Tíminn - 09.04.1948, Page 3

Tíminn - 09.04.1948, Page 3
79. blað TÍMINN, föstudaginn 9. apríl 1948. 3 Seinasía skáWverk Kiijans Átómstöði n Halldór Kiljan Laxness: Atómstöðin. Skáldsaga. Útgefandi Helgafellsút- gáfan. — Stærð 276 bls. Verð kr. 55.00 ób., 65.00 og 85.00 bundin. Þó að þetta sé kallað skáld- saga, lætur nærri, að réttara væri að nefna það ævintýri og skrítlur. En það er þó ástæðu- laust að þrefa um slíkt. Þetta er skáldrit, gert af mikilli gáfu og kunnáttu. Laxness hefir tamið sér furðulega stafsetningu og rit- hátt. Maðurinn er hagur á mál og frjór í oröbragði, fjöl- lesinn og margvís, en bindur sig ekki við neinar reglur. Hanh tók upp þanh sið fyrir nokkru, að líma saman tvö eða þrjú smáorð. Sumir mæltu í mót þessari aöferö og Björn Sigfússon flutti andmæli af lærdómi og rökvísi, en Þór- bergur Þórðarson kerfisbatt hina kiljönsku siðabót og kallaði skynsamlega réttritun. Og hópur hrifinna lærisveina sýndi meistara sínum lothingu og fylgdi þessum rithætti. En það er því líkast, sem hinn mikli meistari þoli ekki, að neinn leiki listir hans eftir. Hann er ekki í heiminn kom- inn til að kenna alþýðlega réttritun eða fylgja réttritun hinna skriftlærðu. Hann skrifar sitt eigið mál á sinn eigin hátt. Stundum dettur það í hann aö skrifa eftir framburði, en í næstu andrá fylgir hann allt öðru lögmáli. Þannig skrifar hann t. d. tón- skáldanöfnin Bithófen og Bach. Hvers vegna ekki Bakk? * Þetta er ekki ritháttur neinnar reglu, heldur geðþótt- ans, sem er hafinn yfir allar reglur og brýtur þær. Þetta er höfundareinkenni. Honum er það þörf aö brjóta allar viðurkenndar reglur í rithætti. Það er ástríða hans. En hann þarf líka að brjóta reglur og fara eigin götur á öðrum sviðum, koma mönnum á óvart og ofbjóða þeim. Og það er ósköp þreytandi og ó- yiðkunnanlegt, ef einhvef tek- ur upp sömu siöi, nær þeim og lætur eins. Atómstöðin segir frá tví- tugri afdalastúlku norðan' úr landi, Uglu, sem fer til Reykja víkur í vetrarvist hjá Búa Ár- land alþingismanni. Þar kynn ist hún yfirstéttarfólki og kommúnistum, listamönnum og skáldum að sagt er, þó að lesandinn fái lítið bragö og lé- legt af skáldskap þeirra. Mér skilst, að þessi stúlka eigi að sýna hinn opna hug náttúrubarnsins, sem mætir fyrirbærum mannlífsins kreddulaust, óbundið af tízku og spilltum kenningum ónátt- úrlegra lærdóma. Heilbrigður smekkur og tilfinning eðlisins leiði hana í hverjum vanda og segi henni hvað rétt sé. Þetta er þó ekki hægt að herma upp á höfundinn og menn verða að skiljá eða níisskilja eftir því, sem þeir hafa vitið til, þann þráð, sem skáldið rekur. Hér er það frá upphafi til enda stúlkan, sem hugsar og segir frá. Það er athyglisverður skiln ingur á ástamálum, sem fram kemur í þessari bók. Heim- spekingurinn, sem segir sveita stúlkunni til í organleik, segir henni, að lauslátar konur séu ekki til. Það sé hjátrú. „Aft- urámóti eru til kvenmenn sem sofa þrjátíu sinnum hjá ein- um karlmanni og kvenmenn sem sofa einu sinni hjá þrjá- tíu karlmönnum". Stúlkan hallast líka að þeirri trú „að það sé engin ást til, nema rómantískur tilbúningur, skemmtun handa geldfólki í kaupstað. Karlmaðurinn sé amboð, sem konan þurfi til að hafa frið við sjálfa sig.