Tíminn - 05.02.1949, Blaðsíða 2
2
TÍMINN, laugardaginn 5. febrúar 1949
26. blað
ST
'Jrá kafi til keiia
nótt.
Næturlæknir er í læknavarðstof-
unni í Austurbæjarskólanum, sími
5030. Næturvörður verður í Iðunn-
ar Apóteki, sími 7911. Næturakstur
annast Hreyfill, sími 6633.
Útvarpið
í kvöld.
Fastir liðir eins og venjulega. Kl.
18.25 Dönskukennsla. — 19.00 Ensku
kennsla. — 19.25 Tónleikar: Sam-
söngur (plötur). — 1‘.45 Auglýsing-
ar. — 20.00 Fréttir. — 20.30 Leikrit:
„Fornenskur" eftir John Gals-
worthy, f þýðingu Boga Ólafssonar
(Leikstjóri: Þorsteinn Ö. Stephen-
sen). — 22.30 Fréttir og veðurfregn-
ir. — 22.35 Danslög (plötur). —
24.00 Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Sambandið.
Hvassafell kom til Hamborgar í
fyrrinótt frá Rotterdam og fór það-
an aftur í gær áieiðis til Osló.
Vigör er í Carboner í Nýfundna-
lándi.
Ríkisskip.
Esja var á Vopnafirði í gærmorg-
un á norðurleið. Hekla er í Álaborg.
Herðubreið er á Vestfjörðum á norð
urleið. SkjaldbreiC fer frá Reykja-
vík í kvöld til Snæfellsneshafna,
Gilsfjarðar og Fiateyjar. Súðin er
á leið frá Reykjavík til Ítalíu. Þyr-
ill var í Hvalfirði í gær. Hermóður
fór frá Patreksfirði í gærmorgun á
leið til Sauðárkróks og Hofsóss.
_«r
Einarsson & Zoéga.
Foldin er í Reykjavík. Linge-
stroom fór frá Færeyjum síðdegis á
fimmtudag, væntan’egur til Reykja
víkur á laugardagskvöld. Reykjanes j
fór frá Húsavík 29. f. m. áleiðis til
Grikklands með viðkomu í Eng-
landi.
Flugferðir
Flug.
Allar miililandaflugvélar flug-
félaganna eru x Reykjavík.
Frá Flugfélagi íslands var reynt
að fljúga í gær til Akureyrar, en
varð að snúa aftur. Á sömu leið
fór um tilraun til sjúkraflugs til
Reykjaskóla.
Árnað heilla
♦
Níræðisafmæli.
‘ Oddný Jónsdóttir í Símastöðvar-
húsinu í Borgarnesi átti 90 ára af-
mæli í gær. Oddný hefir á langri
ævi jafnan verið góðkunn kona
fjölda manna fyrir margra hluta
sakir, Hún dvelur á heimili ágætis
hjöriánna Þorkels Teitssonar sonar
sltis og tengdadóttur sinnar Jó-
hönnu Sigurðardóttur og er ern
eniiþá eftir aldri.
Allir, sem þekkja Oddnýju óska
henni til hamingju í tilefni af af-
mælinu.
Trúlofun.
Nýlega hafa birt hjúskaparheit
sitt ungfrú Hildur Einarsdóttir og
Benedikt Bjarnason, Bolungavík.
Einnig ungfrú Svava Kristjáns-
dóttir og Auðunn Þorsteinsson hús-
gagnasmiður Reykjavík.
Messur á morgun
Nesprestakall.
Messa kl. 2 e. h. i kapellu háskól-
ans. Sr. Jón Thorarensen.
Laugarneskirkja.
Barnaguðsþjónusta kl. 10 árdegis.
Sr. Garðar Svavarsson.
Úr ýmsum áttum
Gestir í bænum.
Benedikt Einarsson bóndi Mið-
engi, Benedikt Valgeirsson bóndi
Noiðfirði, Guðmundur Þórarinsson
kennari Eyrarbakka, Þorsteinn
Kristleifsson bóndi Gullberastöðum.
Útflutningur.
Það vantaði rúmar fjórar milj-
ónir upp á að við fengjum 400 milj.
kr. fyrir útfluttar vörur árið 1948.
Mest hefir verið selt til Bretlands
eöa fyrir tæpar 119 miljónir króna.
