Tíminn - 19.02.1950, Blaðsíða 2
TÍMINN, sunnudaginn 19. febrúar 1950
42. blað
Barnaguðþjónusta kl. 10 séra Garð
ar Svavarsson.
Elliheimilið Grund:
Kl. 10, séra Ragnar Benedikts-
son prédikar.
Frikirkjan:
Kl. 2, séra Þorsteinn Björnsson.
Fríkirkjan í Ilafnarfirði:
Kl. 2, séra Kristinn Stefánsson.
Hallgrímskirkja:
Kl. 11, séra Jakob Jónsson. —
Rseðuefni: Skírnin. — Barnaguð-
þjónusta kl. 1,30 séra Jakob Jóns-
son. Kl. 5 messa (altarisganga),
séra Sigurjón Árnason.
Útskálaprestakall:
Messað í Keflavík kl. 11 f. h.
(ath. breyttan messutíma) og Út-
skálum kl. 2 e. h. Séra Eiríkur
Brynjólfsson.
Úr ýmsum áttum
Gjafir til S.Í.B.S.
í nóvember 1949. — Alm. bygg-
ingafélagið kr. 4,845,18. Frú Fanny
Benónýs 100. Frá Stöðvarfirði af
hent af umboðsmanni SÍBS 500.
An 15. NN 20. Gunnar Sigurðsson
15. NN 50 D. O. 100. G. S. 50. Norð
ur-Þingeyjarsýsla 1000. Suður-
Þingeyjarsýsla 2000. Frá konu til
minningar urn 9. nóvember 100.
N. N. 125. Jónas Þorbergsson 25.
Frá starfsmönnum bifreiðastöðvar
Hafnarfjarðar til minningar um
Ottó R. Einarsson bifr.stj. 1000.
Samtais kr. 9.945,16. — Með kæru
þakklæti. S. í. B. S.
Árnað heiila
Sextugur er í dag Gunnar Þórð-
arson, bóndi í Grænumýrartungu
í Hrútafirði. Grein um hann mun
birtast í blaðinu á þriðjudaginn.
Wtbreiíil 7ímam
Iþróttalögin
(Framhald af 1. síðu)
Hannesson rektor form., Stein
þór heitinn Sigurðsson mag-
istir, ritari, Aðalsteinn *heit-
:'nn Sigmundsson námsstjóri,
Jón Þorsteinsson íþróttakenn
ari, Jón Kaldal ljósmyndari,
Erlendur Ó. Pétursson for-
stjóri, ErlingUr Pálsson yfir-
lögregluþjónn, Óskar Þórðar-
son læknir og Guðmundur Kr.
Guðmundsson fulltrúi.
Aðsetur íþróttanefndar
ríkisins hefir verið í fræðslu-
málaskrífstofunni. Þorsteinn
Enarsson hefir verið íþrótta-
fulltrúj frá 8. jan. 1941.
Jfö
ornittn i/egi *
Kirkjugarðsgiöld og landgræðsla
2 nótt:
Næturlæknir ey í læknavarð-
jtofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Laugavegs
ipóteki, sími 1616.
Næturakstur annast BSR, sími
1720.
Utvarpið
Útvarpið í dag:
Fastir liðir eins og venjulega.
83. 11,00 Messa í Dómkirkjunnt
■ séra Bjarni Jónsson vígslubiskup).
15,15 Útvarp til íslendinga erlendis
Ftéttir. — Erindi (Helgi Hjörvar).
15,45 Útvarp frá siðdegistónleikum
i Sjálfstæðishúsinu (Carl Billich,
Þorvaldur Steingrímsson og Jó-
aannes Eggertsson leika). 13,30
Barnatími (Þorstein Ö. Stephen-
sen). 19,30 Tónleikar (plötur). 19,45
áauglýsingar. 20,20 Samleikur á
.rompet og píanó (Paul Pampichl-
5r og Fritz Weisshappel). 20,35
Erindi: Sjónleikir og trúarbrögð:
-miðaldakirkjan (séra Jakob
Jónsson). 21,00 Tónleikar (plötur).
