælti á þessa leið:
— Okkur, sem búum utan .
Reykjavíkuy, langar til þess að
njóta góðs af fyrirlestrum þeim, !
fluttir eru \ háskólanum og al-
menningur i Reykjavík hefir að-
gang að. Þarna er oft fjallað um j
merkileg viðfangsefni af sérfróð-
um og lærðum mönnum — við- ’
fangsefni, sem fjölda manna um '
land allt langar til að vita skil á.
En þaö er ókleift, eins og nú er .
háttað. Og því þarf að kippa í lag.
Ráðið til lagfæringar Viröist líka I
vera mjög nærtækt, sagði Siðurð-
ur Þórðarson enníremur, og ég '
hefi áður ymprað á því í Útvarps- 1
tíðindum, þótt fáein ár séu síðan
Það á að útvarpa þessum fyrir-
lestrum, þegar þeir eru fluttir' á
þeim tíma, að ekki kemur í bág
við annað útvarpsefni. Væri það
Fundur
áhugamanna Tímans veröur í
Edduhúsinu í kvöld kl. 8,30. Allir
Tímamenn velkomnir meðan hús-
rúm leyfir.
Leikfélag
Hafnarfjarðar sýnir Karlinn í
kassanum í kvöld kl. 8,30.
Mcnntaskólaleikurinn '
„Allt í hönk“ sýndúr kl. 8 í
kvöld í Iðnó.
Árshátíð
Framsóknarmanna að Hótel Borg
er eftir rúml. viku. Menn ættu
heldur fyrr en seinna að láta vita
um þátttöku sína í síma 6066.
*
Odýrar auglýsingar
Matur.
Það er þægilegt að fá tilbúinn.
góðangóðan mat í Matarbúð-
inniinni Ingólfsstræti 3. Sími
1569.
KJarakaup
Hafið þér kynnt yður kjara-
kaupin, sem bókamarkaðurinn
býður yður.
Bókaverzlun
Guðm. Gamalíelssonar,
Lækjargata 6 A
Sími 6837
Allt til að atika
áuæg'juna!
Blóm til allra tækifæra. Pantið
með fyrirvara, og þér fáið
blómin nýafskorin. Sendi eftir
óskum.
Versl. Ingþórs '
Selfossi Sími 27.
Síðastliðið haust
Síðastliði haust var mér undir-
ritaðri dregin hvít lambgimbur
með réttu marki mínu: Sýlt
hægra, sýlt,- fjöður aftan
vinstra. Lambið á ég ekki og
getur eigandinn vitjað and-
virðisins til mín.
17. febr. 1948
Hólmfríöur Jónsdóttir
Tóvegg, Kelduneshreppi.
Karlinn í kassanum
Sýning í KVÖLD kl. 8.30.
jj Aðgöngumiðar frá kl. 2 í dag. Sími 9184.
I
tekið u IP. trúi ég ckki öðru en É
hægt væri að hafa unri það sam- É
vinnu við háskólann, að þessi er- É
indi væru flutt sem oftast á þeim I
tíma, er hentaði útvarpinu, enda É
hagaði það þá dagskrá sinni, eftir ; §
því fært væri, meö hliðsjón af, \
háskólaerindunum. J |
Vera kann, aö E.sú viðbára komi, É
fram, að þetta myndi draga úr að- | É
sókn aö fyrirlestrunum. En ég á ; É
bágt með að trúa því. Flestir, sem
þess eiga kost, mun eftir sem áð-
ur kjósa fremur að sjá fyrirlesar-
ann en hlusta á hann í fjarlægð,
þótt hinir, sem ekki eiga annars
völ, geri sig ánægða með það. Það
myndi því varla draga neitt telj-
andi úr sókninni, þótt sá háttur
yrði á hafður, að útvarpa fyrir-
lestrunum.
Þessu til frekari rökstuðnings
má líka nefna það, að kirkjur
munu ekkert lakar sóttar síðan
farið var að íúvarpa messum held
ur en áður var. Að minnsta kosti
hefi ég ekki orðið þess var, sagði
Sigurðar að lokurft.
Þetta var erindi Sigurðar við
mig og vonandi veröur uppástunga
hans vandlega athuguð af hlutað-
eigandi aðilum. Og vonandi sjá
þeir sér einnig fært að verða við
tilmælunum, því að ekki verður
annað séð en þau hafi við gild
rök að styðjast.
J. H.
iLeikkvöld Menníaskólans 1948
„Allt í hönk"
Gamanleikur í 3 þáttum eftir Noel Corward.
Sýningar:
Föstudag kl. 8 og laugardag kl. 3,30 í Iðnó.
Aðgöngumiðar að báðum sýningunum verða seld
ir í Iðnó í dag kl. 2—6 og eftir kl. 2 á morgun.
Fráteknir miðar sækist í dag.
iiiiiiiiiiimMMiiimiiiiiiimmiimmmmimiiNmmiiumimmiiHNiiNiiuiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin
skemmtikvöld|
heldur Vörubíistjórafélagið ÞRÓTTUR fyrir \
félagsmenn og gesti þeirra í Þórs-café sunnu- |
dagskvöldið 7. þ. m. og hefst kl. 9 e. h. f
z • E
SKEMMTINEFNDIN. \
mmimmimmmiiiiiiiiiimimmimmimmmmmmmmímmiimimmiiiimmiiimmmmmmmiimiiiimmi
Aðvörun
Vörubílstjórafélagið Þróttur vill hér með vára
menn við að kaupa vörubíla með það fyrir aug-
um að stunda akstur og ganga í Þrótt vegna
alvarlegs atvinnuleysis í stéttinni.
St|éí.’sfi l»í*«ttssr.