Tíminn - 01.04.1949, Side 7
70. blað
TÍMINN, föstudagiim 1. apríl 1949
7
Dánarmiimiiig':
Saimicl Eg'gertsson
(Framhald af 3. siðil).
merkilegum tengslum við
spaklega hugsun og listræna
hneigð, að fágætt mun vera.
Flestum er kunnugt um hæfi
leika hans til dráttlistar, en
færri vita, að Samúel var
einnig svo sjálfmenntaður í
söngfræði, að hann las auð-
veldlega nótur og skrifaði
iðulega upp lög, sem hann
komst yfir og þótti falleg.
Þegar hann var bóndi, kom
hann líka upp kirkjusöng-
flokk, sem hann æfði. Sögu
landsins og svipmót bar hann
svo að segja í brjöstinu, eins
og teikningar hans og kort
eru ljós vottur um. En auk
þessa hafði hann mikinn á-
huga fyrir heimspeki, mann-
fi-æði og ættfræði og teikn-
aði fallegt ættarskrárform.
Þá lágu og ýmsir þættir nátt-
úrufræðinnar ekki síður nær
hug hans og hjarta, ekki sízt
stjörnufræðin. Úranía var
vissulega sú gyðjan, sem
hann unni fölskvalaust og
þjónaði af mikilli lotningu.
Enda dró hann upp fleiri kort
af hinum björtu stjörnum og
bláa himinhveli henni til
dýrðar. Samúel var einnig
prýðilega ritfær og skrifaði
npkkuð í blöð og tímarit.
Ef til vili kemur einhverj-
um í hug, að maður slíkur
sem Samúel hafi hlotið að
vera einn af þessum stirfnu,
mannfælnu grúskurum. En
slikt var víðs fjarri um hann.
Þar sem Samúel var, hittum
við alltaf fyrir líffullan, fjöl
fróðan, sannleikselskandi
áhugamann, sem ávallt hafði
ánægju af því að fræða aðra
og ræða við þá um áhugamál
sín. Við hittum þar fyrir
ljúfmennið hjartalireina, góð
mennið glaða, speking með
barnshj arta. Mörgum, sem
kynntust honum, varð hann
líka ógleymanlegur.
Þótt Samúel hið ytra ætti
við að etja erfiðleika hins fá-
tæka alþýðumanns og lifði á-
vallt lífi hans, var hann þó
I raun og veru mikill gæfu-
maður. Hann var heilsu-
hraustur frarn á síðustu ár
og líkamlegur léttleiki og fjör
var þessurn smávaxna
granna manni i blóð borið.
Hann eignaðist elskulegar og
vel gefnar dætur og fóstur-
börn, sem sýndu honúm um-
byggjusemi og ræktarsemi,
og' hann átti mikilhæfa og
ágæta konu, sem nú var lát-
ih fyrir 10 árum. Bar hún
uppi heimili þeirra með um-
hyggju sinni og forsjá og var
Samúel ómetanleg stoð í öllu
hans starfi. Slik gæfa er mik-
ijsvirði fyrir mann sem
Samúel. Þeir eru oft að ein-
hverju leyti eins og stór
börn, einkum í því, sem veit
að' hagfræðilegum og verald-
legum efnum. Hjónaband
þeirra var líka með ágætum,
og á heimili þeirra skipaði
alúð og sérstök gestrisni á-
vallt öndvegið. Voru þau
bæði samhent í því að skapa
slíkt andrúmsloft, bæði gest-
risin og hjálpfús oft um efni
fram. Þótti öllum gott til
þeirra að koma og til þeirra
að leita, enda varð þeim vel
til vina. Ég, er þessar línur
skrifa, var í tölu þeirra, er
voru svo lánsamir að kynn-
ast Samúel náið og heimili
hans. Finnst mér sjálfur
liann, líf hans og öll þau
fræ, sem honum voru „í
brjóst of lagin“, ein bezta
tryggingin fyrir því, að ein
manhSævi, þótt löng sé, hljóti
aðeins að vera lítill spölur
á óendanlegri þroskabraut.
