Tíminn - 21.05.1948, Síða 3
Slj<: í. ' s’.'i
'Y.(\ Vi'
110. blað
TÍMINN, föstudaginn 21. maí 1948.
úr Hoits-
kreppi í Fijótum
Niðurl.
Símamálin
Árið 1942 var okkur norð-
ur hér sagt að leggja ætti
síma í sveitinni heim á þá
hæi, sem vildu fá síma. Ekki
stóð á bændum að æskja sím
ans en hvað skeður? Það var
lagður sími á 3 yztu bæi sveit
arinnar -r- búið og punktum.
Svo fór með þau loforð og þá
nýsköpun, en það er ekki þar
með búið. Landsímastöö
hafði verið um mörg undan-
farin ár á Brúnastööum til
mikils hagræðis fyrir Niður-
Fljótin. Þennan síma lét, ný-
sköpunarstj órnin svokallaða,
taka og flytja niður á sveit-
arenda. Ekki var það til hag-
ræðis fyrir sveitina eða þá,
sem. símann þurftu að nota.
T. d. mætti nefna sem dæmi
að hreppsstjóri sveitarinnar,
þarf að eyða mörgum klukku
tímum til þess að komast
þessa leið, þegar hann þarf
að nota landssímann. Hvern-
ig ætli hliðstæöum embættis-
mönnum í kaupstöðum þessa
lands þætti sú aðstaða?
Engar jarðvinnsluvélar sá-
um við hér í sveit í tíð fyrr-
verandi ríkisstjórnar. Það var
fyrst í sumar, er leið, að hing
að kom jarðýta, ræfill frá
búnaöarsambandi Skagfirð-
inga. Komst hún með harm-
kvælum yfir hálfan hrepp-
inn, þrátt fyrir dugnað og
vilja þeirra manna; sem
henni stjórnuðu.
Póstsamgöngur
Þá vil ég miinnast með
nokkrum orðum á póstsam-
göngur sveitarinnar í vetur.
Póstsamgöngum innan hér
aðs er svo fyrir komið, að
sendur er póstur 2 í mánuöi
írá Haganesvík um sveitina
og kemur sá, sem með póst
fer, heim á hvern bæ. Er það
hagræði frá því sem áður var,
• en mætti þó vera styttra á
milli pósjíerða.
Póstferðir til Haganesvikur
hafa verið undanfarna vetur
þannig, að flóabáturinn, sem
fer milli Akureyrar og Sauð-
árkróks kom einu sinni í viku
við og skilaði pósti. í vetur
hefir þessi bátur aldrei kom-
ið á Haganesvík. Liðu svo 6
vikur í vetur, að aldrei kom
póstur til Haganesvíkur, og
lagaðist þetta ekki fyrr en
rétt fyrir jól, en þá var eftir
mikið þjark og stapp fengið
bátkríli frá Siglufirði til að
flytja póstinn. Hefir svo
þessi bátur komið vikulega,
þegar fært hefir verið, en oft
hefir það komið fyrir, að liðið
hafa margir dagar, svo að
ekki hefir verið fært á milli
■og jafnvel hálfur mánuður
■eða meir. Þessar póstsam-
göngur, sem við höfum átt
við að búa í vetur, hafa ver-
ið fyrir neðan allar hellur og
verið okkur oft til hins mesta
■óhagræðis. Vil ég í því sam-
'bandi minnast á eitt dæmi
:af mörgum.
Pœrdómsrikt dœmi
Holtshreppur áttli kröfu-
xétt í útsvör tveggja manna
uppi í Skagafirði. Yfirskatta
nefnd Skagafjarðarsýslu tók
útsvarsskiptinguna til með-
ferðar 19. des. 1947. Útskrift
var útgefin 19. janúar 1948.
Urskurðurinn kærður og kom
til Reykjavíkur 22. febrúar
1948, eða réttum 2 mánuðum
eöa vel það eftir að yfirskatta
nefnd Skagafjarðar hafði úr-
skurðað að Holtshreppur ætti
engan lagalegan kröfurétt í
útsvörin. Ríkisskattanefnd
vísar þeim frá á þeim for-
sentum, að þeir hafi komið
3 dögum of seint. Svo fór
um sjóferð þá. Það má hik-
laust telja víst, ef samgöng-
ur hefðu verið betri, að þá
hefði Holtshreppur náð rétti
sínum, þótt úrskurðir _yfir-
skattanefndar lægju 1 mánuð
á skrifst. Skagafjarðarsýslu
áður en þeir voru sendir odd-
vita Holtshrepps, en ríkis-
skattanefnd reiknar tímann
frá því aö útsvarsskiptingin
fer fram og þar til kæran
berst henni.
