Tíminn - 26.08.1949, Blaðsíða 8
y
„EKLEJVT YFÍitMT I DAG:
Erfiðleikar Gottwalds.
33. árg.
Reykjavík
„Á FÖRJVt/M VEGI« í DAG:
Þar sem ríkið fiengur á
undan.
26. ágúst 1949
178. blað
K
Skáldkonan Margit Ravn
á förum héöan
Heflr unað sér vel á Íslandi.
Síðastliðinn mánuð hefir dvalið hér á landi norska
skáldkonan Margit Ravn, höfundur ungmeyjarbókanna vin-
sælu. Megnið af tímanum dvaldi hún á Akureyri, en hún
kom hingað í boði horsteins M. Jónssonar, sem gefið hefir
út 19 af bókum hennar, í þýðingu Helga Valtýssonar. Frúin
heldur heimleiðis með Dr. Alexandrina í kvöld. Tíðinda-
maður blaðsins náði sem snöggvast tali af frúnni í gær-
morgun að Hótel Borg.
Hefir unað sér vel hér.
— Eg hef haft ákaflega gam
a'n af að koma hingað í heim-
sókn, sagði hún. Mig hafði
aldrei dreymt um það, að ég
ætti eftir að fara til íslands,
og sennilega hefði ég aldrei
komist hingað, ef Þorsteinn
M. Jónsson á Akureyri hefði
ekki boðið mér. — Eg hefi
ferðast talsvert um landið, til
Mývatns og Ásbyrgis, og svo
auðvitað til Gullfoss og Geys-
is. Og ég er alveg heilluð af
náttúrufegurð íslands, sem er
sérkennilegri en allt annað,
sem ég hefi áður séð. Eink-
um var ég hrifin af Mývatns-
sveit og öllum náttúruundr-
unum þar. Og ekki hefir það
spillt fyrir, að allir hér hafa
verið mér ákaflega góðir og
borið mig á höndum sér.
Lú?t vel á íslenzku stúlk-
urnar.
— Hvernig lízt yður á ís-
lérizku stúlkurnar?
Aldeilis prýðilega. Þær eru
yfirleitt ljómandi myndarleg
ar, a. m. k. þær sem ég hef
séð. Þær eru ef til vill dálítið
dekkri á brún og brá, en
norsku stúlkurnar, en ann-
Trufla útvarp
ars held ég, að ungar stúlk-
ur séu allsstaðar sjálfum sér
Iíkar — hvort sem það er í
Noregi eða á íslandi.
Von á nýrri bók í október.
— Er von á nokkurri nýrri
bók frá yður á næstunni?
— Já, það kemur út ný bók
eftir mig 1 október næst-
komandi í Noregi. Og næsta
ár mun svo koma framhald
af þeirri bók og hef ég von
um, að geta þá skroppið með
söguhetjuna, sem er ung
stúlka, í stutta ferð til íslands.
Og það verður áreiðanlega
skemmtileg ferð, því hingað
er skemmtilegt að koma.
Margir aðdáendur.
Hinir fjölmörgu aðdáendur
frú Margit Ravn hér á landi,
sem bæði munu í hópi eldri
og yngri kynslóðarinnar,
þakka henni kærlega komuna
hingað og hlakka til þess að
sjá, hvernig ungu söguhetj-
unni hennar líst á sig hér á
íslandi.
Vill að V.-Þýzka-
land gangi í N.A.-
bandalagið
Konrad Adenauer formað-
ur kristilega lýðræðisflokks-
ins í Þýzkalandi flutti ræðu
í gær og ræddi um stöðu Vest
ur-Þýzkalands í framtíðinni.
Sagði hann meðal annrs, að
Vestur-Þýzkaland yrði að
stefna að því að gerast sem
fyrst aðili að N.-Atlanzhafs-
sáttmálanum.
Títós
Kominform hefir nú hafið
raunVerulegt útvarpsstríð við
Tító. Útvarpa stöðvar komm-
únista á sömu bylgjulengd
og á sama tima og rikisút-
varpið í Beograd. Eru þá flutt
ar margs kyns áróðurssögur
um Tító og .svik hans við
þjóð sína.
