Tíminn - 01.04.1949, Page 2
2
TÍMINN, föstudaginn 1. aprit 1949
70. blað
'tá hati til heiia
1 nótt:
Næturakstur er í læknavarðstof-
unni í Austurbæjarskólanum, sími
4050. Næturvörður er í Reykjavík-
ur Apóteki. Næturakstur annast
Litla bílstöðin, simi 1380.
Útvarpib
1 kvöld:
Fastir liðir eins og venjulega. Kl.
18.30 íslenzkukennsla. — 19.00
Lýzkukennsla. — 19.25 Þingfréttir.
— 19.45 Auglýsingar. — 20.00 Frétt-
ir. — 20.20 Skíöaþáttur (Ólafur
Þorsteinsson). — 20.30 Útvarpssag-
an: „Opinberun" eftir Romanof;
fýrri hluti (Helgi Hjörvar). — 21.00
Strokkvartett útvarpsins: Ýmis
þjóðlög, útsett af Kassmayer. —
21.15 Frá útlöndum (Jón Magnús-
son fréttastjóri). — 21.30 íslenzk
tónlfst: Einsöngslög eftir Björgvin
Guðmundsson (plötur). — 21.45 Er-
indi: Allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna (Ásgeir Ásgeirsson al-
þingism.). — 22.00 Fréttir og veöur-
fregnir. — 22.05 Passíusálmar. —
22.15 Útvarp frá Hótel Borg: Hljóm
svéit Carls Billich leikur létt lög. —
23.00 Dagskrárlok.
Hvar eru. skipin?
Rfkisskip.
Esja var á Akureýri í gær á aust-
uríeiEi Hekla á að fara kl. 12 á há-
degi i dag austur um land í hring-
ffiBö. Heróubreið er á Austfjörðum
á .norðurleið. Skjaldbreið er vænt-
anleg til Reykjavíkur i dag. Þyrill j
Vár við Langanes í gærmorgun.
Súðin kom til Raufarhafnar um
hádegi í gær.
Einarsson & Zoega.
Foldin er í Reykjavík. Spaar-
nestroom er væntanlegur til Reykja
víkur eftir helgina. Reykjanes er
væritanlegt til Vestmannaeyja um
mánaðamótin.
En kæmist það' upp yrði það lífæö
afkomu manna þar á Raufarhöfn,
kvað Hólmsteinn.
Kol lækka.
í dag lækka- kol í verði í ko’.a-
verzlunum í Reykjavík. um tíu krón
ur smálestin.
Óþrifnaður.
í gær var verið að hreinsa grjót-
mulnlng og ýmis konar saur af
götum í miðbænum. Var þetta lát-
ið á vörubíl, en engar hlífar voru
meðfram palli hans. Bílnum var
svo ekið inn alla Hverfisgötu og
hrundi þá farmurinn út af smátt
og smátt inn alla götuna. Virðist
þetta heldur einkennileg sorphreins
un að dreifa sorpinu frá einni göt-
unni á aðra.
Blöið og timarit
Tímarit
Verkfræðingafélags íslands, sem
gefið er út af stjórn félagsins, 4.
hefti 33. árg., hefir nýlega borizt
Tímanum
Skiifar Finnbogi R. Þorvaldsson
þar fyrst minningarorð um Árna .
Daníeisson verkfræðing. Næst er
aðalgrein þessa heftis, sem heitir,
Jarðgufuraforkuverin í Toscana, 1
eftir Va’garð Thoroddsen, rafveitu
stjóra. Loks eru ýmsar athuganir |
og fréttir. Eru það aöallega stuttar
frásagnir (eftir F. R. Þ.), með j
myndum af níu ungum mönnum,
sem teknir hafa verið inn í Verk- |
fræðingafélagið árið 1947.
Skólaskýrslur
Skýrslur Menntaskólans í Reykja
vík fyrir árið 1946—’47 og 1947—'48
hafa borizt Tímanum. Er í þeim
margháttaðan fróðleik að' finna
um hinn fjölmennasta skóla lands-
ins — Menntaskólann.
