Tíminn - 08.01.1950, Qupperneq 6
6
TÍMINN, sunnudaginn 8. janúar 1950
6. biað
TJARNARBID
STÓRMYNDIN
Sagan af A1 Jolson
(The Jolson Story)
! Amerísk verðlaunamynd byggð 'l
| á ævi hins heimsfræga amer- ;
íska söngvara A1 Jolson.
Aðalhlutverk:
Larry Parks
Evelyn Keyes
Sýnd kl. 9.
Var Tonelli sekur?
Afar spennandi og skemmti-
| leg þýzk sakamálamynd úr lífi J
[ Sirkusfólks.
Sýnd kl. 3, 5 og 7.
1 Bönnuð börnum innan 14 ára.
N Y J A B I □
Fjárliændnrnlr
í Fagradal
Falleg og skemmtileg amerísk *,
stórmynd í eðlilegum litum. —J
Leikurinn fer fram í einum >
hinna fögru, skozku f jalladala. í
Lon McCallister
Peggy Ann Garner
Edmund Gwenn
Sýnd kl. 7 og 9.
Hér koiuuni við
syngjandi saniau
Fjörug og fyndin sænsk j
grínmynd.
Sýnd kl. 3 og 5.
Sala hefst kl. 11 f h.
Hafnarf jarðarbíó
ÍRíðandi lögreglu-j
hetjan
! Skemmtileg og spennandi >
i amerísk mynd í eðlilegum lit-1
; um, um líf gullgrafara o. fl.
Sýnd kl. 7 og 9.
Ólym pí uleikarnir
í Berlín 1936
Sýnd kl. 5.
Lieynifarþegarnir j
Sprenghlægileg gamanmynd j
með Litla og Stóra.
Sýnd. kl. 3 — Sími 9249
Mýrarkots-
stelpan
Sýnd kl. 7 og 9.
Litla stúlkan í
Spennandi og mjög skemmti-!
leg, ný, amerísk kvikmynd um J
ævintýri og hættur, sem lítil j
; stúlka lendir í meðal villidýra j
í hinu hrikalega landslagi Al-
aska.
Sýnd kl. 3 og 5.
Sala hefst kl. 11 f. h.
VI0
5KÚIA60TÖS
<s>
Eldkrossinn
(The Burning Cross)
Afarspennandi amerísk kvik-!
! mynd um hinn illræmda leyni- ]
! félagsskap Ku-Klux-Klan.
Aðalhlutverk:
Hank Daniels
Virgina Patton
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Sýning kl. 5, 7 og 9.
SMAMYNDASAFN
Sýnd kl. 3.
’Tarsan í gimsteina
leit
(The New adventures of
Tarzan).
Mjög viðburðarík og spenn í
! andi ensk mynd, byggð á sam
> nefndri sögu eftir Edgar Rice j
! Burroughs. Tekin í ævintýra- ]
! löndum Mið-Ameríku.
Aðalhlutverk er leikið af í
! heimskunnum íþróttamanni <
frá Olympíuleikunum,
Herman Brix.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
STEINBLOMIÐ sýnd kl. 3.
GAMLA B I □
Kona biskiipsins
(The Bishop s Wife). — Bráð- ]
Aðalhlutverk:
Cary Grant
Loretta Young
David Niven
Sýnd kl. 9.
Þriimuf jallið
Spennandi og hressileg ný <
! cowboymynd með kappanum
TIM HOLT
Sýnd kl. 3, 5 og 7.
> Bönnuð börnum innan 12 ára. j
BÆJARBID
1 HAFNARFIROI
Morðingjar
meðal vor
Mjög áhrifarík, efnismikil og í
framúrskarandi vel leikin þýzk j
kvikmynd, tekin í Berlín eftir!
styrjöldina. — Danskur texti.
Sýnd kl. 7 og 9.
Ilættnspil
Ákaflega spennandi ný kú- \
rekamynd um baráttu við 1
Indíána.
Aðalhlutverk:
William Boyd
Sýnd kl. 3 og 5.
Sími 9184.
TRIPDLI-BID
Málvcrkastuldur-
inn
(CRACK UP).
