Tíminn - 31.08.1949, Blaðsíða 1
Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
• Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
Skrifstofur í Edduhúsinu
Fréttasímar:
81302 og 81303
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda
33. árg.
Rcykjavík, miðvikudaginn 31. ágúst 1949
Bjfc .
182. blafi
Framleiðsluráð lan
arins gerir ráöstafanfr
um geymslu kartafln
Ráðg’crt að byggja stóra kartöflugeymslM
á SvalIíarðsströiisS.
(Úr skýrslu Framleiðsluráðsins)
Á aðalfund Stéttarsambands bænda haustið 1948 var
samþykkt tillaga þar sem skorað var á Framleiðsluráð að
athuga hvort ekki væri unnt að komma betra skipulagi á
dreifingu og geymslu kartaflna og annara garðávaxta. Mál
þetta var rætt á fundum Framleiðsluráðs og framkvæmda-
nefndar. Við þær umræður varð ljóst, að það sem einkum
er ábótavant í þessum efnum, er að framleiðendur geta
ekki losnað við framleiðslu sína um uppskerutímann. Þeir
hafa sjálfir litlar og lélegar geymslur og mikið fer því
forgörðum í þessum efnum, vegna skemmda á kartöflum.
Sér um rekstur jarð-
húsanna.
kartöflur í jarðhúsunum í
hólfum og greiða visst árgjald
Um svipað leyti og mál fyrir hólfiö- Auk Þess hefir
Grænmetisverzlun ríkisins á
leigu 3 hús, Sandgræðsla rík-
isins 1 hús og Reykjavíkur-
þetta kom til umræðu í Fram
leiðsluráðinu barst fyrirspurn
frá Atvinnumálaráðuneytinu
þess efnis hvort Framleiðslu
ráðið gæti tekið að sér rekst
ur Jarðhúsanna við Elliðaár
með fjáarhagslegri ábyrgð
ríkissj óðs, en ráðuneytið
hafðty þá nýverið gert leigu-
samning til 5 ára við eigend-
ur Jarðhúsanna. Við þessum
tilmælum varð Framleiðslu-
ráðið og hefir síðan séð um
rekstur Jarðhúsanna.
Góðar geymslur.
Jarðhúsin við Elliðaár eru 7
að tölu. Hvert þeirra um sig
er rúmir 30 metrar að lengd
og tæpir 6 metrar að breidd
að innanmáli. Hvert þeirra
um sig tekur 2500—3000 tunn
ur af kartöflum eða öll saman
lagt um 20 þúsund tunnur.
Húsin eru vel einangruð og
eru útbúin með 3 kælivéla-
samstæðum alls um 75000
kaloríur á klukkustund. Hinu
kælda lofti er dælt í húsin
með kraftmikilli loftdælu.
Hitastig í húsunum hefir al-
mennt verið milli 2—4 gráður
og rakastig um 88—90%. Þó
heir hitinn í einstökum tilfell
um farið hærra, þegar mikill
umgangur hefir verið um hús
in og heitt hefir verið í veðri.
Reynslan sýnir að geymsl-
ur þessar eru hinar prýðileg-
ustu. Komi jarðávextirnir ó-
skemmdir að hausti til, hafa
þeir verið jafngóðir eftir 10
—11 mánaða geymslutíma.
Um 600 einstaklingar geyma
Cripps og Bevin
leggja af stað
Þeir Sir Stafford Cripps,
fjármálaráðherra Breta og
Ernest Bevin, utanríkisráð-
herra, munu leggja af stað
áleiðis til Washington á morg
un, frá Southampton, en fjár
málaráöstefna Kanada, Bret
lands og Bandaríkjanna mun
hefjast þar í næstu viku.
Hér sjást forsetar þings Evrópuráðsins i Strassburg. Þeir eru
talið frá vinstri: Layton lávarður (Englendingur), de Menthon,
(Frakki), Spaak aðalforseti, Jacini, (Itaii) og Ole Björn Kraft
(Dani).
Grettir kominn til
Akureyrar
Dýpkunarskipið Grettir kom
um fyrri helgi til Akúreyr ■
ar og á nú að hefjast vinny,
við stækkun Torfunesbrygg -■
unnar þar, en það verk heíú'
lengi verið á döfinni.
Á skipið að undirbúa aðail
íramkvæmdirnar með því aV
grafa rás inn í grófina, sem
gerið hefir verið við fyrir-
hugaða dráttarbraut á Odö-
eyrartanga. Vitamálastjóri.
og verkfræðingur vitamála-
skrifstofunnar voru einnig ’á
Akureyri til viðræðna viö
hafnarnefnd bæjarins um
þessi mál.
bær 1 hús.
Kartöflugeymsla á
Svalbarðseyri.
Má fullyrða, að hér sé stig-
ið spor í rétta átt til þess að
veita móttöku þeim kartöfl-
um sem berast til sölumeð-
ferðar í Reykjavík. Ýmsar
viðbætur og breytingar þyrfti
samt að gera á húsunum ef
vel ætti að vera, en auk þess
þarf geymslur á fleiri stöð-
um út um landið. Hefir Kaup-
félag Svalbarðseyrar, að
nokkru fyrir áeggjan og ó-
beinan stuðning frá Fram-
leiðsluráði, í hyggju að byggja
kartöflugeymslu fyrir 2000—
3000 tunnur á- þessu sumri á
Svalbarðseyri.
Boðið til
Svíþjóðar
Þeim prófessorunum Jóni
Jóhannessyni og Steingrími
Þorsteinssyni hefir verið boð
ið í kynnisför til Svíþj óðar
og eiga þeir að kynnast
sænsku menningar- og skóla
lífi. Jón er þegar farinn utan
en Steingrímur mun fara í
byrjun næsta mánaðar.