21.30 Erindi: Skilningstré góðs og
tlls; fyrri hluti (Símon Jóh. Ágústs 1
son prófessor). 22,05 Danslög (plöt
or). 23,30 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 20,20 Útvarpshljómsveitin. 20,45
Om daginn og veginn (Þorvaldur
Garðar Ka-jstjánSson, löfræðing-
jr). 21,05 Einsöngur (Vilhjálmur
_3. V. Sigurjónsson). 21,20 Erindi:
Leyndardómur lífsins (Grétar
Feils rithöfundur). 21,45 Tónleikar
plótur). 21,50 Lög og réttur (Ól-
iíur Jóhannesson prófessor). 22,00
óétt lög (plötur). 22,45 Dagskrárlok
Hvar eru skipin?
Bkipadeild S.Í.S-
.vrnarfell er á Akureyri. Hvassa-
eii fór frá Hamborg á fimmtudag
ileiois til Siglufjarðar.
Kfkisskip.
ffekla var á Akureyri í gærdag,
ii paðan fer hún vestur um land
íl Reykjavíkur. Esja er í Reykjavík
g fer þaðan næstkomandi mið-
dkudag vestu rum land til Ak-
jreyrar. Herðubreið er í Reykja-
;ík og fer þaðan næstkomandi
priðjudag austur um land til Siglu
jatðar. Skjaldbreið verður vænt-
nieg á Akureyri síðdegis í dag.
pyrill er í Reykjavík. Skaftfell-
ingur á að fara frá Vestmanna-
tyjum á morgun til Reykjavíkur.
Einarsson, Zoéga * Co.
Foldin er í Reykjavík. Linge-
uroom er í Amsterdam.
Eimskip.
Biúarfoss er í Gdansk, fcr þaðan
:il Abo í Finnlandi. Dettifoss fór
Irá ísafirði í fyrramorgun til
flólmavíkur. Fjallfoss fór frá Men-
stad í Noregi 14. febr. til Djúpa-
vogs. Goðafoss fór frá Reykjavík
a. febr. væntanlegur til New York
í gær. Lagarfos er i Rotterdam.
Selfoss er á Akureyri. Tröllafoss
rór frá Reykjavík 14. febr. til New
Vork. Vatnafökull fór frá Ham-
borg 14. febr. til Danzig og Reykja-
v’íkur.
Messur i dag:
Dómkirkjan:
Kl. 11 síra Bjarni Jónsson. Kl.
5 síra Jón Auðuns.
Laugarneskirkja:
Kl. 2 sér Garðar Svavarsson.
Reykvíkingur kom að máli við
mig í gær og bar fram uppástungu
um fjáröflun til landgræðslu.
Hann benti á, að undanfarin ár
hefðu Reykvíkingar greitt kirkju-
garðsgjald, sem næmi ákveðnum,
allháum hundraðshluta af útsvör
um. Þessu fé virtist hafa verið var-
ið til ákveðinna framkvæmda í
sambandi við kirkjugarðinn í Foss
vogi, en eftir sem áður væri þó
svo að segja hver moldarlúka í
kirkjugarðinum og öll þjónusta i
sambandi við útfarir seld fullu
verði. Væri því ekki ástæða til
þess að ætla annað en að þær
stofnanir, sem komið hefir verið
upp fyrir kirkjugarðsgjaldið, geti
borið sig, þegar engu þarf að verja
til afborgana eða vaxtagreiðslu
vcgna stofnkostnaðar.
Nú er það engin smáræðisupp-
hæð, sem Reykvikingar greiða í
kirkjugarðsgjald á ári hverju. Það
nemur nefnilega einni milljóa kr.
eða rösklega það.
Þegar nú nauðsynlegustu mann-
virkjum hefir verið komið upp,
vill þessi maður, sem ég gat um
í upphafi, að kirkjugarðsgjaldinu,
eða ríflegum hiuta þess, verði varið
til skógræktar og landgræðslu í
nágrenni Reykjavíkur. Með þeim
hætti fkapaðíst verulegt starfsfé.
án þess að nýjar álögur kæmu til.
svo ao hægt væri að sinna þessum
málum á þann veg, að verulegs
árangurs væri að vænta. Og þá væri
göiugur þúttur menningar- og
endurreisnarbaráttu fólksins með
vissum hætti vígður hinum látnu
og tengdur mínningu um þá og
þeirra líf og starf og þeirra hinzta
hvílurúmi.
En þetta mætti ná víðar. Það
mætti með svipuðu fyrirkomulagi
gera löggjöf um kirkjugarðsgjöld,
þar scm ákveðið væri, að viss
hlutl þeirra rynni til landgræðslu,
og yrði það auðvltað að vera
nokkur upphæð. Kæmi það auðvit-
að af sjálfu sér, ef kirkjugarðs-
gjöldin almennt yrðu ákveðin eitt
hvað svipað og hér í Reykjavík.
Síðan rynni sá hluti gjaldsins,
sem ætlaður væri til ræktúnar-
starfa, til skógræktar og land-
græðslu í því héraði, þar sem hann
væri greiddur. Hvert hérað eignað
ist þannig landgræðslustöðvar,
sem ættu að níga trygga framtíð
og verða vaxtarbroddur nýs við-
horfs og frumgróði nýs landnáms.
Skógrækt rílcisins og sandgræðsl-
an myndu samræma þetta starf
og skipuleggja sóknina frá hin-
um dreifðu bækistöðvum í sókn-
inni gegn eyðingu landsins.
J. H.
!
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
sýnir í dag kl. 3 og kl. 8
9*
áa kápan“
Aðgöngumlðar seldir kl. 1. — Simi 3191. —
S.K.T
Nýju og gömlu dansamlr í G. T.
húsinu sunnudagskvöld kl. 9 -
Húsinu lokað kl. 10.30.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 6.30.
Þari—Áburður
40 kr. tonnið. 200 krónur bílhlassið. — Hvergi
ódýrara. — Pantið strax. Sími 4246. —
^Lipta^undi
ur
jl í dánar- og félagsbú Þorbjarnar Guðmundssonar, sem
jj andaðist 2. maí 1931, og konu hans Guðríðar Jóns-
I: dóttur, sem andaðist 6. september 1948, siðast til heim-
4* ^
H ilis á Framnesveg 18 hér í bænum, verður haldinn í
p skrifstofu borgarfógeta í Tjarnargötu 4, þriðjudag-
•j inn 21. þ. m., kl. 2 síðdegis og verða þá teknar ákvarð-
8 anir um meðferð eigna búsins.
»♦
Skiptaráðandinn í Reykjavík, 17. febr. 1950.
KR. KEISTJÁNSSON. :j
♦*44*«**«<
:nm:t««:«i«!!«::»:«::«:«:««:««t««««m««m»
ugfiysing
I? Nokkrar síúlkur geta komizí að á saumanámskeiö í vor.
Húsmæðraskólinn á Hállormsstað
:::::ö««m:«:«mm«::m«:«:::::«:««:«a
Trésmiðafálag Reykjavíkur
Árshátíð félagsins verður hald'n í Breiðfirðingabúð
laugardaginn 4. marz kl. 8,30. — Aðgöngumiðar seldir
í skrifstofunni. — Félagar fjölmennið.
Skemmtinefnáin
Oráttarbraut til Seigu
Hin nýbyggða dráttarbraut Siglufjarðar er til leigu
frá 1. maí n. k.
Allar nánari upplýsingar um mannvirkið er hægt að
fá hjá bæjarstjóranum í Siglufirði og skrifstofu vlta-
málastjóra í Reykjavík. Leigutilboðum sé skilað til
þessara aðila fyrir 1. apríl n. k.
Bæjarstjórinn í Siglufirði, 28, jan. 1950
Jón Kjartansson.
KERIST ASKRIFEKHLR A»
TÍMANLM. - ÁSKRIFTASÍMI
..■<m
2323*