Tíminn - 03.02.1950, Side 1
r————^ ^ ± y
RitstjórU \
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
' Útgejandi:
Framsóknarflokkurinn
----------------------------
Skrifstofur f Edduhúsinu
Fréttasímar:
81302 og 81303
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasimi 81300
Prentsmiðjan Edda
34. árg.
Reykjavík, föstudaginn 3- febrúar 1950
28. blaú
Fjárskipti samþykkt a svæö-
inu frá Hvaifiröi að Snæ-
feiisnesi
Ekki oinliinlei>a ákvoðið, hvort fjárskipt-
in fara fram í haust oða haustið 1951
í síffasta mánuði fór fram atkvæffagreiffsla um frum-
varp til fjárskipta í Mýra- og Borgarfjaröarsýslu og nokkr-
um hreppum Dala- og Snæfellsnessýslu. Var frumvarpiff
samþvkkt af tilskildum meirihluta fjáreigenda og verða
þar því að öllum líkindum fjárskipti næsta haust eða
haustiff 1951.
Svæði það, sem atkvæða- j
greiðslan náði til var frá
Laxárdalsc Snæfeltsness-
og Arnarvatnsheiðargirðing-
um að Hvalfjarðærgirðingu.
Innan þeirra takmarka er
Borgarfjarðar- og Mýra-
sýslur allar, þrír hreppar í
Snæfellsnesssýslu, Kolbein-
staðarhreppur, Eyjahreppur
og Skógarstrandarhreppur,
og þrír hreppar í Dalasýslu,
Hörðudalshreppur, Miðdala-
hreppur og Haukadalshrepp
ur.
Atkvæði úr kosningu þess
ari voru talin í skrifstofu
Mýra- og Borgarfjarðar-
sýslna 1. febrúar og urðu úr-
slitin þessi: Á kjörskrá voru
695 fjáreigendur og atkvæði
greiddu 512. Já sögðu 467, hei
36 og 6 seðlar voru auðir.
Þar með er frumvarp þetta
til fjárskipta á þessu svæði
samþykkt af tilskildum
meirihluta fjáreigenda sam-
kvæmt lögum um fjárskipti.
Ekki er endanlega ákveðið
hvort fjárskipti þarna muni
fara fram á næsta hausti
eða haustið 1951.
Embættispróf við
háskólann
Fimm manns hafa nýlega
lokið embættisprófi í við-
skiptafræðum við Háskóla ís
land og einn í læknisfræði.
Þeir sem luku prófi í við-
skiptaf ræðum eru: Árni
Fannberg með I. einkunn,
296 stig Guölagur Þorvald-
son I. einkunn, 328 stig, Guð
mundur Jóhannsson II. eink
unn betri, 241 stig, Gunnar
I-Ivannberg II. einkun betri,
221% stig og Pétur Pálma-
son II. einkun betri 242 stig.
í læknisfræði lauk Ragnar
Karlssson embættisprófi með
I. einkunn, 169 stigum.
fflynd þessi sýnir sænska skipið „Divina“ sem sigldi á brezkan kafbát í mynni Themsár
fyrir nokkru með þeim afleiðingum að nær 60 manns fórust. Divina er 650 lestir að stærð.
Ármann J. Lárus-
son vann skjald-
arglímuna
Skjaldarglíma Ármanns fór
fram í íþróttahúsinu að Há-
lpgalandi í fyrrakvöld. Bar
Ármann J. Lárusson frá Ung
mennafélagi Reykjavíkur sig
ur úr býtum, hlaut. átta vinn
inga. Hann er aðeins seytján
ára gamall, sonur Lárusar
Salómonssonar lögregluþjóns,
en hefir áður sýnt, hvílíkt af-
bragðs glímumannsefni hann
er, svo ungur sem hann er
enn að árum.
Annar varð Sigurjén Guð-
jónsson frá ungmennafélag-
inu Vöku. Hann hlaut sex
vinninga og einn aukavinn-
ing-
Þriðji varð Rúnar Guð-
mundsson frá Ungmennafé-
laginu Vcku. Hann hlaut sex
vinninga og fegurðarverð-
laun fyrir glímu sína.
Ber það af, hve ungmenna-
félagarnir stóðu sig í þessari
skjaldarglímu.
Námsstyrkir sam-
einuðu þjóðanna
Meðal merkustu mála,
sem afgreidd voru á síðasta
alssherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna, voru ályktanir
þingsins um veitingu náms-
styrkja á sviði atvinnulífs.
hagnýtingu náttúruauðæfa
og reksturs ríkis- og bæjar-
neytinu hafa nú borizt upp-
lýsingar um tilhögun þessara
mála.
Árið 1950 munu verða veitt
ir um 200 námsstyrkir til
náms í ýmsum löndum og er
krafizt að umsækjendur hafi
7—10 ára reynslu i þeirri
greiiv, sem um er að ræða.