ÞEKKTILÍKIÐ
ÁLYKLUM
í gær var fyrirskipuð þjóð-
arsorg í Frakklandi eins og
skýrt var frá í frétt-
um í gær. Leikhús, kvikmynda
hús og alllr skemmtistaðir
voru lokaðir og fáni var dreg
inn í hálfa stöng á opinberum
byggingum. Um 80 lík hafa
staðið uppi í skólum og ráð-
húsinu í Þorpinu Cesta.
Þar brunnu um 200 íbúð
arhús til ösku. Ættingjar
reika þar um meðal lík-
anna og reyna að þekkja
þau. Þar þekkti kona ein lik
manns síns á nokkrum lykl-
um, er hann hafði borið á
sér. En líkið var svo brunnið,
að hún gat borið leifar þess
heim til sín vafðar inn i
dagblað.
Syngur fyrir
Rauða Krossinn
Þýzki óperusöngvarinn,
August Griebel, frá Kölnar-
óperunni, sem hér hefir dval
ið að undanförnu, efnir til
söngskemmtunar í Gamla
Bíó í kvöld kl. 7,15 til ágóða
Danska serumstofnunin fús
til samvinnu um rannsókn
búfjársjúkdóma
Fyrir nokkru var á ferð hér á landi þekktur danskur
vísindamaður, Albert Hansen, dr. phil., deildarstjóri í ser-
umstofnun danska ríkisins. Hefir dr. Hansen meðal annars
unnið sér það til ágætis, ásamt tveimur öðrum dönskum
vísindamönnum, að finna nýja aðferð við lækningu gin-
og klaufaveki. Nýtur hann hins mesta traust við rannskón-
ir og lækningar búf jársjúkdóma í Danmörku.
fyrir Rauða Kross íslands og
Mið-Evrópusöfnunina, — og
rennur allur inngangseyrir-
inn til þessara stofnana. Hef
ir söngvarinn mikinn áhuga
fyrir þvi að styrkja þessar
stofnanir. Söngskráin er
mjög breytt frá því, sem var
á fyrri söngskemmtuninni og
verða þar m. a. tónverk eftir
Mozart og er söngskráin mjög
fjölbreytt. Dr. Urbantschitsch
verður við hljóðfærið-
Þessi þýzki söngvari hefir
yfirleitt fengið mjög góða
dóma fyrir söng sinn. Hann
söng inn á plötur fyrir ríkis-
útvarpið í gær. Hann fer
heimleiðis í fyrramáliö og
getur ekki dvaliö hér lengur
þótt hann gjarna vildi, vegna
þess aö hann á innan skamms
að syngja aðalhlutverkiö í
Meistarasöngvunum eftir
Wagner í Köln. Söngvarinn
lætur hið bezta yfir dvölinni
hér. Hann hefir ferðazt nokk
uð um Suðurlandsundirlend-
ið og meðal annars séð Geys-
isgos.
Sakaður um mil-
jónamorð —
en neitar
Síðustu brezku réttarhöld-
in yfir þýzkum hershöfðingja
hófust í Hamborg í fyrradag
og héldu áfram í gær. Eru
þau yfir hinum 61 árs gamla
hershöfðingja von Manstein.
Er hann ákærður fyrir að
bera ábyrgð á dauða hálfrar
milljón manna í þýzkum
fangabúðum síðan 1942. í á-
kærunni eru dauðaorsakir
nefndar misþyrmingar, skot,
gasköfnun, drukknun, heng-
ing og bruni. Fullar sannanir
eru skjalfestar um það, að
hann hafi sjálfur gefið skrif-
legar fyrirskipanir um líflát
manna með þessum hætti.
Ákæran er í 17 aðalliðum og
39 blaðsiður að lengd. Forseti
réttarins, Frank Simpson, las
kæruna fyrir Manstein í rétt
inum og spurði hann í lok
hverrar aðalgreinar, hvort
hann játaði sig sekan um
Tíðindamaður frá Tíman-
um hefir hitt dr^Hansen að
máli og spurt h£tnn um ís-
landsferðina. Kváðst hann
hafa upplifað meira á íslandi
á tíu dögum en heilu ári
heima, enda ferðast víða um
með vini sínum og' kunningja
er boðið hafði sér til íslands,
Oddi Jónassyni, frúmkvæmda
stjóra.
