Tíminn - 10.08.1949, Qupperneq 8
„ERLMT ¥F1RLIT« t DAG:
Vi&horf Þjjó&verja
33. árg.
Reykjavík
99
A FÖRTVUM VFMI“ í DAG:
Sjjóbaðsíeeðtiritm við Sfoerýa-
fjjörð.
10. ágúst 1949
166. blað
Bandaríkin mega ekki missa
fótfestuna í Evrópu
Ummæli Jolinson. hennálaráðherra
Johnson, hermálaráðherra Bandaríkjanna, flutti í gær
skýrslu á sameiginlegum fundi hermálanefndar og utanríkis-
málanefndar öldungadeildarinnar. Hvatti hann til þess að
hernaðaraðstoðin við Evrópu yrði samþykkt óbreytt. John-
son sagði, að það mætti aldrei oftar koma fyrir, að Banda-
ríkjamenn neyddust til þess að frelsa Evrópuþjóðirnar úr
hlekkjum hernáms og hefja innrás þangað yfir hafið.
Ekki aðeins í orði.
Hann sagði, að ef Banda-
ríkin gættu þess, að „missa
ekki fótfestuna“ í Evrópu,
myndi aldrei koma til þess,
að þau þyrftu framar að
frelsa Evrópuþjóðirnar úr á-
þján. Hann sagði, að Vestur-
Evrópubandalagið væri ekki
aðeins í orði heldur og á borði.
i*. **•*»•*■; * fmlifiiWiilS
Komnir heim.
Bandarísku herráðsforingj -
arnir eru nú komnir aftur til
Washington úr ferð sinni um
Evrópu. Þeir munu flytja hin
um tveim nefndum öldunga-
deildarinnar skýrslu á morg-
un. Bradley, herráðsforingi,
lét svo ummælt, að viðræð-
urnar í Evrópu hefðu verið
glæsilegt upphaf að skipu-
lagðri einingu Atlantshafs-
ríkjanna og samræmingu á
hervörnum þeirra.
Tillaga Rússa felld
Ráðstefna sú í Genf, sem
fjallar um styrjaldir og fórn
ardýr þeirra, og setin er af
fulltrúum 59 þjóða, felldi
í dag tillögu frá Rússum,
með 35 atkv. gegn 9. í tillögu
sinni skoruðu Rússar á allar
þjóðir að samþykkja bann
við því, að kjarnorkusprengj-
ur yrðu notaðar í styrjöldum.
— Þeir sem greiddu atkv. gegn
tillögunni, þar á meðal Banda
ríkjamenn og Bretar, sögðu,
að það væri utan verkahrings
ráðstefnunnar að fjalla um
bann á kj arnorkuvopnum.
Henni væri ætlað að fjalla
um fórnardýr styrjalda, en
ekki vopn.
Stjórnarkreppa í
Belgín að leysast ?
Leiðtogar frjálslynda flokks
ins í Belgiu lýstu yfir i kvöld,
að þeir myndu fúsir til þess
að ganga til stjórnarsam-
vinnu með kaþólska flokkn-
um. Telj a stj órnmálafrétta-
ritarar, að þetta bendi til þess
að hin sex vikna stjórnar-
kreppa í Belgíu sé í þann veg
inn að leysast. — Sem kunn-
ugt er hefir ekki tekizt að
mynda stjórn í landinu, síðan
kosningarnar fóru fram, þar
eð flokkarnir hafa ekki get-
að komið sér saman um kon-
ungsvandamálið svonefnda,
þ. e. hvort Leopold konungur
skuli snúa aftur heim og setj
ast að völdum.
Ríkið ábyrgist lán
til síldarútvegs-
manna
Fjármálaráðherra hefir í
dag með.pamþykki allrar ríkis
stjórnarinnar skrifað Lands-
: bankanum og Útvegsbank-
| anum og farið fram á, að
þeir veittu síldarútvegsmönn
| um þeim, sem illa eru á vegi
i staddir fjárhagslega, en vilja
1 halda skipum úti áfram,
bráðabirgðalán á svipaðan
hátt, sem gert var í fyrra,
aoallega tii þess að gera út-
vegsmönnum fært að greiða
hásetum áfallnar kaup-
greiðsiur, enda verði ríkis-
sjóður ábyrgur fyrir slíkum
lánum, ef útvegsmennirnir
geta ekki sjálfir greitt þau.
j Hefir þetta verið gert eftir
! að áskoranir hafa borizt frá
Síldarverksmiðjum ríkisins,
Síldarútvegsnefnd, Lands-
sambandi íslenzkra útvegs-
manna og frá almennum
fundi útgerðarmanna, sem
haldinn var í gær á Siglu-
firði.
f bréfum sínum til bank-
anna leggur fjármálaráð-
herra áherzlu á það, að að-
stoðin til útvegsmannanna
verði veitt sem allra fyrst.
(Fréttatilkynning frá
ríkisstjórninniý.