Önnur hlið málsins
Það er annars fróölegt að
athuga þetta nokkru nánar,
því mál þetta hefir líka aðra
hlið ekki síður alvarlega, en
þá sem snýr að samgöngu-
vandræöunum.
Menn taki eftir því, að út-
svarsskiptingin fer fram 19.
desember 1947.
Útskrift var ekki gefin fyrr
en 19. jan. 1948. Úrskurðirnir
kærðir og koma til Reykj a
víkur 22. febrúar 1948 eða
2 mánuðum eftir að útsvars-
skipting fer fram. Helming-
inn af þessari tímalengd er
Úrskurðunum haldið á sýslu-
skrifstofunni. Þegar maður at
hugar þetta nánar þá yiröist
svo, að hreppur eða kaup-
staður geti ekki náð rétti sín-
um, séu kærur ekki komnar
til ríkisskattanefndar áður-
en tveir mánuðir eru liðnir
frá því að útsvarsskipting fer
fram.
Menn taki eftir því, að kær
unni er ekki vísaö frá af því
að Holtshreppur eigi ekki
kröfurétj; í áö-urgTeind út-
svör heldur hitt að kærurnar
koma of seint. Aftur á móti
virðist svo sem svona úrskurö
ir megi liggja svo og svo lengi
á sýslu- eða bæjarskrifstofu
áður en þeir eru sendir þaðan
eða útskrift látin fram fara.
Sé nú þetta svo, getur þá
ekki oröið erfitt fyrir sveitir
og jafnvel bæjarfélög að náf
rétti sínum í svona málpm? —
Ekki dettur mér í hug að
álíta, að yfirskattanefnd
Skagafjarðarsýslu vilji á
neinn hátt níðast á Holts-
hreppi heldur geri það rétt-
asta og saiinasta, sem hún
veit, en undarlegt er, að þetta
er í annað sinn að minnsta
kosti, sem Holtshreppur verð
ur að leita réttar síns til rík-
isskattanefndar í svona máli,
úrskurðuðu áf yfirskattanefnd
Skagaf j ai’ðar. í fyrra komu I
kærurnar nógu snemma í
hendur ríkisskattanefndar og
náði þá hreppurinn rétti
sínum.
Þá er og ekki síöur eftir-
tektarvert að nærliggjandi
kaupstaðir og aðrar sveitir,
sem . hreppurinn hefir sent
hliðstseöar kröfur á, hafa hilc
laust dæmdar réttar að vera
af yfirskattanefndum þeirra
kaupstaða og sýslna. Það ligg
ur við að segja megi um þetta
eins og karl einn sagði, eftir
að hafa hlustað á tvo pré-
dikara: „O, sussu, sussu ekki
ber þeim nú saman. Annar
segir ákveðið aö helvíti sé til,
en hinn neitar því harðlega,
ja, hverjum á ég nú heldur
aö,trúa“.
Hannes Hannesson
'7V'V»r£Í
W
..; -v-
-.tisr •
frá f jöhnörgum löndum sarrnar ágæti
samvinnufélaganna
Eflið samvinn.uhreyfingiincL!
Verzlið við kaupféioginl
Sambattd ísl. samvinnufélaga
L
I IJÍVV'.
Vegna nafnaruglings við hlutafélag, sem byrjaði
að reka veitingar að Hreðavatni fyrir tveim árum
(sbr. augl. þess nýlega um starfsstúlkur o. fl,), skal
tekið fram, að ég undirritaður rek Hreðavatnsskála.
' Hlutafélagið, sem nú á gamla skálann, er ég átti
áður og húsin umhverfis hann, heitir Hótel Hreða-
vatn.
Ferðamenn! Gætið þessa t. d. í símskeytum og
símtölum.. ■-(.:'
Velkomnir í Hreðavatnsskála!
Vigfús Guðmundssoni
• ofMaqiJdj/'
..................................................................................................,iii,,i,|,ó&íh»i*,Mi_*
Að lciðarlokum:
Þorsteinn á Hrafntóftum
Þorsteinn á Hrafntóftum
er fallinn frá. Hann andaðist
heima á Hrafntóftum 26.
marz s.L, 82ja ára gamall og
þrotinn mjög að þrótti.
