Tíminn - 11.09.1948, Side 1
Ritstjórl:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
------------------------
Skrifstofur i Edduhúsinu I
Ritstjórnarsimar:
4373 og 2353
Afgreiðslu- og auglýs-
ingasími 2323
Prentsmiðjan Edda
----------------------------
32. árg.
Reykjavík, laugardaginn 11. september 1948.
99. blað.
Síldveiðunum lokið
Storamir ú ^iðuiium
og floíiim í höfn í
gær.
í gær var illt veður norð-
anlands, stormur og rigning.
Öll skip munu nú vera hætt
síldveiðum og íarin að búa
sig til heimferðar, þau, sem
ekki eru lögð af stað eða kom
in heim.
í fyrramorgun glæddust
vonir rnanna aftur lítils hátt
ar um síldveiði, og fóru þá
mörg skip út á miðin til að
reyna í síðasta sinn í sumar.
Engin síldveiði var um dag-
inn og undir kvöldið spillt-
ist veður, svo að skipin utðu
að leita hafnar í fyrrinótt.
Mörg síldveiðiskip voru
inni á Siglufirði í gær og þá
gerðu allmargir upp við
verksmiðjurnar, þeir, sem
ekki voru búnir að því áður.
Segir það, sem þar fæst að
þessu sinni, lítiÆ til að bera
kostnaðinn hjá skipunum,
sem flest eru aðeins með
mjög lítinn afla.
Síldarverksmiðjur ríkisins
á Siglufirði og Raufarhöfn
eru nú einu verksmiðjurnar,
sem eru opnar til móttöku
síldar, en ekki er búizt við,
að til þeirra berist nein síld,
nema lítilræði, sem eftir er
í bátunum úr síðustu veiði-
ferð.
Annars er yfirleitt byrjað
að dofna yfir atvinnulífinu á
Siglufirði, þótt aldrei hafi
það staðið með miklum
blóma í sumar. Aðkomufólk
er nú að flykkjast burtu úr
bænum og haustsvipur að
færast yfir allt.
Flugferðirnar mikil
samgöngubót fyrir
í sumar hafa verið dagleg-
ar flugferðir milli Akureyr-
ar og Siglufjarðar, þegar veö-
ur hefir leyft. Standa ferð-
irnar í sambandi við áætlun-
arflug milli Reykjavíkur og
Akureyrar, þannig að farþeg
ar frá Siglufirði geta komizt
með stuttri viðdvöl áfram til
Reykjavíkur og farþegar frá
Reykjavík áfram til Siglu-
fjarðar. Hefir þannig verið
um tvær flugferðir að ræða
millli Akureyrar og Siglu-
fjarðar á degi hverjum, þeg-
ar flugveður hefir verið.
Með þessum hagstæðu flug
samgöngum er fengin mikil
samgöngubót. Auk þess er
orðið bílfært yfir sumartím-
ann yfir Siglufjarðarskarð.
Umboösmaður Fiugfélags
íslands, en það annast hinar
daglegu ferðir til Siglufjarð-
ar, er Jón Kjartansson.
Þannig blæs landiö upp. Þessi mynd sýnir börðin, sem myndast víða, '
þar sem sandurinn er að brjótaundir sig landið, og svo kemur að
því, að þessi börð hverfa líka og allt verður að auðn. Myndin cr
norðan úr I’ingeyjarsýslu
(Ljósm.: Guðni Þórðarsson)
ægí að fá aigerlega sjáif-1
virkar dieselrafstöðvar til |
heimiiisnota
Iveir menn Eétost og þrjátfy
særðust í óeirðunum í
fyrradag
Ásíandið I Berlln mjjög iskyggilegf
Á útifundinum, sem haldinn var á hernámssvæði Breta
í Berlín í gær létust tveir menn og yfir 30 særðust í óeirðum,
sem þá urðu. Rússar sendu í gær hermcnn og lögreglumenn
inn á hernámssvæði Breta til bess að taka myndir og safna
gögnum um óeirðirnar.
Til útifundar þessa var boð
að af jafnaðarmönnum og
fleiri lýðræðisflokkum. Söfn |
uðust • þarna saman um 300
þúsund manns og mót-
mæltu harðlega frelsisskerð-
ingu og lögleysum, sem hafð-
ar væru í frammi á hernáms-
svæði Rússa, svo og ofsókn-
um þeim, sem borgarráð Ber-
línar hefði orðið fyrir að
undanförnu. Safnaðist mann
fjöldinn saman á torginu
framan við rústir þinghallar
innar og voru þar haldnar
ræður. Nokkur mannfjöldi
réðst að Brandenborgarhlið-
inu og gerði sig líklegan til
að ráðast inn á hernáms-
svæði Rússa, en þar voru
rússneskir varðmenn. Skutu
þeir á mannfjöldann, er tveir
Þjóðverjar reyndu að klífa
upp á hliðið og taka niður
rússneskan fána, sem þar
var. Urðu af þessu einhver
vopnaviðskipti.
Særðust nokkrir menn og
einn lét lífið af sárum.
Eftir heimildum í gær er
nú talið, að tveir menn hafi
látizt í þessum óeirðum, en
yfir þrjátíu særzt. Rússar
sendu hermenn og lögreglu
inn á hernámssvæði Breta til
þess að kanna vegsummetki
eftir fundinn og óeirðirnar og
taka ljósmyndir af þeim. Á-
hyggjur Berlínarbúa hafa erin
vaxið við þessar óeirðir ■. og
telja þeir, að samkomuiags-
vandræði í borginni muni
enn vaxa að mun eftir þessa
atburði. Einnig er talið, áð
þeir geti haft mikil áhtif á
samkomulag hernámsveld-
anna í Þýzkalandi.
