Tíminn - 18.02.1949, Qupperneq 6

Tíminn - 18.02.1949, Qupperneq 6
6 37. blað Wíjja Bíó „Blómin mér barztu.44 | Eínismikil og vel leikin ung- | | Ungversk stórmynd gerð eftir : | sögunni „Gentleman" eftir ung- i | verska skáldið Ferenc Hersag. | | Sýnd kl. 5, 7 og 9 | Aðalhlutver: 1 Poul Javor AIiz Fenyes E = iiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimuiuiiiiiimiiiimiiiHiiiniiiiiM | Circnslíf 1 (The Dark Tower) ' = | Sérstaklega fjöl'i.reytt og spenn \ | andi Cirkusmynd frá Warner = Bros. = | Aðalhlutverk: | | Ben Lyon i | Anne Crawford David Farrar | IAXJKAMYND: Alveg nýjar 1 | fréttamyndir frá Pathe, London = | Sýnd kl. 5 og 9 | | Síðasta sinn! | Sala hefst kl. 1 e. h. Sími 6444 jj UIUIIIIII.IIII1HIIIUIIIIIIIIIIIHIIUIIUIIIHIIIIIIIIIIIIIIUI e HafiharfáarÍatbíc i I írsku augim brosa. | 1 Hin skemmtilega og hrífandi § | músikmynd í eðlilegum litum. i Aðalhlutver: Monty Wooly 5 i June Haver Dick Haynes Sýnd kl. 7 og 9 Sími 9249 | HiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiuiiiuiiuiuimiiiiiiii Erlent yfirllt (Framhalcl af 5. síðu). leggja af stað í Washingtonferð sína og flutti honum tilboð Rússa um ekki-árásarsáttmálann. Þykir líklegt, að Rússar hafi ætlað sér að tefja för Lange og breyta á- ætlunum stjórnarinnar. Stjórnin lét þetta hinsvegar engu breyta um fyrirætlanir sínar og Lange hélt áfram með ferðalagið, eins og á- kveöið hafði verið. Afstaða kommúnista. Eins og vænta mátti, hafa norskir kommúnistar hamast mjög gegn þátttöku Noregs, hvort heldur sem væri í norrænu varnarbandalagi eða Atlantshafsbandalagi. Þeir hafa talið norrænt varnarbandalag gagnslaust, þar sem það gæti ekki teflt fram herafla, er varið gæti hiutaðeigandi lönd. Atlantshafs- bandalagið hafa þeir hinsvegar stimplað sem árásarbandalag stríðs æsingamanna, er vildu hefja kross- ferð gegn Sovétríkjunum. Jafn- íramt hafa þeir haldið því fram, p.S engin hætta stafaði af Sovét- TÍMINN, föstudaginn 18. febrúar 1949 (jatnla Bíó ..... Blika á lofti (Rage in Heaven) Gullæðið 1 Áhrifamikil og vel leikin amer- = (The Gold Rush) Sprenghlægileg amerisk gaman mynd. — Þetta er eitt af hinum gömlu og sígildu listaverkum hins mikla meistara Charles Chaplin. — í myndina hefir veriö settur tónn og tal. Aöalhlutverk: Charles Cliaplin Mack Swain Tom Murray Sýnd kl. 5 og 7 ísk kvikmynd, gerð eftir skáld- sögu James Hiltons Aðalhlutver: Ingrid Bergman Robert Montgomery George Sander Aaukamynd Palestínu-vandamálið (This Modern Age Series) Skemmtun klukkan 9 = = jiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiibiiiiii r Sýnd kl. 5, 7 og 9 m,n 7jarHartfíó.... Klnkkau kallai* (For whom the bell tolls) I Stórfengleg mynd í eðlilegum I I iitum eftir samnefndri skáld- | = sögu E. Hemingways. 