Tíminn - 01.02.1949, Qupperneq 8
„ERfÆNT YFIRLIT“ í daq:
Stefna Tvumans.
33. árg.
Reykjavík
„A FORMJM VEGÍ í DAG:
Hvort man nú enqinn Fvœða-Gísla?
1. febrúar 1949.
22. blaS.
Inflúenzufaraldur sá, sem kom upp á Ítalíu í haust,
berst nú norður álfuna, og er álitið, að fimm miiljójiir
manna í Frakklandi hafi fengið veikina. Er liún nefnd
ítalska veikin sökum uppruna síns.
í París eru öll sjúkrahús
fyrir löngu yfirfull, og hafa
forstöðumenn ekki séð önn-
ur úrræði en neita að taka
á móti fleiri sjúklingum.
í Pasteur-stofnuninni hef-
ir um langt skeið verið unn-
ið dag og nótt að því að
finna bóluefni, sem stemmi
stigu fyrir sjúkdóminum. —
Hefir vísindamönnunum þar
tekizt að finna bóluefni, sem
gerir allmarga ónæma fyrir
þessari inflúenzu, en þó ekki
nærri alla.
Yfirvöldin hafa skipað svo
fyrir, að lyfjabúðir skuli vera
opnar jafnt helgi- og hátíð-
isdaga, sem aðra daga.
Þótt veikin sé svona gífur-
lega útbreidd, er hún þó ekki
mannskæð. Hefir aðeins orð-
ið sárafáum mönnum að
bana.
Bæði Danir og Englend-
ingar gera um þessar mundir
ráðstafanir til þess að mæta
ítölsku veikinni, ef hún berst
til þeirra landa, sem líklegt
þykir. Hafa Danir leitað sam-
vinnu við Breta um fram-
leiðslu bóluefnis, se mlíklegt
þykir, að komi að haldi. Hef-
ir veikin í för með sér mikla
truflun á daglegu lífi og þjóð
félagslegt tjón, þótt mann-
dauði af hennar völdum hafi
verið sama og enginn fram
að þessu.
Enn kraftmeiri
kjarnorkusprengjur
en fyrr
Kjarnorkunefnd Banda-
ríkjanna hefir gefið skýrslu
um störf sín og kjarnorku-
rannsóknir í Bandarikjunum
á sl. ári. Segir þar, að Banda-
rikin eigi nú mun kraftmeiri
sprengjur en þær, sem notað-
ar voru í Japslr. Einnig segir
þar, að nagnýtingu kjarnork-
unnar í þágu friðsamlegrar
notkunar fleygi nú mjög
fram. Bandarikin fá nú Úraní
um frá Belgísku Kongó, og
Kanada en hafin er nú víð-
tæk og skipuleg leit að úraní-
um í Bandaríkjunum sjálf-
um.
Berlínarflugið hefst
Truman vill láta
Stalín koma til
Washington
I tilefni af ummælum þeim
sem bandarískur blaðamaður
hafði eftir Stalin á dögunum
um það, að hann væri íús til
að hitta Truman forseta til
viðræðna um varðveitingu
friðarins í heiminum, hefir
fulltrúi forsetans lýst því
yfir fyrir hans hönd, að Tru-
man sé reiðubúinn til við-
ræðna við Stalin, ef hann
komi til Washingtyr.
Sendiherrar Breta og Banda
ríkjamanna í Moskvu rædd-
ust við í gær af tilefni um-
mæla Stalins. Blöð í Vestur-
Evrópu benda á, að í þessum
ummælum felist enginn ný-
boðskapur um friðsam-
lega lausn deilumála í heim-
inum, en athyglisvert sé það,
að Stalin láti hafa þau eftir
sér um svipað leyti og skriður
kemst á undribúning að
skipulegum vörnum Evrópu-
landa.
Friðarráðstefnunni
á Rhodos lýkur á
föstudag
Gert er ráð fyrir að friðar-
ráðstefnunni á Rhodos ljúki
á föstudaginn kemur og fari
fulltrúarnir þá heim til við-
ræðna við stjórnir sínar.