í upphafi fyrra skólaársins, sem
skýrslurnar fjalla um voru skráð-
ir 402 nemendur 127 stúlkur og 275
piltar. í upphafi síðara skólaársins
(1947—’48), voru skráðir 445 nem-
endur, þar af 145 stúlkur og 300
piltar.
Skýrsiur þessar, sem eru allítar-
iega saman teknar, sýna talsvert
g’ögga beinagrind skólaársins:
námsgreinar, stundaf jölda, nöfn
kennara og nemenda, einkunnir o.
m. fl.
En hold og blóð skólastarfsins
geta auðvitað skólaskýrslur ekki
sýnt, en undir því hvernig tekst að
klæða beinagrindurnar í hinu dag-
lega námi, félags’ífi, vakandi á-
huga, þroska, áhrifum —• eftir því
fer mikið hve skólanámið og skóia-
veran verður til mikillar blessunar
þeim, er í skólanum dvelja.
Sltýrsla
um Gangfræðaskólann í Reykja-
vík skólaárið 1947—’48. Vitnar hún
um mikla aðsókn, marga kennara
og mikið starf.
En árangurinn verður varla
dæmdur nema helzt með því að
kynnast nemendunum sjálfum. Vin-
andi er hann samt mikill og góð-
ur.
Skiðafélag Reykjavíkur
mælist til þess, að þeir meðlimir
eða aðrir, sem njóta vilja gisting-
ar eða greiða í Skíðaskálanum um
helgar, noti skíð'aferðir þess að
öðru jöfnu.
Skíðaferð á laugardag kl. 2, til
baka kl. 6. Sunnudag kl. 9 og kl.
10. Farið frá Austurvelli og Litlu
' bíistöðinni. Farmiðar þar og hjá
Miiller. Viö bílana, ef eitthvað verð
ur óselt.
Skiöafélag Reykjavíkur.
Ferðafélag íslands
ráðgerir að fara í ferðalag á skíð-
um yfir Kjöl næstkomandi sunnu-
dag, verði gott veður. Ekið að Foss-
á í Hvalfirði, en gengið þaðan á
l skíðum upp Þrándastaðafjall yfir
hæstan jökul (787 m.), að Kárastöð
um í Þngvallasveit. Leið þessi er
með afbrigðum skemmtileg og nóg
ur snjór. Farmiðar seldir á laugar-
| daginn til kl. 4 e h. á skrifstofu
Kr. Ó. Skagfjörðs, Túngötu 5.
Farfuglar!
Munið skemmtifundinn aö Röðli
í kvöld, hefst kl 9. Skemmtiatriði.
Á fundinum liggur frammi á-
skriftarlistí fyrir þá sem vilja taka
þátt í námskeiði deildarinnar í
hjálp í viðlögum, einnig verður les-
in upp ferð'aáætlun sumarsins.
Nefndin.
Prentarar
Árshátíð félagsins verður í Tjarn-
arkafíi, annað kvöld (laugardag),
kl. 8. Aðgöngumiðar verða seldir í
skrifstofu félagsins í dag kl. 5—7.
Simi TDIA YS
er
81300
frá kl. 9—5
eftir kl. 5 Ritstjórn 81302
— — - Fréttir 81303
— — - Augl. 81301
Köld borð og
heltnr veizlumatur
sendur út um allan bæ.
SILD & FISKUR
Eldurinn
gerir.ekki boð á undan sér!
Þeir, sem eru hyggnir,
tryggja strax hjá
Samvinnatryggingum
Kaupum
tuskur
Baldursgötu 30.
Sími 2292.
FARGJÖLD
Frá og með 1. apríl verða fargjöld á eftirtöldum
utanlands flugleiðum vorum, sem hér -segir:
Flugferðir
Flugfélag Islands.