Afar spennandi og dular-
; full amerísk sakamálamynd, í
í gerð eftir sakamálasöguni <
' „Madman’s Holiday" eftir j
(Fredric Brown.
Sýnd kl. 7 og 9.
Bönnuð yngri en 16 ára.
í hinu vilta vestri.
Bráðsmemmtil. og spreng- <
hlægileg amerísk skopmynd
með hinum heimsfrægu)
skopleikurum Gög og Gokke.
Sýnd kl. 5.
Sala hefst kl. 11 f. h.
Sími 1182.
Erlent yfirlit
(Framhald af 5. síSu).
É það, að tryggja yrði Japan mögu
leika til sjálfsvarnar.
Það mun sennilega ekki verða
fyrr en að afstöðnum herforingja-
fundinum í Tokio og eftir heim-
komu Jessups, er Bandaríkjastjórn
ákveður endanlega afstöðu sína til
þessara mála. Þá verður og senni-
lega margt komið á daginn, sem
nú er óljóst. M. a. er nú talið, að
kínverska kommúnistastjórnin eigi
í samningum við rússneBku
stjórnina um Mansjúríu, en Rúss-
ar vilja halda ýmsum hlunnindum
þar. Niðurstaða þeirra samninga
getur gefið verulega vísbendingu
um framtíðina og ef til vill sýnt, að
sambúð Rússa og kínverskra kom-
múnista er ekki jafn ágreinings-
laus og ætla má af yfiriýsingum
þessara aðila.
Köld borð og heit- •
ur matur
sendum út um allan bæ.
SlLD & FISKUR.
Þýðingarmesta vígl
braskaranna.
(Framhald af 5. slSul.
nauðsyn þess að hinni lélegu
íhaldsstjórn á bænum sé
hrundið úr stóli og braskar-
arnir sviptir því vígi, sem
þeim hefir reynzt traustast
og þýðingarmest á liðnum ár-
um. X+Y.
Forðizt eldinn og
eiguatjón
Framleiðum og seljum
flestar tegundir handslökkvi
tækja. Önnumst endurhleðslu
á slökkvitækjum. Leitið upp-
lýsinga.
Reykjavík
Kolsýruhleðslan s.f. Sími 3381
Tryggvagötu 10
ÚtbmtiÍ Timanh
Fasteignasölu-
miðstööin
Lækjargötu 10 B. Sími 6530
Annast sölu fasteigna,
skipa, bifreiða o. fl. Enn-
fremur alls konar trygging-
ar, svo sem brunatryggingar,
innbús-, líftryggingar o. fl. 1
umboði Jón Finnbogasonax
hjá Sjóvátryggingarfélagi ís-
lands h. f. Viðtalstími alla
virka daga kl. 10—5, aðra
tíma eftir samkomulagi.
ELDURINN
gerir ekki boð á undan sér!
Þeir, sem eru hyggnir
tryggja strax hjá
Samvin.nLLtryggLngu.in
tfuglýAil í Jímanum
7. dagur
WILLY CORSARY:
Gestur í heimahúsum
þau bæði. Það var undarlegt, hverju smámunir fengu til
leiðar komið. Upphátt sagði hún:
— Við skulum skreppa niður á tennisvöllinn.
Þær settust á bekk við tennisvöllinn. Gamli de Lorme,
íaðir Annettu, var þar fyrir. Sér til undrunar sá ína, að
Annetta vann alltaf. Það var þó ekki af því, að Kristján
gerði það af ásettu ráði að láta hana vinna. Honum mis-
tókst hvað eftir annað. Hvers vegjna skyldi hann hafa rokið
niður í þorp? hugsaði ína. Skyldi hann hafa átt bréf í póst-
húsinu? Og hvers vegna var hann svona klaufskur núna?
Skyldi bréfið hafa haft óþægilegar fréttir að færa? Eða
var það af því, að hann hafði ekkert bréf fengið?
3,
Við morgunverðarborðið kvað Kristján upp úr um það,
að hann ætlaöi samdægurs til Amsterdam með feðginunum,
Annattu og föður hennar.
— Þá getum við orðið samferða, sagði hann, um leið og
hann leit einkennilega til Annettu.
— En sá heiður, svaraði hún hlæjandi.
