Tíminn - 19.11.1949, Page 1
r r r r r r > n<-r rr j 1 '
i Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
«7<5» Helgason
Útgefandii
Framsóknarflokkurinn ''
Skrifstofur i Edduhúsinu
Fréttasímar:
81302 og 81303
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda
33. árg.
Reykjavík, laugardaginn 19. nóvember 1949
256. blaff
>essi mynd var tekin, er leikæfingar hófust í hióðieikhúsimi fyrir nokkru. Á her.ni sjást
leikarar ásamt leikstjóra, formanni þjóðleikhúsráðs og þjcðlelkhússtjóra.
Jón Kjartansson kosinn
bæjarstjóri í Sigiufirði
Sanikoinulag cftir laiig'varamli ön«'þvciti
í málum kaupstaðarins.
Á bæjarstjórnarfundi á Siglufirði í fyrrakvöld var Jón
Kjartansson koslnn bæjarstjóri, og stóðu Framsóknarmenn,
sósíalistar og Sjálfstæðismenn að því samkomulagi. F.iga
þessir flokkar 6 fulltrúa í bæjarstjórninni, en Alþýðufl. 3,
Eins og kunnugt er, er mik-
il óreiða á fjárhag Siglu-
fjarðarbæjar, og í sumar sam
einuðust sósíalistar og Sjálf-
stæðismenn um það að víkja
bæjarstjóranum, Alþýðu-
flokksmanninum Gunnari
Vagnssyni, frá störfum. Hafði
hann upphaflega verið ráö-
inn til bæjarstjórastarfsins af
öllum, nema sósíalistum, sem
eru þrir í bæjarstjórn Siglu-
fjaröar.
Framsóknarmenn hafa síð
ustu misserin haldið uppi
harðri gagnrýni á hina hörmu
legu fjármálastjórn kaupstað
arins, en hins vegar töldu
þeir það aðeins líklegt til þess
að auka á öngþveitið að víkja
bæjarstjóranum frá störfum,
er svo skammt var til bæjar-
stjórnarkosninga.
Eftir brottvikningu Gunn-
ars Vagnssonar hófust samn-
ingsumleitanir um stjórn bæj
arins milli Sjálfstæðismanna
og sósíalista og lyktaði þeim
með því, að Gunnar Jóhanns-
son lýsti yfir, að engu sam-
komulagi yrði við komið milli
þessara aðiia tveggia. Var þá
skipuð nefnd allra flokka, scm
átti að vinna að samkomu-
lagi um skipan bæjarstjóra.
Það fór svo, að hver flokk-
ur tilnefndi sitt bæjarstjóra-
efni. En svo fór, að Jón Kjart-
ansson, fulltrúi Framsóknar-
manna, reyndist hafa mest
fylgi. Hins vegar vildu Alþýðu
flokksmenn, sem héldu fram
Erlendi Þorsteinssyni, ekki
fallast á hann sem bæjar-
stjóraefni. Framsóknarmenn
tjáðu sig fúsa til þess að
styðia Erlend, en fulltrúar
sósíalista og Sjálfstæðis-
manna voru ófáanlegir til
þess að styðja hann.
Síðan fór kosning bæjar-
stjóra fram á bæjarstjórnar-
fundi í fyrrakvöld. Voru at- ;
kvæðl fyrst greidd um Er-
lend Þorsceinsson — hlaut
hann fjögur atkvæði, frá full-
trúum Alþýðuflokksins og
Framsóknarflokksins. Næst i
noru atkvæði greidd um Jón '
Hvernig hljóðaði j
viljayf irlýsingin ? |
Alþýðublaðið skýrir frá }
því í gær, að Félag ungra j
jafnaðarmanna í Reykja- |
vík liafi í fyrrakvöld hald- }
ið fund í baöstofu iðnað- } ,
armanna. Ilafi þar orðið I j
„fjörugar umræður", er \
stóðu frameftir kvöldinu. } j
Fundurinn hafi samþykkt ;
„viljayfirlýsingu til mið- I
stjórnarinnar um stjórn- \
málaviðhorfið og afstöðu }
ungra jafnaðarmanna til }
þess.“ |
Mætti spyrja blaðið, á I
hvern veg sú viljayfirlýs- }
ing hafi verið? =
<Framhald á 2. síðu).
I ÍHALDIÐ ER EKKI LENGUR í
GOTT Á LENSINU
Sjómenn kalla það að elta lambær, þegar skipi er \
{ illa síýrt og krókótt. ílialdið og Morgunblaðið elta lamb !
| ær á undanlialdi sínu í sjúkrahúsmálum Reykjavíkur. I
Einu sinni var það sagt um foringja íhaldsins, að þeir i
I væru góðir á lensinu. Nú væri það öfugmæ’i. Þegar |
} hgfja átfi sókn með sjúkrahúsmálin að bakhjarlj leið |
} ekki nema stuttur tími, áður en sóknin snerist í und- \
| anhald. Nú er undanhaldið orðið að fáránlegum tvístr- |
! ingi manna með óverjandi málstað. í
Brcfi því, sem Morgunblaðið vitnar i, svaraði Ey- |
} steinn Jónsson heiibrigðismálaráðherra því, að hann I
! og s'jórnin ull og fjárvcitingarncfnd væri því fylgjandi !
