Tíminn - 30.12.1949, Blaðsíða 4
4
TÍMINN, föstudaginn 30. desember 1949
280. blaff
Er þetta ekki frásagnarvert?
IJtvarp og blöð segja iðu-
lega frá þingum víðsvegar um
heim, þar sem forustumenn
þjóða glíma við vandamálin.
Oft er samkomulagið mis-
jafnt, og oft er árangurinn
lítill.
En hér á lapdi hefir þess
varla verið getið, að undan-
farin ár hafa verið háð þing
í Svisslandi, sem eru senni-
legá öllum hinum þingunum
merkilegri. Þing , þessi hafa
staðið yfir vikum og jafnvel
mánnðum saman. Menn
dveTja þar ýmist nokkra
daga,' éða vikur, allt eftir á-
stæðum.
i s'umar komu þar 5000 full-
trúiár frá 64 þjóðum. Allstór
hópur kom hina löngu leið
flugieiðis frá Japan til Banda
ríkjanna og þaðan til Sviss-
lands. ,í þeim hópi var fyrr-
verándi sendiherra Japana í
Bandaríkj unum og fleiri for-
ustúmenn.
í Caux í Svisslandi koma
saman á þessum þingum
verkamenn, verklýðsleiðtog-
ar, Vitihuveitendur, iðjuhöld-
ar, ’ " og kaupsýslumenn,
kennarar, prófessorar, prest-
ar, Biskupar og prelátar, þing
menrt, ráðherrar og ýmsir
forustumenn stjórnmála og
þjóðmála heimsins. Þar ríkir
sá áridi, sem er öllum öflum
sterk^ri, andi, sem snúið get-
ur hatri í mannúð og bróður-
kæfléika, sundrung i sam-
vinnu og bölsýni í þróttmikið
vonalíf og bjartsýni. Einstöku
koirtmúnistar, sem komizt
hafá í snertingu við þessa
hreyfingu, hafa sagt, að þar
hafi þeir fyrst kynnst í raun
og'Sannleika því bræðralagi,
sem.þeir hafi trúað á og pré-
dikað áratugum saman.
Má til dæmis nefna Max
Bladek, sem nú berst fyrir
þessa andlegu hreyf-
ingu, eins og hann áður barð-
ist fyrir kommúnismanum,
og gengur rösklega fram í
slíku starfi í Ruhr. Hann seg-
ir: „Við höfum sungið al-
þjóðasön'ginn í 25 ár, en hér
hefi ég séð hann gerðan að
veruleik í fyrsta sinni. Hér
er stéttlaust mannfélag, þetta
sem við höfum alltaf barizt
fyrir, og sé hægt að grund-
valla mannfélagið á hinum
fjórum. hornsteinum siðgæðis
og réttlætis, þarf engin stétta
barátta að eiga sér stað.“
Á þessum sama stað hefir
sósíalista kvenleiðtoginn í
Frakklandi, Irene Laura, sem
verið hefir í fararbrodi millj-
óna..kvenna og senf varð á
stríðsárunum að horfa upp á
Þjóðverja kvelja son hennar
til ,dauða, rétt Þjóðverjum
hlýja bróðurhönd til sam-
starfs og samfélags.
Þes5i hreyfing, sem ekki er
neitt skipulagsbundið félag,
gengur undir nafninu „Moral
Re-Armament“ (hin siðferði-
lega hervæðing hugarfars-
ins). Upprunalega kenndi
hreyfingin sig við Oxford, en
til lengdar þótti það ekki við-
eigandi.
Höfundur hreyfingarinnar
er Frank N. D. Buchman, sem
orðinn er heimsfrægur mað-
ur, jafnvel nokkuð þekktur á
íslandi. Starfsemin er mikið
kynnt á Norðurlöndum, mörg
hundruð greinar hafa birzt
um hana í sænskum blöðum.
Þekktir menn eins og Ham-
bro fyrrv. forseti norska
Stórþingsins, hafa kynnt
hana, rithöfundurinn Roh-
Eftir Pótur
ald Fangen og íþróttamaður-
inn og rithöfundurinn Peter
Howard, hafa skrifað heilar
bækur um stefnu og starf
hreyfingarinnar. Hún vill
byggja mannfélag á fjórum
hornsteinum siðgæðisins:
ítrasta heiðarleik, skýlaus-
um hreinleik, falslausum
kœrleika og ströngustu óeig-
ingirni.
Hver maður verður að
hlusta eftir rödd Guðs í
brjósti sér. Hver maður á að
stjórnast af Guði og þannig á
allt mannfélag að stjórnast
af anda hans og anda mann-
kærleika og góðrar samvinnu.
Spurningin er ekki þessi:
Hver hefir á réttu að standa,
heldur: Hvað er rétt? í heim-
inum er nægilegt af gæðum
fyrir allra manna þörf, en
ekki fyrir allra manna
græðgi. Ef allir láta sér annt
um annarra þarfir og skipta
bróðurlega, þá hafa allir nóg.
