Tíminn - 27.10.1949, Blaðsíða 5

Tíminn - 27.10.1949, Blaðsíða 5
230. blað TÍMINN, fimmtudaginn 27. október 1949 Fimmtud. 27. oht. Kosningaúrslitin Þegar þetta er ritað er að- eins frétt um úrslitin í kaup- j stöðunum og 8 kjördæmum öðrum. Af þéirri vitneskju' verður ekki kveðinn upp neinn fullnaðardómur um kosningaúrslitin, en sennilegt er þó, að af henni megi ráða, hverjir meginstraumarnir eru. Eins og úrslitin standa nú hefir Framsóknarflokkurinn einn aukið fylgi sitt hlutfalls lega að ráði. Sjálfstæðisflokk urinn hefir heldur betur en staðið í stað hlutfallslega. Kommúnistar hafa heldur lækkað, þrátt fyrir aukningu sína i Reykjavík. Alþýðu- flokkurinn hefir tapað veru- lega hlutfallslega. Fyrir Framsóknarmenn er ástæða til að gleðjast yfir þeim ávinningi, sem flokkur þeirra hefir hlotið. Þessi á- vinningur er sönnun þess, að stefna flokksins og barátta nýtur vaxandi skilnings og vinsælda. Þetta þarf þó enn að aukast, ef fullur árangur á að nást. Kosningaúrslitin glæða Þka þær vonir, því að réttmæti þess, er Framsókn- armenn hafa barizt fyrir og berjast fyrir, á eftir að koma enn betur í ljós. Framsóknar menn geta því horft til fram tíðarinnar vongóðir og trúað- ir á réttan málstað. Fyrir Framsóknarmenn er sérstök ástæða til að fagna sigri sínum í Reykjavík. Að sönnu má þakka hann að vissu leyti því mikla áliti. er * Rapnveig Þorsteinsdóttir nýt ur og hinni snjöllu og ein- örðu framgöngu hennar í kosningabaráttunni. Eigi að síður sýnir hann þó stórkost- lega aukið fylgi flokksins í höfuðstaðnum og ber þess ljósan vott, að málstaður hans nýtur þar vaxandi við- urkenningar og rógurinn um hann sem „fjandmann Reykjavíkur“ er hættur að bera árangur- Hér eins og í dreifbýlinu er vaxandi skiln- ingur á því, að hagsmunir höfuðborgarinnar og lands- byggðarinnar geta og eiga að fara saman. Þessvegna geta Framsóknarmenn fastlega vænst þess, að fylgi þeirra haldi áfram að vaxa -í höfuð- borginni eigi síður en annars staðar. Fyrir alla lýðræðissinnaða menn er það fagnaðarefni, að kosningaúrslitin leiða í ljós minnkandi fylgi kommúnista í öllum kaupstöðum landsins, nema í Reykjavik, og í nær öllum kjördæmum öðrum, þar sem persónulegum vin- sældum frambjóðendanna er ekki til að dreifa. Þessi þró- un á líka áreiðanlega eftir að ná til höfuðstaðarins. Þetta er i samræmi við þréunina í öllum lýðræðislöndum, þar sem kommúnistar hafa stór- tapað fylgi. Þetta tap komm- únista þarf að halda áfram, því að meðan þeir eru eins sterkir og þeir þó eru enn, verður sundrungarstarf þeirra bezta hjálparhella afturhaldsins til að hindra myndun nógu sterkra um- bótasamtaka, er geti ein far- ið með stjórn iandsins. Með- an slík samtök komast ekki ERLENT YFIRLIT: Viðsjár í Albaníu Stjórn koiiiiiiiinlsta þar stendur völtum fótuni vog’na Títódeilunnar. Balkanríkin vekja nú sívaxandi umtal og hefir kjör Júgóslavíu í Öryggisráðið ýtt mjög undir það. Hér á eftir fer grein, sem danska blaðið Information birti nýlega um ástandið í Albaníu. ÞAÐ ERU AUÐVITAÐ margar ástæður til þess, að Rússar reyna að steypa Tító af stóli, en ein af þeim og ekki hin sízta er uggur um þróun mála í Albaníu, en þar virðist nú vera spennandi ástand. Það er óhjákvæmilegt að segja „virðist", þar sem fréttir frá land- inu eru svo sundurleitar, að erfitt er að skapa