Tíminn - 02.09.1949, Qupperneq 1
Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgejandi:
Framsóknarflokkurinn
~—---------------——I
Skrifstofur l EdcLuliúsinu
Fréttasímar: l
81302 og 81303 (1
Afgreiðslusími 2323
Auglysingasími 81300
Prentsmiðjan Edda |
S3. árg.
Reykjavík, föstudagiim 2. september 1943
184. bla®
Helgi Jónasson Eæknir í
Björn Björnsson sýsiur
efstu menn listans í
Rangárvallasýslu
Framsóknarmenn í Rang-
árþingi hafa ákveðið' að
framboðslisti þeirra við kosn-
ingarnar í haust verði skip-
aður þeim Helga Jónassyni
lækni á Stórólfshvoli, Birni
Björnssyni, sýslumanni á
Hvolsvelli, Sigurði Tómassyni,
bónda á Barkarstöðum í
Fljótshlíð og Guðmundi Árna-
syni, bónda í Múla á Landi.
Helgi Jónasson var fyrst
kosinn þingmaður Rangæ-
inga árið 1937, og hefir jafn-
an síðan Verið endurkjörinn
með miklu öruggu fylgi. Hef-
ir hann jafnan verið fyrsti
þingmaður Rangæinga síðan
séra Sveinbjörn Högnason lét
af þingmennsku fyrir þá'.
Björn Björnsson hefir ver-
ið sýslumaður Rangæinga í
nær tólf ár, og voriö 1942 var
hann kjörinn annar þing-
maður Rangæinga og átti
sæti á sumarþingi því, sem
þá var háð. Við nýjar kosn-
ingar, sem fóru fram um
haustið, eftir að listakosning-
um hafði verið komið á í tví-
menningskjördæmum, va:
hann annar maður á lista
Framsóknarmanna, en náði
þá ekki kosningu. Hann var
einnig annar maður á lista
Framsóknarmanna við kosn-
ingarnar 1946.
Sigurður Tómasson á Bark-
arstöðum og Guðmundnr
Árnason í Múla eru báðir
landskunnir bændur og virtir
vel.
Sigurður er fæddur árið
1893, og hefir lengi tekið þátt
i margháttuðum framfara-
og nauðsynjamálum Rangæ-
inga, bæði búnaðarmálum og
félagsmálum ýmisskonar, og
gegnt mörgum trúnaðarstörf-
um fyrir sveit sína og sýsl-
unga.
Guðmundur er fæddur 1879,
og á langa og góða starfssögu
að baki. Hann hefir einnig
tekið mikinn þátt í-framfara-
baráttu héraðsins og gegnt
fjölmörgum trúnaðarstörfum
fyirr sveit sína, sýslu og stétt.
Fjórir vélbátar á
nauðungaruppboði
NatVðungaruppboð á fjór-
um vélbátum í Reykjavík eru
auglýst í síðasta Lögbirtinga-
blaði. Eru þetta bátarnir Dag-
ur, Heimaklettur, Nanna og
Svanur.
Uppboðin eru auglýst að
kröfu bæjargjaldkerans í
Reykjavík.
Helgi Jónasson, læknir.
Björn Björnsson, sýslum.
Illskuveður á
síldarslóðunnm
Ingólfsfjarðarverk-
siniðjan Iiætt mót-
töku síldar
Lítil sildveiði hefir verið að
undanförnu, enda veður hið
versta nyrðra. Lítilsháttar
hefir þó birizt af síld, en
hana munu skipin hafa veitt
áður en óveðrið skall á.
Til Siglufjarðar komu í
fyrrinótt um sjö hundruð
mál, og í gær komu nokkur
skip til Raufarhafnar með
um 2400 tunnur til söltunar.
Eitt skip, Fagriklettur, kom
með nær 600 tunnur til Seyð-
isfjarðar.
Síldarverksmiðj an á Ing-
ólfsfirði verður ekki straf-
rækt lengur þetta sumar,
entía hefir sama cg ekkert
borizt af síld í sumar.
Lóðamál meenía-
skólans rædd í
bæjarstjórn
Á fundi bæjarstjórnar
Reykjavíkur í gær urðu all-
miklar umræður um breikkun
Lækjargötu og lóð Mennta-
skólans.
Ætlun bæj aryf irvaldanna
var að taka 20 m. af Mennta-
skólalóðinni til breikkunar
á Lækjargötu, en samkomu-
lag hefir nú xráðst milli borg-
arstjóra og menntamálaráö-
herra þess efnis, að ekki
skuli teknir nema rúmlega 16
m. af lóðinni. Engin bifreiða-
stæði munu því verða framan
við Menntaskólalöðina, eins
(og ætlazt hafði veriö til.
I PSJmi Hannesson rakti ít-
j arlega lóðamál Memxtaskól-
ans á fundinum og verðxxr
nápar sagt frá ræðu hans og
umræðunum síðar.
Skemmtanir og merkjasala
þriggja íþrottaféfaga
um helgina
§kemiutanir Iieíjasí á iaugardag'skvöM »
Tivoll og Iialtla áfram á suniuidag.