Þess vegna vil ég nú, Samú-
el, um leið og ég þakka þér
fyrir allt, einnig samfagna
þér af alhug, gamli, góði,
elskulegi vinur.
Ingibjörg Þorgeirsdóttir.
Sameinuðu þjóðirn-
ar — hugsjón og
raimveruleiki
(Framhald af 4. síðu).
varanlegur. Af því höfum við
líka reynsluna.
En þótt hinum sameinuðu
þjóðum hafi þannig verið
skipt upp í tvær andstæður
— og brátt vopnaðar fylk-
ingar — er óþarft að tala
með óvirðingu um hugsjón-
ina S. Þ. fyrir því.
Ég hefi sem hliðstæðu
hnignunar S. Þ. valið okk-
ar eigin sögu. Flestar aðrar
þjóðir eiga svipaða sögu. Öll
saga er meira og minna saga
um baráttu einstaklinga,
þjóða eða þjóðasamtaka, til
þess að komast lengra fram
á braut þróunarinnar. Saga
um sigra þeirrar baráttu og
ekki síður ósigra hennar.
Hugsjónin fer á undan, vog-
ar sér of langt á undan og
bíður ósigra fyrir kaldhyggj-
unni. En hugsjónin fellur
aldrei í orustum, því hún lif-
ir meðan mennirnir lifa á
jörðinni. En hún dregur sig
til baka til þess að sæta færi
og sækja fram undir eins aft-
ur, er veikar vonir eru um
að geta komizt áfram nokkur
fet.
— Lýðveldið forna beið ó-
sigur. Alþingi var lagt niður
um skeið. En vegna þess, að
hugsjónin varð ekki deydd,
er nú hvorttveggja staðreynd
að nýju. Og sízt munum viö
telja okkur það sæma að
kasta steini að þeim, sem
varðveittu hugsjónina um
lýðveldi og Alþing, gegnum
hinar myrku aldir — löngu
eftir að hvorttveggja var
hrunið.
Þjóðabandalagið hrundi —
S. Þ. risu á rústum þess.
S. Þ. kunna að bíða ósigur
og margar stofnanir þess
drukkna í blóðbaði Sturlunga
aldar, sem nær um veröld
alla. — En hugsjónin, hinar
sameinuðu þjóðir, deyr ekki
fyrir því. Við íslendingar eig-
um að styðja að því að varð-
veita þessa hugsjón, sem
ekki er aðeins eina von varn-
arlausra smáþjóða, heldur
eina von gjörvallrar verald-
arinnar um frið og farsælt
lif. — Eftir nokkra áratugi
— eða eftir nokkrar aldir —
mun haldið þing S. Þ. með
valdi til að setja heiminum
lög, valdi til að gæta lag-
anna, valdi til að koma í veg
fyrir styrjöld — og það mun
þykja viðiíka sjálfsagt og
eðlilegt eins og að þing hverr
ar þjóðar hefir vald til að
setja þjóð sinni lög, láta gæta
þeirra og afstýra borgara-
styrjöldum.
Meðan þetta er ekki gert
getur heimurinn einatt átt
þess von að standa á sama
stigi og ísl. þjóðfélag á
Sturlungaöld.
Af þessum ástæðum verð-
ur veröldin að stefna að því
marki að gera hugsjónina:
Hinar sameinuðu þjóðir, að
raunveruleika.
Mætti þá svo fara, að yfir
S KIPAUTGC Ki)
, RIKISINS ^
„Skjaidbreið"
til Vestmannayja hinn 4. þ.
m. Tekið á móti flutningi á
morgun og mánudaginn.
Pantaðir farseðlar óskast sótt
ir á mánudaginn.
