Tíminn - 10.08.1949, Blaðsíða 2
TÍMINN, miövikudaginn 10. ágúst 1949
166. blað
til heiía
I da.g.
Sólaruppkoma kl. 5.00.
Sólarlag kl. 22.02.
Árdegisflóð kl. 7.55.
Sjðdegisflóð kl. 20.10.
í nótt.
Næturlæknir er í læknavarðstof
unni í Austurtaæjarskólanum, simi
5030.
Næturvöröur er í Laugavegs
apóteki, sími 1660.
‘Næturakstur annast bifreiðastöð
in Hreyfill, sími 6633.
víkur frá London og Prestvik kl.
18.30 í dag.
Árnað keilla
Trúlofun.
Síðastliðinn laugardag opinber-
uðu trúlofun sína, ungfrú Jódís
Jónsdóttir (Árnasonar læknis),
Suðurgötu 15, og Ólafur Magnús-
son prentari, Seljaveg 13.
ÚtvarpLð
Útvarpið í kvöld.
Fastir iiðir eins og venjulega. 1
Kl. 20.30 Útvarpssagan. 21.00 Tón-
leikar: „í persneskum garði,“ laga |
flokkur eftir Liza Lehmann (plöt- j
ur). 21.40 Erindi: Meðal finnskra
stúdénta (Sigurður Magnússon,
stud. theol.) 22.00 Fréttir og veð-
urfregnir. 22.05 Danslög (plötur).
22,30 Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Eímskip.
Brúarfoss átti að fara frá Kaup
mannhöfn í gær. Dettifoss fór frá
Leith 8. ágúst til Reykjavíkur.
Fjallfoss er í Reykjavík. Goðafoss
kom til New York 7. ágúst frá
Reykjavík. Lagarfoss fer frá Rvík
í dag til Keflavíkur; Vestmanna-
eyja og Hamborgar. Selfoss er
væntanlega í Leith. Tröllafoss
köm til Reykjavílcur í gær frá New
Yörk. Vatnajökull fór frá Vest-
rúánnaeyjum 8. ágúst tii Grimsby.
Ríkisskip.
Hekla fór frá Glasgow í gær-
kvöldi áleiðis til Reykjavíkur.
Esjá fór frá Reykjavík kl. 20.00 í
gærkvöld vestur um land til Ak-
ureyrar. Herðubreið er á Aust-
fjörðum á norðurleið. Skjaldbreið
er í Reykjavík. Þyrill var í Hval-
firði í gær.
Einarsson & Zoéga.
.Foldin fór frá Reykjavík síðdeg-
is . í • gær, þriðjudag, áleiðis til
Amsterdam. Lingestrom fór í gær-
kvoldi, þriðjudagskvöld, frá Rvík
áleiðis til Amsterdam.
WMnminnuinniinmiuiininnniniiiiinininnininiiiuiiiiinimiuninnniniiiiiiiuiiiniiuiiiiiniiiiniiiiiiiiiimii
| Nokkrir verkamenn
geta fengið atvinnu. — Uppl. gefnar í skrifstofu
Flugvallastjóra ríkisins á Keflavíkurflugvelli.
éiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii|giiiiiiiiiiiimiiiiiiii|l||||||iiiiiiiiiiiiiaiiiiiiiii||ii|||l||||l| hiiii,,i
Tizkan byrjar snemma að hafa
áhrif á kvenþjóðina og hún þykist
vera klœdd eftir nýjustu tízku
þessi, þó ekki sé hún stór.
13 faE*así á elili
13 manns haía látið lífið
og meira en 6000 ekrur lands
eyðilagst í versta skógareldi,
sem geysað hefir í Montana-
fylki í Bandaríkj unum í 40
ár.
I /-
Ráðstefnu ura frið-
un Faxaflóa aflýst
Svo sem kunnugt er hefir
alþj óðahafrannsóknarráðið
lagt til, að Faxaflói yrði frið-
aður með milliríkjasamn-
ingi.
Bauð því ríkisstjórn íslands
á s.l. vori öllum þeim þjóðum
sem sæti eiga í ráðinu að
senda fulltrúa á ráðstefnu í
Reykjavík um miðjan þenn-
an mánuð, til þess að reyna
að ná samningum um málið.
Löndin, sem boðið var að
senda fulltrúa, eru þessi:
Belgía, Bretland, Danmörk,
Finnland, Frakkland, Hol-
land, írland, Noregur, Pól-
land, Portúgal, Spánn og
Svíþj óð.'
Jákvæð svör hafa einungis
borizt frá ríkisstjórn Dan-
merkur, Noregs og Svíþjóð-
ar. Ríkisstjórn Frakklands
tilkynnti, að hún myndi að-
eins senda áheyrríarfulltrúa
og ríkisstjórn Bretlands tel-
ur, að meðferð málsins eigi
að fara fram í ráðgjafaneínd
sem gert er ráð fyrir í al-
þjóðasamningi þeim, er und-
irritaður var í London 5. apr.
1946, um möskvastærð o. f 1.,
en íslenzk stjórnarvöld hafa
ekki staðfest, þar sem óvíst
þykir að þátttaka í honum
samræmist framkvæmd laga
nr. 44 5. apríl 1948, um vís-
indalega verndun fiskimiða
landgrunnsins. **
Önnur ríki hafa ekki á
þessu stigi viljað taka þátt í
samningum um þetta mál.
