Tíminn - 03.09.1949, Blaðsíða 2
TÍMINN, laugardaginn 3, september 1949
185. blað
Jrá haji til heiia
1 dag:
Sóíin kom upp kl. 6.15.
Sólarlag kl. 20.37.
Árdegisflóð kl. 3.35.
Síðdegisflóð kl. 16.12.
í nótt:
Næturlæknir er í læknavarð-
stofunni í Austurbæjarskólan-
um, simi 5030. Næturvöröur er í
Ingólfs apóteki, sími 1330.
Næturakstur annast bifreiða-
stöðin Hreyfill, sími 6633.
Útvarpið
Útvarpið í dag:
Fástir liðir eins og venjulega.
Kl. 20.00 Fréttir. 20.30 Útvarps-
tríóið: Einleikur og tríó. 20.45
Upplestur og tónleikar a) „Hinn
frelsaði“, smásaga eftir W. W.
Jacobs (Þorsteinn Ö. Stephen-
sen leikari). b) Sigfús 'Elíasson
les frumort kvæði. c) „Syndug-
ar sálir“, smásaga eftir Ingólf
Kristjánsson (höfundur les). d)
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur
(Albert Klahn stjórnar). 22 00
Fréttir og veðurfregnir. 22.05
Danslög (plötur). 24.00 Dag-
skrárlok.
Hvar era skipín?
Árnað heilia
á í dag Sigurjón Steinþórsson
fyrrum bóndi í Króki, Hraun-
gerðishreppi. Sigurjón er nú til
heimilis á Austurveg 36, Sel-
fossi.
Hjónaefni.
Nýlega hafa opinberað trúlof-
un sína ungfrú Hulda Hannes-
dóttir frá Arnkötlustöðum,
Holtum, Rangárvallasýslu og
Leifur Jónsson frá Stöðvarfirði.
Úr ýmsum áttum
2. flokks móíið.
Síðastliðinn fimmtud. kepptu
K.R. og Valur í landsmóti 2. fl.
Jafntefli varð 1:1. Hvorugt lið-
ið hefir enn tapað leik.
Bólusetning gegn barnaveiki
heldur áfram og er fólk á-
minnt um að láta endurbólu-
'setja börn sín. Pöntunum er
jveitt móttaka á fyrsta þriðju-
dagi í hverjum mánuði kl. 10—
! 12 í síma 2781.
|
Hraðkeppni kvenna.
| Hin árlega hraðkeppni kvenna
í handknattleik fer fram á morg
un á Hörðuvöllum og hafa F.H.
og Haukar úr Hafnarfirði og í.R.
og Fram úr Reykjavík tilkynnt
þátttöku sina. Keppt er um bik-
ar, sem Jón Mathiesen hefir
gefið. Einnig fer fram keppni í
meistaraflokki karla og verður
keppt um styttu af handknatt-
leiksmanni, sem vinnst til eign-
ar. Þátt í þeirri keppni taka
þrjú félög: Valur, Umf. Kefla-
víkur og iþróttabandalag Hafn-
aríjarðar.
Ilaustmct Taflfélagsins.
j Haustmót Taflfélags Reykja-
i víkur hefst á morgun i félags-
heimili Vals við Reykjanesbraut.
Meðal þátttakenda, er tilkynnt
liafa þátttöku sína, eru Stein-
grímur Guðmundsson, Árni Stef
ánsson, Guðjón M. Sigurðsson
og Hjálmar Theódórsson. -— í
fyrra varð Lárus Johnsen, skák-
meistari, sigurvegari á haust-
móti Taflfélagsins, og núna má
búast við skemmtilegri keppni
milli hinna eldri skákmanna,
sem þátt taka í mótinu og hinna
ungu, efnilegu skákmanan,
sem verða meðal þátttakenda,
Lesendum Tímans mun jafnóð-
um verða skýrt frá úrslitum i
einstökum umferðum.
Eimskip:
Brúarfoss kom til Leith 31. ág.
fór þaðan í gær til Reykjavíkur.
Dettifoss er í Kaupm.höfn. Fjall
foss fór frá London 31. ág. til
Reykjavíkur. Goðafoss fór frá
Reykjavik 29. ág. til Antwerpen
og Rotterdam. Lagarfoss kom tii ó:
Reykjavíkur 1. þ. m. frá Hull.
Selfoss er á Siglufirði. Trölla-
foss kom til New York 27. ág.,
fer þaðan 7. þ. m. til Reykja-
víkur. Vatnajökull fór í gær frá
Djúpavogi til London.
Sambandsskip:
Hvassafell er í Kaskö í Finn-
landit
Einarsson, Zoéga & Co. h. f.:
Foldin er í Reykjavík. Linge-
stroom er í Færeyjum.
Ríkisskip:
Hekla er í Glasgow. Esja var á
ísafirði í gærmorgun á norður-
leið. Herðubreið er á Austfjörð-
um á noröurleið. Skjaldbreið fór
frá Reykjavík í gærdag til
Húnaflóa-, Skagafjarðar- og
Eyjafjarðarhafna. Þyrill lá á
Önundarfirði í gær á norður-
leið.
