Tíminn - 01.07.1949, Page 2
TÍMINN, föstudaginn 1. júlí 1949.
137. blað
hafi tii keiia
1 dág:
Sólin kom upp kl. 3.05.
Sólárlag kl. 23.56.
ÁrdegisflæSi kl. 9.55.
SíSdegisflæði kl. 22.17.
I nótt:
Næturlæknir er í læknavarð-
stofunni í Austurbæjarskólanum,
sími 5030. Næturvörður er í Ingólfs
Apóteki, sími 1330. Næturakstur
annast B. S. R., sími 1720.
Útvarpið
Útvarpið í kvöld:
Fastir liðir eins og venjulega.
19.30 Tónleikar: Óperulög (plötur).
20.C0 Fréttir. 20.30 Útvarpssagan:
„Catalína“, eftir Somerset Maug-
ham; XI. lestur (Andrés Björns-
son). 21.00 Strokkvartettinn „Fjark
inn“: Kvartett i F-dúr op. 18 nr.
1 eftir Beethoven. 21.15 Frá útlönd-
um (Jón Magnússon fréttastjóri).
21.30 Tónleikar: Fiðlukonsert ÍD-
dúr op. 77 eftir Brahms (plötur).
22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.05
Vinsæl lög (plötur).
Hvar eru skipin?
Ríkisskip:
JEsja var á Akureyri síðdegis í
gær. Hekla er á leiðinni frá Rvík
tii Glasgow. Herðubreið fór frá
Reykjavík kl. 15 í gærdag austur
um land til Siglufjarðar. Skjald-
breið fer frá Reykjavík í kvöld til
Húnaflóa-, Skagafjarðar- og Eyja-
fjarðarhafna. Þyrili er á leið til
Norðurlandsins.
Eimskip:
Brúarfoss kom til Akureyrar í
gær, fór þaðan í gærkvöldi til ísa-
fjarðar. Dettifoss fór frá Rotter-
dág 27. júní, væntanlegur til Rvík-
ur um hádegi í dag. Fjallfoss fór
írá Immingham 26. júní, kom til
Reykjavíkur í gær. Goðafoss er í
Kaupmannahöfn. Lagarfoss fór frá
Hull 29. júní til Reykjavíkur. Sel-
foss fór frá Hamborg í gær til
Áustur- og Norðurlands. Tröllafoss
fór frá New York 28. júní til Rvík-
ur. Vatnajökull kom til Álaborg-
ar. 29. júni, fór þaðan í gær til
Reykjavíkur.
,,, : _
Einarsson & Zoega:
. Foldin er á leið til Reykjavíkur
ftá Hull með viðkomu í Færeyj-
tiWir væntanleg um helgina. Ling-
estroom er í Amsterdam.
Flugferðir
Flugfélag íslands:
Flugvélar Flugfélags íslands
fljúga í dag áætlunarferðir til eft-
irtaldra staða: Akureyrar (2 ferð-
ir), Vestmannaeyja, Keflavíkur,
Kirkjubæjarklausturs, Fagurhóls-
mýrar, Hornafjarðar og Siglufjarð-
ar.
í gær flugu flugvélar frá Flug-
félagi íslands til Akureyrar (2 ferð-
ir), Siglufjarðar (2 ferðir), ísa-
fjarðar, Hólmavíkur, Djúpavíkur og
Keflavíkur.
Á morgun verða áætlunarferðir
til þessara staða: Akureyrar (2 ferð
ir), Vestmannaeyja, Keflavíkur,
Siglufjarðar, Kirkjubæjarklaust-
urs, Fagurhólsmýrar og Homa-
fjarðar. Ferðafélag Templara efn-
ir til skemmtiferðar til Horna-
fjarðar og verður flogið þangað í
einni af Douglas flugvélum Flug-
félagsins.
Gullfaxi kemur^ frá Osló í dag
kl. 17, en fer síðan beint til Kaup-
mannahafnar í fyrramálið kl. 8.30.
Loftieiðir.
í gær var farin ein f erð til Sands
og ein ferð til Akureyrar.
í dag verða farnar áætlunarferð-
ir til Vestmannaeyja, Akureyrar,
ísafjarðar, Patreksfjarðar, Siglu-
fjarðar, Kirkjubæjarkiausturs og
Fágurhólsmýrar.
Geysír kom í nótt frá Stokk-
hójmi og Kaupmannahöfn með 46
farþega.
Hekla fór kl. 8 í morgun til Prest
víkur og Kaupmannahafnar með
42 farþega, væntanleg aftur um kl.
17 á morgun.
Geysir fer í kvöld til Parísar með
44 farþega.
Árnað heilla
Hjónaefni.
Nýlega opinberuðu trúlofun sína
ungfrú Sigríður Skúladóttir, Fram-
nesveg 17, Reykjavík og Gísli Jó-
hannesson, Gauksstöðum, Garði.
