Tíminn - 05.03.1948, Blaðsíða 5

Tíminn - 05.03.1948, Blaðsíða 5
52. blað TÍMINN, föstudaginn 5. -marz 1948. 5 Féþstud. S. murx Innflutningshöftin og dreifbýlið Með svo að segja hverri ferð, sem fellur frá Reykjavík út á land, hvort heldur er á •landi'eða sjó, eru sendir marg ir bögglar, sem í eru einhverj ar vörur, sem fjarstatt fólk hefir beðið að kaupa fyrir sig í Reykjavík. Þetta eru margs konar hlut ir, því að ýmsir verzlunar- staðir hafa um hríð farið á mis við ýmsar sjálfsögðustu og eðlilegustu nauðsynjar. Hér má nefna rétt til dæmis hluti eins og gúmmistígvél, efni í b^rnaföt, rúðugler og bollapör, svo að gripið sé nið-- ur á fjórum fjarskyldum teg- undum. Enginn þarf að halda, að þetta sé heppilegasta verzl- unarfyrirkomulagið. Verzlan- irnar úti um land hafa starfs fólk, sem vel getur bætt á sig afgreiðslu og sölu þessara vara. Það er alltaf bezt, að menn geti sjálfir valið og keypt vör ur fyrir sig. Og þessi pöntun- arstarfsemi utan af landi. ■innkaupaleið og bögglasend- ingar kostar mikið, bæði ó- mak og fyrirhöfn og býsna fjármuni. Fyrir nokkru komu fulltrú- ar verzlunarstaða norðan- lands, austan og vestan sam- an á fund hér í bænum og báru fram óskir um leiðrétt- ingu* þessara mála. Fundur! þeirra krafðist þeás, að héruð . landsins fengju innflutning í réttu hlutfalli við fólksfjölda og vöruþörf. Það eru nú liðnar vikur síð- an þessi erindi frá fundinum komu fram. Enn hefir þeim verið engu svarað. Ríkisstjórn,_ fjárhagsráð og viðskiptanefnd virðast ekki ætla að rasa að neinu fyrir ráð fram í þessum efnum. Langur er umhugsunarfrest- ■urinn. Fyrir þá, sem bíða eft- ir leiðréttingu á augljósu ranglæti, er sá umhugsunar- frestur orðinn alltof langur. En verst er þó, að ekki sér fyrir endann á honum. Réttur héraðanna í þess- um málum hefir oft verið túlkaður hér í blaðinu, og aldrei hafa komið fram nein mótmæli gégn'honum. Málið er tafið með þögn og óvirkri andstöðu, röksémdalaust. Hins vegar hefir tillögum Framsóknarmanna í fjárhags ráði, um það að láta neytend- ur raunverulega ráða því, hverjir fái innflutningsleyf- in, mætt þeim mótbárum, að ■fólki væri ekki til slíks trú- andi, og . gæti það leitt til þess, að menn flykktust með miða sína til.þeirra, sem verst og óhagstæðust gerðu inn- kaupin. Stjórnskipaðar nefnd ir væru miklu betri og ör- • uggai’i dómstóll í þessum efnum. Það er þetta vanmat og fyrirlitning á fólkinu og ■oftrú á glöggskyggni og rétt- dæmi stjórnskipaðra nefnda, sem fram er borið og haft að yfirvarpi. En undir niðri er það umhyggjan fyrir forrétt- indaaðstöðu reykvískra heild ERLENT YFIRLIT: Nýja stjórnin í Eire Aii«lsísB»6si5a gegn ®S© ’VaSera samelnaði éláka fBekksi íessb stj ©B*itar my sselMsiiiaa Um miðjan seinasta mánuð gerð- ist sá sögulegi atburður i írska þinginu, að fellt var með 75:70 at- kvæðum að fgla de Valera stjórn- armyndun. Með því var lokiö 16 ára stjórnartímabili þess manns, sem hefir verið mesti áhrifamað- ur og leiðtogi íra um meira en þriggja áratuga skeið. Hann hafði orðið þess áskynja í aukakosning- um á síðastl. liausti, að flokkur hans var að tapa fylgi hjá þjóð- inni og því ákvað hann að biða ekki kjörtímabilið á enda, heldur rjúfa strax þing og efna til kosn- inga. Honum hafði oft gefist það vel að verða þannig fyrri til höggs en andstæðingarnir. Þetta mis- tókst honum nú, því