Tíminn - 11.12.1949, Blaðsíða 1
——
Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
FréttaritstjórU
Jón Helgason
ÚtgefandU
Framsóknarflokkurinn
i --------■--------- '
< i
Skrifstofur l Edduhúsinu
Fréttasímar:
81302 og 81303
Afgreiðslusimi 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda
i ————————■—-———-—^
33- árg.
Reykjavík, sunnudaginn 11. desember 1949
266. blaff
Flokkaglíma
Ármanns
Flokkaglíma Ármanns var
háð í fyrrakvöld í íþróttahús-
lnu við Hálogaland. í þyngsta
flokki bar Sigurður Hallbjörns
son sigur úr býtum en Ár-
mann Lárusson varð annar.
Ármann Lárusson hlaut einn
ig hæfnisverðlaun. í öðrum
þyngdarflokki bar Steinn
Guðmundsson sigur úr být-
um. f þriðja flokki sigraði
Grétar Sigurðsson.
Steingrímur Arason
kennari heiðraður
Vinir og aðdáendur Stein-
gríms Arasonar fjölmenntu í
Tjarnarcafé á miðvikudags-
kvöldið var, til að votta hon-
um þakklæti sitt fyrir ágæt
störf i þágu íslenzkra skóla
og uppeldismála i tilefni 70
ára afmælis hans á þessu ári.
Það voru Samband ísl. barna
kennara og Barnavinafélagið
Sumargjöf, sem fyrir þessum
fagnaði stóðu.
Arngrímur Kristjánsson
skólastjóri stjórnaöi samsæt-
inu.
Ræður fluttu: Ingimar
Jóhannesson from. Sambands
ísl. barnakennara. ísak Jóns-
son, from. Barnavinafélags-
ins Sumargjöf. Stefán Júlíus-
son, yfirkennari í Hafnarfirði
talaði fyrir minni frú Hansínu
Arason.
Gunnar Thoroddesn borgar
stjóri þakkaði Steingrími
störf hans í þágu skóla og
uppeldismála höfuðborgarinn
ar.
Formaður sambands ísl.
barnakennara Ingimar Jó-
hannesson afhjúpaði við
þetta tækifæri málverk af
Steingrími, sem Gunnlaugur
Blöndal hafði gert af afmælis
barninu. Gat hann þess aÁ
málverkið skyldi verða eign
Kennaraskóla íslands að þeim
hjónum látnum.
ísak Jónsson form. Sumar-
gjafar hefði ákveðið að láta
gera brjóstiíkan úr eir af
Steingrími og setja upp á ein
hverjum leikvelli borgarinn-
ar.
Að lokinni kaffidrykkju og
ræðuhöldu var stigin dans til
kl. 1 eftir miðnætti.
Stefán Þorvarðsson
sendiherra í Hol-
landi
Stefán Þorvarðarson sendi-
herra i-London, sem skipaður
hefir verið til að vera jafn-
fram sendiherra íslands í Hol
landi, afhenti hinn 9. desem-
ber drottningu Hollands trún
aðar’oréf sitt.
Mynd þessi er úr „Bláu kápunni", sem Leikfélag Reykja-
víkur sýnir nú undir leikstjórn Haraldar Björnssonar við
mjög mikla aðsókn. Myndin sýnir Sigrúnu Magnúsdóttur í
hlutverki Anettu. Grein um leiksýninguna í heild er á inn-
síðum blaðsins í dag
Nýja jarðræktarlagafrum-
varpiö lagt fyrir alþingi
Var saniið af stjjórnskipaðri nefnd og breytt
töluvert af búnaðarþingi í veíur sem leið
Undanfarin ár hefir stjórnskipuð nefnd unnið að samn
ingu frumvarps til nýrra jarðræktarlaga. í nefnd þessari
áttu sæti Pálmi Einarsson landnámsstjóri, formaður, Árni
G. Eylands stjórnarráðsfulltrúi, Gunnlaugur heitinn Krist-
mundsson, fyrrum sandgræðslustjóri, Hafsteinn Pétursson
bóndi á Gunnsteinsstöðum og Ólafur Jónsson, tilraunastjóri
á Akureyri. Búnaðarþing fjallaði um frumvarp þetta s. 1.
| vetur og gerði á því allmiklar breytingar, og er það nú lagt
fyrir alþingi með breytingum frá hendi þess sem stjórnar-
frumvarp fyrrverandi stjórnar.
Auknar leiðbeiningar.
í í hinu nýja frumvarpi er
gert ráð fyrir mjög auknum
leiðbeiningum til handa þeim
sem jarðrækt stunda og
auknu eftirliti með jarðabót-
um og er héraðsráðunautum
fjölgað upp í tíu og laun
þeirra greidd hálf úr ríkis-
sjöði.
Fellt niður hámark
styrksins.
Þá er og gert ráð fyrir því
að fella úr gildi hámark jarð
ræktarstyrksins og eins eru
að verulegu leyti felldur nið-
ur sá gjaldstigi styrksins, sem
gilt hefir og styrkjakerfið
þannig gert einfaldara.
ur en innfiutningur verði
gerður svo að komast megi
fyrir notagildi þeirra áður en
þær eru fluttar inn í stórum
stíl.
