Tíminn - 26.07.1949, Blaðsíða 8

Tíminn - 26.07.1949, Blaðsíða 8
.JEÉXÆNT VFIÍÍÍJT" t DAG: Deila Síússa of§ Hmsóslavu 'i. árg. Reykjavík „A FÖRJVUM VEG1“ í DAG: Skrítnir reikninytur 28. júli 1949 155. blað Góöar horfur m kariofio- uppskeru í Hornafirði Griisvöxtur orðinn mihill otf heysktijjtur stendur sem hœst Tíðindamaður blaðsins átti í gær símtal við Bjarna Guð- mundsson kauplélagsstjóra í Höfn í Hornafix’ði og spurði hann frétta austan úr Skaftafellssýslu. Sagði Bjarni að tíð hefðí verið all géð að undanförnu og bændur búnir að slá mik’3 og hirða talsvert. Þurrkar hefðu þó ekki vei’ið eins mi|í-k' -og þurft hefði. Géðav horfur með kavtöfluuppskeru. í Kornafirði er árlega rækt aö mikið af kartöflum og mun kartöfluframleiðsla hvergi vera jafn mikil í einni sveit á landinu. í vor áraði illa með kartöflurækt þar eins og annars staðar á lanö- inu og var ekki hægt að setýa niður á réttum tíma, eða þeim tíma sem heppileg- astur er talinn. En vegna þess hve það, sem af er sumrinu, hefir verið einmuna hlýtt í veðri eru nú betri horfur með kartöfluuppskeruna, en menn þorðu að gera sér vonir um. Er útlit fyrir að vorkuldarn- ir og það hve voraði seint komi að lokum ekki svo mik- ið að sök, komi haustið ekki snemma og illa. Hins vegar verða'kartöflur nú síðsprottn ari en venjulega, ekki von til að nýjar kartöflur íslenzk ar komi á markaðinn á rétt- um tíma. Góð spretta og hey- skapur hafin. Túnaspretta var lítil fram- an af í vor og tún grá og gróðurlítil fram eftir öllu vori. En batinn kom skyndi- lega og vel, svo að nú í meira en mán.uð hafa verið hlý- viðri og grasviðri, þannig að úrkomu hefir ekki skort. Er nú svo komið að úrkoman er farin að tefja heyskap, þó að enn hafi ekki komið til vand ræða, þar sem jafnan hafa verið þurrkar öðru hvoru svo K.R. íapaði í Osio 1—0 en sigraði í Stange raeð 6—3 Meistáráflokkur K.R. fór til Noregs eins og áður er getið, þann 19. júlí. Fyrsti leikurinn fór fram 22. þ. m. í ■ Bislet leikvanginum í Osló. Keppti þá K.R.-liðið við eitt bezta félag Noregs, Vaaler- engen. K.R. tapaði þeim leik 1:0, eftir ágætan leik og mikla hrifningu áhorfenda. Annar leikur K.R.-inganna fór tfram á sunnudagskvöld í Stange. Kepptu þeir þá við Hamars Idrettslag og unnu K.R.-ingarnir þann leik með 6:3. Keppnin fór fram á nýj- um íþróttavelli og var þetta vígsluleikurinn. Völlurinn er grasvöllur. Á eftir leikinn hafði bæjar stjðrnin í Stange boð inni fyrir K.R.-ingana og helztu íþróttafrömuði borgarinnar. hægt hefir verið að þurrka liey. En bændur þora ekki að slá af eins miklum krafti niður túnin meðan þerrar eru svo ótryggir. A.nnars er víða búið að slá mikið og hirða talsvert. Flestir bænd- ur eiga þó meira og minna hey úti. Ekki róið til fiskjar. Ekki er róið til fiskjar heimanfrá Höfn eins og sakir standa og eru nokkrir af smærri bátunum þaðan á dragnótaveiðum á Austfjörð- urn og liggja þar við, en einn bátur, Hvanney, er á síldveið um fyrir Norðurlandi. Héiaðsmót Úlfljóts. Héraðsmót Ungmennasam- bandsins Úlfljóst í Austur- Skaftafellssýslu var haldið í Höfn í Hornafirði síðastlið- inn sunnudag. Veöur var hið bezta, sólskin og logn, og mik ið fjölmenni á mótinu. Til skemmtunar voru ræðu höld, íþr>:tir, söngur og dans. Árangur í mörgum greinum íþrótta var sæmilegur, þegar tekið er tillit til þess, að þeir sem þarna kepptu hafa fæst- ir haft viðunandi aðstöðu eða tíma til æfinga. í hástökki stökk sigurvegarinn, Þor steinn Jónsson, 1,62 metra, en beztum árangri í