að flokk hans skorti nokkur þingsæti til að ná hreinum 'meirihluta. Hins vegar mun de Valera hafa treyst því, að stjórn hans sæti áfram vegna ó- samkomulags andstæðinganna, som eiga fátt sameinginlegt, nema and- stöðuna gegn de Valera. Hún reynd ist hinsvegar nógu sterk til þess, að þeir tóku höndum saman um stjórnarmyndun til þess að koma í veg fyrir stjórnarforustu hans áfram. Sumir þejyra munu líka hafa óttast, að hann myndi þá nota aö- stöðu sína til þess að efna til kosninga, er þeim kæmi það verst. Hafði strax kvisast, að de Valera ætlaði sér af efna til nýrra kosn- inga á komandi vori. Skjót stjórnarmyndun. Jafnskjótt og búið var að fella stjórnarmyndun de Valera, fór fram atkvæðagreiðsla um það í þinginu að fela formanni stærsta andstöðuflokksins, Pine Gail, stjórnarmyndun. Það var samþ. með 75:70 atkvæðum. Eire hafði þar meö hlotið nýjan forsætisráð- herra, John Aloysius Costello. Hann lauk síðan stjórnarmyndun sinni á einum degi. Það er athyglisvert, hve fljótt stjórnarmyndanir ganga í írska þinginu. Pyrsta verkefni nýkosins þings er að kjósa stjórnarformann. Það verður að gerast strax, svo flokkarnir fá ekki ráðrúm til að ma'kka, heldur þurfa-að vera fljót- ir að ákveða sig. Forsætisráðherr- ann ræður því síðan sjálfur, hvernig hann myndar stjórnina. Svipað fyrirkomulag hefir nú verið tekið upp í franska þing- inu og hefir það sennilega bjargað nýja lýðveldinu, því að þannig hefir það komizt yfir hinar tor- leystu stjórnarkreppur, sem oft voru mest til truflunar áður. Nýi forsætisráðherrann. Hinn nýi forsætisráðherra fra, John A. Costello, er 57 ára gamall. Hann er lögfræðingur að mennt- un. Þegar sjálfstæðisflokkur íra, Fianna Fail, klofnaði, fylgdi hann þeim arminum, sem vildi semja við Breta og fékk því framgengt. Síð- an hafa þeir de Valera verið and- stæðingar. Er Gosgrave myndaði stjórn sína eftir stofnun írska frí- ríkisins, varð Costello saksóknari ríkisins og gegndi því starfi, unz Gosgrave varð að vikja fyrir de Valera eftir kosningasigur hins síð- arnefnda 1932. Þetta stárf Gosgrave varð á margan hátt erfitt og vandasamt, því að fjandskapurinn gegn Bretum var enn’ mikill. Sér- stakur leynifélagsskapur, í. R. A., var settur á stofn og var tilgangur hans að vinna ýms skenmidarverk, er beindust gegn Bretum. Stjórn- semi og röggsemi Costellos er ekki sízt þakkaö það, að ekki varð meira úr starfsemi leynifélagsskapar þessa en raun varð á. í. R. A. beindi líka fjandskap sínum mjög gegn honum og varð hann að hafa líf- vörð um skeið. Þegar Costello lagði saksókna- starfið niður, gerðist hann mál- flutningsmaður að nýju og hefir notið mikilla vinsælda á því sviði. Hann er almennt talinn einn snjallasti lögfræöingur og mál- flutningsmaður, sem írar eiga nú. Ræðumaður er hann þó ekki sér- stakur, en hann er glöggur og traustur í bezta lagi. Árstekjur hans að undanförnu hafa veriö taldar um 5 þús. sterlingspund á ári og verður því ráðherradómur- inn greinilegt tap fyrir hann, þar sem forsætisráðherralaunin eru ekki nema 1500 sterl.pd. á ári. Costello hefir verið formaður helzta stjórnarandstöðufl., Fine Gail, síðan Gosgrave lét af henni. Hann hefir verið fylgjandi góðri samvinnu við Breta. í lífsvenjum sínum er Costello talinn hófsamur, þótt ekki sé hann bindindismaður. Hann er góður dansmaður, hefir áhuga fyrir leiklist