*
Aætlaðar flugferðir
í apríl 1949
innanlands
Frá Reykjavík:
Sunnudaga:
Til Akureyrar
— Vestmannaeyja
— Keflavíkur
Mánudaga:
Til Akureyrar
— Vestmannaeyja
Þriðj udaga:
Til Akureyrar
— Vestmannaeyja
Miðvikudaga:
Til Akureyrar
— Vestmannaeyja
— Hólmavíkur
— ísafjarðar
Fimmtuciiga:
Til Akureyrar
— Vestmannaeyja
— Seyðisfjarðar
— Norðfjarðar
— Reyðarfjarðar
— Fáskrúðsfjarðar
Föstudaga:
Til Akureyrar
— Vestmannaeyja
. — Hornafjarðar
— Fagurhólmsmýrar
— Kirkj ubæj arklausturs
Laugardaga:
Til Akureyrar
— Vestmannaeyja
— ísafjarðar
— Keflavíkur
Ennfremur frá Akureyri til
Siglufjarðar alla daga og frá
Akureyri til Ólafsfjarðar,1
mánudaga og fimmtudaga.
FcrSist með
föxuimm
Flugfélag íslands
þinghúsdyrum hinna samein
uðu þjóða stæðu orð, sem
þýddu: „Með lögum skal land
byggja“, og að bak við þær
dyr væri vald, sem væri þess
umkomið að sjá um, að þau
orð yrðu að raunveruleika
um alla veröld — um alla
framtíð. !
Hvaða ósigra, sem S. Þ.
kunna nú að bíða í fram-
kvæmd, vegna vanþroska
mannkynsins, má hugsjón
þeirra aldrei slokkna í brjóst
um mannanna.
GLATT A HJALLA
KVDLDSYNING
í Sjálfstæðishúsinu i kvöld (föstudag) kl. 8,30. Að-
göngumiða má panta í síma 2339 kl. 10—12. Pantanir
óskast sóttar kl. 2—4 — Dansað til kl. 1.
:
!
!
Verðlækkun kola I
Frá og með morgundeginum 1. april lækka kol
um kr. 10.00 og miðast kolaverð þá við kr.
240.00 pr. smálest.
| Kolaverzlanirnar í Reykjavík
I
Happdrættislán
ríkissjóðs
Nokkur skuldabréf í A-flokki Happdrættisláns rík-
issjóðs eru til sölu hjá ríkisféhirði í Arnarhvoli. Dreg-
ið verður næst í þeim flokki 15. april.
Skuldabréf í B-flokki Happdrættislánsins verða
fyrst um sinn aðeins seld hjá ríkisféhirði, en almenn
sala bréfa, sem óseld eru í þeim flokki, hefst væntan-
lega 1. júní.
Fjármálaráðuneytið, 31. marz 1949.
♦
I
Trésmiðafélag Reykjavíkur I
| TILKYNNING |
Samkvæmt ákvörðun trúnaðarmannaráðs Tré- \
I smiðafélags Reykjavíkur fer fram allsherjaratkvæða- |
| greiðsla í skrifstofu félagsins, Kirkjutorgi 4, dagana 1
1 2. og 3. apríl n.k. um framkomnar tillögur um breyt- í
| ingu á tímakaupi trésmiða í húsasmíðaiðn. Atkvæða- |
| greiðslan hefst laugardaginn 2. april 1949 kl. 14 (kl. |
1 2 e. h.) og stendur þann dag til kl. 22 (kl. 10 e. h.), I
| hefsc aftur sunnudaginn 3. apríl kl. 10 og lýkur þann 1
| dag kl. 22 (kl. 10 að kvöldi). }
Atkvæðisrétt hafa þeir einir, sem hafa greitt að |
| fullu iðgjald sitt fyrir árið 1948 og ekki skulda eldri i
f gjöld. |
Tillögur þær, sem atkvæði verður greitt um, liggja f
| frammi í skrifstofu félagsins og geta félagsmenn í
| kynnt sér þær þar. |
Kjörstjórnin. |
mmmiimmimmiimiimiimmmmmiiimmmmmimiimmmmmimiimmimimmimmmmmmiiiimmmmmmmmmmmmmiimiimmimiiimi
ALGLÝSIIVGASÍMI TÍMAAS ER 81300