sér skoðun um, hvað þar sé að gerast. í Það má heita ómögulegt með öllu fyrir Vestur-Evrópumenn að komast inn í Albaníu. Einu ríkin, utan Kominformlandanna, sem hafa opinber sendiráð í Tirana, höfuðborg Albaníu, eru Frakkland og Ítalía. EN ALLTAF SÍAST eitthvað út og „tíðindi spyrjast“, eins og sagt var í gamla daga, þegar rætt var um fjarlæga staði og illa þekkta atburði. Nú spyrzt það, að Enver Hocha, forsætisráðherra og raun- verulegur einræðisherra Albaníu, á við ýmsa erfiðleika að etja. Ef litið er á landabréfið ætti líka að vera fljótlegt að átta sig á skýr- ingum þess. Þetta litla land er einskonar út- virki, sem er umkringt óvinum á alla vegu. Það er eins og Komin- formeyja, nokkurn spöl undan ströndum hins rauða meginlands. Til skamms tima var það í tengsl- um við Búlgaríu um norðurhluta Grikklands, þar sem flokksbræð- urnir áttu fyrir að ráða. Eftir að varnir þeirra hafa bilað er sú leið nú orðin lokuð og eina leiðin, sem Albanía getur nú fengið birgðir eft ir frá austri, er sjóleiðin frá Svarta hafshöfnum til Valona og Dur- azzo. ÞESSAR KRINGUMSTÆÐUR eru því alvarlegri, sem sambúð Albaníu við Grikkland og Júgó- slavíu er ekki aðeins kuldaleg eins og alls staðar er, þar sem járn- tjaldið skilm1 á milli ríkja, heldur blátt áfram óvinsamleg. Tító leit framan af valdatíma sínum á Al- baníu sem eins konar hjálendu ríkis síns. Hann telur sig eiga ó- gerð reikningsskil við Hoxha, sem notaði tækifærið til að gera hon- um allt til óþurftar, þegar Kom- inform kvað upp bannfæringu sína. Og frá Grikkja hálfu eru það ekki reikningsskil, sem þeir óska eftir, heldur hefnd, sem þeir vilja koma fram, til að launa fyrir sig vegna allrar þeirrar hjálpar, sem var veitt uppreisnarmönnunum frá Albaníu. Þeir hefðu naumast hald ið uppi baráttu svo lengi án þeirr- ar liðveizlu, sem þeim barst yfir landamærin. STRAX VIÐ STYRJALDARLOK gerði gríska stjórnin kröfu til suð- urhluta Albaníu, sem Grikkir kalla nyrðri Epirus, og skýrir það nafn viðhorf þeirra. Eftir því sem bezt er vitað býr þar enginn Grikki, en íbúarnir eru að verulegu leyti grísk-kaþólskir, og það er nóg til þess, að Aþena vill taka þá undir verndarvængi sína. Það er þvi eng in furða, þó að sums staðar kenni kvíða vegna þess, hvað gríski her- inn kunni að taka sér fyrir hend- ur, er hann hefir nú sigrast á óvinum sínum heima fyrir. Það er alls ekki útilokað, að hann sé nógu óforsjáll til þess að ráðast inn í Albaníu til að liefna sin á Hoxha og færa út takmörk Grikklands. Brezkir stjórnmálamenn virðast hafa nokkrar áhyggjur af þessu, en vera má, að Englendingar og Bandaríkjamenn reyni hér með for tölum við stjórnina í Aþenu að fá hana til að drottna yfir náttúr- legum tilhneigingum sínum. ÁRÁS GRIKKJA á Albaníu myndi sennilega leiða til þess, sem Hoxa hefir ekki tekizt með góðu að koma' í framkvæmd til þessa: Að þjóðleg eining og samheldni skapaðist í Albaníu. Þó að þetta sé smáríki, eru þó íbúarnir harla ósamkynja. Meginhluti þjóðarinn- ar, um það bil 70%, eru Múham- eðstrúarmenn, en í nvrztu héruð- um landsins rómversk-kaþólskir Stalin er sagður hafa þungar áhyggjur yfir ástandinu í Albaníu. Ábyrg eða óábyrg stjórnarandstaða Sósíalistar bera sig iila eft- ir þau kosningaúrslit, sem kunn eru orðin. Það er 'að vonum, því að eini sjáanlegi árangur af öllum