Þar næst til Þýzkalands fyrir rúm-
lega 67,5 miljónir króna. Þriðja land
ið, sem keypt hefir mest af okkur
er Holland með vörukaup fyrir tæp
lega 34,7 mi'jónir. Fjórða landiö er
Tékkóslóvakía með tæpar 40 milj-
ónir, þá Bandai'íkin með nokkuð
á 27. miljónina, þá Finnland með
nokkuð yfir 17,6 miljónir. Næst kem
ur Frakkland með tæpar 17 milj-
ónir, Danmörk 15,6 miljónir, Svi-
þjóð 14,8, Ítalía rúmar 13, Grikk-
land fyrir tæpar 12 mi'jónir króna.
Loks eru nokkuð mörg lönd, sem
hafa keypt af okkur fyrir neðan 10
miljónir króna: Pólland, Rússland,
Palestína o. fl.
Úr Breiðdal.
í bréfakaíla úr Bi'eiðdal segir svo
m. a. í nýprentuðum Frey: „Baga-
legust vöntun er á vefnaöarvörum
og ef s’.íkt endurtekur sig verða
viðskiptamenn kaupfélaganna að
beita öðrum ráðum.
Girðingarefni hefir vantað allt
árið og þakjárn hefir varla sézt“...
„Vinnu með dráttarvélum var
haldið áfram á svipaðan hátt og
undanfarin ár. Kostnaður á vinnu-
stund var kr. 33,50.
Skurðgrafa gróf 1435 m. vega-
lengd eða 4800 rúmmetra og varð
kostnaður kr. 3,40 á m-'!. Ráðgerð er
mikil vinna með henni næsta sum-
Frevr.
Febrúarhefti Búnaðarblaðsins
Freys er komið út. Flytur það:
Fræðs’a og menning í sveitum, eftir
Bjarna Bjarnason. Kýrnar hita í-
búðarliúsið. Hitinn í fjósinu. Um
mjaltir. Júgurbólga eftir Ásgeir
Einarsson. Sjálfvirkur flórmokstur.
!
Meiri áburður. Þættir um góðhesta
og Annáli.
Flestar greinarnar, sem höfundar
er ekki getið munu vera eftir rit-
stjóra Freys, Gísla Kristjánsson.
Kartöflur.
Þótt dálítið sé ennþá til af kart-
öflum í landinu, einkanlega í Eyja-
firði og nokkuð á Hornafiröi og í
Rangárvallasýslu, er byrjað að
flytja dálítið inn til landsins af
kartöflum. Voru birgðir orðnar litl-
ar hér í Reykjavík og umhverfinu.
Kartöflurnar eru fluttar frá Dan-
mörku.
Mest verðmæti.
Þetta voru þær vörur, sem mest-
ir peningar fengust (brutto) fyrir
af útfluttum vörum árið 1948: ís-
íi.'kur 90 miljónir króna, síldarolía
7.4 mi!jónir, freðfiskur 68 miljónir,
síldarmjöl 34 miljónir, lýsi 33 milj-
ónir, saltfiskur 30 miljónir, söltuð'
síld 22 miljónir og gærur 16 milj-
ónir króna. Brotum fram yfir heila
miljón króna er jafnan sleppt hér.
Þessi mynd af útflutningnum gefur
þó ekki rétta mynd um hinar raun-
verulegu tekjur í þjóðarbúið, því
frá dregst auðvitað misjafnlega
rnikið af erlendum gjaldeyri, sem
eyözt hefir við öflun varanna.
Dettifoss.
Hið nýja skip Eimskipafélags ís-
lands, Dettifoss, er ráðgert aö
leggja af stað frá Kaupmannahöfn
til íslands n.k. þriðjudag með við-
komu í .Álaborg.
Skipshöfnin á Dettifossi tók sér
far nýlega í flugvél héðan til Kaup-
mannahafnar.
Framsóknarvis.
í gærkvöldi var framsóknarvist í
mjólkurstöðvarsalnum og fór hún
að venju hið bezta fram. í kvöld
gengst Framsóknarfélag Hafnar-
fjarðar fyrir skemmtisamkomu að
„Hótel Björninn" og verður þar eitt
af aðalskemmtiatriðunum fram-
sóknarvist.
Vanskil.
Þ°ir, sem verða fyrir vanskilum
á Tímanum eru vinsamlega beðn-
ir að láta 'aígreiðsluna vita um þau,
simi hennar er 2323.
