Tíminn - 23.12.1948, Blaðsíða 7

Tíminn - 23.12.1948, Blaðsíða 7
284. blað TÍ.MIXX, fimmtudagiiin 23. dcs. 1948. 7 GÓÐ BÓK ER JAFNAN GÓÐ GJÓF Bókaútgáfa Guðjóns Ó. Guðjónssonar hefur gefið út fjölda góðra og fróðiegra bóka, innlendra og eriendra Ritsafn kvenna í Ritsafni kvenna eru merkar bækur, sem eru sérstaklega ætlaðar konum, til dæmis Heimilis- handbók frú Jánínu Líndal og skáldsagan ída Elísabet eftir Sigrid Undset, í þýðingu frú Aðal- bjargar Sigurðardóttur, Helen Keller, sjálfsævi- saga, þýdd af frú Kristínu Óiafsdóttur lækni. Oie Bull eftir Zinken Hopp, í þýðingu Skúla Skúlasonar ritstjóra. Bókin heitir Ævintýrið um'Ole Bull og segir frá lífsferli hins mikla norska meistara. — Þetta er heillandi, rómantísk ævisaga um óvið- jafnanlegan snilling og ævintýramann. Lygn streymir Þetta er stórmerkileg skáldsaga eftir rússneska rithöfundinn Mikael Sjólókoff í þýðingu Helga Sæmundssonar blaðamanns. Bókin er vel út gefin í tveim bindum, og hinn mesti fengur öll- um þeim, sem unna góðum skáldverkum. Margar vistarverur Bók um látna, sem lifa, eftir Dowding lávarð. Eyfellskar sagnir eftir Þórð Tómasson. — Þetta er bók, sem segir frá alþýðufólki, er skráð af alþýðumanni og ætl- uð íslenzkri alþýðu. Hún er ein af þeim taug- um, sem binda umsvifamikla nútíð við sérkenni- lega fortíð. Fjallamenn eftir Guðmund frá Miðdal. Fegursta bók, sem gefið hefir verið út á íslandi. ATHUGIÐ þessar bækur í næstu bóka- búð: Afmæíisdagar Úr spakmælum Salomons, valið af síra Jóni Skagan. Inkarnir í Perú og Suður um höf hinar stórmerku bækur Sigurgeirs Einarssonar. Konur og ástir Spakmæli um ástir. Það fegursta, sem skrifað hefir verið um ástina og konuna. Kvæði og sögur eftir Jóhann Gunnar Sig- urðsson. Nokkur eintök af þessum fögru ljóðum fást ennþá hjá bóksölum. Ekki má gleyma Kvendáðum handa konunni. Barnabókin eftir Ármann Kr. Einarsson: Yfir fjöllin fagnrblá er senn á þrotum. Ritsafn Jóns Trausta Allir þeir, sem unna íslenzkum bókmenntum, verða að eignast Ritsafn Jóns Trausta, eins af vinsælustu rithöfundum okkar. Ritsafnið er í átta bindum og prýðilega út gefið. Hver íslend- ingur verður að þekkja Jón Trausta og verk hans eru til sóma í hverjum bókaskáp. Endurminningar GUNNARS ÓLAFSSONAR. Komin er í bókabúðir sjálfsævisaga hins kunna athafnamanns Gunnars Ólafssonar kaupmanns og konsúls í Vestmannaeyjum. Gunnar Ólafsson er nú kominn hátt á 85. aldursár og hefir því lifað tvenna tímana, eins og hann minnist á sjálfur í eftirmála í bók sinni. Harðinda- og hafísár 19. aldar, þegar fólkið flúði landið i stór- um hópum sakir bjargarskorts og vonleysis um bættan hag, og svo nýju tímana, sem 20. öldin færði með batnandi veðráttu, er mest af öllu glæddi framtiðarvonir þjóðarinnar og jók afl hennar og áræði til framkvæmda á flestum eða öllum sviðum. Skútuöldin Gils Guðmundsson hefir nú skipað sér sess sem einn fremsti sagnfræðingur íslenzkra siglinga og fiskveiða. Verk hans um skútuöldina er ómiss- andi hverjum þeim, sem hefir áhuga á þróun fiskveiðanna og einhverjum athyglisverðasta kafla úr þjóðlífi okkar á seinni öldum. Heklugosið eftir Guðmund frá Miðdal. Sendið vinum yðar heima og erlendis HEKLU- GOSIÐ. Vt %i i ■ o

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.