þeirra her- brögðum og tali um „stjófii- arandstöðu“, er sá, að þeir fá að líkindum Finnboga Rút inn í þingflokkinn. i Ósigur kommúnista í þess- um kosningum sýnir meðal annars, að það er ekki gæfu- legt að berjast, án þess að hafa ábyrga stefnuskrá Kommúnistar höfðu sterka aðstöðu á þann hátt, að þeir gátu bent á ýmislegt, seiii mið ur fór í þjóðfélaginu og rík- isstjórnin eða meirihluti hennar ber ábyrgð á. Þeir gátu bent á margar ráðstaf- anir, sem gerðar hafa verið og koma illa við almenning, svo sem tollar og álögur, sem raunar er ein hlið verðbólgu- þróunarinnar og hlaut að koma á eftir þeim aðgerðum sem kommúnistar stóðu að menn og syðst í landinu eru grísk- kaþólskir menn í. meirihluta eins og áður er sagt. Frá fornu fari gæt ir mikilla andstæðna milli lands- manna norðan til, sem alla tíð hafa varðveitt forngrískar menningarerfðir og íbúa frjósömu dalanna sunnan til i landinu, þar sem þróunin hefir orðiö allt önn- ur. Af þessum ástæðum einum er samt gat það verið styrk- erfitt að stjórna þessari þjóð. Og ur fyrir kommúnista að þar við bætist svo margt annað, bcnda á allt þetta. sem orðið hefir Hoxha erfitt. j En veilan liggur í þv!, að | kommúnistar höfðu ekki það lítur ekki út fyrir sjálfir eitt einasta úrræði tii að Rússum hafi tekizt að sjá land- þess, að létta þessum byrð- inu farborða efnislega að þvi leyti um af. Þeir tóku þann kost- sem með þurfti, vegna þess, að inn að tala ábyrgðarlaust, en viðskiptin við Júgóslavíu féllu nið- þannig þýðir engum umbóta- ur. Að vísu hefir margt véla verið ftokki að leita kjörfylgis, þvi flutt tíl landsins. Fyrsta vefnað- ' að þar getur hann aldrei yf- arverksmiðjan er risin upp i Tir- ( irboðið íhaldið. Hugsándi ana. Olíulindirnar í landinu eru menn, þó að óánægðir séu, hagnýttar. Nyrzt I landinu er byrj- j eins og nóg ástæða er til, að á nýrri járnbraut. Það er farið vilja hins vegar alltaf sjá að vinna að vatnsvirkjunum. Allt leiðina út úr vandanum og er þietta gort undir rú,ssneskri vita hvernig hún verði farin. stjórn, þar sem þjóðina skortir Kommúnistar vanræktu alli mjög verkfræðinga, sem geta veitt slíkt, enda munu þeir nú slíkum framkvæmdum forstöðu. tapa einu þingsæti .aí1 En samt verða menn elcki mett- minnsta kosti. aðir af vélum og eins og sakir (Framnald á 6. siðuj Raddir nábúarma Það ættu menn að skilja og vita héðan af, að íhaldið verð ur ekki sigrað með öðru en rökum og umbótum. Gaspui og fullyrðingar duga þar ekki, því að þar ber íhaldið alital sigur af hólmi. Það er raun- hæf menntun, röksemdir og Kommumstar eru æfareiðir r61 fortöiUr og ákveðin yfir sigri Rannveigar og umbótastefna; sem ein getui á, verður aldrei skapleg stjórn í þessu landi. Fyrir þá, sem viðurkenna nauðsyn lýðræðislegs verka- lýðsflokks ætti ósigur Alþýðu flokksins að vera áhyggju- efni undir venjulegum kring umstæðum. í þetta sinn þarf þó tap flokksins ekki að verða það, ef hann dregur af því réttar ályktanir og breyt- ir eftirleiðis í samræmi við þær. Þær orsakir, er liggja til ófara Alþýðuflokksins, ætti hann auðveldlega að finna. því að þær koma fram í for- ustugrein Alþýðublaðsins í gær, er það segir frá ósigri kommúnista á ísafirði. Al- þýðublaðið segir orðrétt: „Á ísafirði hefir samvinna kommúnista við íhaldið leitt til þess, að fylgi hrynur af kommúnistum ogf