Tíminn - 09.04.1948, Page 2

Tíminn - 09.04.1948, Page 2
 TÍMINN, föstudaginn 9. apríl 1948. 79. blað 1 tlag. Sólin kom upp kl. 6.19. Sólarlag kl. 20.43. Árdegisflóö kl. 6.20 síö- degisflóð kl. 18.35. í nótt. 1 Nœturakstur annast biJfreiðastöð in Hreyfill, sími 6633. Næturlæknir er í læknavarðstofunni í Austur- bæjarskólanum, sími 5030. Nætur- vörður er í Lyfjabúðinni Iðunni, simi 7911. ÍJtvarpið í kvöid. Fastir liöir eins og venjulega. Kl. 20.30 Útvarpsagan: „Töluð orð“ eft ir Johan Bojer. XIV. (Helgi Hjörv- ar). 21.00 Strakkvartett útvarpsins: Kvartett nr. 21. í B-dúr eftir Moz- art. 21.15 Bækur og menn (Vil- ♦hjálmur Þ. Gíslason) 21,35 Tónleik ar (plötur). 21.40 Tóniistarþáttur (Jón Þórarinsson). 22.00 Fréttir. 22.05 Symfónískir tónleikar (plöt- ur): a) Píanó-konsert í Es-dúr eft- ir Treland. b) Symfómg í C-dúr op. 61. nr. 2 eftir Schumann. 23.15 Dag- skrárlok. Hvar eru skipin? Ríkisskipin. Esja kom til Borgarfjarðar eystra kl. 10,30 í morgun á suður- leið. Súðin er í Reykjavík, Herðu- breið kom til Súgandafjarðar klukkan átta í morgun. Skjaldbreið er á leiðinni til Reykjavíkur frá Hófn í Hornafirði. Þyrill er á leið- inni til íslands frá Þýzkalandi. Skip S. í. S. Hvassafell er væntanlegt til Lond on í dag. Varg er á Flateyri Vigör er á Hjalteyri. • Skipafréttir. Brúarfoss er á Hellissandi, lestar frosinn fisk. Fjallfoss fór frá Skaga strönd í gærkvöldi til ísafjaröar. Goöafoss kom til SigXf jarðar í gær Lagarfoss fór frá Vestmannaeyjum í gær til Leith og Kaupmamialiafn- ar. Reykjafoss kom til Patreksfjarö ar í gær. Selfoss er i Reykjavík. Trö.lafoss fór frá Havana 3. apríl til Noa Bay. True Knot er i Reykja vík. Horsa fór frá Antwerpen 7. apríl. til Leith. Lyngaa fór frá Keflavík 7. apríl tii Dunkirk. Betty fer frá Reykjavlk í kvöld til New Yorlc. Ur ýmsum áttum Aöalfundur S. 1. K. Aöalfundur S. í. K. var haldinn í Félagsheimili verzlunarmanna, íöstudaginn 2. þ. m. Formaður sambandsins, Ágúst Bjarnsxson, flutti skýrslu um starf sambandsins frá síðasta aðalfundi. Hafði sambandið haft sænskan söng kennara, hljómsveitarstjóra Gösta Myrgart sem kenndi sambandskór- um í 9 mánuði og auk þess veitti sambandið kórnum styrk til söng- kennslu Sigurðar Birkis, söngmála- stjóra og Birgis Halldórssonar söngvara. Hyggst sambandið að ráða, sem allra fyrst, fastan söng- kennara, sem eingöngu kenni á vegum sambandsins. Norræn söngmálastefna verður haidinn hér í Reykjavík næsta vor vor og taka sambönd karlakóra allra Norðurlandanna þátt í henni. Er þessi ráðstefna hin fimmta í röð- inni og liafa hinar verið haldnar í Noregi 1934, Sviþjóð 1936 og Dan- mörku 1933 og í Finlandi á s. 1. vori. Fiamkvæmdaráð S. í. K. var en urkosið, en það skipa: Formaður, Ágúst B/xnason, s.krifstcfustjóri, ritari séra Garðar Þorsteinsson og gjaldkeri Óskar Sigurgeirsson. Meðstjórnendur séra Páli Sigurðsson i Bolungarvik. Þormóður Eyjólfsson, konsúll, Jón Vigíússon á Seyðisfirði og Guðmund ur Gissurarson bæjarfulltrúi í Hafnarfirði. Hungruðum börnum í Þýzkalandi miðlað brauði. Drengjahlaup Armanns. fer fram sunnudaginn fyrstan í sumri (25. apríl). Keppt veröur í þriggja manna og fimm manna sveitum. Handhafi beggja verð- launagripanna er Knattspyrnufélag Reykjavíkur. Öllum félögum innan í. S. í. er heimil þátttaka, og skal ihún tilkynnt til stjórnar Ármanns viku fyrir hlaupið. Frjálsíþróttamenn úr í. R. Framvegis verða æfinar fyrir þá í. R.