Norræn fegurö og failegir
búningar stúlknanna frá
Laugarvatni vöktu athygli
á Lingbátíðinni
Sýning þeirm þótti sérkeiuilleg og eftir-
tektarverð ög misuta á íslenzkar þjóð*
sögnr
Á Lingfimleikahátíðinni í Stokkhólmi vöktu íslenzku
stúlkurnar, sem þár lcomu fram mikla hrifningu. Hefir áð-
ur verið sagt frá afrekum Ármannsstúlknanna hér í blaðinu,
en eins og kunnugt er fór líka kvennaflokkur frá íþrótta-
kennaraskólanum, á þessa miklu fimleikahátíð. Hlutu þær
einnig ágæta dóma og þótti sýning þeirra fögur og nýstárleg
og búningarnir þeir fegurstu á hátíðinni.
Kyrraliafsbandalag
Syngman Rhee, forseti Suð
ur-Koreu og Ciang Kai-shek
hafa undanfarið setið á fundi
og hafa þeir nú gefið út sam
eiginlega yfirlýsingu. En þar
I er skorað á Quirino, forseta
Filippseyja, að kalla saman
ráðstefnu Asíu-þjóða, til þess
að undirbúa stofnun Kyrra-
hafsbandalags.
Kjarnorknmál rædd
*
, a
Fréttir frá Lake Success,
herma, að leynilegar viðræður
um kjarnorkumál séu nú
hafnar af fulltrúum Banda-
ríkjanna, Bretlands, Frakk-
lands, Rússlands, Kanda og
Kína. Er fundur þessi hald-
inn í samræmi við þá ákvörð
un kjarnorkunefndarinnar,
að hún gæti ekki haldið áfram
störfum fyrr en stórveldin
hefðu komið sér saman um
einhvern samningsgrundvöll.
Kona Siiimior Welles
látin
Kona Sumner Welles, fyrr-
um aðstoðarutanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, lést ný
lega í Lausanne í Sviss. Þau
hjóriin dvöldu þar vegna
heilsu Sumner Welles, en
hann hefir verið veikur und-
anfarið.
Hinn nýi sendiherra
Kanada kominn
Hinn nýskipaði sendiherra
Kanada hér á landi, Edward
Joseph Garland, er kominn
til Reykjavíkur, ásamt eigin-
konu sinni. Mun sendiherr-
ann leggja trúnaðarbréf sitt
fyrir forseta íslands á
fimmtudag.
Fyrsti fundur ráðgjafaþings-
ins í Strassöurg í dag
Flestir af þ§im 101 fulltr., er sitja munu ráðgjafaþing
Evrópuráðsins í Strassburg, er nú komnir þangað. Ráð-
herranefndin, en í henni eiga sæti utanríkisráðherrar við-
komandi Ianda, lauk í dag við að ganga frá undirbúningi
fyrsta fundar ráðgjafaþingsins á morgun. Komu ráðherr-
arnir sér saman um dagsskrá þingsins og tilhögun þing-
funda. Er talið, að ráðherrarnir hafi m. a. lagt til, að þing-
ið ræði sambandið milli Evrópuráðsins annars vegar, og ým-
issa efnahagssamtaka Evrópu hins vegar, m. a. endur-
reisnaráætlunar Evrópu. Einnig, hvern þátt Evrópuráðið
geti átt í menningarmálum álfunnar.
Churchill á leiðinni.
Morrison, formaður brezku
sendinefndarinnar, kom til
Strassburg í dag, ásamt Dal-
ton. — Churchill er væntan-
legur þangað næstu daga,
frá Norður-Ítalíu, en þar hef
ur hann dvalið í sumarfríi.
íslandi boðin þátttaka.
Utanríkisráðherrar Grikk-
lands og Tyrklands tóku þátt
í fundum ráðherranefndar-
innar í dag, í fyrsta sinn, en
sem kunnugt er var þátttaka
þessara tveggja lands sam-
þykkt í gær. Samþykkt hefir
og verið, að bjóða íslandi
þátttöku.
Forseti Filippseyja
heimsækir Truman
Elpido Quirino, forseti
Filippseyja kom til Washing-
ton í dag, i boði Trumans for
seta. Hann flutti í dag ræðu
á sameiginlegum fundi beggja
deilda Bandaríkjaþings og
hvatti Bandaríkin til þess að
styðja væntanlegt Kyrrahafs-
bandalag, og stuðla þar með
að því, að framsókn kommún-
ista í Asíu yrði stöðvuð.
Nú hafa borizt blöð frá
Svíþj óð með greírium um hina
miklu fimleikahátíð í Stokk-
hólmi, sem hófst 27. júlí með
skrúðgöngu 15 þúsund fim-
leikamanna og kvenna, frá
ýmsum löndum heims, í
íþróttabúnjngum fögrum og
skrautlegum, með öllum regn
bogans litum, um götur Stokk
hólmsborgar og inri á stærsta
íþróttaleikvang Svía „Stad-
ion“, þar sem aHt íþrótta-
fólkið raðaði sér -upp. Leik-
vangurinn var þéttskipaður
áhorfendum og- þúsundir
manna, sem ekki komst inn
á leikvanginn, röðuðu sér upp
með fram götunum, til þess
að sjá hinar glæsilegu fylk-
ingar íþróttafóik-s- af öllum
þjóðum fara framhjá, á leið
sinni á leikvarigHih og var
fimleikafólkið óspar hyllt af
áhorfendum.