Bunche sáttasemjari hefir
borið fram nýjar tillögur, sem
fulltrúarnir hafa nú til at-
hugunar, og er talið, að horf-
ur séu nú fremur góðar um
samkomulag. Fjalla tillögur
þessar um stöðu herja og
landamæri eftir að vopnahlé
heíir verið samið.
a ny
Flutningaflugið til Berlínar
hófst aftur í gær, en það ha.fði
legið niðri nokkra daga vegna
þoku og óhagstæðs fLugveð-
urs. Vikuna áður höfðu flutn
ingarnir verið meiri en
nokkru sinni fyrr.
Regína Þórðardóttir leikkona, frú Hulda Björnsson, séra Sigurður
Kristjánsson, Karl ísfeld ritstjóri, fiú Ragnhildur Ásgeirs.ióttir, John
Chocker lögfræðingur, Elinborg- Stefnánsson, Jón Þorsteinsson kenn
ari, Kristín Björnsdóttir og frú Ingunn Crockef. Myndin er tekin y
í kvöldverðarboði á heixnili Björns, Björnssonar í Purley
Harður vetur í
Bandaríkjunum
Veturinn í Bandaríkjunum
hefir verið mjög harður og er
talinn með þeim hörðustu í
sögu þeirra. Snjókoma hefir
verið mikil og frost sömuleið-
is. Ekki er þó talið, að vetrar-
hveitið bíði hnekki af þess-
um hörkum, og telja jafnvel
sumir sérfræðingar, að hinn
mikli snjór sé hagstæður fyr-
ir það.
islenzkunámskeið tekið m
1 á Linguaphone-plötur |
Finiiii íslendiugar fórn tll London tiS að
lesa inn á plöturnar
Fyrri hluta janúar fóru fimm íslendingar til London til
þess að lesa íslenzka texta er teknir voru á hljómplötur sem
íslenzkunámskeið Linguaphone-félagsins. Dr. Stefán Ein-
arsson, prófessor í Baltimore vaídi lesefnið, en dr. Björn
Guðfinnsson, prófessor, valdi lesarana og þjálfaði fram-
burð þeirra. íslendingarnir, sem fóru til London, voru frú
Ragnhildur Ásgeirsdóttir, frú Regína Þórðardóttir, leikkona,
Karl ísfeld, ritstjóri, Gunnar Eyjólfsson, leikari og Jón J.
Þorsteinsson kennari á Akureyri. Bíaðið hefir átt tal við Karl
ísfeld og spurt hann um þessa för og undirbúning hennar.
Þrítugasta námskeiðið.
íslenzkunámskeið þetta var
þrítugasta málanámskeiðið,
sem Linguaphone-félagið í
London setur á plötur, og varð
þetta að ráði fyrir milligöngu
Björns Björnssonar í London,
sem er umboðsmaður félags-
ins. Dr. Björn Einarsson
samdi og valdi kaflana, en
þeir eru sniðnir eftir öðrum
málanámskeiðum félagsins.
Byrjað er á léttum talæfing-
um en síðan þyngist kaflarn-
ir og lesturinn verður hraðari.
í síðustu köflum námskeiðs-
ins er ágrip íslenzkrar bók-
menntasögu og nokkrar ís-
lenzkar þjóðsögur úr safni
Jóns Árnasonar. Námskeið
þetta er sem önnur slík mála-
námskeið ætluð til kennslu í
skólum og til sjálfsnáms.
Dr. Björn Guðfinnsson
valdi upplesarana, þjálfaði
raddir og kenndi framburð.
Var notaður samræmdur
framburður, svonefndur.
Við fórum flugleiðis til
Kaupmannahafnar 29. des. og
þaðan til London daginn eftir
með sænskri flugvél. Björn
Björnsson kaupmaður tók á
móti okkur og var okkur bú-
inn dvalarstaður á Grosvenor
Hotel. Hófst þegar undirbún-
ingur að upptökunni, og var
hann einkum fólginn í því að
athuga, hve langan tíma hver
kafli tæki í lestri og ganga úr
skugga um, hve mikið kæmist
á hverja plötu. Síðan voru
kaflarnir lesnir á vaxplötur,
og voru hinar eiginlegu plötur
ekki tilbúnar þegár við fór-
um, svo að við fengum ekki
að heyra þær.