Heimsbyltingin þarf að
hefjast í hjarta hvers ein-
staklings. Menn með hugar-
far Krists, á vegum heiðar-
ieika, hreinleika, kærleika og
óeigingirni, skapa guðsríki á
jörðu — bræðralag allra
manna.
Þessi hreyfing hefir unnið
hið mesta furðuverk í brezk-
um iðnaði, t. d. kolaiðnaðin-
um, hún hefir skapað trú hjá
Ameríkumönnum á viðreisn-
armöguleika Þýzkalands og
Evrópu yfirleitt. Hún hefir
sameinað til mikilla fram-
kvæmda og viðreisnar menn
í fararbroddi fyrir milljónum
manna. í Ruhr hefir hún
unnið verk, sem kallast mætti
kraftaverk, samkvæmt vitnis-
burði forustumanna þar.
Kenning þessara manna er
engin nýjung, hún er kristin-
dómurinn í sinni beztu mynd,
en starfsaðferðir þeirra eru
með nýtízkusniði að mörgu
leyti. Yfir slíku er enginn
drungablær. Þeir flytja fagn-
aðarerindi og eru fagnandi
menn. Þeir hafa sett á svið
tvö einkennileg leikrit. Ann-
að heitir: The forgotten
Factor og hitt, the Good
Road. — Góða leiðin og
gleymdi aðilinn. Þau hafa
verið sýnd vikum og mánuð-
um saman í Englandi, Þýzka-
landi, Ameríku og víðar. Eft-
irspurn hefir ekki verið hægt
að fullnægja. Alls staðar hafa
sjónleikir þessir vakið mikla
athygli og haft geysilega mik-
il áhrif til samvinnu og sátta
i deilum manna.
Þegar eldri sjónleikurinr.
var fyrst sýndur í Bandaríkj-
unum, sögðu forustumenn
þar, að með sjónleikunum
hefði verið meiru til vegar
komið á þremur dögum til
framdráttar Marshallhjálp-
inni, en blaðamenn hefðu á-
orkað á þremur mánuðum. Og
nú sögðu menn í Ameríku, að
væri slíkur andi að verki í
Nofðurálfunni þá væri sann-
arlega ekki vonlaust um
gagnsemi Marshallhjálpar-
innar. Sjónleikur þessi tók
svo hugi margra þingmanna
Bandaríkjanna, að þeir buðu
fulltrúum frá 29 löndum til
ráðstefnu í Californiu, gerðu
svo út 250 manna leikflokk,
af 10 þjóðum með mismun-
andi hörundslit, sendu hann
til Evrópu og þar hefir hann
farið einstaka sigurför. Norð-
maður, sem tók þátt í þessum
Sigurðsson
leiðangri, hefir ritað um hann
bækling, og er þar sögð hin
gleðilegasta saga.
Á vegum þessarar hreyf-
ingar koma út tvö blöð, ann-
an í Englandi og hitt í Ame-
ríku, og heita bæði sama
nafninu: The New World
News. í amerísku útgáfunni,
júní 1949, er bréf til ritstjór-
ans frá G. L. Eastman, fyrrv.
president Los Angeles, Cham-
ber of Commerce. Þar segir
svo:
„Kæri herra.
Síðastliðið ár hefir blað yð-
ar flutt margar frásagnir um
söngleik hinnar siðferðilegu
hervæðingar hugarfarsins.
The Good Road — Gæfu-
brautina. Frá því er þessi
sjónleikur var sýndur hér í
Californiu og Hollywood fyrir
einu ári, hefir hann verið
sýndur, samkvæmt beiðni, í
Svisslandi, Vestur-Þýzka-
landi, Hollandi og Englandi.
Alls staðar hefir þessi söng-
revía reynst eitt máttugasta
vopnið í baráttu 'okkar fyrir
lýðfrelsi og mannréttindum.
Alls staðar frá, bæði í Ame-
ríku og erlendis, hafa komið
fram kröfur um að fá sjón-
leikinn filmaðan, því að að-
eins á þann hátt gæti hann
náð til hinna mörgu milljóna
manna.
Lesendur blaðs yðar munu
fagna því, að nú er þegar
byrjað á þessu í Svisslandi.
Þetta verður kvikmynd, er
hefir að baki sér viljaþrek og
sannfæringu hlutaðeiganda.
Helmingur kostnaðarfjár er
þegar fengið. Það hefir alþýða
manna víðs vegar í Ameríku
lagt fram. Fullkomið kunn-
áttumannalið fór frá Holly-
wood til Svisslands til þess
að annast um filmun leiksins,
og það leggur til vinnu sína
kauplaust.“
í sama blaði, sem birtir
þetta bréf, er einnig ræða,
sem einn senator Bandaríkj-
anna flutti í öldungadeild
þjóðþingsins. Senator þessi
heitir Cain. Hann segir:
„Herra forseti!