Brezka stjórnih
Mikill liu^inr I bæaidum að £á sér siígþurrk-
unartæki fyrir siæsta vor.
í Englandi er nú farið að framleiða benzín- og diesel-
rafstöðvar til heimilisnota, sem eru algerlega sjálfvirkar,
þannig að stöðin stöðvast, þegar síðasta ljósið er slökkt, og
fer aftur í gang, þegar fyrsta ljósið er kveikt. Landssmiðjan
hefir umboð fyrir þessar rafstöðvar, og hefir Tíminn fengið
hjá henni nokkrar upplýsingar, en þær eru taldar mjög hent
ugar fyrir sveitabýli, þar sem ekki er rafmagn frá stærri
aflstöðvum. Mjög margir bændur hafa þegar pantað þessar
íafstöðvar, en um innflutning þeirra er ekki vitað neitt enn
sem komið er.
Rafstöðvar þessar eru af
ýmsum stærðum, allt frá
500 upp í 6000 wött, og ganga
ýmist fyrir benzínhreyflum
eða dieselhreyflum. Slíkar
rafstöðvar hafa ekki verið
sjálfvirkar til þessa og hefir
orðið að nota geyma, sem
eru bæði dýrir og endingar-
litlir. En þessar rafstöðvar
eru algerlega sjálfvirkar,
þannig, að hreyfillinn fer í
gang, þegar straum er hleypt
á, t. d. kveikt fyrsta ljósið, og
stöðvast síðan, þegar síðasta
ljósið er slökkt. Er þetta til
geysimikilla þæginda og
mun auk þess hafa í för með
sér nokkurn sparnað. Þæg-
indin eru í því fólgn fyrst og
fremst, að hægt er að setja
straum á og bregða upp ljósi
hvenær sem er, án þess aö
nota þurfi geyma.
Verksmiðjur þær, sem
framleiða rafstöðvar þessar í
Englandi, nefnast Morrison
Automatic og eru þekktar að
framleiðslu góðra rafvéla og
fleiri véla. Verð vélanna er
ekki mjög hátt, en misjafnt
eftir stærð. Er það áætlað frá
2700 að 9700 kr. Stöðvarnar
eru bæði til með riðstraum og
jafnstraum og eru af mörg-
um mismunandi stærðum.
Síðan Landssmiðjan aug-
lýsti þessar vélar fyrir
skömmu, hefir borizt fjöldi
fyrirspurna um þær og virð-
ast bændur hafa mikinn hug
á að afla sér þessara raf-
stöðva. Um innflutning þess-
ara rafstöðva er þó allt óráð-
ið enn, vegna gj aldeyrisörð-
ugleika, en Landssmiðjan ger
ir sér vonir um. að geta út-
vegað þær með stuttum af-
greiðslufresti, ef gjaldeyris-
og innflutningsleyfi fást.
Útvegun þessara rafstöðva,
(Framhald á 7. siðu)
Bátur frá Hafnar-
firði finnur síld við
Krísuvíkurbjarg
Engin teljandi síld-
veiddist við Reykja-
nes I snmar.
Fyrir nokkrum dögum byrj
aði einn vélbátur frá Grinda
vík, Hrafn Sveinbjarnarson,
að róa með reknet. Hefir
hann lagt fjórum sinnum, en
aldrei aflað svo teljandi sé.
í fyrstu tvær næturnar
veiddist ekki neitt. Þriðju
nótina veiddust fimm tunnur
og í fyrrinótt veiddust 11
tunnur.
í nótt lét báturinn reka
íít af Krísuvíkurbjargi og
Herdiaarvík. Bárust fregnir
um það í gær, að bátur frá
Hafnarfirði hefði séð þar all
mikla síld. Bátur sá var með
nót, en gat ekki kastaö á
síldina, sökum þess hve
grunnt var þarna, og veiddi
því ekkert af síldinni.
Þó að síld hafi öðru hvoru
sézt við Reykjanes í sumar
hefir aldrei veiðzt þar neitt
sem teljandi er.
Fimm Grindavíkurbátar
voru á síld fyrir norðan í sum
ar, og eru þrír þeirra komnir
heim, en hinir á leiðinni.
ræddi skýrslu her-
námsstjórannaígær
Brezka stjórnin hélt fund í
gær og ræddi skýrslu frá
fundi hernámsstjóranna í
Berlín. Bevin var kominn úr
fríi sinu, og Attlee forsætis-
ráðhérra, sem legið heíir. í
sjúkrahúsi aö undanförnu, en
er nú á batavegi, kom á- fund-
inn og stjórnaði honum. Eft-
ir fundinn lét hann þó aka
sér þegar í sjúkrahúsiö aftur.
Stjórnin mun koma aftur sam
an á fund á fimmtudaginn
kemur og hlýða á skýrslu
Bevins um utanríkismál og er
þá gert ráð fyrir, að Attlee
verði orðinn heill heilsu.
Nýtt drengjamet
í sleggjukasti •
Á innanfélagsmóti í KR í
gærkvöldi setti Þórður Sig-
urðsson nýtt drengjamet í
sleggjukasti, 47.95 m. Gamla
drengjametið átti Ólafur Sig
urðsson frá Vestmannaeyj-
um.
Er þetta i þriðja skiptið í
sumar, sem drengjametið 1
sleggjukasti er bætt.