Úr ýmsum áttum
ísfiskssölur.
Þann 27. júní seldi Skallagrímur
4493 vættir fyrir 1971 pund í Aber- f
deen. 28. júní seldi Kári 3615 kits
í Fleetwood fyrir 6444 pund. Hall-
veig Fróðadóttir landaði í Hamborg
27. þ. m. 289 smál.
Séra Árni Sigurðsson
fríkirkjuprestur er farinn í sumar-
leyfi. í f jarveru hans afgreiðir séra
Kristinn Stefánsson, Hringbraut
39, vottorð úr kirkjubókum Frí-
kirkjusafnaðarins.
Ferðaskrifstofan
ráðgerir að efna til tveggja sum-
arleyfisferða um næstu helgi, 7
daga ferðar norður í Mývatnssveit
og 8 daga ferðar austur í Öræfi
og Hornafjörð.
Mývatnssveitarferöin hefst kl. 2
á laugardag, ekið um Hvalfjörð og
gist í Reykjaskóla í Hrútafirði.
Næsta dag ekið til Hóla í Hjalta-
dal með viðkomu á Sauðárkróki.
Þriðja daginn ekið fram Blöndu-
hlíð til Akureyrar. Fjórða daginn
ekið fram að Grund í Eyjafirði. í
Vaglaskóg og til Reykjahlíðar.
Fimmta daginn helztu staðir skoð-
aðir í Mývatnssveit, t. d. Slútnes,
Námuskarð, Dimmuborgir, Stóra-
gjá og fl. Sjötta daginn ekið frá
Reykjahlíð til Reykjaskóla í Hrúta
firði og sjöunda daginn til Reykja-
víkur.
.J,
.............................................••••iMiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinin
8 daga ferðin austur í Oræfi og
Hornafjörð hefst á laugardaginn
2. júlí. Flogið verður til Horna-
fjarðar. Daginn eftir ekið til Fag-
urhólsmýrar. í Öræfabyggö verð-
ur dvalið í 5 daga. gengið á
Hvannadalshnjúk og farið um
byggðina á hestum eða bíl. Komið
til Reykjavíkur 9. júlí.
Ennfremur mun Ferðaskrifstof-
an efna til tveggja eða þriggja
helgaferða, ef veöur leyfir, t. d.
austur að Gullfossi og Geysi, og
verður sápa látin í hverinn.
Biöð og tímarit
Musica,
júni-hefti 1949 er komið út. Efni
m. a.: Jón Leifs, heimskunnur
listamaður íslands, fimmtugur, eft-
ir Fritz Jarits. Shostakovich á ís-
landi, eftir Alan Moray William.
Fréttabréf frá Ítalíu. Nútima norsk
tónlist, eftir Olav Gurvin. Gagn-
rýnandinn Sigurður Skagfield, eft-
ír Tage Ammendrup. Tónminning-
ar: M.A.-kvartettinn. Lagið fagra
land, eftir Þorstein Sveinsson er á
nótum. Rússneska söngaðferðin,
viðtal við Serge Jaroff. Grein um
Hándel. Úr tónlistarlífinu. Jazz-
hljómleikar K. K. Líf tónlistar-
mannsins er skemmtilegt, stutt
samtal við Jónatan Óiafsson. Af-
mælisávarp Jóns Leifs o. m. fl.
Tvefr ktmuir ....
(Framhald af 1. síöu).
dag veröur i^mið í hæsta-
rétt. Á þriðjv/'.ag verður far-
ið með Esju í hringferð aust-
ur fyrir land til Akureyrar.
Komið verður við á ýihsum
stöðum á Austfjöröum. Þann
11. júlí veröur farið frá Ak-
ureyri landveg til Reykjavík-
ur. Eftir það ráða gestirnir
ferðum sínum sjálfir og mjög
líklegt er að þeir fljúgi til
Norðurlanda og dveljist þar
nokkrar vikur, en munu koma
aftur við á íslandi, á heim-
leið sinni til Bandaríkjanna.
Eru sjúkrabílarnir ógangfærir?
Ég hitti sunnlenzkan bónda að
máli í gær. Hann hafði orðið að
flytja konu sína sjúka af skæðri
botnlangabólgu hingað í sjúkrahús
til uppskurðar um helgina. Á Sel-
fossi á að vera sjúkrabíll, en þeg-
ar til átti að taka var sá bíll í
Reykjavík og náðist ekki til hans
þar. Bóndinn hringdi þá til yfir-
læknis sjúkrahúss Hvitabandsins
og spurðist fyrir um það, hvort
hægt mundi að fá sjúkrabíl úr
Reykjavík, en læknirinn kvað það
vonlítið, þar sem bílar Rauða kross
ins væru sagðir bilaðir og færu
helzt ekki út úr bænum vegna
þess. að þeim væri ekki treystandi
til langferða. Varð konunni því j
ekki komið til uppskurðar þann j
daginn, en til allrar hamingju rén
aði botnlangakastið og var hægt
að flytja hana í venjulegum fólks-
bíl til Reykjavíkur á sunnudag-
inn. Var konan síðan skorin upp
á mánudag og tókst vel.