Þorsteinn fæddist á Hrafn.
tóftum 20. ‘nóv. 1865, og ólst
upp þar. Faðir hans var Jón
bóndi Jónsson Þorkeissonar,
orðlagður kappsmaður við öll
sín störf. En móðir hans var
Ingigerður Þorsteinsdóttir,
bónda og hreppstjóra Run-
ólfssonar á Arnkötlustöðum.
Ingigerður mun hafa verið
óvenjulega ágæt kona, góð-
gjörðasöm og ljúf í lund. —
Konu, sem nú er komin yfir
áttrætt, en ólst upp í ná-
grenni Hrafntófta, farast svo
orð um hana: „Hún finnst
mér hafi verið hjartabezta
manneskjan, sem mér hefir
mætt á minni löngu æfi“.
Árið 1890 tók Þorsteinn v.ið
búi á Hrafntóftum og bjó þar
til vorsins 1924. — Um það
bil er hann hóf búskapinn,
var býlinu Steinstóft steypt
saman við Hrafntóftir. Bjó
Þorsteinn síðan á báðum jörð
unum. Á þessu jarðpæði býr
nú tengdasonur hans og tveir
synir, og er það fjórði ætt-
liöur í beinan karllegg, sem
býr á jörðinni.
Þorsteinn var tvíkvæntur.
Fyrri kona hans hét Sigríður
Pálsdóttir bónda á Gadds
stöðum og víðar. Hún varö
ekki gömul. Síðar kvæntist
hann Guðnýju Vigfúsdóttur
bónda í Skálakoti undir Eyja
fjöllum, Sighvatssonar. Þau
voru systkinabörn. Af börn-
um Þorsteins náðu þessi sjö
þroska og aldri: Elzt er Guð-
björg, ekkja í Reykjavík.
Hana eignaöist hann fyrr en
hann festi ráð sitt. Næst.er
að telja tvær dætur Sigríðar:
Pálínu, er fyrst giftist Bjarna
heit. Jónssyni, bónda á Álf-
hólum, en síðar Guðm. Þor-
steinssyni frá Berustööum.
Hann býr nú á Hrafntóftum.
Hin heitir Ingigerður, gift
kona í Rvík. Börn Þorsteins
og Guðnýjar eru þessi: Vig-
fús í Rvik, Sigurður bóndi á
Hrafntóftum, Rafn einnig
þar og Margrét, gift Birni
sýslum. Rangæinga Björns-
syni.
í æsku sinni mun Þorsteinn
hafa þótt hneigður meir til
bókar en búmannsstarfa. Og
víst muri bókást hafa valdið
því, að hann ungur lærði bók
band. Það stundaði hann síð_
an nokkuð, en þó aðallega tvo
síðustu áratugi æfi sinnar.
En þótt bústörf væru ef til
vill ekki ljúfasta viðfangs-
efni hans, var hann oftast
ma,nna fyrstur til að finna,
hvað til framfara 'horfði fyr-
(Framhald á 6. síöu)
| Tekið verður á móti árgjöldum félagsmanna í |
I skrifstofu félagsins, Stórholti 16, í dag, föstudag 21. J
I þ. m., kl. 8—10 e. h. og á morgun, laugardag 22., kl. |
!- 1—5 e. hád. §
ATH.- Þeir félagsmenn, sem ekki hafa greitt ár- ,§
§ gjöld sín fyrir aðalfund, verða strikaðir út. |j
1 STJÓRNIN. **-■ |
z *'**
Í.HMinni.iiii.
Rcykhiis - FrystlhMS
Niðursuðuverksmiðja — Bjúguagcrð
Reykjavík. Sími 1249. Símnefni: Sláturfélag:
Framleiðir og selur í heildsölu og smásölu : Niðursoðið-'
kjöt og fiskmeti, fjölbreytt úrval. Bjúgu og alls konar
áskurð á brauð, mest og bezt úrval á landinu. *
Ilangikjöt, ávallt nýreykt, viðurkennt fyrir gæði.
Frosið kjöt alls konar, fryst og geymt í vél-
frystihúsi eftir fyllstu nútímakröfum.
Verðskrár sendar eftir óskum, og pantanir afgreidd-
ar um allt land.
AUGLÝSIÐ í TÍMANUM