Gullfaxi er í Reykjavík Flogið
var í gær til Akureyrar, Vestmanna
eyja og Austfjarðanna fjögurra.
Loftleiðir.
Hekla og Geysir eru í Reýkja-
vík. En Geysir fer n.k. þirðjudag
til London, Prestvíkur og Stokk-
hólms, en Hekla fer beint til Kaup-
mannahafnar sama dag. bæði full-
fermd farþegum, Geysir með 44 en
Hekia með 42.
í gær var fiogið til Vestmanna-
eyja, Akureyrar, ísafjarðar og
Patreksfjarðar.
Úr ýmsom áttum
Frá Raufarhöfn.
Hólmsteinn Helgason oddviti á
Raufarhöfn, leit inn í skrifstofu
Tímans í gær og var spurður tíð-
inda að norðan.
Fiskafla hvað Hólmsteinn hafa
verið lítinn á Raufarhöfn síðan á
áramótum, en þó nokkurn í janúar.
En síðan hefði virzt fiskilítið á ná-
iægum miðum. En í haust var all-
góður fiskaili. Raufarhöfn er alltaf
.stækkandi kauptún. Helzta dag-
skrármái og framtíöarmál þorpsins
undanfarið er hraöfrystihúsmálið.
Innflutnings- og gjaldeyrisleyfi
fyrir vélum og öðru viðvíkjandi
hraðfrystihúsinu hefði nýbygginga-
ráð veitt og eitthvað kom af þ. h.
1947—’48. Byrjað var að reisa hús-
ið og komust upp veggir og skii-
rúm, en siðan hefði allt strandaö.
Aðeins kæmu falleg bréf frá Jó-
hanni fjármálaráðherra með fyrir-
heitum um fullan stuöning við að
koma upp hraðfrystihúsinu En
svo næði þaö ekki lengra.
Raufarhafnarhreppur, Kaupfélag
N.-Þingeyinga og 70—80 einstakl-
ingar hefðu lagt fé í nö koma þessu
af stað, en svo væri al’t þurrausið.
En ráðgeit hefði verið að frysti-
húsit kostaði um eina miljón ki.
EFTIR OVEÐRIÐ
Næstum hvar sem tveir menn
eða fieiri mættust á förnum vegi í
gær, barst talið að hinu pólitíska
óveðri, sem geisaö hefði í bænum
undanfarið og náði hámarki sínu
við Alþingishúsið kl. 2—3 miðviku-
daginn 30. marz.
Flestir hafa lritt og annað til
málanna að leggja. Ásakanir og
varnir skiptast á — klögunarmálin
ganga á víxl En a’lir eru vissir um
að sökin sé ekki hj&’ sjálfum sér,
heldur einhverjum öðrum — helzt
óljúfum andstæðingum.
Eins og venjulega, þar sem fleiri
deila, er hér auðvitað ekki öll sökin
hjá einum aðiía. En a lir finna að
hlutir hafa skeö, sem eru á annan
hátt heldur en æskilegt er.
Við, sém staddir vornm í Alþing-
ishúsinu 30. marz, þegar umræð-
urnar og atkvæöagreiðsla um inn-
gör.gu i Atlantshafsbandalagið fór
fram í Sameinuðu Alþingi, af þar
til löglega kosnum fuíltrúum þjóð-
arinnar, munum lengi minnast
þess, þegar grjóthríðin skall á hús-
inu og hver rúðan eftir aðra mol-
aðist sundur inn í þingsalinn og
grjót og glerbrot voru um borð og
stóla þingmannanna. En úti fyrir
stóðu þúsundir manna, er þöktu að
mestu Austurvöll. Og stór hópur af
þeim æpandi upp í hina brotnu
glugga húss löggjafasamkomu hinn
ar íslenzku þjóðar.
