Tíminn - 26.07.1949, Blaðsíða 1

Tíminn - 26.07.1949, Blaðsíða 1
Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson Fréttaritstjóri: Jón Helgason Útgefandi: Framsóknarjlokkurinn Skrifstofur í Edduhúsin:: Fréttasímar: 81302 og 81304 Afgreiðslusími 2323 Auglýsingasimi 81300 Prentsmiðjan Edda 33. árg. Reykjavík, þriðjudaginn 26. júlí 1949 155. blac i Enn kemur hún á óvart: Mikil sí vera Veður hamlar veiðum. Þó að menn þykist hafa nokkurn veginn örugga vissu um það, að þarna sé all mikil síld hefir lítið verið hægt að veiða af henni vegna óhag- stæðrar veðráttu og þess að síldin veður lítið. Suðlæg og austlæg átt hefir verið á þess um slóðum undanfarna daga og henni fylgt ylgja í sjó. Veður batnar en síldin vill ekki vaða. í gær og fyrradag var all sæmilegt veður í flóanum og var þá hægt að fást við veið- ar. Mældu síldveiðiskip í gær síld á stóru svæði rétt upp undir Akranes, en síldin óð ekki. Síldveiðiskipið Ófeigur frá Vestmannaeyjum veiddi 180 mál af síld á þessum slóð um aðfaranótt sunnudagsins. í fyrrinótt náði hann hins vegar engri síld vegna þess hvað torfurnar voru stutt uppi. Segja sjómenn að síld- in hafi í gær og fyrradag verið á ótrúlega og óvenju mikilli ferð inn flóann, og í gærkvöldi þegar blaðið átti símtal við fréttaritara sinn á Akranesi biðu mörg skip yfff- síldinni rétt utan við skag- ann og sýndu mælar skip- anna mikla síld. Var beðið eftir því að síldin æði svo hægt væri að kasta. En þeg- Síldvciðiskifi hafa ttBælí sííðaríorfsu' víðs vegar inn flóaim iiiðti í gærkvöldi skainuit imdan Akranesi efíir ]m að síMisi æði Svo virðist sem niikil síld sé komin inn í Faxaflóa. Síld- veiðiskipið Fanney kom til Akraness á laugardagskvöld meö síld sem veiðst haföi út í flóanum þá nóttina áður. Sýndi , bergmálsdýptarmælir skipsins mikla síld í torfum, sem voru inn allan flóann og um átta sjómílur eða svo næst Akra- nesi. Sömu sögu höfðu aörir bátar að segja, sem voru á! þessum slóðum nú um helgina, og í gær sást mikil síld kom- ! in skammt undan Akranesi. ar blaðið fór í prenntun í gærkvöldi var ókunnugt um það, hvort bátarnir höfðu veitt. Reknetaveiðin hafin. Fyrsta reknetasíldin barst til Akraness í gær. Var það „Sigurfari" sem kom frá fyrstu lögninni með 82 tunn- ur af stórri og feitri hafsíld. En þannig er öll síld sem veiðist af þessari göngu. Sig- urfari lagði reknetin um klukkustundar ferð út af Skaganum. Auk Sigurfara var landað á Akranesi í gær síldarafla tveggja annara skipa, Ófeigs frá Vestmannaeyjum, sem var með 180 mál og Braga frá Reykjavík, sem var með 50 mál. Togarinn Sindri frá Akra- nesi er nú að búast á síld- veiðar, en hann hefir legið aðgerðarlaus um skeið. 600 Jisas. fei'Oamcmi Búist er við því, að fleiri bandarískir ferðamenn muni heimsækja Vestur-Evrópu á þessu ári en nokkru sinni áð- ur. Er talið líklegt að 600.000 bandarískir ferðamenn muni eyða þar samtals 400 milljónum dollara. Ármannsstúlkurnar farnar til Svífijóðar Lingidenfarar Ármanns fóru í gær flugíeiðis til Stock- hólms ;með Skymasterflug- vél þoftleiða „Heklu“, til þess að taka þátt í hinum miklu 1 hátíðahöldum Svía þ. 27—311 júlí n. k. Flokkurinn mætir j fyrir hönd íþróttasambands. íslands og mun hann sýna 2 sinnum á Lingiaden. í flokkn ' um eru: Ágústa Sigurjóns-' dóttir, Ása Sigurjónsdóttir, | Ellen Emilsdóttir, Fríða Sig- I fúsdóttir, Gerður Sigfúsdótt ir, Guðfinna Elentínusdóttir, J ensína Guðmundsdóttir Katrin Ármann, Sigríður Bjarnadcttir, Úlfhildur Her- mannsdóttir, Þorgerður Gísla dóttir, Þóra Stefnsdóttir, Ester Jónsdóttir, píanóleik- ari og Guðrún Nielsen, kenn- ari flokksins og stjórnandi. Fararstjóri er Jens Guð- björnsson, ennfremur fer; kona hans Þórveig S. Ax- j fjörð með flokknum og Sig- j urður G. Norðdal til kvik-1 myndatöku