Styrkir verða veittir til náms
í um 80 greinum og eru
, helztu flokkarnir þessir:
1. Hagskýrslur.
2. Iðnrekstur.
! 3. Samgöngumál (þ. á m.
fiugmál).
4. Fjarskipti.
5. Landbúnaður og hagnýt
ing vatnsorku.
6. Fiskveiðar og hagnýting
sjávarafurða.
7. Stjórn ríkis- og bæjar-
skrifstofa.
Námstími er áætlaður 3—
6 mánuðuir. Umsóknir ís-
lendinga ber að stila til ut-
! anríkisráðuneytisins, og
veitir það nánari upplýsing-
| ar. Umsóknarfrestur er til
'20. febrúar n. k.
Samkomulag um
kjarnorkumál
brýnna en nokkru
sinni fyrr
Truman Bandaríkjafor-
seti hefir lýst því yfir, að
hann telji eftirlit með fram
leiðslu kjarnorkuvopna af al
þjóðlegri hálfu nú brýnna
en nokkru sinni f yrr
Segir hann að Bandaríkin
muni halda áfram undirbún
ingi að framleiðslu vatnsefn
issprengjunnar unz slíkt eft
irlit sé komið og fullkomið
samkomulag hafi náðst um
það svo að tryggt sé. Hann
segir að Bandaríkin hafi
þegar gert allt sem í þeirra
valdi standi til þess að kom
ast að samkomulagi við
Rússa um þessi mál, en all-
ar tilraunir hafi orðið árang
j uislausar. Nú verði aðrar
þjóðir að leggja sig allar
• fram til þess að ná því
1 marki.
i Eikibiskup’nn af Kantara-
borg ræddi þessi mál í stól-
j ræðu í gær og kvað nú svo
j komið, að mennirnir réðu
lyfir svo áhrifamiklum eyði-
legg'ngarvopnum, að þau
j gætu orðið tortíming alls
1 heims'ns ef óvitar eða
skammsýnir menn færu með.
Því bæri nauðsyn til að allir
friðelskandi menn og fram-
sýnir beittu öllum áhrifum
sinum í lokatiiraun til þess
að koma á varanlegu alþjóða
samkomulagi er tryggði
skynsamlegri ipeðferð þess-
ara mála og hagnýting kjarn
orku í þágu friðsamlegra
framfara. Á þessa óheillaför
þjóðanna yrði að binda
! endi.
iiiiiiiiiiiiihihhii
j „Kettir eru spendýr, mýs eru spen-
| dýr og þess vegna eru kettir mýs”
Hökviilur MorgHublaðsins leiðréttar.
*
Morgunblaðið reyndi nýlega að hrekja þá stað-
reynd, að samvinnureksturinn sé hagkvæmasta rekst-
urrsformið við lýði í landinu. Beitir það fyrir sig þeirri
rökvillu, að úr því að Kaupfélag Hafnfirðinga hafi ver-
ið rekið með tapi á s.l. ári þá hljóti samvinnurekstur-
inn að vera óhagkvæmt rekstursform. Minnir þessi
röksemdafærsla óþægilega mikið á kattarrökvilluna
frægu: „Kettir eru spendýr, mýs eru spendýr; þess
vegna eru kettir mýs“.
Stjórnendur K. H. munu vafalaust svara árásum
Mbls- á félagið, svo ekki virðist ástæða til að taka það
mál upp hér. En hitt er svo freistandi að benda Mbls.-
mönnunum á, að úr því þeir telja að hallarekstur eins
félags nægi til að fordæma rekstursformiff sjálft, þá
væri þeim hollt að líta í Greinargerð framkvæmda-
stjórnar landsbankans. Þar sézt m. a., að það er ekki
eitt eða tvö einka- og ríkisfélög (-útgerðar- iffnaðar-
og verzlunarféleg-), sem rekin hafa verið með tapi að
undanförnu heldur skipta þau tugum og jafnvel hundr
uðum.
í greinargerðinni segir m. a.:
★ „Af 104 útgerffar- og fiskiffjufyrirtækjum,
sein hafa látið Landsbankanum í té r?ikninga
fyrir það ár, (1948), voru 80 rekin með halla.
sem nam alls 24,7 millj. kr. . • .
„Betri étkoma hefir verið hjá verzlunar- og
iðnfyrirtækjum, sem Landsbankinn heíir fen?-
iff reikninga frá, en þó hvergi nærri viðunandi.
Árið 1948 voru 29 af 65 fyrirtækjum rekin með
trkjuhalla, að upphæð 2,3 millj. kr. og árið 1948
62 af 150 fvrirtækjum með tekjuhalla að upp-
hæð 3,5 millj. kr.
Það væri fróðlegt að sjá, hverjar ályktanir
Mbls.-menn myndu draga af þessum tölum, ef
þeir skoðuðu þær í ljósi kattarröksemda sinna.
H. J
•IIIHMHMIIWIHHIIIHIHIU