og iðkar mjög golf í frístundum sínum. Nýi utanríkisráðherrann. Utanríkisráðherrann í stjórn Costellos, Sean Mac Bride, er á margan hátt ólíkur forsætisráð- herranum. Samanburður á þessurn tveimur mönnum og stefnu þeirra sýnfr bezt, hve ólík öfl standa að hinni nýju stjórn. Mac Bricje er rúmlega fertugur að aldri, lögfræðingur að mennt- un og málflutningsmaður að at- vinnu. Það tvennt eiga þeir Costello sameiginlegt, en annað ekki. Faðir Mac Brides var einn af leiðtogum uppreisnarinnar 1916 og létu Eng- lendingar taka hann af lífi. De Valera var þá einnig dæmdur til dauða, en slapp vegna þess, að hann var amerískur borgari. Mac Bride gekk kornungur í her sjálf- stæðishreyfingarinnar. Þegar her þessi var lagður niður við stofnun fríríkisins, gerðist Mac Bride einn af stofnendum í. R. A. Hann var einn af helztu andstæðingum Cost- ellos meðan hann var saksóknari og síðar átti hann í höggi við stjórn de Valera, sem eitt sinn lét varpa honum í fangelsi. sala, til aS fá að græSa á verzlun viS fólkiS úti um land, hvort sem þaS vill halda þeim skiptum áfram eSa ekki. Tillögur Framsóknar- manna leggja þó engan stein í götu þeirra viSskipta, en veita fólkinu frjálst val. Og þá er svaraS, aS fólkiö sé alls ekki fært um aS velja fyrir sig sjálft, hvorki vöru né viS- skiptamenn. ÞaS er ef til vill hægt aS þæfa þessi mál enn um hríS og þvælast fyrir lausn þeirra og leiSréttingu, ef stjórnar- völdin vilja. En sú rödd, sem ber þessar. kröfur fram, verS- ur ékki bæld og þögguS niSur, því aS þaS er rödd almenn- ings. Og þeir, sem nota vald sitt til aS tefja þessar leiSrétt ingar, munu sjálfir verst af hafa. Costello, Fyrir nokkrum árum stofnaöi Mac Bride nýjan flokk, lýðveldis- flokkinn. Markmið hans eru marg- háttaðar umbætur innanlands. Mest hefir flokkurinn þó aflað sér. fylgis á því, að hann byggir öðr- um flokkum meira á andstöðunni gegn Bretum. Einkum beinir hann geiri sínum gegn brezku landeig- endunum, en Bretar^ eiga enn miklar jarðeignir í Eire. Flokkur Mac Brides hefir eflzt furðu fljótt Það var hann, sem vann þingsætin frá flokki de Valera í aukakosn- ingunum í haust, og það var eink- um hann, sem vann fyigi frá de Valera í hinum reglulegu kosning- um í síðasta mánuði. Telja ýmsir líklegt, að Mac Bride eigi eftir að koma mikið við sögu í Eire á næstu árum, ef honum endist líf og heilsa. Andstaðan gegn de Valera. Það þykir þó líklegt, að Mac Bride komi ekki miklu fram í hinni nýju stjórn. Emþætti landbúnaðar- ráðherra gegnir James Dillon, sem (Framhald á 6. síðu) Raddir nábúanna Alþýðublaðið rif j ar það upp í forustugrein í gær, að kommúnistar hafi á sinni tíð skammað vesturveldin mjög kappsamlega fyrir undanláts semi við Hitler, þegar hann var að leggja smáríkin undir sig. Blaöið segir síðan: „Það er mjög lærdómsríkt, að bera þessa afstöðu kommúnista þá saman við afstöðu þeirra nú, þegar Stalin er meö hjálp kommúnismans að svipta hvert smáríkið eftir annað, þar á meðal Tékkóslóvakíu, sjálfstæði sínu og innlima það í lepp- rikjakerfi sitt, á nákvæmlega sama hátt og Hitler geröi fvr- ir tíu árum. Þá vissu kommúnistar, eins og allir aðrir, að afleiðing slíks yfirgangs hlyti að verða stór- styrjöld; en nú láta þeir cins og kúgunin og ofbeldiö sé ör- uggasta leiðin til tryggingar friðinum, — af því aö það er í þetta sinn Stalin, sem liefir það