“ Á viss um stundum elski konan karl- manninn almennt, en engan sérstakan. Auk þessa Jer svo lýst miklu hugstríði af þeim aumu kjörum, að verða í ein- hverju formi að selja sig karlmanni til að. vinna fyrir barni sínu. Það er fróðlegt að bera þessa kenningu saman við það, sem Kiljan stal ungur frá Strind- berg og birti í Vefaranum, þar sem gerður er samanburöur á eiginkonunni, sem selur sig einum manni ævilangt, og vændiskonunni, sem kaup- andinn er laus allra ínála við eftir stutta stund. Auðvitaö hefir skáldiö nú orðið bæði kunnáttu og þrótt til að segja þetta á sjálístæðari hátt en þá. Og þessi kenning fellur, vel að trú efnishyggjumanna. Allir'heilbrigðir karlmenn eru eins gerðir efnafræðilega og enginn munur á st^rfsemi hinna blindu kirtla. Ög því skyldi þá ekki einn vera jafn- gott amboð sem annar? Þessu er ekki svarað í Atóm- stööinni, en vitnað gegn kenn- ingunni, þar sem Ugla sefur hjá „feimnu lögreglunni" og Búa Árland, en „skáldið brilj- antin“ hlýtur hjá henni pústra og ■ hrindingar fyrir flangs sitt og áleitni og syni alþingismannsins varnar hún að sofa hjá sér, án þess að gera sér nokkra grein fyrir mismunandi efnafræðilegri samsetningu mannanna. Þeg- ar faðir barnsins hennar, hinn fyrrverandi lögreglumaður, heimsækir hana norður í land með fullar hendur fjár, vill hún ekki sjá hann, en þeg- ar hann situr í fangahúsinu vegna klækja sinna og fjár- glæfra, þiggur hún fé af heim- spekingnum til að leysa hann út, því að hann er hennar maður og faðir barnsins hennar, daginn eftir að hún svaf hjá Búa Árland. Það er hvorki vit né rétt- dæmi í svona ástamálum, en þau þurfa ekki að vera ósenni- legri fyrir því. Viðbrögð Uglu verða helzt skýrð með því móti, að blindur metnaður og sjúkleg hræðsla við að verða keypt, stjórni henni, þegar um stjórn er að ræða. Barnsfaðir hennar vex ekki að mann- gildi við þaö, að klækjabörgð hans og fjárglæfrar bregðast, svo að hann lendir í fangahús- inu. en þá vill stúlkan kaupa sér hann í tölu frjálsra manna og eiga hann. Þetta stingur mjög í stúf við íslenzka menningu. Hvað, sem annars má um hjúskap og ástalíf almennt segja, þá er það algengast, að hjónabönd fólks á íslandi séu heiðarleg tilraun til samstarfs og sam- hjálpar, enda er sú skoðun að svo eigi að vera, orðin gömul, þó að margt megi segja um þær kröfur, sem stundum hafa verið geröar í því sam- bandi. Atómstöðin er að vissu leyti skrifuð út frá samningunum um Keflavíkurflugvöllinn. Við vitum annars staðar frá um skoðanir höfundarins á því máli. Hann hefir talaö um landráðamenn, sem hafi að réttu lagi fyrirgert lífi sínu, ef einhver vildi óhreinka sig á því að stytta þeim aldur. Það er því engin íurða, þó að þessi bók segi frá mönnum, sem keppa aö því marki, að selja landið Bandaríkjamönnum. En þó að lesandinn minnist þessa, er hann leitar skilnings á uppruna verksins, er ástæðu laust að krefjast þess, að skáld ritið lýsi rétt Keflavíkursamn- ingnum og tilfinningum þeirra, sem gerðu hann. Hitt er meira vert, að margir sannir drættir eru í lýsingu forsætisráðherra og Búa Ár- lands, sem er vel gerð og minnisstæð persóna. Búi er gáfaður og menntaður mað- ur, giftur heimskri og hégóm- legri konu, sem þar að auki er full af hroka og drambi, eins og eðlilegt er, þar sem saman fer auður og heimska. Sjálfur er Búi fjárplógsmaður mikill og þjóðfélagslegur sakamað- ur, en þreyttur á öllu saman og leiðist. Það er því eðlilegt, að hann hrífist af dalastúlk- unni ungu, heilbrigðu og hleypidómalausu, þessi lá- varður sjúkrar menningar og