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
'♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦•
|| LEIKFÉLAG REYKJAVIKLR sýnir
H
VOLPONE
g
::
::
annað kvöld kl. 8. Miðasala í dag frá kl. 4—7. Sími 3191 ||
::
::
Börn fá ekki aðgang
::
::
1111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111
S. B. T. Oansleikur
1 að Röðli í kvöld kl. 9. (Nýju- og gömludansarnir). Simi i
\ 5327. ~ |
iiillllililiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiliiiiiiiiiiiliiiiiiiiiiiiiiiiliiiiiiiiiiiiiiliiiiiiiiiiiiiiliiiillim
s.k.td
Eldri dansarnir I G. T.-hústmi
í kvöld kl. 9. — Húsinu lokað kl.
10.30.
— Aðgöngumiðasala kl. 4—6. — Sími 3355. —
8 IXCÓLFSCAFÉ.
€ldn dt
::
i
H
U
::
anóarnir
♦♦
♦♦
í Alþýðuhúsinu í kvöld kl. 9. ;;
♦ ♦
♦J
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 5. Gengið inn frá Hverfis- ::
götu. — Sími 2826. — ÖLVUN BÖNNUÐ.
CjiiÁmuutlur Jói
onóóon
heldur
LueÉju h íjáin ieika
í Gamla Bíó sunnudaginn 6. febrúar kl. 3 síðd.
VINSÆL LÖG
innlencl — ei’lend.
Við hljóðfærið: FRITZ WEISSHAPPEL.
Aðgögunmiðar seldir í bókabúð Lárusar
Blöndal og hljóðfæraverzlun Sigríðar
Helgadóttur.
SÍÐASTA SINN.
Hið nýja slysavarnarfélag
æknanna
Það er bæði vert og skylt að
gefa gaum þeirri baráttu, sem lækn-
ar í Reykjavík eru nú að hef ja, gegn
krabbameini á íslandi. Það er
skylda almennings að taka hönd-
um saman við læknana í þessu
máli og veita þeim að sínu leyti
svipaðan stuðning og Slysavarna-
félagið hefir hlotið hjá þjóöinni.
Hér er í rauninni um slysavarnir
að ræða. Krabbamein er skæðasti
sjúkdómurinn, sem nú þjáir íslend
inga, og þessi sjúkdómur virðist
fara heldur í vöxt og ieggjast öllu
meir á yngri fólk en áður var. Sé
hins vegar brugðizt rétt við í tæka
tíð, má oft koma í veg fyrir, að
sjúkdómririnn valdi ótímabærum
dauðdaga. Þetta er aðeins eitt
dæmi af möi'gum, sem nefna mætti
um það, að hér er í raun og sann-
leika utn þýðingarlnikia slysavarna
starfsemi að ræða.
En hversu mikill og góður árang
urinn verður, veltur að verulegu
leyti á því, hve góðar undirtektir
almennings verða, ekki aðeins í
Reykjavík, heldur um land allt.
Mætti þessi nýi félagsskapur skiln-
ingi og njóti góðrar samvinnu við
fólkið í landinu, getur varla hjá því
farið, að margt gott muni af hon-
um leiöa og mörgum manni verði
forðað frá þjáningarfullum sjúk-
dómi og dauða fyrir aldur fram.
Taki fólkið þessari viðleitni lækn-
anna hins vegar með tómlæti og
tregðu, er þess varla að vænta, að
mikill árangur náist, hversu ötul-
lega sem fram verður gengið af
þeirra hálfu.
En þegar hér er um að tefla líf
og heilsu fjölda manna í landinu
— sem sagt það, sem fólk vill flest
til vinna að varðveita —, þá mætti
það virðast harla öfugsnúið við-
liorf, ef fyrir tómlætis sakir væri
ekki tekið í þær hendur, sem fram
eru réttar.
Heilbrigðisástand er sem betur
fer yfirleitt gott hér á landi, og
að sumu leyti betra en nokkurs
staðar annars staðar í heiminum.
En þó má áreiðanlega mjög margt
gera til þess, að það verði enn
betra. Og hér er verið að reyna
að stíga spor í þá átt.
J. H.
STÖLKU
vantar nú þegar á Hótel Borg. Herbergi getur fylgt.
Upplýsingar á skrifstofunni.
♦
t
♦
♦
Hótel Borg
t
Kaupi góðu verffi
ERLENDAR RÆKUR UM ÍSLAND
Þeir, sem kynnu að eiga slíkar bækur, er þeir vildu
selja, sendi Tímanum tilboð, merkt J. H. — Tilgreind-
ur sé höfundur bókar, titill og útgáfustaður og ár.
Ennfremur ásigkomulag.
ji;)