Tíminn - 05.12.1948, Blaðsíða 6
6
TÍMINN, sunnudaginn 5. des. 1948.
269. blað
(jantla Síé
Fljótsmdi gull
(Boom town)
Sýnd kl. 9
Georg á liáluui ís
„I See Ice“
Sprenghlægilftg' * 'gamanmynd
með enska skopleikaranum.
GEORGE FORMBY
Kay Walsh
Betty Stockfield
Sýnd kl. 3. 5 og 7
Sala hefst kl. IX f. h.
7'riptli-bíé
„Viitu koma, vina
(I love a Bandlear)
Amerísk mynd frá Columbia
Pictures.
Phil Harris
Edward Andersen
(„Rochester")
Leslic Brooks
Sýnd kl. 7 og 9
ÐSCK SMD
SKIPSTJÓRINN 15 ÁRA
Ælvintýramyndm skemmtilega
eftir skáldsögn JULES VERNE
sýnd vegna fjölda áskorana í
dag klukkan 5
Sýnd kl. 3 og 5
Sala hefst kl. 11 f. h.
Aííræðnr.
(Framhald af 5. slðuj.
um jafnt í sveitum og viö
sjó. Þetta er kynslóð sem hef
ir unnið afrek, er á sér enga
hliðstæðu í sögu þjóðarinn-
ar, og g efast um, að því
mati hennar verði nokkurn
tíman hnekkt, a. m. k. þegar
litið er á allar aðstæður.
Bjarni er í fremstu röð
meðal góði'a fulltrúa sinna
samferðamanna. Hann hefir
alltaf verið — og verður fram
í andlátið — einn af þessum
drenglunduðu og hreingerðu
kjarnakörlum með víkings-
lund, sem aldrei bugast þó
að á móti blási.
Sveitungi
'UÚteiéié ~T'wam
úMi í Jímamnt
Wtjja Síé
Dæmdlr meirn
(Brute Force)
Stórfengleg amerísk mynd, sem
fjallar um lífið í Bandarískum
fangelsum.
Burt Lanchester
Ilume Cronyn
Vvonne De Carlo
Ella. Rains
Bönnuð börnum yngri en 16 ára
Sýnd klr 7 og 9
Sakamálaritar-
inn
Ævintýrarík og spennandi
mynd með fallegum söngvum.
Sýnd kl. 3 og 5
Sala hefst kl. 11 f. h
Sœjaríié
H afnarfiröi
Astarómar
Vel leikin ungversk músikmynd
Danskur texti.
Sýnd kl. 7 og 9
Reimleikariiir á
herragarðinnm
Hlægileg sænsk draugamynd
Danskur texti.
Sýnd kl. 3 og 5
Sími 9184
Fasteignasölu-
miðstöðin
Lækjargotu 10 B. Síml 6530.
Anniust sölu fasteigna, skipa,
bifreiða o. fl. Ennfremur alls
konar tryggingar, svo sem
brunatryggxngar, innbús-, líf
trygglngar o. fl. í umboði Sjó-
vátryggingarfélag Islands h.
f. Viðtalstími alla virka daga
kl. 10—5 aðra tíma eftir sam-
Jóhannes Elíasson
— lögfræðingur —
Skrifstofa Austurstræti 5, III. hæð.
(Nýja Búnaðarbankahúsinu)
Teflt á tvær
hættur
(Lef farliirt)
Aðalhlutverk leikur norska
frelsishetjan. . Lauritz Falk,
ásamt
Elof Ahrle,
Irma Christenson,
Stig Járrel.
Bönnuð börnum innan 12 ára
Sýnd kl. 5, 7 og 9
Sala hefst kl. 11 f. h.
Þan hittust í
myrkri
Framúrskarandi spennandi og
vel leikin ensk mynd.
Aðalhlutverk leika:
James Mason
Joyce Howard
Tom Walls
Sýnd kl. 7 og 9
Sími 9249
Ijamaúíé
ViStaistíml 5—7.
Sími 7738.
öiiver Twist
Sýnd kl. 9
Milli lieims og
helju
(A Matter of Life and Death)
Skrautleg og nýstárleg gaman-
mynd í eðlilegum litum. Gerist
þessa heims og annars.
David Niven
Roger Livesey
Raymond Massey
Kim Hunter
Sýning kl. 3. 5 og 7
Sala hefst kl. 11 f. h.
Hafaartfjtiriarííé
Bergur Jónsson
Málaílutningsskrifstofa
Laugaveg 65, sími 5833.
lleima: Ilafnarfirði, sími 9234
BERNHARD NORDH:
I JÖTUNHEIMUM
FJALLANNA
11. DAGUR
W44*54««4SS444W4Í54Í
t ISLENDINGASÖGURNAR
<s<
S í geitaskinn.sban.di
tt-. -i •**&
«♦»
«♦ ♦
«-* -
Þeir, sem beðið hafa oss að útvega sér úrvalsband á íslend-
ingasögurnar, eru beðnir að sækja þær á skrifstofu útgáf-
*• *
unnar liið fyrsta.
«• *
| Islendingasögurnar bundnar í geitaskinn, kosta kr. 750,00.
»♦ •'. •
l\ Tilvalin tækifæris- og jólagjöf.
«♦
♦♦ jT
I Islendingasagnaútgáfan
-
Pósthólf 73. — Túngötu 7. — Sími 7508. — Reykjavík.
