Tíminn - 09.11.1949, Page 6
6
TÍMINN, miðvikudaginn 9. nóvember 1949
241. blað
TJARNARBÍÓ
Gullna borgin
(Die goldene Stadt)
Hrífandi falleg og áhrifamikil =
þýzk stórmynd frá Bæheimi, |
tekin í hinum undurfögru Agfa |
litum.
f
i
Myndin er með sœnskum texta. |
|
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
NÝJA B íÖ
!
í
Hin stórfenglega litmynd I
með:
Sýnd kl. 9. I
Tarzan og Græna I
Gyðjan
s
Ævintýrarík og spennandi 1
Tarzan mynd. Aðalhlutverkið |
leikur hinn heimsfrægi íþrótta- I
kappi
Herman Brix
s
■ Aukamynd:
IÐNNÁM
dönsk menningarmynd.
Sýnd kl. 5 og 7.
■iiiitiiiiiiiiiiitiiiiMitiiiiiiMiiiuiimminimfiiiiiiiiiiiiii
Hafnarf jarðarbíó
: 2
I
Kjatran Ó.
Bjarnason
sýnir
ÍSLENZKAR MYNDIR
kl. 7 og 9.
Sími 9249.
aiiiiiiiiiiMiiMiiiiiiiMMiiiiiiMiiiuiiniiini
Enn um hjásetnskrif
Alþýðublaðsins
(Framhald af 5. slOu).
dregur sig | hlé, án þess að
hafa áður reynt að ná sam-
vinnu við aðra flokka um
framgang loforðanna. Yfir-
lýsing Alþýðublaðsins um
fyrirfram ákveðna hjásetu
Alþýðuflokksins, án nokk-
urar athugunar á samstarfs-
möguleikum, eru ekkert ann-
að en yfirlýsingar um það,
að flokkurinn vilji ekkert
gera til að efna loforð sín
og hafi strax eftir kosningarn
ar ákveðið að bregðast þeim.
Hjásetu getur Alþýðuflokk-
urinn ekki afsakað með fylgis
tapi sínu. Þar vitna hans fyrri
verk á móti honum. Eftir
mesta kosningaósigur, sem
hann hefir beðið, gekk hann
til stjórnarsamvinnu við í-
haldsmenn og kommúnista.
Þá hefði þó hjáseta hans get-
að verið eins ré/tlætanleg og
Iíklegt er að hún verði ó-
réttlætanleg nú.
3AMla bíó
Suðrænir söngvar |
s
(Song of the South)
SARATOGA
(Saratoga Trunk)
1 Bönnuð börnum irnan 14 ára.
Sýnd kl. 9.
s
Með lögum skal
land byggja
(Abilene Town)
| Hin afar spennandi ameríska
| kvikmynd með
Randolpli Scott
Bönnuð innan 16 ára.
5 Sýnd kl. 5 og 7.
VfiititimriirmifisiM«)i»ii«Miiiiinii(á<tiiiiiiiniiiniiiiiiiUi
Báðskonaii á
Grund
| Vegna ótal fyrirspurna verður
| þessi afarvinsæla og eftirsótta
| gamanmynd sýnd
kl. 5, 7 og 9
Tryggið yður aðgöngumiða i
I tíma.
5
Sími 6444.
tiMMiiMitiiitimiwiiHttiii-ifniv'u.niiriniamiHiBnnH
Skemmtileg og hrífandi fögur |
kvikmynd i eðlilegum litum, |
gerð af snillingnum
WALT DISNEY
I
Aðalhlutverk:
Ruth Warrick
Bobby Driscoll 0
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
BÆJARBID
; I
I HAFNARFIRÐi f
| Ástarglcttur og ;
ævintvri
- t/ s
' | Bráðskemmtileg ensk gam- I
: anmynd. |
| Aðalhlutverk:
f Anna Neagle
Michael Wilding . f
c Tom Walls
Sýnd kl. 7 og 9 1
2
Sími 9184.
