Tíminn - 15.10.1948, Side 1
Ritstjárii
Þérarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgejandi:
Framsóknarflokkurinn
32. árg.
TÍMINN, föstndaginn 15. okt. 1948.
Skrifstofur i Edduhúsinu
Ritstjórnarsímar:
4373 og 2353
Afgreiðslu- og auglýs-
ingasími 2323
Prentsmiðjan Edda
227. blað
Landsmót U.M.F.I. undirbúið
Einfiver fuilkomnasti íbróttavöílur !a
nærrí
FitUirKum frá Stissuaii Nurlíurlöfidurditii
finajua iiffiðið á mótið.
Næsta sumar verður halðið að Eiðum sjöunda landsmót
ungmennafélaganna. Er þegar hafinn mikiil undirbúningur
undir mótið, sem vafalaust verður lang glæsilegasta lands-
mótið, sem haldiö verður, ef engin óvænt atvik hindra.
Sambandsráðsfundur ný-
staðinn.
Á sambandsráðsfundi Ung-
mennaíélags íslands, sem
haldinn var hér í bænum 2.
og 3. þessa mánaðar, var rætt
um fyrirhugað landsmót ung
mennafélaganna að Eiðum,
og var það aðalmál fundar-
ins. En auk þess var rætt um
breytingar á lögum UMFÍ og
ýms önnur mál sambandsins.
Pundinn sátu stjórn Ung-
mennasambands íslands og
héraðssambandsstjórnir ung
mennasambanda víðsvegar
að af landinu.
Landsmótið að Eiðum um
fyrstu helgi í júlí.
LancLsmótið að Eiðum verð
ur haldið um fyrstu helgina í
júlí næsta sumar. Stendur
mót'ð í tvo daga, laugardag
og sunnudag, og fara íþróttir
og skemmtanir fram báða
dagana.
Dagana tvo næstu fyrir
landsmótið verður haldið að
Eiðum sextánda sambands-
þing ungmennafélaganna.
Boðið gestum frá öllum
hinum Norourlöndunum.
Stjórn Ungmennasam-
bandsins hefir ákveðið að
bjóða hingað næsta sumar,
til að taka þátt í mótinu, full
trúum frá ungmennasam-
böndum allra hinna Norður-
landaþjóðanna fimm og verð
ur Færeyingum þar ekki
Fjársöfnun S.Í.B.S.
gengur vel
Eins og frá hefir verið skýrt
er tiu ára afmæli Sambands
íslenzkra berklasjúklinga 23.
október. Fyrir nokkru hóf sam
bandið fjársöfnun og setti sér
það markmið að afla hálfrar
milljónar króna fyrir þetta
afmæli sitt. Á að verja þvi fé
til þess að fullgera stórhýsið
að Reykjalundi.
Vonir eru til, að þessu marki
verði náð á tilsettum tíma. Á
berklavarnadaginn söfnuðust
að minnsta kosti 240 þúsund
krónur, og síðan hefir allmik-
iö af gjöfum safnazt. Liggja
gjafalistar frammi hjá um-
boðsmönnum S.Í.B.S. um land
allt og i flestum meiriháttar
vinnustöðvum.
gleymt. Er heimboð þetta í
nokkru sambandi við þátt-
töku íslenzkra fulltrúa á
æskulýðsvikunni í Krogerup
síðasta sumar.
Er þetta jafnframt í fyrsta!
skipti, er ungmennafélögjn
hér bjóða gestum frá hinum!
Norðurlöndum á landsmót I
sín. En ungmennafélögin ís- ;
lenzku hafa í hyggju að að1
taka upp miklu nánari sam-
vinnu við ungmennafélög
hinna norðurlandanna i fram
tíðinni. Hefir slík samvinna
mikla þýðingu til að auka
þekkngu og samstarf æsku-
lýðsins á Norðurlöndunum.
En alls staðar á Norðuríönd-
um eru starfand öflug ung-
mennasambönd.