1 Aðalhlutver: | | Gary Cooper | Ingrid Berman. | Bönnuð börnum yngri en 16 ára = Sýnd kl. 9 Seldur á lcigu. (Out of this world) É Skemmtileg söngva- og gaman- = É mynd. Aðalhiutver leika: § = E:ldie Bracken =• Veronica Lake | Sýnd kl. 5 og 7 I piiiHiiiiiiiHiiiiiiiuiiHinuuHiiiimvvniniiiiiiiiiiiiiiiliiii Bœjatbíc H afnarfirOi (Leikfélag Hafnarfjarðar) Frumsýning á 1 1 Gasljósmu í = í kvöld klukkan 8.30. | I Sími 9184 | TlllllllllllllllllllHlllllllllllllÍlllllHHIHIIIIIIIIIIIIIHIHIIII ríkjunum, er væri eina friðelsk- andi stórveldið í heiminum. Árangur af þessum áróðri komm únista hefir orðið sáralítill. Á flokksþingi, er þeir héldu rétt eftir seinustu mánaðamót. varð aðal- ritari flokksins, Peter Furubotn, fyrir þungum ádeilum, þar sem honum var kennt um, að hann hefði látið flokkinn halda uppi rangri „taktik" í þessum málum. eða réttara sagt stefna flokksins hafi ekki verið nógu dulbúin. Ýmsar fregnir segja, að stjórn Kominform sé mjög óánægð yfir starfsemi kommúnistaflokkanna á Norðurlöndum og heimti foringja- skipti í þeim. Nokkuð er það, að Linderot, formaður sænska komm- únistaflokksins, hefir beðist lausn- ar. Ber hann við heilsubresti, en pólitískar ástæður eru ekki síður taldar valda afsögn hans. Hörðustu Moskvumennirnir í flokknum hafa um lengra skeið deilt á forustu hans. ! I I í I I Auglýsragasími TÍMAIVS er 81300. | Bönnuð börnum yngri en 16 ára 1 “ 5 IIIIIIIIIIIIIIIIIIHI'lllliril IIIIIIII UwialHIIHHI IIIII 11111*1(11111 HHIIIIHlrt | Jack líkskeri | („The Lodger") 1 Afar spennandi og dularfull 1 | amerísk stórmynd byggð á sönn jj = um viðburðum er gerðust í = § London á síðustu árum 19. ald- I 1 ar. | i Aðalhlutverk: | I Marlen Oberon I George Sanders | I Laird Cregar i Sir Cedris Hardwick Sýnd kl. 5, 7 og 9 | | Bönnuð börnum yngri en 16 ára I Sími 1182 JHHHIIIHHIU .111IIIIIIIIIIIIIHIHI111111111111111111111111111117 Xýtt i'íkisbákii (Framhald af 5. slðu). skipaður skrifstofustjóri fjár málaráðuneytisins eða þegar Jón Syeinsson var skipaður skattdómari. Reynslan af hinum opin- beru skriffinnskustofnunum á fslandi er vissulega slík, að Alþingi ætti að hugsa sig vel um áður en það bætir nýju bákni við. Fjármálavandræð- in verða líka aldrei leyst með því, að Alþingi reyni að koma vandanum og ábyrgð- inni af sér yfir á einhverja nýja valdalitla embættis- menn eða stofnanir. Vandinn verður ekki leystur, nema þingið setji rögg í sig, marki sjálft nýja fjármálastefnu og feli nýjum mönnum að fram- fylgja henni. X+Y. Fasteignasölu- miðstöðin Lækjargötu 10 B. Sími 6530. Annast sölu fasteigna, skipa, bifreiða o. fl. Enn- fremur alls konar trygging- ar, svo sem brunatryggingar, innbús-, líftryggingar o. fl. í umboði Jóns Finnbogasonar hjá Sjóvátryggingarfélagi ís- lands h.f. Viðtalstími alla virka daga kl. 10—5, aðra tíma eftir samkomulagi. Notuð íslenzk frimerki kaupi eg avalt hæsta verði. Jón Agnars, P.O. Box 356, Reykjavík. !»S5S$ÍS54$55SÍ4i5555$55Í55Í55555i5Í5555555555Í55555i54555ÍÍ555Í5i5^^ BERNHARD NORDH: I JÖTUNHEIMUM 1 FJALLANNA :|i 56. DAGUR f; furðuðu sig bara á því, að það skyldu vera óbrotin bein í skrokknum á þeim eftir aðganginn. Jónas sagði hvorki föður sínum né bræðrum frá senn- unni, sem orðið hafði á Saxanesi. En sagan lá samt ekki í þagnargildi. Þegar Jónas kom að Laufskálum, nokkrum dögum síðar, spurði Aron hann, hvernig því véki við, að hann skyldi ráðast á Saxanesbændurnar með hníf og byssu. Jónas þybbaðist við. Hvers konar kjaftasögur voru þetta? Hann hafði ekki notað önnur vopn en hnefana. Byssan hefði hangið heima, og hnífurinn — ja, hann þurfti ekki á honum að halda. Loks sagði Jónas bróður sínum, hvað gerzt hafði á Saxanesi og þegar Aron vissi, að lagðar