miiiiiiniMni
Gcf mcr eftir
konuna
| Skrautleg frönsk gaman-1
| mynd, sprenghlægileg
Michelin Presle
Fernand Gravey
Pierre Renoir
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
5 :
= =
MIUUIUMill*MMMMIIMIIIIIIiniinillllllll».llllllt«Mlllinil
UTAN Ú
1613 bókatitlar
Biblíufélag f Ameríku hefir gef-
ið út einskonar lexikon yfir bókar-
heiti, sem eru tilvitnanir f ritning
una. Skráin nær yfir skáldsögur,
sjónleiki og ljóðabækur, einkum frá
síðari timum. Alls eru þar taldir
1613 titlar. Þetta sýnir hve víð-
tæk áhrif biblíunnar eru í bók-
legri menningu og heimi rithöf-
unda og skálda.
★
Myndasafn Görings
Nýlega er lokið við að telja
myndir þær, sem Hermann Göring
átti af sjálfum sér. Þær reyndust
vera 18 þúsund að tölu og eru
þær nú komnar til New York og
geymdar þar í safni. Þetta eru 47
þykk bíndi.
Þarna eru myndir af Göring i
margskonar stellingum og ásig-
komulagi, á ýmsum aldri og ýmis-
lcga búnum, svo sem vænta mátti.
Þetta mun vera eitthvert mesta
myndasafn, sem vitað er um i
veraldarsögunni að nokkur maður
hafi átt af sjálfum sér,
★
TRIPDLI-BÍÚ
s
Leynilögreglu-
maðuriiiii Dick
s
Tracy
(Dick Tracy)
Ákaflega spennandi amerísk |
leynilögreglumynd.
Böpnuð börnum innan 16 ára. i
Sýnd kl. 9.
Frakkir fclagar f
(In fast company)
Skemmtileg amerísk gaman- I
mynd um fimm sniðuga stráka. |
Sýnd kl. 5 og 7.
Sími 1182.
viiiiMiiiiiiiiiiiiMiliiiiiiiiMiiiiifiiiiiiiiiiuiiiiimuiinuiii
R HEIMI
Ný auglýsingatækni.
Nýlega kynntu tvær norskar
frúr í Ameríku norskan hátíðamat
með því að láta sjónvarpa frá
sér um stöðina í Baltimore þegar
þær voru búnar að bera á borð
með fullri viðhöfn. Þegar á eftir
fóru þeim að berast pantanir, svo
að þessi auglýsingaaðferð virtist
gefast mjög vel.
★
Norænn þjóðsöngur.
Porstjóri sænska Samvinnu-
sambandsins, Albin Johansson
hefir lagt til að norræn sam-
vinnusambönd verji 30 þúsund kr.
til verðlauna fyrir sameiginlegan
þjóðsöng Norðurlandanna allra.
Fyrstu verðlaun hugsar hann sér
10 þúsund. Þennan nýja söng hugs
ar hann sér að mætti nota sam-
hliða þjóðsöngvum landanna.
TÍMINN á hvert íslenzkt
heimili.
mmiii 7'wam
-——------------------------------—~———?
49. dagur
Gunnar Wldegren:
Greiöist við mánaðamót
mín — við erum þó báðar skátastúlkur, og þú ert bróðir
minn, svo að ekkert er eðlilegra en að þú sért hér.
— Þú ert að minnsta kosti eins mikils virði og jafn- j
þyngd þín af gulli, Kæsa, hrópar hann upp yfir sig. ;
— Það er bezt, að ég kanni hugarfarið hjá henni,
segir hún, því að ég gæti bezt trúað, að henni standi
ekki alveg á sama um þig. Ég byrja á því að bjóða
henni með mér í kvikmyndahús. Ég geri það undir
eins í kvöld, ef hún vill þekkjast það.
— Ég kem eftir sýningu og sæki ykkur! hrópar Lars.
— Nei — þú kemur hvergi nærri, svarar Karen af-
undin. Þú færð ekki einu sinni að vita, í hvaða kvik-
myndahús við förum. Þau eru víst um það bil eitt
hundrað hérna í Stokkhólmi.