Einhver glæsilegasti íþrótta-
völlur Iandsins að Eiðum.
Ungmenna og iþróttasam-
band Austurlands, sem er
mjög öflugur og starfsamur
félagsskapur, annast allan
undirbúning mótsins, hefir
þegar sýnt mikinn stórhug og
fórnfýs í þeim undirbúningi,
sem unninn hefir verið.
Hefir undanfarið verið unn
ið að gerð íþróttavallar að
Eiðum, sem á margan hátt
veðrur einstakur í sinni röð
hér á landi. Er vallargerðinni
nú langt komið, svo tiltölu-
lega lítið e'r eftir óunnið.
Er völlurinn búinn ýmsurn
þægindum, sem nýstárleg
þykja hér á landi, en auk þess
er vandað til byggingar hans
á allan hátt og einskis látið
ófreistað til þess að gera
hann sem beztan.
Til dæmis má nefna þaö,
að fluttar hafa verið fjöl-
margar birkihrúslur um
þriggjametra háar og settar
niður í kringum völlinn. Þá
hafa verið gerðir pallar og
sæti við völlinn handa áhorf
endum.
Sundlaug byggð við íþrótta-
völlinn.
Skammt frá íþróttavellin-
um hefir verið byggð sund-
laug, sem er útilaug upphlað-
in. Hefir Ungmenna- og I-
þróttasamband Austurlands
einnig annazt þá framkvæmd
með miklum myndarbrag.
Þá hefir verið gert rúmgott
bílastæði hjá Eiðum, en á
þeim farartækjum munu flest
ir koma til samkomunnar.
Stórri tjaldbcrg er æflaöur
staður.
Ým'ss konar annar undir-
búningur hefir þegar verið
unninn á Eiðum. Gerður hef-
ir vefið sk; pulagsuppdráttur
af mótsstaðnum og er mikilli
i tjaldborg ætlaður staður,
skamrnt frá íþróttavellinum.
Þegar að mótinu kemur,
verður séð um, að hægt verði
að taka á móti gestum eins j
, vel og föng eru á. Almennt
er gert ráð fyrir, að búið
verði í tjöldum, en hvers kon
ar beini og ve'tingar verða
til reiðu að Eiðum.
Margs konar skemmtiatriðí.
Mótið stendur í tvo daga,
eins og áður er sagt. Verða
báða dagana margs konar
skemmtiatriði, en íþróttirnar
verða þó aðalviðburður móts-
ins. Keppt verður í fjölmörg-
um greinum íþrótta, en auk
þess verða hópsýningar í-
þróttaflokka. Önnur dag-
skráratr.'ði eru guðsþjónusta,
ræðuhöld, kórsöngur og stutt
ávörp, sem hinir erlendu gest
ir munu flytja. Ennfremur
verður kvikmyndasýning,
þjóðdansar og ýmislegt fleira
til skemmtunar.
Verður Iíklega glæsilegasía
æskulýðsmót, sem haldið
hcfir verið hér á landi.
Þetta landsmót mun sækja
mikill fjöldi íþróttamanna
víðs vegar að af landinu. En
auk þess má gera ráð fyrir
mjög mikilli aðsókn ung-
mennafélaga og annarra, er
eigi að taka þátt í íþróttun-
um. Er þegar far ð að skipu-
leggja hópferðir úr fjarlæg-
um byggðarlögum til móts-
ins.
Forustumenn ungmenna-
félaganna munu líka leggja
áherzlu á það að gera mótið
sem glæsilegast, má vænta
þess, að þetta verði einhvert
glæsúegasta æskulýðsmót,
sem haldið hefir verið hér-
lendis.