Á leikvanginum- fór fram
aðalsetningarathöfnin með
miklum hátíðarhrag. Stór
Iúðrasveit lék uíídir göngu
iþróttafólksins. 10 skotum
úr fallb/?su. var hleypt af,
sem kom hinuiri íriikla 37 ára
gamla leikvangi til að skjálfa.
Krónprins Svía fíélt ræðu og
fleiri hátiðahöld fóru fram.
Næstu daga föfú svo fram
sýningar í flestum stærstu
samkomuhúsum Stokkholms.
Stærstu hópsýningarnar fóru
fram á sjálfum iþróttaleik-
vanginum, með “íiundruðum
iþátttakenda í hverjum flokki.
Mótinu lauk suririúdaginn 31.
júlí með mikilli viðhöfn í ráð
húsi Stokkhólms, og fengu
allir flokkar skjöjd á fána-
stengur sínar, tif minningar
um hátíðina. -------
íslenzku k.ypnflokkarnir
fengu mjög góga dóma í
blöðunum. í „SVenska Dag-
bladet“ 28. júlí,„.segir í lýs-
ingu á setningarhátíðinni, að
íslenzku íþróttakennaraskóla
stúlkurnar hafi verið glæsi-
legastar af öllum (Elegant-
ast) í grænum .. og hvitum
búningum (New„.Look) og
grænum skóm. Birtust og
margar og stórar myndir af
þeim í blöðunum í ýmsum æf
ingum og sögðu að þær hefðu
verið í fegurstu leikfimisbún-
ingum allra flokka á „Lingia-
den“.
„Stokkhólms - Tidningeri'
30. júlí segir: „íslenzki íþrótta
skólaflokkurinn undir stjórn
Sigríðar Valgeirsdóttur. Fög-
ur sýning með fallegum stúlk
um. Músik samin með hlið-
sjón af gömlum íslenzkum
stefum og tilbrigðum, varpaði
ævintýralegum blæ á æfing-
arnar. Hrífandi! Jafnvægis-
æfingarnar á slá með óþekkt-
um samsetningum fyrir okk-
ur hér. Nokkuð smávaxnar en
annars greinilega norrænar.
í „Dagens Nyheter“ 29. júlí,
segir m. a. um Ármannsstúlk-
urnar, að þær hafi vakið at-
hygli áhorfenda, kerfi þeirra
hafi verið úr ýmsum áttum,
en skemmtilega samsett, en
þegar kom að æfingum á
hárri slá, var enginn vafi á
hvað var sérgrein þeirra. Því-
líkt öryggi og vissa í hverri
hreyfingu höfðu Stokkhólms-
stúlkurnar varla í því bezta
sem þær sýndu. í sama blaði
segir um íþróttakennaraskóla
stúlkurnar og stór mynd
birt með, að þær hafi verið
sérstæð útgáfa af Reykjavík-
urdeildinni. Dansleikfimin
kom áhorfendum til að hugsa
til hinna/gömlu heiðnu sagna
og þegar svo langt er náð
hafði formstífni annarra
flokka algjörlega horfið. Mik-
il áherzla var lögð á slá æf-
ingar, sem íslenzku stúlkurn
ar hafa sérstaklega mikinn
áhuga fyrir. „Svenska Dag-
bradet“ 30. júlí birtir mynd
af íþróttaskólastúlkunum í
jaínvægisæfingum á dýnu,
með undirskriftinni,, íslenzku
stúlkurnar vöktu aðdáun í
„Musikalska Akademien" og
grein. „íslenzki íþróttakenn-
araskólinn undir stjórn frú
Valgeirsdóttur, var eftirtekt-
arverð viðkynning. Við segj-
um stundum hér í Svíþjóð að
okkar sænska formstífni —
einnig í leikfimi — stafi af
loftslagi okkar. Hvort það
'stafar af nærveru Heklu veit
ég ekki, en íslenzki flokkur-
inn var hvorki formstífur eða
' niðurfrosinn. Þvert á móti,
Iþessi flokkur gæti verið sett-
'ur inn í sjónleik um hina
fornu Egipta og mundi vissu-
leg hrífa með mikilli skap-
gerð. „Aftensbladet“ 28. júlí
lýsir flokknum á setningar-
hátíðinni, segir að íþrótta-
skólastúlkurnar íslenzku hafi
' verið listrænar í grænum og
hvítum búningum (NéwLook)
| og grænum skóm „þvílikar
brúður“ sagði fólkið. „Aftons-
bladet“ 30. júlí segir meðal
annars í grein undir yfirsögn-
inni „Hvít sið pils“. Ekki má
I (Framhald á 7. siðu)