Þrjú stærsíu íþróttafélögin í Reykjavík, Ármann, í.8r
og K.R. munu efna íil merkjasölu og skemmtana til fját"
öflunar fyrir starfsemi sína á laugardaginn og sunnudag •
inn kemur. ÖII þessi félög hafa lagt í kostnaðarsamar ut
anferðir til íþróttasýninga og þátttöku í íþróttamótum, og;
eru nú að reyna að afla fjár til greiðslu á þeim kostanaði.
og til hinnar miklu starfsemi sinnar almennt. Skemmtim-
unum verður hagað á þessa leið, eftir því sem Jens Guð'-
björnsson, formaöur Ármanns tjáði blaðinu í gær:
Samtal við Guðmimd á Melum:
ílfær vegur frá Gjögri
Ingólfsfjörö aðkallandi
nauðsyn
Merkjasalan.
Ætlað er að merkjasa.lax.'.
fari fram á sunnudaginri.
Vonast félögin til þes að seir.
flestir vilji bera merki þeirra
þennan dag og styrkja urr.
leið gott málefni. Merkir:
verða seld á 2 kr. og 5 ki...
Merkin verða afhent til sölr.
í skrifstofum Sameinaða eft-
ir hádegi á laugardag, og
munu félagar þsfisara félags,
selja merkin. Einkum erv.
börn úr félögunum beðin að
taka merki til sölu.
Sími komiirn á flesta bæi í Árnesttreppl
„Við gerum okkur vouir um, að undinn verði að því
bráður bugur að gera bílfæran veg frá Gjögri og norður
í Ingólfsfjörö“, sagði Guðmundur Guðmundsscn, bóndi á
Melum í Trékyllisvík, við tíðindamann frá Tímanum í
fyrradag. „Eins og sakir standa er aðeins bíifært frá Eyri
í Ingc}fsfirði í Árnes“.
Við eigum nú vo n á belt-
isdráttarvél, sem væntanlega
verður bæði notuð til jarða-
bóta og vegagerðar, sagði
Guðmundur ennfremur.
Annars hefir að ýmsu leyti
verið þungt fyrir fæti hjá
okkur. Það er mikill skellur
fyrir okkur, að síldveiðarnar
brugðust eins og þær gerðu,
svo að engin síld hefir borizt
til verksmiðjanna á Strönd-
um, og tíðarfarið hefir verið
slæmt hjá okkur, eins og
raunar viðar. Tún eru kalin,
og engjar illa sprottnar. En
annars hefir heyskapur geng-
ið að vonum.
Eins og kunnugt er, er Ár-
neshreppur einn af víðlend-
ustu hreppum landsins. En nú
er svo komið, að allir bæir í
hreppnum norðan Ófeigs-
fjarðar — Drangavík, Drang-
ar og Skjaldarvík — eru
komnir i eyði. Er þá aðeins
Reykjarfjörður — en þar er
myndarbúskapur — eftir í
byggð á öllu svæðinu frá Ó-
feigsfirði og norður í Furu-
fjörð, og vafasamt, hversu
lengi nelzt byggð í Furufirði
héðan af. Bolungarvík, norð-
an Furufjarðar, fór r eyði í
vor. Tveir syðstu bæir Árnes-
hrepps, Byrgisvík og Kol-
beinsvík, eru líka komnir í
eyöi.
Annars erum við þarna
norður frá ekki að öllu leyti
eins einangraðir og ætla
mætti. Það er til dæmis sími
á flestum bæjum sveitarinn-
ar, og í Gjögri er dálítið þorp.
Viðunandi vegasamband við
Gj ögur myndi stórum
greiða öll samskipti innan
sveitar, og eftir því bíðum við.
K i r k j a v í g ð
í Möðrudal
Á sunnudaginn kemur mun
biskup íslands vígja nýja
kirkju eöa kapellu, sem reist
hefir verið í Möðrudal á Hóls-
fjöllum. Er það Jón Stefáns-
son bóndi þar, sem reist hef-
ir kirkju þessa af eigin ram-
leik. í henni er altari úr gam-
alli kirkju í Möðrudal og Jón
hefir sjálfur málað altaris-
töfluna, en hann er drátt-
hagur vel.
Skemmtanir á laug-
ardag.
Reynt verður að hafa
i skemmtiatriðin sem léttusx;
í og skemmtilegust, sagði Jens
■ og íþróttirnar sem sýndar
eru, munu verða þreytta;.'
1 meira í gamni en alvörú.
Skemmtanir á vegum féiag-
anna hefjast á laugardags-
I kvöld kl. 8,30 í Tívólí. Veröx
i þar m. a. sýnd knattspyrna
, kvenna og keppa Í.R. og K.k.
j Hollenzku fimleikamennm ■
i ir sýna og að síðustu verður
, dansleikur.
18 manna hljómsveit í
vagni
Klukkan 2 á sunnudaginx .
hefst gleðskapurinn a ný
með því að 18 manna hljöm-
sveit undir stjórn Kristjáns
Kristjánssonar mun fara uir,
götur bæjarins í skreyttum.
vagni, og kl- 3 leikur hún á
Austurvelli. Klukkan 4 veröur
haldið suður í Tívólí og hef;
ast skemmtanir þar. Verðui
þar kassaboðhlaup kvenna
og einnig pokaboðhlaup
karla. Þá kemur nýstárleg
íþrótt, en það er náttíaía-
boðsund. Fyrstu mennirnii
leggja af stað í náttfötunun.
þurrum, en síðan verða þeir
að klæða sig úr þeim, er
þeir koma að marki og næscr
menn að klæðast þeim. Þa
verða einnig fimleikasýningar
trúðar, og hollenzku fimleika
mennirnlr sýna. Hljómsveit-
in mun leika milli skemmti-
(Framhald á 7. síðu)