M
únnnntntnnnntnnnnnnn:::::::::::::::::::
::
«
í vegginn. Þarna var dálítil gryfja undir gólfinu, og þar
voru kartöflurnar geymdar.
Páll og Sveinn Ólafur sátu að snæðingi, þegar Jónas
kom inn. Páll var elztur af systkinUnum, og langur, beina-
ber líkami hans bar vitni um það, að hann hafði marga
áraun orðið að þola. Jafnvel móðir hans minntist þess
ekki, að hún hefði nokkurn tíma heyrt hann hlæja. Þeg-
ar á barnsárunum hafði fjallaauðnin og ábyrgðartilfinn-
ingin brennt hann sínu marki, og nú var nafn hans orðið
víðfrægt í fjallabyggðunum. Stundum bar við á messudögum
í Fattmómakk, aö feöur bentu ungum sonum sínum á hann
og sögðu:
— Sjáðu — þarna er Páll í Marzhlíð — hann skaut
bjarndýr, þegar hann var þrettán ára.
Sveinn Ólafur var hér um bil höfði lægri, en axlirnar
voru undrabreiðar. Hann undi sér bezt, þegar hann sat í
báti úti á vatni og dró inn net, og hann var manna frið-
samastur, nema svo vildi til, að hann hafði sopið hraust
lega á brennivíni. Það kom þó sjaldan fyrir. Hann bragðaði
ekki áfengi, nema þegar hann fór á markað eða einhver
bauð honum í staupinu. Sveini Ólafi veittist erfitt að segja
neitt. Það var hans mikli veikleiki.
Jónas settist á eldiviðarkassann við dyrnar. En kona Páls
lét hann ekki lengi í friði. Hann átti að sjá, hvað ísak
hefði stækkað! Jónas rölti gegn vilja sínum að vöggunni,
sem hékk á tveimur spottum í loftbitanum og minnti einna
helzt á bát. í augum hans var barnið eins og hvert annað
rekald á lífsins sjó,. og takmarkaðar líkur til þess, að það
fengi að lifa og dafna.
— Er hann ekki fallegur?
Jónas kinkaði kolli, en svipurinn sýndi þó, að honum
fannst allt annað. Fallegur — þessi angi? En hvað kven-
fólk gat verið barnalegt.
Hin unga móðir sá þó ekki hæðnisdrættina kringum
munn Jónasar. Athygli hennar og aðdáun beindist að barn
inu, og það, sem hún sá, var að minnsta kosti fallegt- Kona
Páls var hávaxin og björt yfirlitum, bláeyg og glaðvær.
Hún hafði alizt upp í nýbyggðinni við Malgómajvatnið, og
fólkið þar var enn undrandi yfir því, að hún skyldi hafa
yfirgefið heimili sitt til þess að setjast að í afdalakoti eins
og Marzhlíðinni.
Kona Sveins Ólafs dáðist hér um bil eins mikið að barn-
inu og móðir þess. Hún var mögur og fölleit, með stór,
hvikul og einkennileg augu, sem virtust senn sjá allt og
ekkert. Hún átti bernskuspor í byggð, sem var því nær eins
afskekkt og Marzhlíðin. Hún hét ólafía r óvenjulegt nafn
á þessum slóðum, þar sem þörrinn af konum hét Birgitta
— Marta — Kristín — Eiríka. Kona Páls hét Marta, en
var kölluð Margrét til aögreiningar frá Mörtu, systur þeirra
Marzhlíðarbræðra.
Það var föður Ólafíu mikil gáta, að hún skyldi haldast
við í Marzhlíð. Viku fyrir hjónavígsluna, sem fór fram í
! Fattmómakk, hafði hann farið með stúlkunni að Marz-
. hlíð. Þangað höfðu þau feðginin ekki komið áður. Þeim
' var fagnað meö graut, sem búinn var til úr fjallagrösum,
saltgrasi og mjölhnefa. Það kostaði fimmtíu krónur að
| ógilda lýsinguna, sem fram hafði farið, en faðir Ólafíu
. var fús til þess að borga þessa miklu peningafúlgu, til
j þsss að forða henni frá fátækt og eymd, sem hér hrópaði
til himins. Víst grét Ólafía sárt þennan dag, því að Marz-
hlíðin reyndist jarðneskari en sú Paradís, sem Sveinn Ólaf-
ur hafði lýst fyrir henni. En hún varð kyrr, og hingað til
hafði hún aldr;»i iðrazt þess. Hún bar takmarkalausa lotn-
ingu fyrir manni sínum, var feimin og fælin eins og lítill
skógarfugl, lék við ísak eins oft og hún gat við komið og
harmaöi það, að hún skyldi ekki sjálf verða barnshafandi.
Nú sat hún á rúmstokki sínum og hlustaöi á það, sem Jónas
hafði að segja.
Það var þó ekki sérlega merkilegt. Hann sagði aðeins,
að hann hefði skotiö jarfana, og hvar í fjallinu skútinn
var- Hann innti ekki að því einu orði, að jarfarnir hefðu
hrakið hóp af hreindýrum fram af klettum. Hann ætlaði
ekki að segja neinum, hvílík kynstur af hreindýrakjöti
lægu þarna inni í dalnum. Hvað eftir annaö datt honum
í hug, hvort verið gæti,' að bræður hans vissu, hvað orðið
hefði af skrokkunum, sem horfið höfðu úr Ketildalnum.
t