Ég hefi tilboð og sérstakt
mál að flytja Senatinu.
Með viðburði síðustu daga
í huga, fund utanríkisráð-
herranna í París um framtíð-
armál Vestur-Þýzkalands,
sem birt hefir yfir við afnám
samgöngubannsins til Berlín-
ar, afturkomu Clays herfor-
ingja og framgang Atlantz-
hafssáttmálans, vil ég vekja
athygli Senatins á fyrirhug-
uðu þingi í Evrópu, sem ég
þykist vita, að muni mjög efla
frelsisbaráttu þjóðanna ....
Undanfarin ár hafa marg-
ir senatorar heimsótt þenna
yndislega stað, Caux (Kó) í
Svisslandi og komizt að raun
um, að við hann eru tengdar
sumar björtustu vonir Evrópu
eftir styrjöldina. Eins og ég
skrifaði Clay hershöfðingja,
kynntist ég þar hinu eina
skynsamlega mótvægi gegn
yfirgangi efnishyggjustefn-
unnar.
Áður en ég kom þar, var ég
í miklum vafa um, hvort þéir
milljarðar dollara, sem fórna
átti til viðreisnar Norðurálf-
unni, mundu koma að fullum
notum. En er ég hafði séð,
(Framhtild d 7. síðu)
Enn er það kveðskapur, sem
mér hefir borizt. Fyrst eru hér þá
vísur, sem „Glámskyggn“ sendir
um bryggjugerð í Katanesi í Hval-
firði og vegagerð að henni, en um
eitt skeið var margt sagt um
væntanlegar bílferjur yfir Hval-
fjörð, þó að hljótt hafi verið um
það mál um hríð, hvað sem veld-
ur, En svona eru vísurnar:
Forðum ákvað Akranes
auð með ferjum safna,
Hvalfjarðar við Katanes
krónur skyldu dafna.
Foruvilpu vegur dýr
varð og bryggja hlaðin.
Emils reyndist andinn hýr,
alþjóð tryggði staðinn.
Bryggjan óðum brotnar nú,
bleyta veginn hylur,
mjmd þar vart mun vegleg sú,
er við Sjálfstæðið skilur.
Vilji menn hér segja aðrar sög-
ur skulu þeir bara senda mér línu.
Það mun gleðja margan á þess-
um siðustu og verstu tímum að
fá sannar fregnir af glæsilegum
stórframkvæmdum.
Gamli Björn segist hafa kveð-
ið þetta, „þegar Ólafur Thors var
að hæla nýsköpunarskiptingu auðs
íns“.
Ólafs prúða er ábyrgð stinn
útgerðina ef heftir,
vel þótj geti vindhaninn
veðrum snúizt eftir.
Arðránsmenn og auðstétt lands
er hans trúa klíka
og Stefán Jóhann bræðrabands
blessar stjórn því líka.
Svo á Rerfur bóndi hérna stök-
ur, kveðnar þegar nýja ríkisstjórn-
in fæddist:
Nýja stjórnin segir sex
sumum finnst hún skritin.
Krónan lækkar, kreppan vex,
Kemst nú flest i skítinn.
íhaldsstjórn er illa ræmd,
- að ’henni margur hæddist.
Þessi var þvi dauðadæmd
daginn sem hún fæddist.
íhaldsstjóm er óheppin
oft á villigötu,
hennar glamrar glymskrattinn
gamla og slitna plötu.
Svo látum við staðar numið í »
dag.
Starkaður gamli.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför hjónanna
RANNVEIGAR BJARNADÓTTUR og
RUNÓLFS BJARNASONAR
Hólmi, Landbroti.
Aðstandendur.
Skrifstofur vorar veröa
lokaðar mánudaginn 2. janúar n. k.
Almennar Tryggingar h. f. Carl D. Tulinius & Co. h.f.
íslenzk endurtrygging. Liverpool London & Globe Ins.C.
Sjávátryggingarfélag íslands h. f. Trolle & Rothe h. f.
Vátryggingarskrifstofa Sigfúsar Sighvatssonar h. f.
I LISTSÝNING I
| Sýning á erlendum málverkum í íþróttahúsi Jóns Þor- |
| steinssonar við Lindargötu, (bak við Þjóðleikhúsið.) I
I Þessi einstæða sýning veitir yður tækifæri til að kynn- |
i ast vinnubrögðum og verkum sumra helztu málara í |
1 Evrópu um fjögra alda skeið.
i Lesið sýningarskrána um leið og þér skoðið sýninguna, I
I það borgar sig áreiðanlega. Og gefið yður tíma til að |
[ tefja, því að baki hverrar myndar leynist merkileg saga. |
OPIÐ 2 — 10.
IIMMtf miiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiimmiiiiimiiimiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmiiiiiimmmimmimm iimiiimmmmimm
GERIST ASKRIEE\líl'R AÐ
TÍMANUM. - ÁSKRIETASÍMI
2323.