Ieitar til sterkara bróðurins í óstjórn- inni“. Þetta hefir nú gerzt í enn ríkara mæli á landsmála sviðinu í sambandi við sam- búð Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins. Framtíð Al- þýðuflokksins veltur á því, að hann dragi af þessu réttar ályktanir. Það óhugnanlega við þess- ar kosningar er það, að Sjálf- stæðisflokkurinn hefir ekki orðið fyrir þvi áfalli, er störf hans og stefna verðskuldar. Þvert á móti heldur hann enn vel velli. Alltof stór hluti þjóðarinnar varar sig ekki á hinni stórkostlegu blekkinga- iðju flokksins og hinna óþjóð hollu og skaðlegu starfsemi hans. Eitt þýðingarmesta framtíðarverkefnið í íslenzk- um stjórnmálum er að hnekkja því mikla valdi, sem þetta stærsta svindlfyrirtæki braskaranna hefir. Það þarf að koma á samtökum allra frjálslyndra og framsækinna manna. er verði nógu öflug til að vinna bug á afturhald- inu og kommúnismanum sitt til hvorrar hliðar og geti kom ið á samstjórn hins vinnandi fólks, líkt og var hér á árun- um 1934—39. Kosningaúrslit- in sýna, að almenningur treystir Framsóknarflokkn- um bezt til þess að hafa for- ustuna í þessari baráttu gegn kommúnismanum og afturhaldinu- í samræmi við það mun hann líka leitast við að haga störfum sínum. falli Brynjólfs í Reykjavík. Þjóðviljinn segir í forustu- grein í gær: hér greip hún því til furðu legustu ráðstafana. Hér var boðinn fram kvenmaður, splundra stjórnarandstöð- unni. Þótt hún væri send til kosninga af þröngsýn- asta og lágkúrulegasta hluta stjórnarliðsins, ey- sigrast á íhaldinu og brotið vald þess niður. Og þessai kosningar eru meðal annars „Loddaraleikur þessi var áminning til frjálslyndra ekki sízt athyglisverður ( hugsjónamanna á íslandi, að hér í Reykjavík. Hér var f þeir skuii jafnan velja séi ríkisstjcrnin skelfdust og þann veg 0g þann veg einar> til að koma málúm sínum fram. Almenningur á íslandi skoy ungfrú Rannveig Þorsteins ast ekki undan því að vinna dóttir, og var henni ætlað j fyrir sér, og fólk vill jafnvel það sérstaka hlutverk að íéggja nokkuð á sig fyrir betri framtíð og öruggari. Á þeim grundvelli er hægt að sam-; eina þjóðina að verulegu léyti um heilbrigða þróun mála sinna. Einkenni þeirrar þró- steinsklíkunni, þóttist hún unar er blcmlegt starfslíf, vera mikill stjórnarand- hófsemi í lifnaðarháttum, al- stæðingur og fylgdi þeirri! menn velmegun og réttlátur meginreglu að tala þvert j jöfnuður í skiptingu þjóðar- um hug, flytja boðskap sem tekna. Að því marki hefir Fram- sóknarflokkurinn stefnt. Fyi ir því hefir hann barizt í þessum kosningum- Hann hef ir komið fram með fullri á- byrgðartilfinningu og aldrei lofað að greiða milljónatugi í einu og öllu var andstæð- ur stefnumálum flokks hennar. Og það undarlega gerðist, að fólk viðurkenndi leikaraskapinn, og kven- maðurinn komst á þing — til að svíkja öll sín orð og öll sín fyrirheit". Þjóðviljinn á eftir að sanna án þess að afla þeirra, eins og kommúnistar hafa gert, það í sambandi við Rann- j og það er eitt af því, sem gerh , veigu, að menn verða ekki, gæfuinuninn. , með orðum vegnir. Rannveig j Islenzkir I mun halda áfram að vaxa af vilja ábyrga , verkum sínum. en kommún- 1 istar að tapa á sinum. umbótamenn hienn, hvort heldur er í stjórn eða stjórn - arandstöðu. Ö-f-Z.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.