En þegar óveðrinu slotaði, þá
stóð hið gamla fræga Alþingishús
við Austurvöll hnípið og hljótt með
flestar rúður brotnar í dyrum og
gluggum, er vissu að aðalgötunni,
en gasfýlan og grátandi fólk í hóp-
um læddist mg götur miðbæjarins
og særðir menn héldu til sjúkra-
húsa og sáragræðslumanna til þess
að leita sér bót meina sinna, er
þeir höfðu hlotið í hinu pólitíska
gjörningaveðri. sem geisað liafði
yfir höfuðstaðinn @
Allir hljóta að finna, að hér er
ekki al't með felldu. Þó óttast marg
ir, að þetta sé aðeins uppliaf þess,
sem koma mun, ef sú þróun held-
ur áfram, að hér myndist á aðra
hliðina fylking undir forustu auð-
drottna- og óhóísseggja, sem setið
hafa sólar megin í lífinu, en hins
vegar fylking undir handleiðslu frá
ofbeldissinnuðum byltinga- og ang-
urgöpum, sem gengið hafa á hönd
fjærskyldu stórveldi, Sem þeir hlýta
svo algerlega kalli frá í viðskiptum
við sína eigin þjóð.
Hið pólitiska óveður undanfarna
daga ætti að verða til þess að
greiða rykský frá augum hugsandi
fólks, sem hefir daprazt sýn fram
að þessu af ofvexti í einstak’ings-
framtakinu eða austrænni oíbirtu.
Tæplega getur nokkuð annað
bjargað þjóðinni nú út úr því öng-
þveiti, sem hún er alltaf að sökkva
í dýpra og dýpra, annað en að
miðflokksmenn taki höndum sam-
an um að skapa grundvöll undir
heilbrigt þjóðlíf og þjóðarbúskap.
Þaö eru til nógu margir menn í
flokkunum til hægri og vinstri, sem
ættu að koma til liðs við þá mið-
flokksmenn, sem fyrir eru, og
skapa með þeim nógu öfluga mið-
fylkingu. En aðallega eru þeir þó
meðal bænda, sjómanna, verka-
manna og iðnaöarmanna — ein-
mitt stéttanna, sem eðlilegast er að
vinni saman.
Myndaðist heilsteypt miðfylking,
sem tæki algerlega völdin i land-
inu í sinar hendur, myndu sjúk-
legir yfirstéttar sælkerar og of-
stækisfullir ofbeldismenn, erind-
rekar annarra þjóða, hafa lítið að
segja í íslenzkum málum.
En að þessi miðfylking ísienzkra
umbótamanna eflist, þolir ekki
iengi bið úr þessu, því það er tak-
markaður tími, sem hægt er að
þola að dáðleysi annars vegar og
öfgar frá yztu jöðrum ofbeldis og
yfirgangs hins vegar, iialdizt í hend
ur til þess að færa allt í kaf, sem
dýrmætast er hér á þessari eyju
okkar.
V. G.
Reykjavík - - Prestvík .... Kr. 693,00
Reykj avík - - Kaupmannahöfn .... .... — 1072.00
Reykjavík - - Osló .... — 878,00
Reykjavík - - -Stokkhólmur — 1154,00
Flugfélay
Islands
!
j •tttiiMiimiimiMiiiiiiiiiiiMiHiiiiitiiiHiiMiiiHiiiiiiiiiikiiiiiititiiiiitimiiiitiitimiiitiHiiiiimiiiiiiiiiiii'iiiiiii'iiiiiiiii
auglýsing!
| Nr. 91949 !
| frá skömmtunarstjóra I
Skömmtunarreitimir, skammtar nr. 6 og 7 á fyrsta 1
| skömmtunarseðli 1949 gildir hvor um sig fyrir y2 kg. I
i af skömmtuðu smjöri til 1. júli 1949, þó þannig að |
[ skammturinn nr. 7 gengur ekki í gildi, fyrr en 15. maí f
I nœst komandi. |
I Reykjavík, 31. marz 1949
Skömmtunarstjóri f
- ?
Auglýsið í TÍMANUM