ína spurði ekki, hvers vegna hann hefði breytt svo skyndi-
lega fyrirætlunum sínum. Hún virti hann aðeins fyrir
sér. Hún var viss um, að það bjó staðfastur ásetningur bak
við uppgeröarkæti hans. Hann var fölur á kinn og í aug-
um hans glampi, sem hún hafði ekki veitt athygli fyrr.
Einu sinni hafði þessi drengur verið svolítill angi, sem trúði
henni fyrir öllu, og þá í staðinn hjálp hennar og liðsinni.
Nú botnaði hún hvorki upp né niður i honum. Stjáni
litli var týndur og tröllum gefinn. Hún vissi ekki, hvenær
né hvernig þessi breyting hafði átt sér stað ,— ekki hvort
hún haiði komið smátt og smátt eða gerzt allt í einu. Henni
fannst sem gagnkvæmur skilningur og eþilægni hefði
ííkt þeirra á milli allt fram undir þetta — þau hefðu skilið
hvort annað i einu augnatilliti, daufu brosi, jafnvel þögn-
inni. En nú var eins og heilt úthaf væri á milli þeirra, og
þau orð, sem þau létu falla, voru dauð og innantóm og
einskis virði, eins og flest það, sem hún hafði við aðra að
segja, og aðrir höfðu við hana að segja. Margt annað var
líka breytt í fari hans. Oft hafði hún skemmt sér við að
sjá, hvernig hann reyndi að líkja eftir föður sínum í hátt-
um og göngulagi, tali og tillögum, og stundum hafðj hann
hann talað um Nemófa-smiðjurnar, eins og hann væri þeg-
ar orðinn meðeigandi föður síns. Nú var aftur á móti engu
líkara en hann leitaðist við að vera eins ólíkur föður sínum
og unnt var. Fyrst hafði hún eignað þetta áhrifum frá
skólafélögunum. Meðal nánustu kunningja hans voru list-
hneigðir unglingar, sem sátu öllum stundum í listamanna-
kránum. Hann var sí og æ að tala um þessa náunga og lýsti
þeim eins og innblásnum listamönnum og rithöfundum.
Allard gazt illa að þessu, en ína reyndi að sefa hann með
því, að þetta væru ekki annað en bernskubrek, sem fljót-
lega eltust af honum. Hann væri gáfaður og næmur, og
myndi fljótt festa hugann við starf, þótt hann leitaði
þessa félagsskapar um stundarsakir.
Hún hafði sjálf trúað því, að þetta væri rétt ályktaö.
Margir drengir voru erfiðir viðfangs á þessum aldri. En þeg-
ar hún horfði nú á fölt andlit og samanbitnar varir Krist-
jáns, gat hún ekki annað en spurt sjálfa sig, hvort hér
væri ekki um alvarleg og djúptæk straumhvörf að ræða.
Innan skamms átti hann að fara aftur til Delft, og þá myndu
þau ekki sjást, nema endrum og sinnum. Hana iðraði
þess sárlega, að hún skyldi ekki hafa notað þessar sum-
arvikur til þess að komast eftir því, hvernig varið væri þeim
breytingum, sem orðnar voru á drengnum. Gestirnir höfðu
rænt hana flestum stundum. En þar að auki hafi hann
sýnilega reynt að forðast trúnaðar-samtöl þeirra á milli.
Hún sá, að hann fór inn í herbergi sitt, skömmu áður en
þau Annetta og dé Lorme ætluðu að leggja af stað. Hún bar
fram afsökun við gestina og fór á eftir honum.
Hann var að láta farangur sinn í koffort, er hún kom til
hans. Það var ekki tími til málalenginga, og henni þóttu
þær líka óþarfar, Hún sagöi umbúðalaust: Ef eitthvað amar
að þér, Kristján, þá segðu mér það. Þú veizt, að mér geturðu
treyst.
— Það er ekkert að mér, svaraði hann stuttaralega. Og
svo hélt hann áfram að brjóta saman skyrtur sínar.
— Hvers vegna ferðu svona snögglega til Amsterdam? Við
lorum þó búin aö tala um að verða samferða til Utrecht
á morgun.