-inga, sem ekki æfa hjá Olympíuþjálfaranum, á íþróttavell- inum sem hér segir. Frá og með 13. apríl þriðjudaga og fimmtudaga kl. 5.15—7.00 og laugardaga kl. 3—5. Nýir félagar geta snúið sér til þjálfarans, Finnbjörns Þorvalds- sonar, á framanskráðum tímum, svo og til skrifstofunnar ,í í. R,- húsinu, sími 4387. Þeir í. R.- drengir, sem ætla sér, að taka þátt í drengjahlaupi Ár- manns 25. þ. m., komi til viðtals á íþróttavöilinn n. k. laugardag kl 15.00. Ösóttir happdrættisvinningar. Dregið var í happdrætti Hall- veigarstaða 10. okt. 1947. Þessi núm er hafa enn ekki veriö sótt: 3230, 598, 3155, 593, 4250, 1490 og 4626. Munanna sé vitjaö sem allra fyrst til frú Haildóru Ólafsdóttur, Grettis götu 26. Sinubrennur. í gær var fagurt veður hér suð'- vestan lands, logn og sólskin dag- langt. Bændur í Mosfellssveit og á Kjalarnesi notuöu þetta góöa og hagstæða veöur til þess að brenna sinu í högum sínum með enn er hæfilega blautt í rót. Mátti sjá úr Reykjavík mikla reykjarmekki stíga upp, þegar eldurinn eyddi skráþurri sinuni. 486 draumanúmer. Sambandi íslenzkra berkla- sjúklinga hafa, síðan happdrætti þess hófst í fyrra, samtals bor- izt 486 beiðnir um miða með sér stöku númeri, sem fólk hefir dreymt. Stundum liefir veriö hægt að fullnægja þessum ósk- um, en stundum ekki.. En það mun haía komið i sama stað niður, enn sem komið er, hvort það hefir verið hægt eða ekki. Draumanúmerin hafa ekki verið happasælli en önnur númer. Árnað heilia Hjúskaparheit sitt hafa gert kunnugt Ungfrú Sigríöur Oddgeirsdóttir, hárgreiðsiumær, Jóhannssonar út- gerðarmanns og Eric ' Steinsson, Ungfrú Margét Jóhannsdóttir, Reykjanesbraut 23, og Brynjólfur Magnússon Laugarneskamp. 15. Ungfrú Laufey Bjarnadóttir, Bergþórugötu 1, og Guðjón Krist- inn Einarsson sjómaður. Ungfrú Ásta Guömundsdóttir, Miðtúni 10 og Sigurður Þorkelsson pípulagningamaöur, Ásvallagötu 2. Spurningin er Er hægt að ríða á vaðið á þurru Iandi? Styrkið Reykjalund Samband íslenzkra berklasjúkl- inga er merkilegur félagsskapur, sem hefir unnið og er að vinna alveg einstætt verk. Það er björgun arfélagsskapur, sem margir munu eiga heill sína og hamingju upp að vinna, þegar fram líða stundir. Þessi félagsskapur á tíu ára af- mæli í haust, en mun minnast þess í ágúst í sumar, þegar stofnþing Berklavarnarsambands Norður- landa verður haldið að Reykjalundi og stórhýsið nýja verður vígt. Það mun sammæli margra, að þegar slík stofnun á af- mæli, enda þótt það sé aðeins tíu ára afmæli, sæmi ekki annað en henni séu gefnar þær afmælisgjafir, er um munar. íslendingar hafa ný lega gefið til hjálparstarfsemi í öörum löndum fjárupphæö, sem nemur öllu andvirði nýja hússins með öllum búnaði. Það var lof- samlegt, en ennþá skyldara ætti okkur þó að vera að vinna