höfðu verið hendur á hann, áður en berserksgapgurinn kom á hann, harðnaði á honum brúnin. — Þetta var rétt, Jónas, sagði hann grimmdarlega. Það er kominn tími til þess, að fólk viti, að Hliðarmenn láta ekki troða á sér. Jónas virti Aron fyrir sér. — Hefir einhver hér á Laufskálum verið að hnotabítast við þig? spurði hann seinlega. — Hvað áttu við? — Ég myndi kannske taka þann hinn sama í karpúsið, þegar tóm gæfist til. Aron var hugsi litla stund. En svo fullvissaði hann bróð- ur sinn um það, að allt væri eins og það 'ætti að vera. Þrátt fyrir þessa staðhæfingu Arons, var Jónas mjög ögrandi við fólkið í Laufskálum. En það lét eins og það yrði þess ekki vart. Aron lét þetta afskiptalaust, og með sjálfum sér naut hann þess að heyra, hvernig Jónas kastaði hnífilyrðum á báða bóga, án þess að nokkur þyrði að gjalda þessum ó- spektarmanni í sömu mynt. Nú fékk það sjálft að reyna, hvernig það var áð taka þegjandi við hverju, sem að því var rétt! * Þegar hann var háttaður um kvöldið, spurði kona hans: — Hvað hefir eiginlega gripið bróður þinn? — Ekki neitt, held ég. — Hann var sífellt að reyna að koma af stað ófriði. — Það getur ekki verið rétt. — Jú. Af hverju er hann orðinn svona æstur? — Það veit ég ekki, svaraöi Aron. Og það var satt, því að hann furðaði sig manna mest á því, hve uppivöðslusamur Jónas var orðinn. — Og hann er dónalegur við kvenfólk. — Það er alls ekki rétt. — Jú, segi ég. Hann hrækti að Ellu, þegar hún kom inn og spurði hann, hvernig hann hefði farið að því að bjarga sér í stórhríð uppi á háfjöllum. Hann hlýtur að vera oröinn geggjaður. Aron þagði, því að hann vissi það af gamalli reynslu, að konan varð alltaf að hafa síðasta oröið. Hann hugleiddi þetta hins vegar með sjálfum sér, og hann gat ekki borið á móti því, að framkoma Jónasar hafði verið einkennileg. Hafði hann ringlazt í útilegunni? Jæja — ef það kæmi ekki fram nema innan hæfilegra takmarka, þá höfðu bændurnir við Kolturvatnið bara gott af því. En að hann væri dóna- legur við kvenfólk — hefði hrækt að Ellu — nei, það gat ekki verið. Hann var vissulega ekki neinn kvenhatari! Kona Arons hafði því miður rétt fyrir sér. Jónas var ekki lengur mjúkur á manninn við stúlkurnar. Það lá viö að hann nísti tönnum í hvert skipti, sem ung stúlka kom í námunda við hann. Þær reyndu að gera sig eins bliðar í máli og þær gátu og dilluðu sér framan í karlmenn, en þegar til alvörunnar kom — ja svei, þá var fyrst spurt um það, hvort menn ættu kýr og hús og hefðu þolanlegt jarð- næði. Allt átti aö vera til reiöu — ekki annað en ganga inn og setjast við kjötpottinn! Það voru þó fáar stúlkur á Lauf- skálum, og þess vegna hafði Jónas látið svo lítið að þiggja þar næturgistingu. Jónas fór frá Laufskálum morguninn eftir, urrandi eins og hundur, sem misst hefir af kjötbeini. Hann fór þó ekki heim, heldur tók stefnu yfir að Saxanesi. Já — þeir höfðu dreift út þeirri sögu, að hann hefði ráðizt á þá með hníf og byssu. Þeir skyldu ekki sleppa við syndagjöldin! Hann hljóp yfir vatnið eins og trylltur maður, og brún augun leiftruðu af vonzku, þegar hann kom að Saxanesi. Hann hefði ekki einu sinni vikið fyrir byssukjöftum. Hvað

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.