Að svo vöxnu máli taldi rík-
isstjórnin þýðingarlaust að
halda rá.ðstsfnu þessa, a. m.
k. að sinni.
ÚTBOÐ
Þeir rafvirkjameistarar, sem gera vilja
tilboð í raflagnir í hús Reykjavíkurbæjar
við Bústaðaveg, vitji uppdrátta og lýsinga
á teiknistofu Sigm. Halldórssonar, Tún-
götu 3. dagana 10. og 11. ágúst 1949, kl.
4—6 e. h. gegn 100,00 kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað mánu-
daginn 15. ágúst n. k. kl. 1 y2 e. h.
BORGARSTJÓRINN í REYKJAYÍK.
BIFVELAVIRKJAR
Oss vantar bifvélavirkja nú þegar eða síðar í haust.
Getum útvegað íbúð.
Raupféíag Skagfirðinga
Ftugferðir
Loftleiðir.
í gær var flogið til Vestmanna-
eyja (2 ferðir), ísafjarðar, Akur-
eyrar, Patreksfjarðar, Sands (2
férðir, og Hólmavíkur.
í dag er áætlað að fljúga til
Vestmannaeyja (2 ferðir), ísafjarð
ar; Akureyrar, Siglufjarðar, Kirkju
bæjarklausturs og Fagurhólsmýrar.
Á morgun er áætlað að fljúga
til Vestmannaeyja (2 ferðir), ísa-
fjarðar, Patreksfjarðar, Sands, Ak
ureyrar og Bíldudals.
Geysir er væntanlegur um kl.
17.00 í dag frá Kaupmannahöfn.
Flugfélag íslands.
í dag verða farnar áætlunar-
ferðir til Akureyrar, tvær ferðir,
Vestmannaeyja, Keflavíkur, ísa-
fjarðar, Hólmavíkur og Siglufj.
Á morgun er áætlað að fljúga'
til Akureyrar, tvær ferðir Fá-
skrúðsfjarðar, Reyðarfjarðar,
Siglufjarðar 'Ólafsfjarðar, Vest-
manp^gyja og Keflavíkur.
1 gæp var flogið til Akureyrar,
tvær ffixðir, Vestmannaeyja, þrjár
ferðir,,,. Keflavíkur, Kópaskers og
Siglúfjarðar.
Gulífaxi er væntanlegur til R-
Sjóbaðstaðurinn við Skerjafjörð j|
Það er ekki nóg að agnúast út
af því, sem miður fer og krefjast
leiðréttingar á því. Blaðamönnum
er líka skylt að minnast þess, sem
vel er gert.
Þegar ég segi þetta^ hefi ég sjó-
baðstaðinn við Skerjafjörð í huga.
Sjóbaðstaður þar suður frá hefir
lengi verið draumur margra Reyk
vikinga. Fyrir heimsstyrjöldina síð
ari var þar komin upp álitleg
byrjun að sjóbaðstað. En með
brezka hernáminu var það verk,
sem þar hafði verið unnið að engu
gert. Bretar gerðu flugvöll suður
frá, og bæjarbúum var bannað að
leita í Skerjafjörð til sjóbaða.
En nú er sjóbaðstrðurinn aftur
kominn á rekspöl. Fallegir hvamm
ar og hlýlegar dældir hafa verið
gerðar þar við ströndina. Stigar
hafa verið reistir við klettana og
melbörð þakin þökum, svo að
þarna myndast dá'.itlar flatir.
Það hefir að vísu ekki viðrað vel
til sjóbaða á þessu sumri, því að
tíðarfarið hefir yfirleitt verið leið-
inlegt og sólfar lítið. En það er
samt sýnt; að fólk kann að meta !
þessa tilraun. Þegar þolanlega j
viðrar sækir fjöldi fólks þarna suð
ur eftir, og munu þó vinsældir sjó J
baðstaðarins áreiðanlega aukast, |
þegar meira hefir verið gert til
bóta þar syðra og fólk fer að
venjast þessari nýjung i útilífi
höfuðstaðarbúa. Og vel sé þeim,
sem hér hafa lagt hönd að verki. i
Vonandi láta þeir ekki hér staðar
numið, heldur halda ótrauðir á-
fram því verki að koma þarna upp
sjóbaðstað, sem verði þúsundum
manna, ungra og gamalla, heilsu-
lind og skemmtistaður, er ekki
verði síður sótt, þegar veður leyfir.
^ en kaffihús eða bíó, er hafa
, upp á að bjóða klaufalegar áróð-
ursmyndir fyrir einhverja erlenda
hagsmunastefnu eða þá glæparóm
ana í myndum, ætlaða til þess að
• kitla fátæklegt ímyndunarafl
j seyrðs og ólánsams stórborgara-
lýðs í f jarlægum löndum. ■
J. H.
STULK
vantar— Uppl. á skrifstofunni
Móbir mín
Guðlaug Jónsdóttir
andabist 8. jbesscz mánaðar.
GEIR GUÐMUNDSSON, Lundi
AUGLÝSIÐ í TÍMANUM