Kaflarnir, sem við lásum,
voru um fimmtíu og verða
þeir líklega á fimmtán plöt-
um.
Björn Björnsson, kaupmað-
ur lék við okkur, ef svo mætti
segja, og reyndi að gera okk-
ur dvölina eins ánægjulega og
unnt var.
Hann bauð okkur í ferð um
nágrenni Lundúna, og heim-
sóttum við þá Windsor-kast-
ala, Hampton Court og Eton.
Um kvöldið bauð Björn okk-
ur í hóf á heimili sínu í Purl-
ey.
Linguaphone-félagið bauð
okkur einnig til veizlu á Sav-
oy-gistihúsinu ásamt sendi-
herra íslands, Birni Björns-
syni og Eiríki Benedikz, sendi
ráðsritara.
Við komum svo heim eftir
ágæta för 14. þ. m. með flug-
vélinni Geysi.
Þjóðvarnarfundur
í Keflavík
Þjóðvarnarfélagið hélt á
sunnudaginn fund í Keflavík,
en fundur, sem halda átti í
Sandgerði, féll niður, þar eð
allir bátar reru þennan dag.
Fundurinn í Keflavík var
einnig fremur fásóttur. Ræðu
menn voru Sigurbjörn Einars
son dósent, Lúðvík Kristjáns-
son ritstjóri og Jón Hjaltason,
stud. jur. Fundarstjóri var
Hermann Eiríksson, skóla-
stjóri.
Gerð var á fundinum svolát
andi samþykkt:
„Fundur, haldinn í Kefla-
vík sunnudaginn 30. janúar
að tilhlutan Þjóðvarnarfélags
íslands, telur viðsjárvert, að
íslendingar gerist aðilar að
samtökum annarra þjóða um
hervarnir og vígbúnað.“
Kosningin í Dags-
brún
Stjórnarkosningunni í Dags
brún lauk í fyrrakvöld, en úr-
slit kosninganna voru til-
kynnt á fundi í félaginu í gær
kveldi. A-listinn — listi komm
únista fékk alla mennina
kjörna og 1317 atkvæði. B-
listinn fékk 602 atkvæði. Alls
greiddu atkvæði 1940 manns.
Auðir seðlar voru^O og einn
ógildur. Þannig tókst komm-
únistum að sigra enda höfðu
þeir trúlega búið um hnút-
ana með útstrikunum og öðr-
um „varúðarráðstöfunum.“
Kviknar í Lands-
bankanum
Klukkan 9,30 í gærmorgun
var slökkviliðið kvatt í Lands
bankann við Austurstræti en
þar hafði kviknað í fataher-
bergi i kjallara. Var eldurinn
þegar slökktur og skemmdist
ekki annað en fatnaður' starfs
fólks lítillega.
Styrkur veittur ís-
lenzkum rithöfundi
Danski rithöfundurinn Kel
vin Lindeman stofnaði árið
1947 sjóð er styrkja skal rit-
höfunda til kynnisferða um
Norðurlönd. Á þessu ári verð-
ur styrkur veittur úr sjóðn-
um í fyrsta sinn og fær einn
islenzkur rithöfundur 2500
kr. Styrkurinn er bundinn við
dvöl í Danmörku. Þeir, sem
sækja vilja um styrk þennan,
sendi umsóknir sínar til Hall
dórs Stefánssonar, Blöndu-
hlið 13, eða Kristjáns Eld-
járns, Rauðarárstíg 10, Rvik.
*
Armann sendir fim-
leikaflokk á al-
þjóðamót
Ármann hefir í hyggja að
senda fimleikaflokk á alþjóða
fimleikamót, sem haldið verö
ur í Svíþjóð í lok júli og byrj-
un ágúst í sumar. Verður það
kvennaflokkur undir stjórn
Guðrúnar Nielsen. Þegar hafa
um 70 þjóðir tilkynnt þátt-
töku í þessu móti, en það verð
ur háð í Stokkhólmi.
Afmælismót Ármanns í
frjálsum íþróttum mun verða
í júní eða júlí í sumar.