Tíminn - 13.01.1949, Blaðsíða 1
Ritstjöri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
Skrifstofur i Edduhúsinu
Ritstjórnarslmar:
4373 og 2353
AfgreiOslu- og auglf/s-
ingasimi 2323
PrentsmiOjan Edda
33. árg.
Reykjavík, fimmtudaginn 13. janúár 1949.
9. bla?:
Búnaðarþing kemur
saman í byrjim
febrúar
Búnaðarþing kemur saman
liér í Reykjavik 8. febrúar.
Sækja það eins og venjulega
25 fulltrúar frá öllum búnað
arsamböndum landsins. Fyr-
ir þessu. þingi liggja mörg og
sum mikilvæg mál, sem
snerta hag landbúnaðarins
og þau efni, sem efst
eru nú á baugi meðal bænda
um land allt.
Akranesbátunum
fækkaði um fjórð-
ung frá því á síð-
ustu vetrarvertíð
Búast má við því, að undir-
búningur undir vetrarvertíð-
ina fari nú að hefjast í ver-
stöðvunum og hefst sums
staðar strax í dag. Þar sem
samningum hefir verið sagt
upp, eins og á sér stað á Akra
nesi.verður fyrst að semja við
sjómenn áður en byrjað verð
ur, en tiltölulega fljótlegt er
að búa bátana til veiða.
Það voru útgerðarmenn á
Akranesi, er sögðu upp gild-
andi samningum nú um ára-
mótin, en sagt er, að þeir
muni ekki setja fram neinar
róttækar breytingar á kjör-
um sjómanna eða tryggingu,
svo að samningar þurfi að
stranda lengi á því atriði og
útgerð hefjist ekki af þeim
sökum.
Akranesbátarnir verða mun
færri á vertíðinni, sem í
hönd fer, heklur en þeir voru
1 fyrra. Þá reru tuttugu bát-
ar frá Akranesi, en nú verða
þeir vart meira en fimmtán.
Fjórir bátar hafa verið seld-
ir burt frá því í fyrra, og voru
þeir allir litlir, og af eldri
skipum flotans þar. Voru það
bátarnir Ármann, Egill
Skallagrímsson, Ver og Ægir.
Á þessari mynd sést egripzki stúdentinn, Inam Ibrahim Bej, sem
myrti egipzka forsætisráðherrann fyrir skemmstu. Hann stendur
þáma á miðri myiidinni, sem tekin var rétt cítir handtökuna.
ygi meða! bænda um
að fá sjálfvirkar hreyfil-
Eitnþá cr þó aSIt óvíst um iimfluíiiing
ftcssara tækjja á áirime.
Meðal margra bænda, sem ekki eiga.kost á rafmagni frt,
stærri virkjunúm eða hafa ekki vatnsvirkjanir við bæi sína,
er mikill áhugi ríkjandi um öflun handhægra og sjálfvirkrt,
benzín- eða dieselrafstöðva. Landssmiðjan, sem hefir at-
hugun á útvegun slíkra rafstöðva méð höndum að beiðn
landbúnaðarráðherra, hefir gefið blaðinu nokkrar upplýs
ingar um þetta mál.
Skólahús Vestur-Eyfellinga
brennur tll kaldra kola
í eldinum eyðitag'ðist einnig bókasafn
sveitarinnar.
Skólahúsið að Ásólfsskála í Vestur-Eyjaf jallahreppi
brann til kaldra kola á sunnudaginn var, og fórust í eldin-
um Öll kennslutæki, er skólanum tilheyrðu, og bókasafn!
íestrarfélags hreppsins.
Frá því að landbúnaðarráð-
herra fól Landssmiðjunni síð
astliðið haust að athuga
möguleika á útvegun á þægi-
legum og góðum sjálfvirkum
rafstöðvum til notkunar á
sveitabýlum, hefir verið
stanzlaus straumur fyrir-
spurna og pantana þil Lands-
smiðjunnar, sem sýnir glögg-
lega, hve mikinn áhuga
bændur hafa fyrir því að m,
í þessi tæki.
Um 150 pantanir.
Landssmiðjan hefir skrifac
niður pantanir undanfarit
að sjálfsögðu með þeim fyr
irvara, að nauðsynleg gjald
eyris- og innflutningsleyfi ft,
ist og er sundurliðun pant-
ana svo sem hér segir:
Útför séra Einars
Thorlacius
Einar Thorlacíus, fyrrver-
andi prófastur, var jarðsett-
ur í Reykjavík í gær, og var
jarðaö frá Dómkirkjunni.
Séra Jón Auðuns og sér Magn
ús Guðmundsson í Ólafsvík,
tengdasonur hins látna, fluttu
húskveðju, en i kirkjunni töl
uðu séra Bjarni Jónsson og
Sigurgeir Sigurðsson biskup.
Séra Bjami Jónsson jarð-
söng,
Prestar báru kistuna úr
kirkj u.
Hús þetta var gamalt timb-
urhús, og eina skólahúsið í
Vestur-Eyjafjallahreppi. Verð
ur það mjög til baga við
kennsluna í sveitinni, að það
skyldi brenna á miðju
kennsluári, en gert mun þó
ráð fyrir, að kennslu verði
haldið áfram á einhverjum
bæjanna í skólahverfinu.
Ekki er vitað með vissu,
hvað brunanum olli, en lík-
legt þykir, að kviknað hafi í
út frá ofni.
Kennslutækin og bókasafn
ið var óvátryggt.