Karen er skjótráð, þegar hún gerir eitthvað. Hún
símar undir eins til Stellu, sem raunar er búin að marg-
ráðstafa kvöldinu. En hún slær öllu á frest, sem hún ,
nefir ætlað sér að gera. En þegar Karen stingur upp
á þvi, að hún komi heim með sér að sýningu lokinni,
si’arar hún því með annarri uppástungu.
— En hvers vegna ekki að fara heim í grenið mitt?
segir hún, Þú bauðst mér í bíó — ég býð þér heim
til mín.
Karen verður að fallast á þetta. Henni leikur líka
forvitni á því, hvernig umhorfs er heima hjá Stellu. En
er Langa-Berta kemur steðjandi, slengir Stella því
framan í hana, að í kvöld verði þau málarinn að sjá
um sig ein og sjálf.
— Einmitt það, svarar Langa-Berta, og það bregður
fyrir óheillavænlegum glampa í augum hennar. Þú hef- ,
ir eitthvað merkilegt fyrir stafni í kvöld.
— Ég get sem sagt ekki sinnt ykkur í kvöld, endur-
tekur Stella. ,
— Og þú ættir að vera fegin að sitja ein að málar-
anum, segir Ljúfa, því að einnig þær stallsystur, Ljúfa
og Dúfa, hafa komið másandi upp stigann. Málarinn
sér varla annað en Stellu, þegar þið eruð báðar um
hann. Annars er þessi málari orðinn hálf-þreytandi
fígúra.... ;
— Ja, það má nú segja, segir Dúfa.
— Það er bara þetta, að hann þykist alltaf þurfa
eitthvað annað að gera, þegar Stella er ekki með, segir
Langa-Berta luntalega. Annars situr hann yfir manni
lon og don. En þegar Stella er ekki með, er hann si-
fellt að líta á klukkuna og fjasa eitthvað um það, að
hann hafi átt að hitta þennan eða hinn klukkan þetta
eða hitt. Eða þá, að hann slengir því framan í mann,
að nú sé ekki hægt að gera meira, fyrr en Stella hafi
verið spurð ráða.
— Hann er nú einu sinni svona einþykkur, segir
Stella afsakandi.
— Það er þó varla af tómri einþykkni, þegar hann
er alltaf að líta á klukkuna og lætur eins og hann
þurfi að hitta þennan eða hinn hrossabrestinn. Það
er engu líkara en hann sé að fara á stefnumót með I
einhverjum, sem alltaf er önnum kafinn — kvöld eftir ■
kvöld, urrar Langa-Berta. Það er eitthvað dökkleitt við
' þetta allt.
— Það er helzt af því, að einhver er svartur af öf-
; und, segir Ljúfa. Þú gerir þig hlægilega með þessu,
; Berta.
| — Og það er ljótt af þér að agnúast við Stellu, segir ;
! Dúfa. En annars verð ég að segja, að Stellu ætti að
i nægja einn aðdáandi. Það er allt of mikill íburður að
■ hafa bæði málarann og Lars.
— Eins og talað út úr mínu hjarta, segir Ljúfa.
; — Nú gæti ég kysst þig, svarar Langa-Berta, því að
; þessi ummæli þykja henni liðveizla við sig.
| En hún fær annað svar en hún átti von- á.
! — Það ætturðu að biðja málarann um, svarar Ljúfa,
! og þá yrði þér lika kannske eitthvað rórra á eftir.
; En vesalings Langa-Berta grettir sig reiðilega og
; hleypur burt.
! — Þessar sakir verður eins gott fyrir ykkur Löngu-
! Bertu að gera ekki upp á almannafæri, segir Dúfa við
! Stellu.
i — Hún má eiga málárann með húð og hári, segir ■
i Stella andvarpandi. En fyrst verður hann að ljúka við
... • - c T > * 1 i r ' ** •;
X+Y.