íþróttun- um náði Rafn Einarsson, Miðskeri, og vann hann sig- ur í mörgum greinum. Til- töiulega bezti árangur hans mun hafa verið 100 metra hlaup, sem hann vann á 11,4 sek. Jón Hjaltason lögfræðing- ur flutti aðalræðuna á mót- inu. En að lokinni ræðu og keppni í íþróttum skemmtu ungar stúlkur með söng og gitarundirleik og karlakór söng. Að lokum var dansað. Skrifstofum Banda- ríkjanna í Kína lokað Kínverskir kommúnistar hafa nú gefið fyrirskipanir um, ao bandarísku upplýs- ingaskilfst. í Nanking skuli lokað. — Er þetta fimmta upplýsingaskrifst. Bandaríkj- arina í Kína, sem kommúnist- ar loka, á þeim forsendum, að ekkert stjórnmálasam- band hafi verið tekið upp milli kínverskra komrnúnista og bándairísku stjórnarinn- ar. Hinar fjórar voru í Sjang- hai, Hankow, Peiping og Ti- entsin. Hátíðaguðsþjónusta í Holtskirkju ísffirðSiigar, sem fí33*EEEílii* ei*H í kir.kj- EttiBii fserSa heuiii rausaai'lega p0ES" ingagjöf Síðastliðinn sunnudag fór fram hátíðagúðsþj ónusta í Holtskirkju í Önundarfirði í tilefni af því að kirkjan er 80 ára um þessar iriundir. —. Gamlir Önfirðingar, sem nú eru búsettir á ísafirði, en fermdir eru í kirkjunni fjöl-'. menntu viö guðsþj ónustuna. Séra Jón Ólafsson prófastur í Holti messaði, en séra Sig- urður Kristj ánsson, prestur í ísafirði þjónaði fyrir altari í upphafi messunnar. Að lokinni guðsþj ónust- : unni var kirkjugestum boðið til kaffidrykkju í stóru sam- 1 komutjaldi. Voi’u þar ræður ’ fluttar undir borðhaldi. Séra Jón Ólafssóir prófastur rakti sögu kirkjunnar og sóknar- innar. Kristján Kristjánsson hafnsögumaður hafði orð fyr ir ísfirðingum og afhenti kirjcjunni að gjöf 11200 krón ur, sem variö skal til við- halds og endurbóta á kirkj- unni. : i vrópu 1,4 ara hernaðaraðstoð . IS©Sskl|phB* foi’seía tsl Isisigslias í gasi* Truman, íoteeli Bandaríkjanna, fór þess á leit við Banda- ríkjaþing í da^^ð það samþykkíi „hernaðai’aðstoð tií haixda frjálsnm þjóð^íý til þess að gera þær færar um aö verjast ógnunum áráj*fctyrjaldar og treysta möguieikana á varð- veizlu heixnsfx^irins.“ Hernaðaraðstoð sú er forsetinn fer fram á, neu^fljfcyL450 milljónum dollara á fjárhagsárinu 1950, er hófst£$rýsta þ. m. valdi stæði til þess að koma í veg fyrir endurreisn Evrópu. „Með hiiium ofsalega á- róðri sínum, með því að æsa kommúninstaflokka alls heimsins til sviltráða og samsæra og með því aö hafa þann stærsta her á friðartímum, er sagan get ur um, héfir Rússland með ráðnum hug skapað and- rúmsloft ótta og aukið á stríðshættuna í heimin- um,“ sagði Truman. Samband fiskimatsmanna Stofnfundur Sambands Úiskimatsmanna íslands, var haldinn 17. og 18. júlí s. 1. í Oddfellowhúsinu. Áður var starfandi samband að- eins fyrir freðfiskmatsmenn, en þetta nýja samband er fyrir alla, sem hafa réttindi til þess að vera fiskimats- menn á hvaða sviði sem er. Aðaltilgangur sambands- ins er, að stuðla að bættri vöruvöndun við íslenzka fisk framleiðslu, og kynna fyrir meðlimum sínum allar. nýj ungar á því sviði. Einnig að sjá til þess að alltaf veljist hæfustu menn, sem völ er á, til þess að vinna fyrir fisk- framleiðsluna, og að þeir séu meðlimir sambandsins. Þá er það tilgangurinn að auka og efla samvinnu meðal fiski- matsmanna hér á landi, að því er snertir vinnuskilyrði þeirra og hagsmuni, og vinna að aukinni þekkingu þeirra á allan hátt, svo sem með fyrirlestrum sérfróðra manna á fundum sambandsins og deildum þess. Samþykkt var að gefa út tímarit um þessi efni. Atvinnulausir meðlimir