> |
Akveðið að kaupa
beitusíld frá
Noregi
Ríkisstjórnin hefir ákveð
ið að beita sér fyrir því, að
bætt verði úr hinum mikla
beituskorti, sem fyrirsjá-
anlegur er á vertíðinni í
vetur, með því að kaupa
beitusíld frá Noregi.
Kefir svokallaðri beitu-
nefnd, sem hafa á umsjón
með því, að næg beita sé
ti! í Iandinu, verið falið að
annast kaupin og inn-
flutninginn.
Ekki mun enn hafa ver-
ið ákveðið, hversu mikið af
síld verður keypt 1 Noregi,
og að sjáTfsögðu verður
beitusíldarkaupum þar
hætt, ef sfld kynni að veið
ast hér vi<S land síðar í
vetur.
Ráðunautar Búnað-
arþingsins kenna
við framhaldsskól-
ann á Hvanneyri
Eins og kunnugt er starfar
nú framhaldsdeild á Hvann-
eyri með átta nemendum. Er
gert ráð fyrir að piltar þeir, i
sem þar hafa stundað nám |
ljúki prófi í vor og hafa þeir
þá fengið haldgóða menntun,
enda verið fjögur ár við nám
við búnaðarskólann. Er þessi
framhaldsdeild tveggja ára
viðbótarnám við hið venju-
lega búfræðinám, og til þess
ætlast að eingöngu þeir, sem
lokið hafa almennu búfræði-
prófi geti komizt í þessa deild.
Jafnast þessi framhaldsdeild
að nokkru leyti á við búfræði
háskóla i öðrum löndum,
nema styttra.
Ráð'unautar Búnaðarfélags
íslands annast að nokkru
leyti kennslu þá, er fram fer
við framhaldsdeildina og
hafa tveir ráðunautar þegar
kennt þar í vetur. Ásgeir Ein
arsson hefir kennt landmæl-
ingar og dr. Halldór Pálsson
kennir þar nú ýmislegt varö
andi sauðfjárrækt.
Mikil eftirspurn er eftir
starfsorku þessara ungu
manna, er þarna eru að ljúka
námi og munu margir þeirra
nú þegar vera ráðnir, sem
ráðunautar við búnaðarsam-
bönd, ýmist sem sérfræðing-
ar í jarðrækt, búfjárrækt,
eða hvoru tveggju.
95 stk. 6000 W., 220 V. Dieselrafstöðvar
21 — 3000 W., 220 V. Dieselrafstöðvar
7 — 1500 W., 220 V. Benzínrafstöðvar
2 — 800 W., 220 V. Benzínrafstöðvar
12 — 800 W., 32 V. Benzínrafstöðvar
11 — 500 W., 32 V. Benzínrafstöðvár
Samtals hafa því borizt um
150 ákveðnar pantanir til
Landssmiðjunnar, en nokkur
búnaðarsambönd hafa feng-
ið frest fram að næstu mán-
aðamótum til þess að leggja
inn pöntun sína, og er það í
ýmsum tilfellum fjölmargar
stöðvar, sem búnaðarsam-
böndin panta fyrir meðlimi
sína í einu lagi.
Vantar raftæki.
Landssmiðjan litur svo á,
að það sé tómt mál að tala
um innflutning á rafstöðvum
fyrir bændur, nema að um
leið sé tryggt, að þeir fái
nauðsynlegt raflagningarefni
og rafmagnseldavélar, þar
seip þeirra er þörf.
Fyrir því mun Lands-
smiöjan leggja aðal-áherzlu
á að fá tryggðan innflutning
fyrir raflagningarefni til
þeirra rafstöðva, sem hún sér
um innflutning á, og- enn
fremur mun hún gera allt,
sem í hennar valdi stendur,
til að útvega þægilegar raf-
magnseldavélar, annaðhvort
erlendis frá eða af innlend-
um markaði.
Aætlun um raflagningarefni.
Landssmiðjan hefir látið
rannsaka, hversu mikið raf-
lagningarefni þurfi á meðal-
býli, og hefir komið í ljós, að
þetta efni kostar frá kr.
1300.00 til 1600.00 í erlendum
gjaldeyri fyrir hvern sveita-
bæ að meðaltali. Að sjálf-
sögðu er þetta dálítið mis-
jafnt eftir aðstæðum og húsa
skipun.
Eins og tekiö var fram áð
ur, hafa enn ekki verið veitu
nein gjaldeyris- og innflutn
ingsleyfi fyrir þessum tækj
um og allt er enn óvist um
hvernig því máli reiðir af, er.
Landssmiðjan mun að sjálf
sögðu fylgja málinu eftir
eins og henni er frekast unm
frá sinni hálfu.
Bændur verða hins vegai
að hafa biðlund í nokkurr.
tínra ennþá, því að eftir ac
nauðsynleg leyfi eru fengin,
tekur afgreiðsla vélanna frí,
6 vikum og upp í 4 mánuði
Dagheimili í stað
kirkna
Forustumenn kirkjumála :.
Kaupmannahöfn hafa ákveí
ið að láta staðar numið mec
kirkjubyggingar þar- til ræt-
ist úr með húsnæðismál borg
arbúa. Hins vegar hafa þeii
varið fé úr byggingarsjóöum.
sínum til að reisa dagheimil.
fyrir börn þeirra fjölskyldna
sem sitja i lökustu ibúðum.
Sums staðar eru dagstofui'
þeirra dagheimili eins konai
bænhús og messað í þeim á
helgum. Altarið og altaris-
taflan eru þá birgð með renni
hurðum hversdagslega en.
þegar líður að messutímuir,
eru hurðirnar dregnar frá.
og salurinn í þessu barna-
heimili breytist í kirkju, sem
ætluð er nærliggjandi hverfi
um stundarsakir.