líknar- verk hér heíma fyrir. Afmæli Reykjalundar má þess vegna ekki gleymast. Raunar hefir samband íslenzkra berklasjúklinga orðið vel til fjár til sinna miklu framkvæmda. En hér þarf enn stórfé. Og ýmsar aðrar gjafir en peningar, gætu lika komið í góðar þarfir. Bókakostur er til dæmis lítill á Reykjalundi, og bókaútgefendur í landinu ynnu gott verk, ef þeir gæfu vinnuheimilinu útgáfubækur. Einnig vantar eittlivað af fallegum myndum eða listaverkum til þess að skreyta hin veglegu salarkynni i nýja húsinu. En umfram allt verður fólk að kaupa happdrættismiðana. Happ- drættið er megin-tekjustofninn, og jafnframt því, sem fólk styður vinnuheimilið með miðakaupum, skapar það sér einhverjar ofurlitl- ar líkur til þess aö hljóta vinning, sem um munar. Það eru þó tíu bíl- ar, sem dregið verður um 15. maí. J. H. Félagslíf Skemmtun. Skimmtisamkoma Framsóknar- félaganna í Mjólkurstöðinni í kvöld byrjar með Framsóknarvist kl. 8. Stúkan Verðandi hefir kvöldvöku í Vesturfara „Lorelei" er í Sjálfstæðis í kvöld. Leikfélag Hafnarfjarðar sýnir Karlinn í kassanum í kvöld. Skemmtifund heldur Kvennadeild Slysavarnar- félagsins í Hafnaríirði í Sjálfstæðis húsinu kl. 8. K. R. Glímu- og hnefaleikamótið er í kvöld kl. 8,30 í íþróttahúsinu við Hálogaland. Skemmtifundur í Þjóðræknisfélagsins og Félags Vesturfara „Lorelei" er í Sjálfstæöis húsinu í kvöld kl. 8. K.ærlaké]i* Keykjisvíksgr amsH Söngstjóri: Sigurður Þórðarson. í Gamla Bíó sunnudaginn 11. apríl kl. 3. Við hljóðfærið Fritz Weisshappel. Aðgöngumið'ar í Ritfangadeild ísafoldar, Banka- strséti 8. Sími 3048. Þjóðræknisfélagið og félag j Vesíurfara „Lorelei“ ! í halda sameiginlegan skemmtifund í kvöld kl. 8 í j Sjálfstæðishúsinu. j Helztu skemmtiatriði verða: Upplestur: Tobias. Ólafur Gaukpr og tríó leika. Brynjólfur Jóhannesson kynnir og skemmtir. Aðgöngumiðar fyrir félagsmenn verða seldir í Sjálf-] stæðishúsinu milli kl. 5—7 á föstudag. Ekki samkvæmisklæðnaður. §k«mintínefndw. S.K. T. Eldri dansarnir í G. T.-húsinu annað kvöld kl. 9. Húsinu lokaö kl. 10.30. — Aögöngumiðasala kl. 4—6. — Sími 3355. — FramsóknarféSag | heldur fund í fundarsalnum í Edduhúsinu við Lindar- | = götu íefstu hæð) mánudaginn 12. apríl, og hefst fund- | I urinn kl. 8.30. 1 i Funarefni: I Marshallsáætlunin og afstaða íslendinga til | i hennar. | Frummælandi Eysteinn Jónsson ráðherra. Framsóknarmenn, sem eru gestir í bænujn, eru vel- | 1 komnir á fundinn. f Stjórn Framsóknarfélags Reykjavíkur. mmmmmimliiMmmmmmmmmmimmimmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmimmmiimif iiiiiliiimiiiiiiiiiiimiiiiiimiimmimmmiiiiiiimimmiiiiiiiiiiiimmmiiiimmmimimimmiimiimiiimiimiiiH Hafnfirðingar I Esperantonámskeið I = hefst á sunnudaginn kemur, Dr. A Mildwurf kennir i \ Þátttakendur gefi sig fram við Ólaf Jónsson, Strand- = í götu 41 (sími 9369) eða Ólaf Þ. Kristjánsson, Tjarnar- í | braut 11 (sími 9285). | jiiiiimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiimiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiimiimiimiiiiiimiiiiiiiii

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.