! að veita 599 þúsund krónur til heilbrigðisstofnana í }
} Reykjavík, cnda þótt bærinn væri ekkert farinn að |
} gcra og a!IL var.i óuudábúið. I*að eru því ósannindi, |
| að þessu bréfi hafi ekki verið svarað.
llelzia vörnin í sjúkrahúsmálunum á að vera nú að f
{ vitna til Sogsvirkjunarinnar, hvernig sem tengja skal þá }
} cnda saman. En þá má minna Morgunblaðið á, að {
| Hjalíi Jónsson ' , rð á sinni tíð að setja íhaldinu í bæj- i
} arstjórninni afarkosti til þess að hafizt yrði handa um !
} virkjun Sogsins.
Þannig er allur ferill íhaldsmeirihlutans í bæjarstjórn }
! Reykjavikur. Hann hefir aldrei sinnt neinum fram- f
: faramálum, nema hann hafi verið kúgaður til þess }
} af öðrum. Brigðul kosningaloforð og fjarstæðukenndar }
, f kosningateikningar — það er allur áhugi hans á fram- }
} faramálum bæjarins.
Eslandsklukkan þriðja leik-
rit Þjóðleikhússins
I.:ipks Pálsson ráðinn leiksljóri.
Lcikæiingar Itófust s.l. fiinmtudag.
Samkvæmt frétt frá þjóðleikhússtjóra verður íslands-
klukkan eftir samnefndri skáldsögu Halldórs Kiljans Lax-
ness þriöja leikrii þjóðleikhússlns á fyrsta leikári þess. Hin
tvö eru eins og kunnugt er Nýjársnóttin eftir Indriða Ein-
arsson og Fjaila-Evvindur Jóhanns Sigurjónssonar.
Æfingar á hinu nýja leik-
riti, íslandsklukkunni hófust
á fimmtudaginn og hefir Lár-
us Pálsson verið ráðinn leik-
stjóri. Höfundur íslandsklukk
unnar,, Halldór Kiljan Lax-
ness hefir sjálfur gert leik-
ritið eftir skáldsögunni.
9
Ilalldór Kiljan Laxness
Af þessu tilefni átti blaðið
í gær stutt tal við Halldór
Kiljan og spurði hann um
leikritið. Hann kvað raunar
lítið um það að segja á þessu
stigi málsins. Það hefði verið
fyrir tilmæli forstöðumanna
Þjóðleikhússins, að hann hóf
að gera leikrit eftir skáld-
sögunni. Hefði hann unnið
að þessu síðari hluta sumars
og í haust.
Leikritið er í þremur þátt-
um og_ nokkru fleiri sviðbreyt
ingum. Skáldsagan er þrjú
bindi eins og kunnugt er, og
er efni þeirra allra fellt i
leikritið eftir þvi sem kostur
var á, og engar verulegar
breytingar gerðar á efni nema
þær sem nauðsynlegastar
voru vegna sviðsetningar.
ísland í heimsmeist-
arakeppni í hand-
knattleik
Heimsmeistarakeppni í
handknattleik, verður háður
frá 14. til 21. febrúar 1950 i
Svíþjóð. — Fyrir nokkru tók
framkvæmdastjórn ÍSÍ á-
kvörðun um að ísland tæki
þátt i heimsmeistarakeppni í
Handknattleik, sem fram á að
fara í Sviþjóð í febr. n. k.
Var þessi ákvörðun tekin að
eindreginni ósk handknatt-
leiksmanna. Í.S.Í. hefir skip-
að fimm manna nefnd, sem
(á að aðstoða Í.S.Í. í öllum
, undirbúningi í sambandi við
1 þessa keppnisför. Nefndin er
skipuð þessum mönnum: Sig-
! urður Norðdahl frá Í.S.Í., Haf-
| steinn Guðmundsson, form.
, H.K.R.R., Sigurður Magnús-
son, framkvæmdastj. Í.B.R.,
j Gisli Sigurðsson, form. Í.B.H.,
(Framhald á 2. siðu).
Útför Sigurðar skólameist-
; ara var geysifjölmenn
AorSan.stiídeiitar s'eng'u í fylkiug'u á undan
Iíkfyl«'dinni til kirkju.
Útför Sigurðar Guðmundssonar skólameistara fór fram
í Reykjavik í gær og var hún geysifjölmenn. Dr. Steingrímur
J. Þorsteinsson flutti húskveðju í heimahúsum, en séra
Bjarni Jónsson vígslubiskup flutti ræðu í kirkju og jarðsöng.
Stúdentar eldri og yngri
frá Menntaskóla Akureyrar
söfnuðust saman við Hljóm-
skálann í Reykjavik og gengu
þaðan á undan líkvagninum
í .fylkingu að kirkjunni. Þar
staðnæmdust þeir í hálfhring
og þegar kistan hafði verið
■tekin út úr vaginum, sungu
þeir skólasöng sinn „Undir
skólans menntamerki." í
kirkjunni söng dómkirkjukór
inn og dr. Páll ísólfsson lék
á hljóðfærið. Viðstaddir jarð-
arförina voru meðal annars
forseti íslands og forsætis-
ráðherra.