í frammi! Og nú er ekki mik- ið verið að kvarta yfir „und- anlátssemi“ Vesturveldanna, þó að þau reynist, eins og fyrr, seinþrcytt til vandræða! Þvert á móti brigzla kommúnistar þeim nú um stríðsæsingar og stríösundirbúning, hversu hóg- værum andmælum, sem hreyft er gegn hinu rússneska og kommúnistíska ofbeldi!" . Þessi samanburður á af- stöðu kommúnista fyrr og nú, sýnir vel að kommúnistar eru ekki andvígir ofbeldinu og einræðinu, þótt þeir þykist oft vera meiri lýðræðismenn en allir aðrir, heldur fer það allt eftir því, hverjir beita þessum aðferðum. Séu það þeirra menn, er það í stak- asta lagi. Veilan í dæmisögu Morgunbláðsins í forusíugrein Mbl. í gær er reynt að finna ný|a mótbáru gegn tillögum Framsóknar- manns um að iriiða innflutn- ingsieyfin við aflienta skömmíunarmiðá. ÍMáli sínu til stuðnings býr I\|bi. til eft- irfarandi dæmi: Hallgrímur Benéðiktsson & Co. og Samband ísl. samvinnu félaga fluttu inn ^sement til Reykjavíkur á síðastl, sumri. Sementið var dýrara lijá S.í. S. Til þess að S.Í.S. gæti selt seihentið, var ýmsum Reyk- víkingum fyrirskipað af inn- flutningsvöldunum að kaupa sementið hjá því. Ef fylgt væri reglum Tímamanna, ætti S.Í.S. nú að fá innflutn- ing fyrir þá skömmtunar miða, er það fékk með þess- um hætti. — Það þarf ekki að taka fram, að sú frásögn Mbl. er röng, að sementið..hafi verið' dýrara hjá S.Í.S. en H. B. & Co. Allar blekkingar um það hafa verið marghraktar hér í blaðinu og er óþarft að end- urtaka það einu sinni enn. Til þess að gera; sér liins veg ar grein fyrir hvernig tillög- ur Framsóknarmanna hefðu reynzt í framkvæmd, má vel láta dæmi Mbfr. halðast' ó- breytt og segja, að sementið hafi verið dýrara ftjá S.Í.S. en Hallgrími. Ef tillögur Fram- sóknarmanna hcfðu gilt þá, hefði enginn þurft að fara til S.Í.S. og kaupa sementið þar. Þá hefðu menn gétað snúið sér til Hallgríms Benedikts- sonar með skömmtunarleyfi sín og falið honum að panta sementið fyrir sig, ef hann hefði ekki haft birgðir fyrir- liggjandi. Vegna þess, að régjur Fram sóknarmanna hafí» ekki kom- izt í gildi og innflutningsleyf in • eru ekki byridin við skömmtunarleyfin, hafa menn verið neyddir. og eru neyddir að fara tií þeirra,sem selja vöruna dýrara verði, eins og Mbl. telur að S.Í.S. hafi gert í umræddu tilfelli. Enginn slík þvingun væri fyr ir hendi, ef tillögur Fram- sóknarmanna kæmu til fram kvæmda. Það, sem Mbl. teluri.tillög- um Framsókiiarmanna til foráttu, er eihmitt aðalgall- inn á núgildandi tilhögun innflútningshaftanna — galli, sem myndi alveg hverfa úr sögunni, ef tillögum Fram sóknarmanna væri- fylgr. Það sést einmitt bezt á þessu tilbúna dæmí Mbl., að reglur Framsóknármanna eru samvinnufélögunum síð- ur en svo til ávinnings, ef þau eru ekki samkéþþnishæf um verðlag og vörugæði. Ef frásögn Mbl. um sements- verðið væri rétt, niyftdi S.Í.S. hafa misst sementsinnflutn- inginn, ef reglum Framsókn- armanna hefði vcrið, fylgt. Fyrir Framsóknarmönnum vakir því ekkj með þessum tillögum að hlúa áð einu verzlunarfyrirkomulagi fram ar öðru. Markmið þeirra er aðeins að tryggja frelsi.neyt- enda og sem fyllsta sam- keppni. Þannig telja þeir að tryggð verði bezt og hagkvæm ust verzlun. Þeir, sem hræð- ast þessa tilhögun og segja hana muni efla samvinnu- (Framhald á 6.' iíðu)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.