Opnar prentmynda-
gerð á Akureyri
Hinn góðkunni prentmynda
smiður og frumherji í þessari
starfsgrein hér á landi, Ólaf-
ur Hvanndal, sem rekið hefir
prentmyndagerð í Reykjavík
er nú fluttur til Akureyrar
með iðn sína, og opnaði hann
aþar prentmyndagerð í fyrra
dag i Hafnarstræti 93. Eru
húsakynni þar góð. Er þetta
fyrsta og eina prentmynda-
gerðin á Aukreyri.
Tító lokar Dóná fyrir
rússneskum skipum
Leynilegir fimdir lciðtoga Koiniii4‘«rm» '
landanna x Sofía.
*
Tito marskálkur ákvað á sunnudaginn var að loka Dóná
til þess að hindra ferðir rússneskra herskipa inn í Júgó-
slavíu og jafnframt er talið víst, að rússneskum hersveM -
um hafi fjölgað mjög við landamæri Júgólsavíu.
Viðbótarbygging
á VatnsendahæA
Á næsta vori er ráð-
gert að ríkisútvarpiö fál
Versta löinunarveikiár í
sögu Bandaríkjanna |
Ýinsar ráðsíafanir gerðar til varnar
leiðingmn veikliiuar víða um heim.
af-
Hið alþjóðlega heilbrigðiseftirlit er um þessar mundir að
gera víðtækar ráðstafanir til þess að mæta með varnarráð-
stöfunum ískyggilegum faröldrum af lömunarveiki, sem
bæra á sér víðsvegar um heim. Bandaríska varnarsam-
bandið gegn barnalömun hefir tilkynnt, að þetta ár verði
mesta barnalömunarár í sögu Bandaríkjanna.
Hinn 20. ágúst var vitað um
17306 lömunarveikitilfelli í
Bandaríkjunum en þau voru
9743 á sama tíma í fyrra. í
Vestur-Þýzkalandi hefir þó
minna borið á þessari veiki en
næstu ár á undan. f Montreal
í Kanada er talið að raunveru
leg farsótt af lömunarveiki sé
um það bil að brjótast út, og
hafa læknar ákveðið að taka
ekki hálseitla úr börnum bar
fyrst um sinn nema brýna
nauðsyn beri til.
Til Parísar voru send fjög-
ur stállungu frá Bandarikjun
um með flugvél til þess að
reyna að bjarga lífi lömunar
sjúklinga. Alþjóða heilbrigðis
eftirlitið hefir nýlega sent 20
stállungu til Indlands. í Bret
landi er hinsvegar fremur lít
ið um lömunarveiki um þess-
ar mundir.
Taugastríðið harðnar stöð-
ugt og allt virðist benda til
þess, að báðir aöilar séu við
vopnaátökum búnir. Leiðtog-
ar Kominformlandanna og
hershöfðingjar hafa undan-
farna daga setið á leynifund-
um miklum í Sofia. Hafa
fundir þessir verið haldnir ájnýjan sendi og er nú veriö
stærsta gistihúsi borgarinn- j að undirbúa niðursetningu
ar, Bulgaria, og sterkur vörð i ftans á Vatnsendahæðinm cg;
ur hafður um þá og mikil er Verið að gera þar viðbóte v
leynd um öll störf þeirra. Er i byggingu. Þessi nýi sendir er
gert ráð fyrir, að þar sé rætt j 2o kw að stærð og er gen;
um næstu aðgerðir gegn Tito j ráð fyrir> að hann verði tek-
og vænta megi innan skamms j inn i notkun næsta sumar
bendinga um það, hvort
halda eigi taugastriðinu á-
fram með svipuðum hætti
eða nýrra og áhrifaríkra að-
gerða sé von.
Fregnir hafa borizt um ó-
venjulega mikinn herstyrk
við landamæri Ungverjalnads
og Júgóslavíu, og skriðdreka-
sveitir hafa tekið sér stööu
við bæinn Szeged.
Óhagstætt veiði-
veður á síldar-
miðura
Veiðiveður er enn óhag-
stætt á slldarmiðunum fyrir
Norðurlandi og liggja flest
síldveiðiskip í vari. Nokkur
sildveiðiskip eru þegar búin
að gera upp og hætt veiðum.
Veður var heldur skárra aust
ur undan en þó voru fá skip
á veiðum en lágu mörg inni
á Raufarhöfn. Vitaö var þó
um fáein skip, sem fengiö
höfðu einhvem afla.
eða haust. Sendirinn, sem nu
er notaður á Vatnsenda vero
ur þá fluttur austur að Eið-
um, en sendirinn þar ef til
vill fluttur suð\ir í Hornafjörc
og komið þar fyrir endurvarp
stöð.
Sjö Danir í „Norð
urlandaliðinu'
Sjö danskir frjálsiþrótta-
menn voru valdir í keppnins,
við Svía. Þeir, sem valdir vorr
eru: Erik Christensen oo
Erik Nissen í 110 m. grinda-
hlaup. Sorben Johannesen j
400 m. grindahlaup, Gunnai
Nielsen í 800 m. hlaup, Hebei
Larsen í þrístökk, Svenc
Aage Frederiksen í sleggju-
kast og Knud Schilsby £
4X100 m. boðhlaup. Af þessu
má sjá að þessir sjö Danir
keppa í sjö „stöðurn" í lið'nu
Aftur á móti voru aðeins
fimm íslendingar valdir er.,
þeir keppa i 11 „stöðum“ og
auk þess keppir Örn Clauser..
í tugþrautinni.