spilltra þjóðfélagshátta. að unglingum til prúð- mennsku og siðfágunar. Hitt er satt, að þýzk-júðsk-rúss- neskur kommúnismi getur orö ið áhangendum sínum andleg svölun eins og t. d. „sænsk- amrískur söfnuður“. En þaö eru til mörg hugðarefni, sem ekki snerta stjórnmálaátök, enda lýsir skáldið sjálft ungl- ingunum sem sátu inni í klæðaskáp og tefldu skák undir Jörfagleðinni, „þar sem var eins og allir væru trúlof- aðir öllum og menn sleiktu hver annan í belg og biðu, en eitt og eitt par draugaðist fram á gólfið með semingi til að jitterbugga litla stund, en útvarpið vár stillt á ameríska graðhestastöð með ferlegu hvíi og stórum fretum.“ — Og organleikarinn ræktaði rósir sínar án þátttöku í átökum borgaranna um dægurmálin. í þessari bók virðist það vera lífsskoðun, að börn gróða manna séu í sérstakri hættu að verða spilltur skríll, sem æpir að fólki á götunum, síel- ur sér að leik og leggst í svall og ólifnaö. Öllum unglingum hljóti að leiðast og byrja á þessu út úr leiðindum, nema ■þeir séu kommúnistar. Hér er sagan að vísú hálf- sögð. Þau börn, sem ekki vérða fyrir neinni snertingu af hug- sjónalífi og umbótavilja, eru ailtáf í hættu andlega. Sam- félag kommúnismans getur að sjálfsögöu verið andleg full- næging aö vissu marki, eins og K. F. U. M., en ekki hafa fræði kommúnista alltaf dug- Þessi bók er með einkennum mikils höfundar og það hefði ekki nema einn rnaður getað gert hana. Hér er snjöllum skáldskap hrært saman við ó- fyrirleitin kringilyrði. Þekktir atburðir eru teknir og endur- sagðir til að birta lífssýn skáldsins, og er hætt viö að mönnum verði það á, að meta bókina ef'tir afstööu sinni til þeirra, en slíkt ætti að var- ast. Til dæmis er beinamálið í þessari bók tákn þess hé- góma, sem hugsjónalausir broddborgarar finna gjarnan upp á í auglýsingaskyni, þeg- ar eðlisávísunin segir þeim, að þá vanti eitthvað, til að hylja andlega nekt sína. Kiljan er mikið skáld, en hann er kreddubundinn og á- stríða hans að brjóta allar regl.ur og- hefð á hugsunar- hætti eins og rithætti, of- býður smekk inargra. Það er mai'gt stórvel sagt í þessari bók en skáldskapurinn er blan’dinn hle'ýþidómum. Hér hefir verið byggt lista- verk, þó að sumur iburður- inn sé ekki smekklegur og og grunnurinn gæti verið traustari. H. Kr. Sextngiirt Hannes Hannesson Melbreið, Fljotuin Hann er fæddur að Haf- steinsstöðum í Skagafirði 25. marz 1888 og er því nýlega sextugur. Hannes ólst upp með móður sinni Steinunni Jónsdóttur, sem lengst af dvaldi í Hagánesi í Fljótum, en faðir hans Hannes Gott- skálksson dó áður en hann fæddist. Rúmlega tvítugur fór Hannes í Gagnfræðask. á Akureyri og síðar í kennara- skólann og lauk prófi þaðan vorið 1917. Síðan hefir barna kennslan verið aðal starf hans eða í rúm 30 ár, sem hann hefir verið kennari í Holtshreppi í Fljótum. Jafn- framt hefir Hannes rekið bú- skap að Melbreið í Fljótum. en þar hóf hann búskap vor- ið 1920 og kvæntist Sigríði Jónsdóttur frá Melbreið. Hafa þau eignast átta mann- vænleg börn og komiö þeim vel til manns. Hannes er fyrir margt sér- stæður maður. Áhugi hans í félagsmálum er óþreytandi. Hefir hann því komið mjög við félagsmálasögu Fljóta- manna undanfarin 13 ár. Átt sæti í hreppsnefnd, skatta- nefnd endurskoðandi Sam_ vinnufélags Fljótamanna. Verið áhugamaöur um hvers konar æskulýðs- og menning armál og haft því mikil af- skipti af starfsemi