Kvikmyndaleikkonan Patricia Diinten er ágætt sundkona og
sézt hún hér í glæsilegu stökki af 10 metra háum palli. —
Flugferðir
Flugfélag íslands:
Innanlandsflug: írdag fljúga
’ flugvélar frá Flugfélagi fs-
lands áætlunarferðir til Akur-
eyrar (2 ferðir), Vestmanan-
eyja, Keflavíkur, Blönduóss,
Siglufjarðar, ísafjarðar og Aúst-
fjarða.
Á morgun er áætlað að fljúga
til Akureyrar, Vestm.eyja, Siglu-
fjarðar og Kefiavíkur.
í gær var flogið til Akureyrar
(2 ferðir), Vestm.eyja, Kirkju-
bæjarklausturs, Fagurhólsmýr-
ar, Hornafj arðar (2 ferðir),
Siglufjarðar, Hólmavíkur og
ísafjarðar.
Millilandaflug: Gullfaxi fór í
morgun til Kaupm.hafnar og er
væntanlegur aftur til Reykja-
víkur kl. 17.45,<á mgrgun.
Áttræjðisafmæli
INGÓLFS CAFÉ:
édfdri di
cinácirnir
í Alþýðuhúsinu í kýöld kl. 9. — Aðgöngumiðar seldir
frá kl. 5 (í dag)vGengið inn frá Hverfisgötu.
S.K.T.
Eldxl dansarnlr í G. T.-húslntr
í kvöld kl. 9. — Húslnu lokað kl.
10.30.
— Aðgöngumiðasala kl. 4—6. — Sími 3355. —
S. A. R.
S. A. R.
ijýju clí
cináarnir
í Iðnó í kvöld kl. 9. — Sex manna hljómsveit hússins
leikur. Húsið opnað kl. 8.30, lokað kl. 11.30. — Sími 3191
Ölvuðu fólki ekki heimill aðgangur
Aðgöngumiðar í Iðnó frá kl. 6 síðdegis.
S. U. F.
S. U. F.
ALMENNUR DANSLEIKUR
í Tjarnarcafé í kvöld kl. 9 — Aðgöngumiðar seldir
frá klukkan 5—7.
*•♦♦♦♦♦♦•••« •«««••«-«♦♦•««•••»•♦»••♦♦•♦••»••••••«-•«••♦♦<
laria Markan Östlund
óperusöngkona
endurtekur söngskemmtun sína í
Gamla bíó
sunnudaginn 4. september kl 3 eftir hádegi
Við hljóðfærið Fritz Weisshappel
~rn1
ii
H
H
♦♦
• « .
H
♦♦
H
♦♦
«
|
8
t:
Óboðnir gestir
Mér hefir borizt bréfstúfur,
sem hljóðar á þessa leið:
„Þegar minnzt er á gestrisni
þá, sem íslendingar hafa notið
á Norðurlöndum, get ég ekki
látið hjá líða að minnast á mis-
tök, sem orðið hafa af hálfu ís-
lendinga nú nýlega.
Síðastl. vor var boðið nokkr-
um þingmönnum frá íslanid og
frá öllum Norðurlöndum til
Danmerkur til að sitja þar boö í
sambandi við hátíð Ríkisdags-
ins danska.
Fimm þingmönnum var boðið
frá íslandi og eitthvað fleiri frá
hverju hinna Norðurlandanna.
En viti menn. Fjórir af íslend-
ingunum mæta þar með konur
sínar í veizlunum en engir aðr-
ir þingmenn mæta þar með kon-
ur sínar. — Gestgjafarnir segja
auðvitað ekkert við þessu, en
bjóða frúrnar aðeins velkomnar,
en hver og einn getur gert sér
í hugarlund hvílíkri truflun það
getur valdið, þegar hópur af
gestum mætir, sem ekki er gert
ráð fyrir. — Og hvílík frekja og
velsæmisskortur slíkt muni
þykja. í svona heimskupörum
mega fulltrúar íslendinga er-
lendis ekki gera sig seka.“
J. H.
Aðgöngumiöar seldir í bókaverzlun Sigfúsar Eymunds- H
sonar og Hljóðfæraverzlun Sigríðar Helgadóttur
:: ::
> ■> . . U
::
Miiiiin iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiiiiiiiii«iiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiitiiiiitiitiiiiiiiiiii(iin»
BAGEEGxl WÝTT
Dilkakjöt
| FRYSTIHÚSIÐ HERÐUBREIÐ |
I Síml 2678 I
KiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiititiaiiiiiiiitiitiiiiiiiaÉiiaiiiiiiiaiitiiiaiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiBiiiiii•itiiBa
TILKYNNING
Nokkrir nemendur geta komist aö í deild,
sem stofnuð hefir verið við Húsmæðraskól-
ann á Hallormsstað og útskrifar nemendur á
einum vetri. Umsóknir þurfa að hafi borizt
skólanum fyrir 30. september.
Forstöðukonan ...
t