af hátíðahöldun- I um. Flokkurinn hafði kveðj u- sýningu í Tivoli síðastl. sunnu dagskvöld aÁ viðstöddum fjölda áhorfenda og við mikla hrifningu. Héraðshátíð Framsókn; manna í Vík í Mýrd; Síðastliöinn laugardag efndu Framsóknarmenn í Vestur- Skaftafellssýslu til héraðshátíðar flokksmanna, að Vík £ Mýrdal. Var samkoman ein sú fjölmennasía sem haldi? hefir verið þar um slóðir og tvímælalaust sú fjölmennasta, sem haldin hefir verið þar á síðustu árum. Stóðu lianv- sóknarmenn í sýslunni að þessari samkomu með einstök- um myndarbrag, svo að til fyrirmyndar er og voru þai einkum yngri mennirnir í flokknum þar eystra sem unni? aðalundirbúnings störfin fyrir þessa glæsilegu samkomu. Styr um íslenzkan ræðisman Nokkur pólitískur styr hef- ir orðið út af því í Færeyj- um, að Tryggvi Samuelsen, sonur Andreas Samuelsen og bróðir ritstjóra Dimmalætt- ingar, blaðs Sambandsmanna, hefir tekið við ræðismanns- störfum fyrir íslendinga í eyjunum í fjarvist Páls Olafs sonar konsúls. Eru hin róttækari öfl í Fær eyjum mjög gröm yfir þvi, að íslendingar skuli velja sér ræðismann úr hópi hinna I harðskeyttustu sambands- imanna i Færeyjum. Verkfallinu í London lokið Vinna hófst í morgun viö öll skip í Lundúnahöfn, er allir verkamenn, sem verið hafa í vérkfalli í nær 4 vik, ur sneru aftur til vinnu. — Stjórnin hefir ekki enn gefið neina yfirlýsingu í sambandi við gildandi neyðarástand né varðandi heimsendingu her- manna þeirra, er unnu við höfnina meöan á verkfallinu stóð. Málið verður rætt í neðri málstofu brezka þingsins á morgun að beiðni stjórnar- andst-ðunnar. Hátíðin sett. Þessi glæsilega héraðshá- tíð hófst með setningarræðu Júlíusar Jónssonar formanns Félags ungra Framsóknar- manna í Vestur-Skaftafells- sýslu. Var það félag stofnaö í fyrra og stofnfundur þess þá haldinn að Kirkjubæjar- klaustri. Var sá fundur merki legur meðal annars fyrir þá sök að ekki hefir verið stofn- að fjölmennara landsmálafé lag miðað við íbúatölu hér- aðsins. En samkoman að Vík nú um helgina sýnir það, að félagsstarfið hefir ekki verið látið niöur falla heldur unn- ið ötullega að flokksstarfinu. Ræða Jóns Gíslasonar. Að lokinni setningarræðu fonnanns félagsins flutti Jón Gíslason, þingmaður kjör- jdæmisins snjalla ræðu. Ey- steinn Jónsson, menntamals l ráðherra, sem mætti á hé). • ! aöshátíöinni, flutti ýtarlegt. ræðu um stjórnmálaviðhcrí- ið. Ennfremur talaði Stefán Hannesson, Litla-Hvamm: Skemmtiatriði. Á eftir ræðuhöldunum höt■■ ust skemmtiatriði. Þr j éi’ stúlkur frá Vík sungu mec' gítarundirleik. Sigurður Öj afsson söng einsöng meb ac- stoð Árna Björnssonar pianc leikara. Þá skemmti Gísl;. Sigurðsson gamanleikari mec eftirhermum. Og að lokun.. var dansað til klukkan tvö eftir miðnætti. Truman undirritar staðfesíingu A-sáttmálans Truman, forseti Bandaríkj- anna, undirritaði f de.g 'staðfestingu Norður- Atlanzhafssáttmálans í was- hington. Við það tækifæri lét hann svo mn mælt, að stað- festing Bandaríkjaþings á sáttmálanum með yfirgnæf- andi meirihluta atkvæða og stuðningur alls þorra almenn ings í landinu við hann, sann aði einlægan vilja banda- rísku þjóðarinnar á því, að varðveita heimsfriðinn. Franska þingið ræðir A-sáttmálanu Franska þingið hóf í 'dag á ný umræður um staðfest- ingu Norður-Atlanzhafssátt- málans. í ræðu, er Robert Schuman, utanríkisráðherra Frakklands, flutti sagði hann, að þingmenn gætu verið þess fullvissir, að í sáttmálanum væru engin leynileg ákvæðí og hann væri í fyllsta sam- ræmi við stofnskrá S.Þ. Schuman sagði, að ekki kæmi til greina að Þýzkaland gerðist aðili að bandalaginu í bráð. Hann sagði, að fyrsr yrði aö gera einhverskonar friðarsamning við Þjóðverja, áður en hægt yrði einu sinni að ræða málið.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.