Alþýðublaðið - 27.03.1920, Side 2

Alþýðublaðið - 27.03.1920, Side 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ St. Mínerva nr. 172 heldur fund í Lcvöld í G.-T.- húsinu niöri kl. 81/*. J3E. t. að koma upp sápugerð. Því höf- um við stofnsett verksmiðju inn við Bjarmaland, sem nú þegar býr til blautasápu, stangasápu, sápuspæni og vagnaáburð". „Notið þið ejngöngu innlend efni?“ „Enn, sem komið er, höfum við ekki getað það, því(sum efnin eru ófáanleg hér heima. Annars getur maður ekki skýrt frá þeim töfra- meðulum, sem við notum til að gera vöruna betri en erlenda“. „Auðvitað ekki. En hvernig er varið þeim tegundum, sem verk- smiðjan framleiðir?“ Um leið og vér spurðum, kom skrifstofustjóri Sigurjóns, hr. Ól- afur Gíslason, inn með pakka; var í honum askja, mjög vandlega út- búin, full af blautasápu, stanga- sápu og sápuspónum. Blautasápan er brún að lit, ekki óáþekk þeirri, sem hér hefir verið notuð að undanförnu, en sem væntanlega verður ekki lengur. Stangasápan er ferhyrnd, eins og Sunlight-sápa í laginu. Eru til af henni tvær tegundir, hvít og ljósblá. Með hinni síðar nefndu þarf enga „blákku“, því í henni eru sams- konar efni. Sápuspænirnir eru í skrautlegum pakka og líta mjög vel út. Auk þessa sýndi Ólafur oss öskju með vagnaabutðí, en um hann kunnum véi minnn að segja, en sápuna, þvi ana hofum vér þegar latið reyna, og mun varla finnast betri sápa hér, svo astæðu- laust er að kaupa erlenda vöru, þegar þessi tilraun h.f. Seros hefir gefist svo vel. Sigurjón gerðist heldur „glím- inn“, þegar hann svaraði spurn- ingunni um þá framleiðslu, sem í ráði væri að koma af stað. „Við gerurn ráð fyrir að geta bráðlega framleitt skósvertu, og seinna meir handsápu!" „Hvað margir menn vinna við verksmiðjuna?“ „Nú sem stendur 3, en munu verða fleiri, þegar fram í sækii". „Hver er verkstjóri ykkar?“ „Norskur maður, Fjeldberg að nafni — en það hefir entrin áhrif á þá staðreynd, að iðnaðumm er íslenzkur, og þess vegna er ekki nema sjálfsagt, að almenningur kaupi hann að öllu jöfnu. Hingað til hafa erlendir menn legið oss á hálsi fyrir það, að vér létum þá græða á því, að verka og til- reiða íslenzkar vörur, og keyptum þær svo af þeim aftur". Eg kvöddi svo Sigurjón og skrifstofustjóra hans. — Það ætti að vera öllum ánægju- efni, að svo er komið, að hægt er að þvo fötin með islenzkri sápu, sem auk þess stendur alls ekki að baki erlendri. Jón. ♦ Bankamálið. Hr. ritstjóri! Gerið svo vel og ljáið rftirfar- andi línum sem fyrst rúm f heiðr- uðu blaði yðar. Nafn mitt er að finna aftan á þessu blaði, en eg óska þess ekki getið, nema það sé skilyrði fyrir því að þér birtið greinina. Hefír stjórnin íhugað hverjar munu afleiðingarnar, ef að hún skipar ekki rannsóknarnefnd í íslandsbankamálið og leggur sig ekki drengilega fram til þess að opinber verði í máli þessu sann- leikurinn, allur sannleikurinn og ekkert nema sannleikurinn. Hefir stjórnin gert sér Ijóst, að hún væri þá að vinna að óöld í landinu, sem, ef ákærurnar um bankann eru sannar, mundi lýsa sér í: fyrirlitningu á lögum landsins, lítilsvirðingu á þingi, stjórn og löggæzlunni yfirleitt (sem þó varla má við meiru af þvf tagi), vax- andi ásælni óhlutvandra, innlendra gróðamanna, aukinni dirfsku og drotnunargirni útlendra stórgróða- fyrirtækja, niðurdrepi opinberrar réttlætis- og sómatilfinningar, kúg- un og lömun á viðleitni einstakl- inga, er vilja vinna að hreinsun hins opinbera lífs, almennri tor- trygni og lítilsvirðingu á ríkinu, bæði innan lands og utan. Ef ákærurnar eru rangar, þá er með aðgerðaleysi bankans sjálfs og stjórnarinnar, hverjum labbakút gefið undir fótinn með að ráðast á hvern heiðvirðan mann og heið- virða stofnun, sem hann lystir, með ærumeiðandi skömmum og svívirðingum. En hvort sem ákærurnar eru réttar eða rangar, er niðurstaðan í aðalatriðum sú sama, ef ekki er tekið til athafna fljótt og svika- laust, nefnilega almenn tilfínning réttleysis og yfirgangs og veiklun þjóðfélagsins. Þess vegna ættu allir, hver sem skoðun þeirra er á réttmæti ákær- anna, að sameinast um það, með blöðin öll í broddi fyikingar, að krefjast þess af stjórninni (ef hún verður þá ekki fyrri til), að hún skipi tafarlaust sérstaka rannsókn- arnefnd í þetta mál, nefnd, sem allir yrðu að kannast við að væri veruleg trggging fgrir sigri þess, sem satt er i máli þessu. Dansk-Islandsk Samfund. (Dansk-íslenzka félagið.) Félag þetta, sem mörgum íslend- ingum (ætti að vera öllum) er að góðu einu þekt, hefir nú, þrátt fyrir hina miklu erfiðleika, sem af f stríðinu hafa leitt, ráðist í að gefa út mánaðarrit, Budbringeren (Boð- berinn), sem eftir 1. númeri þess virðist gefa góðar vonir um að það muni að engu leyti standa að baki ritum þeim, sem félagið hefir gefið út. Félagið á fyrir sér góða framtíð og Islendingum ber eink- um skylda til að stgðja að þvi. + JS<lie&<Ie-iu:Ui<> Khfön 25. marz. Holland og Belgta hafa nú orð- ið á eitt sátt um mál það er risið hafi milli þeirra út af siglingaleið- unum í mynni Schelde-fljótsins. [Belgir vildu fá rétt til þess að laga skipaleið þar, þegar fljótið kastaði sér án þess að spyrja Hol- lendinga að, sem eiga land báð- um megin við fljótsrnynnið.]

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.