Frá síðasta lanclsmóti U. M. F. í. — slcrúögangan lcggur
Laugaskóia.
frá
m allur hraðlrysti fiskur-
'nn fra Sressu iri sel
Fyi*ír iBseSal|Sí«-as|s!M efMaliag'ssamvimiMSíefin
aiiaB'ismar í Waslúngton
Undanfarna mánuði hefir ríkisstjórnin vcrið að leita fyr-
ir sér um sölu á því magni af hraðfrystum fiski, sem ennþá
er óselt af þessa árs framleiðslu. Nú hafa tekizt samningar
vijð efjiahagssamvinnustofnunina í Washington um sölu á
mcginhluía þess fisks til ríkja, cr taka þátt í endurreisnar-
áætlun Evrópu.
Georg Bretakonung
ur ávarpar forsæt-
isráðherrafundinn
Georg Bretakonungur ávarp
aði 1 gær fund forsætisráð-
herra brezku samveldisland-
anna. Lagði hann áherzlu á
nauðsyn þess, að samveldis-
löndin héldu hópinn og
treystu vináttuböndin sín á
milli.
Salan fer fram á þeim
grundvelli, að efnahagssam-
vinnustofnunin veitir íslandi
3,500,000 dollara gegn þvl, að
samsvarandi upphæð í ís-
lenzkum krónum verði greidd
inn á sérstakan reikning í
Landsbanka íslands, er notist
til greiðslu á fiskinúm. —
Þessi upphæð tíregst frá
11,000,00 dollara framlagi því,
sem íslandi hefir veriö úthlut
að fyrir íímabiliö 1. júlí 1948
til jafnlengdar 1949.
Nú er óselt í iandinu um 9
þúsund smálestir af hraðfryst
um fiski, en láta miui nærri,
að 8000 smálestir af hraðfryst
um fiski séu að verðmæti 3V2
milljón dollara, þegar miðað
er við það verð, sem rikissjóð-
ur ábyrgist framleiðendum.
mjöl.
Samningagerð
Bændaflokksins
og jafnaðarmanna
Áöur hefir íslandi verið út-
hlutað 1,900,000 dollara frá
efnahagssamvinnustofnun-
inni, fyrir síldarlýsi og síldar-
í 5V
Sex manna nefndir frá jafn-
aðarmönnum og Bænda-
flokknum í Svíþjóð hafa að
undanförnu rætt um liugsan-
lega stjórnarsamvinnu þess-
ara flokka. Síðasti fundur
þessara nefnda var haldinn í
gær, og tilkynnti Erlander
forsætisráðherra að honum
loknum, að nú yrði málið Iagt
í hendur þingflokkanna og
þeim skýrt frá, hvaöa árang-
ur hefði náðst.
Pafestínumálin til
• •
umræðu í Orygg-
isráðinu
Palestínumálin voru til um-
ræðu á fundi öryggisráðsins
í gær. Bramuglia setti fund-
inn og skýrði frá því, að bor-
izt hefði kæra frá hinmn
nýja sáttasemjara í Palestínu
um griðrof, sem þar hefðu ver
ið framin.
Fuiltrúi íraks mótmælti því,
aö kæran yrði tekin á dagskrá
í öryggisráðinu, og naut hann
stuðnings fulltrúa Rússa og
Úkráínumanna. Þó fór svo.'að
samþykkt var með átta sam-
hljóða atkvæðum, að kæran.
skyldi tekin á dagskrá.
Sáttasemjarinn tók þá tii
máls og deildi hann allfast á
Sameinuöu þjóðirnar fyrir að
‘ gerðaleysi þeirra í Palestínu-
málunum. Sagði liann, að það
j heíði verið látið afskiptalaust,
; þótt grið væru rofin á hinn
, freklegasta hátt austur þar,
| og hefðí til dæmis ekkert ver-
j ið gert til þess að koma fram
i hegningu við þá, sem sekiv
væru um morð Bernaöotte
greiía. Ekki heföi einu sinni
verið reynt að rannsaka það
mál.
Cadogan, fulltrúi Breta, bar
þá fram tillögu um það, ao
öryggisráðið skipaði Gyðinga-
stjórninni að senda þegar
rækilega skýrslu um rann-
sókn þá, sem hún hefði látið
gera í morðmálinu.