Hér hefði þó getað farið illa, þvi
að slæmt botnlangakast getur
hæglega leitt til skjóts bana, ef
ekki er íljótt við brugðið. Liggur
þá lííið á að koma sjúklingnum
Bæjarráð Reyltjavíkur hefir ákveðið, að efna til al-
mennrar hugmyndasamkeppni um útlit og fyrirkomu
lag á þrem stærðum sumarhúsa, er byggð yrðu á hin-
um nýju garðlöndum við Rauöavatn.
Þeir húsameistarar, sem áhuga hafa á þessu, geta
fengið útboðsskilmálana afhenta í skrifstofu bæjar-
verkfræðings, Ingólfsstræti 5 (2. hæð) alla virka daga
á venjulegum skrifstofutíma, gegn kr. 50.00 skilatrygg
ingu.
Úrlausnir skulu berast sömu skrifstofu fyrir kl. 12
á hádegi 15. ágúst n.k.
Borgarstjórinn í Reykjavík
éllMIHMHHIHMMMMMIHMHIMIIMHIIHMIIMIHIHMIIIIMHHIIIHIIIIMnHIHHIIIIIIIIIMIIIIIMHIMIIMMMHIIIIIMIIIIIIIIIIIM
!
Kaupfélag Siglfirðinga óskar aö ráða nokkrar stúlk
ur til síldarverkunar í sumar á söltunarstöð sinni á
Siglufirði. Fríar ferðir — Kauptrygging — Gott hús-
næði.
Nánari upplýsingar gefur
Magnús Guðmundsson
Sambandshúsinu
Sími 7080
eem allra fyrst til uppskurðar og
skilja þar oft fáar klukkustundir
mii:i heims og helju. Það er því
með öliu óviðunandi ástand, að
ekki sltuli hægt að ná til sjúkra-
bíla með litlum fyrirvara, og þeir
skuli ekki vera í svo góðu lagi, að
þeim sé treystandi til styttri ferða
út fyrir bæinn. Ef til vill eru þeir
nú orðnir gamlir og úr sér gengn-
ir, en það má þá ekki heldur
spara gjaldeyri til kaupa á nýj-
um. Annað eins látum við nú eft-
ir okkur.
Sé hins vegar bifvélavirkjaverk-
íallinu um að kenna, má ekki láta
við það s’tja, enda trúi ég tæp-
lega, að verkfallsmenn gefi ekki
undanþágu til að láta gera við
sjúkrabíla. Félög, sem gert hafa
verkföll, hafa aldrei stöðvað lækna
bíla, og ótrúlegt er, að viðgerð á
sjúkrabílunum nú yrði meinuð. En
hvernig sem þessu víkur við, þá
verða sjúkrabílarnir að vera gang-
færir, og það má heldur ekki koma
fyrir, að fólk úr sveitunum geti
ekki náð til sjúkrabíla, þegar mik-
ið liggur við.
^"•1 : t-:«SIMd Al k.O
i^-" ' * áí r:íV'l í 70 jjbL&r’: '&H
TILKYNNING
frá Vörubílstjórafélaginu Þrótti
Þessa árs merki á bifreiðum félagsmanna verða af-
hent á vörutoílastöðinni frá 1.—15. júli. Félags-
menn eru áminntir um að þeim ber að hafa merkt
bifreiðar sínar með hinu nýja merki fyrir 16. júlí n.k.
Stjórn Vörubílstjórafél. Þróttar
IMMIMMMMMMMIIIMMIMIIMMMMMMIIMMIIMIMMMMMMIMMIIMIllllMIIIIMilMMII'MIIIMIIMIIIIIMIMMMMIMIMIMIIIIIMIII
Rafmagnsvörur — Fittings — Kapal — Straujárn
| — Hraðsuðupotta — Pönnur — Kaffikönnur — Raf^
1 suðuplötur — Hitapúða o. fl. bjóðum við frá einni
| stærstu verksmiðju í Danmörku. Hagkvæmt verð.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu vorri
f Þingholtsstræti 23. Sími 1707.
:
| Jóhann Karlsson & Co.
IIIIIII llll lllllllflllll IIIIIII MlÍlllll IIII MIIMltí IIMMMMIIIII lllllll II MIMMMIMMMMMMMMMIIIMMMMM
Tvær stúikisr
óskast til vinnu í verksmiðju vorri. Helzt vanar sauma
skap.
Getum látið í té húsnæði ef óskað er.
Ú LT I M A
Laugavegi 105, 4. hæð — Sími 81735
IHlllllMtlllHIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIHIHHIIIIIIIIIIIIIHIIIMHHIIItllHIHHHir