ungmenna félaganna þar. Þá hefir hann tekið mikinn þátt í starfsemi Framsóknarflokksins norður þar svo og Samvinnufélags Fljótamanna. Hannes hefir gert miklar umbætur á jörð sinni. Byggt allt upp aö nýju og ræktað mikið . Hannes er léttur í spori, glaður í viðmóti og vill hvers manns vanda leysa. Hann er fyrst og fremst einlægur og ósíngjarn framfaramaöur, sem kappkostar að láta sem mest gott af sér leiða. Slíkir menn eru aldrei of margir. Hann hefir skrifað nokkuö. Meðal annaís greinargóð fréttabréf í Tímann um ým- islegt í héraði hans, sem ýms ir lesendur Tímans munu minnast. D. Oerviáburöur Gott eitt er um þaö að segja að menn, sem áhuga hafa fyrir landbúnaði, geri sér grein fyrir kostum tilbý- ins áburðar — sem ég vil nefna gerviáburð, — og að komizt verði að sannri raun um, hversu mikil lyftistöfig hann muni geta orðiið ís- lenzkum landbúnaði. Ekki sízt eiga slíkar umyæður vel við nú, er fram er komið stjórnarfrumvarp til laga um stofnun verksmiðju til fram_ leiðslu gerviáburðar. Grein mín í Tím. 19.—2,— s.l., þar sem bent er á ókosti gerviáburðar, hefir þegar vak ið tvo menn, alnafna minn og Steinbjörn Jónssoil, til aö ræða málið í Tím. En ekki hefir þeim tekizt að færa fram sannfærandi rök gegn því, er ég sýndi fram á sem ókosti gerviáburðarins. Hjá báðum þessum andmælend-- um minum er eina röksemd- in fyrir ágæti gerviáburöar- ins sú, að hann knýi fram mikinn grasvöxt, og njótí enn álits í öðrum löndum, eftir ca. 50 ára notkun (og hér ca. 20 ára. Stb. J. kann- ast þó við, að komið hafi i ljós við rannsókn, að „lítils- háttar jarðvegsrýrnun hafði átt sér stað“ í Danmörku. Ai' því ályktar hann að „í meg- inatriðum hljóti þaö sama aci ,eiga við hér á landi .... þö jarðvegur sé eitthvað frá- brugðinn.“ — En er þessi á- lyktun ekki nokkuð hæpin? Ákvörðunin um j arðvegs- rýrnunina í Danm. er mjög' svo óákveðin; en hún mundi eiga að miðast við hve miklti var af að taka. Þar sem frjó- jörð er djúp og loftslag þurí't og hlýtt, eins og í Danm., er líklegt að jörðin þoli tæring’ gerviáburðar lengur en þai, sem þessi skilyrði eru lakari. T. d. er í þessu tilliti ekki sambærilegt ísland og Dan- mörk. í Danm. er lairdið mest þurr djúp leirmold, ísalda skafið hold af beinum Skand inavíu, steinefnarikur og mjög hitatækur jarðvegur, en. loftslag þurrt og hlýtt. — Hér yrði mest um mýra-nýrækt- artún, án frjómoldar, stein- efnasnauðan og lítt hita tæk- an jaröveg, og loftslag hér mikið rakameira og kaldara en í Danm. — Forn, ræktar- góð tún hér mundu nokkuð lengur þola að vera pínd til sprettu með gerviáburði; þar væri frjómold til að eyöa, og tæki því úttæringin lengri; tíma. Hvorugur andmælenda minna getur borið á móti þvi, að áburður, sem ekki færir jarðveginum föst efni sam- svarandi þeim, sem burt flutta ávöxtinn mynda, hvort sem hann er í formi mjöls eða lagar, sé jarðeyðandi á-: burður. Og hvorugur minnist á ánamaðkinn né starfsenii hans, og áhrif gerviáburðar- ins á hann. Hér er rannsóknar þörf. T. d. að gerð sé efnagreining jarðvegs og heys af 10—12' ára gamalli mýrar-nýrækt, sem einungis hefir fengi& gerviáburð (— þó skepnúra: sem á því fóðri áttu að lifa, hafi þegar gefið svar). Kæmi þá í ljós hvort satt er, að lahdiö sé svo pínt, tært og efnarúið, að hey af því sé næstum ónýtt fóður. Á með- (Frc.mhald á 6. síðu} ,

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.