Annars kom dr. Hansen einn
til íslands árið 1939, svo að
jhann þekkti nokkuð til lands
hátta.
Meðal annars heimsótti dr.
Hansen rannsóknarstöðina að
Keldum í Mosfellssveit, skoö-
aði tæki hennar, og kynnti
sér nokkuð viðfahgsefnin.
„Við í dönsku..jtofnuninni
erum reiðubúnir-tii samstarfs
við íslendinga á þessu sviði,
ef það mætti verða til stuðn-
ings við rannsóknir og tilraun
ir til lækninga á-þúfjársjúk-
dómum, sem við ér að stríða
á íslandi“, sagði.,dr. Hansen
að lokum.
Inntakan^form-
lega staðfest
í gær var innganga Dan-
merkur i Atlantfhafsbanda-
lagið formlega stáðfest við há
tíðlega athöfn í Hvíta húsinu
í Washington eg var Truman
viðstaddur. Hinrik Kauffman
sendiherra Dana.:.j; Washing-
ton kom þar fraiji:iýrir hönd
lands síns. Samtímis fór fram
sams konar staðfesting varð
andi Portúgal og; Ítalíu.
þetta ákæruatriðl, og sautján
sinnum stóð Mansiein upp og
svaraði: Saklaus..-.
Manstein er 938. og síðasti
Þjóðverjinn, sem leiddur er
fyrir brezkan..-. stríðsglæpa-
rétt eftir styrjöldina.
Viðurkenna ekki
12-mílna landhelgi
Rússar hafa borið fram þá
kröfu, að landhelgi þeirra
verði ákveðin 12 mílur í
Eystrasalti. Þetta hefir þó
ekki verið viðurkennt, en
rússnesk varðskip hafa leyft
sér að taka höndum sænska
og danska fiskimenn, sem
farið hafa inn fyrir þessa
línu. Hafa orðið nokkrir á-
rekstrar af þessum sökum,
eins og kunnugt er.
Nú hefir brezka herstjórn-
in í Þýzkalandi lýst yfir því,
að hún geti ekki fallizt á
þessa kröfu Rússa um 12
mílna landhelgi í' Eystrasalti,
og færir þau rök fyrir máli
sinu, að Bretar hafi aldrei
fallizt á að samþykkja meira
en 3 mílna landhelgi hjá
nokkru ríki, og geti því ekki
fallizt á kröfu Rússa, bæði
vegna Breta sjálfra eða
Austur-Þýzkalands.
Samtímis þessu hefir her-
stjórnin þó aðvarað þýzka
fiskimenn að fara ekki inn
fyrir landhelgislínu þá, sem
Rússar hafi ákveðið til þess
að losna við óþægindi.
Hollendingar vinna
Belgi í frjálsum
íþróttum
Um síðustu helgi fór fram
landskeppni í frjálsum íþrótt
um milli Belgíu og Hollands.
Holland vann með 88 stigum
gegn 87. Mesta ath. vakti sig-
ur Hollendingsins Slijkhuy’s
i 1500 m. hlaupi og vann hann
Gaston Reiff. Tími hans var
3:43,8 sek. sem er þriðji bezti
tími, sem náðst hefir í heim-
inum og bezti tími, sem náðst
hefir í heiminum í ár. Er þetta
nýtt hollenzkt met, en gamla
metið var 3:49,6 sek. Heims-
metið á vegalengdinni eiga
Svíarnir Hágg og Strand
3:43,0.
Alþjóðamót í Zúurich.
Nýlega var haldið mót í
Zúrich og tóku nokkrir banda
rísku keppendanna, er kepptu
í Osló í s. 1. mánuði þátt í
mótinu. Bezta afrekið vann
Richard í stangarstökki, stökk
4,50 m. Heimsmethafinn í
kúluvarpi James Fuchs varp-
aði kúlunni 17,96 (heimsmet-
ið er 17,79), en kúlan reyndist
vera of létt.