eiga að senda stjórn sam- bandsins skriflega beiðni um aðstoð, og vill stjórnin hafa samvinnu við fiskframleið- endur og yfirmatið um þau mál. Fyrsta stjórn þessa sam- bands er skipuð þessum mönnum: Jakob A. Sigurðs- son, Akranesi, formaður, Lýð ur Jónsson, Akranesi, ritari. Viggó Jóhannesson, Reykja- vík, gjaldkeri. Helgi Jónsson, Keflavík, og Guðmundur Jó- hannsson, Reykjavík. S. Þ. eklci iióg®íj|flugar. í boðskap. sjp|iri til þíngs- ins sagði Trt^ísferi m. a. að reynslan þvi miður sýnt, að Samemuðu þjóðirn- ar væru ekki nægilega öfl- ugar til þess aö veita þjóðum heimsins öi’yggi og útrýma óttanum við árásarstyrjöld og ofbeldi. Ofbeldi. „Er litið er yfir heimsvið- . burðina frá 1945 sést, að engin vissa er fengin fyrir þvi, að allar þátttökuþjóð- ir S. Þ. virðií grundvallar- reglur samtakanna um varðveizlu frijðarins í reynd inni. Þvert a ‘móti höfum við sannanir fyrir því, að sumar af þáíttökuþjóðum S. Þ. hafa hó$að og bcitt of- beldi til þess að koma fram málum sínum. Þetta hefir gert þjóðir heimsins ótta- slegnar, svift þær öryggi og jafnvægi og staðið í vegi fyrir efnahagslegri og fé- lagslegri þroun,“ sagði Truman. Svik Rússa. Þá sagði forsejiirin, að Rúss ar hefðu gert állt sem í þeirra Segir að Masaryk hafi verið i myrtur Tékkneski stjórnmálamað- urinn Smutny, sem nýlega flýði til bandapiska hernáms svæðisins í Þýzkalandi frá Tékkóslóvakíu- hefir lýst yfir, að ekki sé minnsti vafi á því, að Masaryk hafi verið myrt- ur. Hann segiry-að Vestur- veldin geti lært það, af valda ráninu í Tékkþslóvakíu „að semja aldrei yið kommún- ista“. Smutny gegir ennfrem- ur, að það hafi yerið skipu- lagsleysi og skortur á vopn- um, sem gerði það að verk- um, að Tékkar í’.isu ekki upp gegn kommúnistiim. Þríþætt aðstoð. Megnið af aðstoð þeirri, sem forsetinn fer fram á, mun fara til handa Vestur- Evrópuríkjunum. En Grikk- land, Tyrkland, Kórea, Fil- ippseyjar og Persía munu og fá nokkra aðstoö. Forsetinn lagði til, að hernaðaraðstoð þessi yrði þríþætt: takmörk- uð f j árhagsaðstoð, aðstoð veitt í hernaðartækjum og aðstoö veitt af hernaðarsér- fræðingum, varðandi fram- leiðslu og notkun hernaðar- tækja og þjálfun hermanna. — í lok boðskapar síns sagði Truman, að hernaðaraðstoð þessi væri eingöngu veitt í varnarskyni, á sama hátt og Atlantshafssáttmálinn væri eingöngu varnarsáttmáli.. Rússar aflétta flutningabanni Rússnesku hernaðaryfir- völdin í Berlín hafa nú svar- urveldanna varðandi hið svo- að mótmælaorösendingu Vest nefnda „litla flutningsbann" með því að tilkynna, að því hafi hérmeð verið aflétt. Und anfarið hefir aðeins einn veg ur verið opinn til Berlínar, þ. e. a. 's. Helmstedt-vegurinn. Astralska verk- fallið að leysast Frá Melbourne herma fregn ir að allt útlit sé nú fyrir að kolanámuverkfallinu í Ástr- alíu fari senri aö ljúka, þrátt fyrir háværar yfirlýsingar um að verkamenn muni ekki snúa aftur til vinnu fyrren leiðtogum þeirra hafi verið sleppt úr fangelsinu. — Kom- múnistar virðast á undan- haldi og óttast klofningu í samtökum námuverkamanna en margir þeirra hafa snúið aftur til vinnu, þrátt fyrir fyrirskipanir kommúnista. Scðlafalsarai* Fregnir frá Frankfurt herma, að bandarísku yfir- völdin í Þýzkalandi hafi ný- lega ljóstað upp um víðtæka seðlafölsun. Allmargir fransk ir pólitískir, þýzkir, og spánsk ir menn hafa verið handtekn ír í sambandi við mál þetta. Þeir munu hafa falsað seðla að upphæð 3 milljónum doll- ara.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.