Bráðabirgðaákvæði.
Að lokum gerir frumvarpið
ráð fyrir því, að til ársloka
1959 skuli gilda þau bráða-
birgðaákvæði, að býli þau
sem eigi hafa náð 10 ha. tún-
stærð skuli fá 300 kr. stvrk á
hvern ha. auk verðlagsupp-
bótar.
Lýsing Eyjafjarðar
95 menn meö 118 börn á
framfæri atvinnulausir
í Siglufirði
Er nýtt atvinmileysistímabil að lief jast?
í haust hefir verið ískyggilegt atvinnuleysi í Siglufirði,
og hefir það bitnað þunglega á mörgum, sem hvað sízt
Verkfæranefnd.
Þá er gert ráð fyrir, að verk
færanefndin starfi að mestu
á vegum Búnaðarfélags ís-
lands og innflytjendum slíkra
véla sé skylt að láta nefnd-
ina hafa slíkar vélar til
reynslu ef hún óskar þess áð
*
Islenzkt gestaheim-
ili starfrækt í
New York
máttu við tekjuskerðingu. II
fram á veginn er vetur er fyr:
Við atvinnuleysisskráningu,
sem nýlega fór fram í Siglu-
firði, létu 95 karlmenn skrá
sig atvinnulausa, og var nær
helmingur heimilisfeður, sem
höfðu alls fyrir 118 bornum að'
sjá.
Þetta mun vera hlutíalls-
lega lang tilfinnanlegasta at-
vinnuleysi, sem átt hefir sér
stað hér á landi síðan fyrir
stríð. enda má segja, að at-
vinnúleysi hafi ekki þekkzt
hér á landi síðasta áratuginn,
þar til nú nýlega, og þá að-
eins í smáum stíl og bundið
við fámenna hópa.
Mega þetta teljast alvarleg
tíðindi, að draugur avtinnu-
leysis, ein hin ömurlegasta
þjóðplága, skuli nú vera far-
inn að skjóta svo mjög upp
kollinum.
fa ýmsir kvíðnum augum
höndum.
Verzluf>arsamning-
ar miili Póllands
og Noregs
Umræður eru í þann veginn
að hefjast í Osló milli verzl-
unarfuitrúa Norðmanna og
Pólverja um viðskiptasamn-
inga þessara þjóða á næsta
ári. Munu þeir verða allvíð-
tækir og talið að viðræðurnar
Istendi lengi- B’yrst í stað er
| aðeins um byrjunarumræður
j að ræöa en síðan verður gert
| hlé á þeim áður en samningar
i verða undirritaðir..
íslenzk kona Ingibjörg H.
Halldórsson hefir um nokkurt
>keið rekið gestheimili fyrir
Islendinga í New York. Hafa
'jölmargir íslendingar sem
tomið hafa til New York til
iengri eða skemmri dvalar
leitað á þetta íslenzka heimili
í milljónaborginni og hlotið
þar ágæta fyrirgreiðslu hjá
íslenzkri húsmóður.
Hefir frúin tekið á leigu
stóra íbúðarhæð fimm her-
bergi og eldliús á góðum stað
á horni Broadway og 104. götu
Leigir hún gestunum her-
herbergi til lengri eða
skemmri tíma og hafa þeir
þá jafnframt aðgang að eld-
húsi o_g ísskáp. Vissara er fyr
i ir þá íslendinga sem ætla að
gista þetta íslenzka gesta-
heimili í New York að skrifa
j lngibjörgu áður en þeir fara
utan, utanáskriftin er Ingi-
ibjörg Halldórsson 104. screet
1240 west New York city U.S.A.
Fyrir nokkru síðan er kom-
ið út allstórt rit, Lýsing Eyja-
fjarðar, eftir Steindór Stein-
dórsson frá Hlöðum- Rit þetta
er gefið út að tilhlutan Ey-
firðingafélagsins í Reykjavík,
en útgefandi þess er Norðri.
í riti þessu er ítarleg byggða
lýsing og mun hún sú full-
komnasta, sem enn hefir ver-
ið gerð af nokkru héraði.
Margar góðar myndir flylgja
til rVýringar, flestar teknar
af Edvard Sigurgeirssyni.
Þá er aftast í ritinu Hér-
aðsflóra Eyjafjarðar eftir
Ingimar Óskarsson.
Síðar er von á framhalds-
riti, einnig eftir Steindór, og
mun þar lýst gróðurfræði
héraðsins, jarðfræði, dýra-
fræði, loftslagi, atvinnuhátt-
um, menningu og félagslífi
héraðsbúa.
Frágangur ritsins er allur
hinn vandaðasti, en það er
prentað í Prentverki Odds
Björnssonar h. f. á Akureyri.
Næsti fundur í málfunda I
| félagi F. U. F. í Reykúavik i
i | verður n. k. þriðjudags- j
11 kvöld kl. 8,30. Umræðuefni 1
{ verður þegnskylduvinna. j
| i Frummælandi Leifur Guð- |
= jónsson.
■ •«IIIIII1IIIIIIIUIIIIIIIIIIIUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIIUIIIIII