Tíminn - 28.02.1950, Síða 7
49. blað
TÍMINN, þriðjudaginn 28. febrúar 1950
7
Saiuvinnufræðsla
Morgunblaðsins
(FramhaJd aj 4. slðu).
og enn ósvífnari en sem þessu
nemur: Hinir tveir stjórnar- '
menn KEA eru báðir gamlir
og grónir samvinnumenn,
sem bændur vissulega ekki
síður en aðrir hafa um ára-
tugi kosið sem sína fuiltrúa
og myndu alveg vafalaust
gera, þótt þeir væru einir í
Kaupfélagi Eyfirðinga.
Þannig er þá það haldreip-
ið, sem Mbl. trúði, að sér væri
hættuminnst að hanga í.
Hvað mun þá um hin öll, sem
síður var treyst? — Og þó er
ekki öll sagan sögð enn.
Viðvíkjandi þeim framburði
Mbl. gagnvart samvinnufé-
lögunum yfsrleitt, sem áður
er í vitnað, má athuga þessa
staðreynd: í stjórnum sam-
bandsfélaganna eru nú sam-
tals 265 menn. Úr þessum
hópi eru ekki færri heldur
en 166 starfandi bændur, eða
talsvert yfir % — en allir
aðrir eru 99, eða mun m«nna
en %. En þessar tölur, sem
óumdeilanlega feykja mál-
flutningi Mbl. veg allrar ver-
aldar, nægja þó ekki til þess
að sýna fulla fjarlægð þess
frá sannleikanum. Það er
fyrst og fremst vegna þess
— eins og fram kom i dæm-
inu um KEA — að af þessum
99 óréttlátu, að dómi Mbl.,
eru rnargir beinlínis kosnir af
bændum og þannig fulitrúar
bænda. í öðru lagi ber að
minnast þess, sem áður er
upplýst um skiptingu kaup-
félagsmanna í sveitáfólk og
annað.
Hafa þeir nú engan sært?
Mér viröist, að gjörsam-
legra málefnalagt gjaldþrot
en Mbls. í þessu máli geti ekki
átt sér stað né heldur öllu
óbermilegra vitni um vöndun
að virðingu. Einkum ætti
þetta að vera leiðinlegt fyrir
blaðið og gefa því ástæðu til
afsökunarbeiðni, þar sem
ekki er um óáreitnari „and-
stæðing" að ræða í flokks-
legu tilliti heldur en sam-
vinnusamtök landsmanna, ó-
pólitískra og úr öllum stjórn-
málaflokkum. En sVo rösult
og dettið er Mbl. i þessum
málum, að það, sem blaðið
hyggst aumkva bændur fyr-
ir sem volaða og llla með-
farna aumingja, er einmitt
óvéfengjanlegasti votturinn
um það veröskuldaða traust,
sem þeir öðrum fremur njóta
innan samvinnusaintákanna,
en þar einnig utan eig-
in stéttar í ríkum mæli. eins
og þegar hafa verið færð full
rök að. í stað þess að hafa
hægt um sig og fara yarlega
á þessu hála svelli, duga
brj óstheilindi Mbls. til þess
að fárast yfir bænda-ánauð
og verzlunareinokun og meira
að segja koma með það, sem
aldrei hefir nú heyrzt fyrr,
að fólksstraumurinn úr sveit
unum eigi rætur sínar að
rekja til þess hörmungará-
stands sem hin bændástýrðu
kaupfélög búi sveitaíólkinu!
— Það ætla ég svo, að þeir
265 kaupfélagsstjórnarmerín
og 106 endurskoðendur — auk
kaupfélagástj óranna sj álfra,
sem margir eru bændur líka
og flestir bændasynir — taki
þá sneið, sem Morgunblaðið
hér réttir að þeim um sam-
vizkusemi, heiðarleika og
drengskap í trúnaðarstörf-
um, með tilhlýðilegu þakk-
læti.
Ein lítil fyrirspurn.
E. t. v. mætti svo spyrja
þessa, sem Mbl. af einhverj-
um ástæðum láist að geta:
Til hagsbóta hverjum eru
kaupfélögin rekin af þeim 27.
274 íslendingum, sem I þeim
eru og allir njóta nákvæm-
lega eins og sama réttar til
áhrifa á gang mála? Fyrir
hverja er kúgað og einokað,
og hverjir framkvæma verkn
aðinn? Við höfum heyrt msð
Morgunblaðsrckum, hverjir
eru kúgaðir.
Boðnir velkomnir.
Að lokum vil ég geta þess,
sem mér þykir ákaflega lík-
legt, að camvinnumenn lands
ins muni ekkert amast við
hinum nýju kaupmönnum,
sem Morgunblaðið gefur til
kynna, að það muni á næst-
unni senda út meðal fólksins,
heldur jafnvel bjóða þá vel
komna á vettvang, þótt ó-
kunnugt sé um sáran söknuð
vegna vöntunar slíkra manna.
A. m. k. gætir áreiðanlega
engrar aíbrýðissemi né ótta
við þá frómu „frelsara“, sem
fyrir valinu verða. (25.2.’50)
B. Þ. Kr.
Fasteignasölu-
miðstööin
Lækjargötu 10 B. Sími 6530
Annast sölu fasteigna,
skipa, bifreiða o. fl. Enn-
fremur alls konar trygging-
ar, svo sem brunatryggingar,
innbús-, líftryggingar o. fl. 1
umboði Jón Finnbogasonar
hjá Sjóvátryggingarfélagi ís-
lands h. f. Viðtalstími alla
virka daga kl. 10—5, aðra
tíma eftir samkomulagi.
■ B
Skætingi svarað
(Framhald a1 3. slöuj,
4. Voru ekki hlutfallskosn-
ingarnar 14 ára hjá Þjóð-,
verjum þegar nazistar náðu
völdum þar í landi? • |
5. Kafa beinar hlutfalls-
kosningar verið teknar upp
í öðrum Evrópulöndum og
þá hverjum og með hvaða
afleiöingum .fyrir þingræöið
og lýðræðið í þeim löndum? ,
Ég á enn bágt með áð trúa j
því, að þingfulltrúar F.F.S.Í. j
hafi gert ályktun sína í þessu,
stórmáli án þess að athuga í
íullri alvöru hvað þeir voru
að gera. Áhrif kosningafyrir-
komulags og kjördæmaskip-
j unar á þróun lýðræðis og
þingræðis er ekkert grin og
^miður heppilegt efni í órím-
aðar öfugmælavísur. Það er
engin afsökun fyrir sam-
þykkt F.F.S.Í. að hún sé „til
orðin í þeim augljósa tilgangi
að bæta úr ranglátu kosn-
ingafyrirkomulagi hér á
landi.“
Tökum dæmi:
Hafnsögumaður var að
leggja m. s. Heklu að bryggju
í Reykjavík núna um dag-
inn, en skipið rann á upp-
fyllinguna á lítilli ferð og
stefni þess fékk slæma dæld.
Gerum ráð fyrir að hafnsögu
maður hefði lagt skipinu
frá bryggju aftur, haldið
nokkuð út á höfnina og
rennt skipinu síðan með
fullri ferð á bryggjuna. Að-
spurður á eftir hefði hafn-
sögumaður sagt, að hann
hefði rennt skipinu á bryggj-
una í síðara sinnið „í þeim
augljósa tilgangi“ að jafna
dældina, sem í stefnið kom
hið fyrra sinnið. Hvílik af-
sökun! ,
Það skiptir einnig næsta
litlu máli hvort þér, herra
skipstjóri, telijð stjórn F.F.
S.f. skylt að annast „upp-
lýsingastarfsemi“ um eitt
eða annað. Ef þér teljið sam-
tökin hafa rétt til að segja
þjóðinni fyrir verkum um
setningu stjórnarskrár, verð-
ið þér að viðurkenna að slík-
um réttindum hlj óti að fylgj a
skyldur nokkrar. Og ef þér,
eða þingfulltrúar F.F.S.Í., vit
ið þess dæmi úr nokkru landi,
að beinar hlutfallskosningar
til löggjafarþings hafi eflt
lýðræði og þingræði og stutt
á þann hátt ,.sigur hins góða
Köld borð og’ heít-
ur matui'
sendum út um allan bæ
SlLD & FISKFR.
Uppreisnin á
Malakkaskaga
Miklar óeirðir hafa að und-
anförnu verið á Malakka-
skaga og hafa uppreisnar-
menn haft sig mjög í frammi.
Hefir 350 þúsund manna lið
sjálfboðaliða og hermanna
stöðvað framsókn Uppreisn-
armanna. Fer nú fram ýtar-
leg rannsókn á smáþorpum,
í frumskógunum til að leita'
að vopnabirgðum uppreisnar
manna. Miklar í^iðstafanir
hafa verið gerðar til að
stöðva algerlega fiutninga til
þeirra af matvælum, vopn-
um og sjúkralyfjum. Hafa
verið settar upp hindranir
á vegum og hraöbátar gæta
strandanna. Segir fréttin, að
uppreisnarmenn séu nú mjög
aðþrengdir.
AÐVORUN
frá bæjarsLmastjóranum. í Reykjavík
Að gefnu tilefni skal á það bent, aö símanotendum
er óheimilt að iána, leigja, eða selja öðrum afnot af
síma, er þeir hafa á leigu frá Landssímanum. Brot gegn
ákvæðum þessum varða m. a. missi símans fyrirvara-
laust (sbr. 6. lið skilmála fyrir talsímanotendur lands-
simans, bls. 20 í símaskránni 1947—1948).
Með tilliti til hins alvarlega símaskorts í Reykjavík
verður ekki hjá þvi komist, að taka þá síma, sem svo
kann að vera ástatt um og verður það framkvæmt
mánudaginn 6. marz án frekari tilkynningar.
B
•8
1
♦*>
r;
B
ar
K
TILKYNNING 1
♦«*
Verzlun vor á Laugaveg 2 verður lokuð næstu daga Hi
vegna breytinga. 8
♦«•
Viðskiptavinir eru vinsamlega beðnir að snúa sér í
útibú vor. að Laugavegi 32 eða Bræðraborgarstíg 16. H:
Símar 2112 og 2125.' H
Matvöruverzlun I
Tómasar Jónssonar
»
♦♦
3
Verkfall í stál-
iðnaði Frakka
Verkföllin aukast í Frakk-
landi og hafa nú 35 þús. stál
iðnaðarmenn í Marseille Lyon
og fleiri borgum bæzt við 120
þúsund, sem áður höfðu gert
verkfall. Atkvæðagreiðsla með
al starfsmanna við samgöngu
tæki um hvort þeir skuli gera
verkfall, mun fara fram. Bú-
ist er við að meirihluti þeirra
krefjist kauphækkunar.
Stöðug verkföll eru meðal
hafnarverkamanna í Frakk-
landi. Neita þeir að hlaða
vopnum í skip til Indó-Kína.
Hefir verkamönnum verið
boðin' 5% kauphækkun. Enn
hefir boðinu verið hafnað.
ngimg
vantar til blaðburðar í niiðbæinn.
T ÍMIN N
Sími 2323.
30% og 40%
OSTAR
frá Húsavík, Akureyri og Sauðárkrók
alltaf fyrirliggjandi í heildsölu hjá:
Sarabandi ísl. samvinnufélaga
«•
♦
Sími: 2678.
♦
f
$
f
6
►«>
í heiminum," þá er yður alveg
óhætt að segja hvar og hve-
nær það hafi verið. Slíkt
„ættu þeir ekki að hræðast,
sem vita sig hafa góðan mál-
stað, en hinum þarf ekki að
vorkenna.“
Verði sú raunin, að þér,
herra formaður, svarið ekki
spurningum mínum eða að-
eins með undanbrögðum, hlýt
ég að líta svo á, að við séum
þrátt fyrir allt sammála um
að óska ekki eftir eyðilegg-
ingu lýðræðis og þingræðis
á íslandi með beinum hlut-
fallskosningum til Alþingis
og hörmum báðir, að þing F.
F.S.Í. skuli hafa hent það
leiðinlega slys að samþykkja
seinni hluta ályktunar sinnar
um kjördæmamálið.
Gunnlaugur Pétursson. i j
Stúdentafélagsfundur
verður haldinn í kvölú kl. 8,30 í Listamannaskálanum.
Umræðuefni: Tillögur ríkisstj órnarinnar í fjárhags-
og atvinnumálum.
Frummælendur: Ólafur Öjörnsson, prófessor, Gylfi Þ.
Gíslason. prófessor, Jónas Haralz, hagfræðingur, og
Klemenz Tryggvason, hagfræðingur.
Að framsöguræðum loknum verða frjálsar umræður
eftir þvi sem timi vinnst til.
Öllum stúdentum, sem framvísa féiagsskírteinum,
er heimill aðgangur að fundinum. Þeir stúdentar, sem
enn hafa ekki vitjað félagsskírteina, geta fengið þau
í Listamannaskálanum í dag kl. 5—7 og við inngang-
inn. Afgreiðsla hvers skírteinis tekur nokkra stund, og
ættu þeir, sem vilja komast hjá bið, því að vitja skír-
teina sinna sem fyrst.
Stúdentafélag Reykjavíkur. ,,
J...