Tíminn - 04.04.1950, Blaðsíða 8
„ERIÆJVT YFIRLIT“ í ÐAG:
Bœlcur oy höfundar.
34. árg.
Reykjavík
„A FÖRMIM VEGI“ t DAG:
Biðrafiir tí ný.
4. apríl 1950 76. blað
„Fólksflóttinn úr sveitinni, sem ég
bý í, hefir stöðvast
og' éjí tel það mcst að þakka þeirri aukmi
|
bjargræðisírú, seni menn hafa fengið við
tilkomu nýja f járstofnsins“, sagði Jóhann-
es E. I.CV V. oddviti í Þverárhreppi.
Jóhannes E. Levý, oddviti í Hrísakoti í Þverárhreppi í
Vestur-Húnavatnssýslu hefir verið hér í bænum undanfarna
daga í erindum sveitar sinnar, og hitti tíðindamaður Tím-
ans hann að máii í gær. — Veturinn hefir verið afburða-
góður, sagði Jóhannes. Bændur hafa komizt af með mjög
iítii hey, en hins vegar gefið talsverðan fóðurbæti.
Ný bjargræðistrú með
nýja fjárstofninum.
— Þið skiptuð um fjárstofn
fyrir tveim árum. Hefir nýi
stofninn ekki reynzt ykkur
vel?
— Jú, ekki er hægt annað
að segja, og sums staðar er
hann þegar kominn hér um
bil upp i þá fjártölu, sem áð-
ur var, og alls staðar er fjölg
unin á góðum vegi. Það er
líka óhætt að fullyrða, að
þessi nýi og hrausti stofn hef
ir gefið mönnum nýja og
aukna bjargræðistrú, og það
er áreiðanlega mest honum
að þakka, að fólki er hætt að
fækka í sveitinni. Það er kom
in stöðvun, þar sem áður var
flótti, og ef til vill má vona,
að aftur fari að fjölga. Það
er varla hægt að gera sér í
hugarlund, hve mikið von-
leysi hinn sjúki fjárstofn
skapaði né hve lamandi á-
hrif mæðiveikinnar voru á
bjargræðistrú manna.
Eilefu jarðir fóru í eyði.
— Hafa margar jarðir far-
ið í eyði í sveit þinni síðustu
áratugina?
— Já, ekki er hægt annað
að segja. Síðustu tvo áratug-
ina munu ellefu jarðir í
hreppnum hafa farið í eyði
og sumar þeirra góðar jarðir.1
En nú er fóikinu hætt að
fækka, og vonandi byggjast
sumar eða flestar þessar jarð
ir aftur. í vor mun hin fyrsta
þeirra byggjast á ný, og er
það fagnaðarefni.
um, þótt nú sé það ekki leng-
ur, og gerðar hafi verið girð-
ingar milli afrétta. Við þess-
ar girðingar er auðvtað reynt
að hafa öflugar varnir, en
vafamál má telja, hvort hægt
er að tryggja slíkar varnir að
fullu, og mikið er í húfi. Ég
tel því, að fjárskiptum í þeim
landshlutum, sem enn búa
við mæðiveiki, verði að hraða
mjög, bæði vegna afkomu
þeirra héraða sjálfra og sýk-
ingarhættunnar, sem nýir
stofnar í öðrum héruðum eru
í. Hér er of mikið í húfi til
þess að nokkru megi hætta.
Bætt ákvæði áburðar-
laganna.
— Annars vil ég geta þess
í sambandi við endurbygg-
ingu jarða, sagði Jóhannes,
að ég tel nauðsyn bera til að
breyta ábúðarlögunum á
þá lund, að eigendur
jarða geti ekki haldið
þeim ónytjuðum að miklu
eða öllu leyti árum saman,
þótt unga bændur vanti jarð
næði. Tel ég nauðsynlegt að
gefa hreppsnefndum rýmri
hendur til að ráðstafa slíku
jarðnæði, ef það er ónotað.
Það er óverjandi, að eigend-
ur, sem ekki búa á jcrðunum,
nytji kannske aðeins veiði-
rétt þeirra, en þær leggist í
órækt og niðurníðslu að öðru
leyti. Þannig má ekki halda
jörðunum, ef til eru bændur,
sem vilja búa á þeim.
Vegur umhverfis Vatnsnes.
urreisa, og verður það fjöl-
sótt af ferðamönnum. Þarna
er talið ágætt brúarstæði á
ánni.
Vantar síma á tíu bæi.
— Vantar víða síma í
hreppnum?
— Hann vantar enn á 10
bæi, og er það nú eitt mesta
áhugamál okkar að fá hann,
svo að sími verði á hverjum
bæ. Var ég að reyna að þoka
því máli áleiðis, en í mörg
horn virðist að líta í því efni
og því erfitt um vik. Þó vil
ég treysta því fastlega, að
það dragist ekki lengi úr
þessu. Símin ner ómissandi.
— Hefir mikið verið rækt-
að?
— Já, allmikið. Þó hefir
verið sá hængur á, að beltis-
dráttarvél sú, sem við áttum
að njóta, hefir staðið aðgerða
laus síðan snemma í fyrra-
sumar, vegna þess, að í hana
vantar lítið varastykki. Er
slíkt óþolandi, og til lítils að
kaupa dýrar vélar, ef ekki er
hægt að halda þeim gang-
andi. Ein skurðgrafa hefir
starfað á þessu svæði, en það
er of lítið og stendur á fram-
ræslu. Lítið er byggt, en marg
ir hafa hug á að byggja bæði
íbúðarhús og peningshús og
hafa sótt um fjárfestingar-
leyfi, en enginn veit, hvort
þau fást.
Kaupfélagið athafnasamt.
— Hefir kaupfélagið staðið
í miklum framkvæmdum að
undanförnu?
— Já, allmiklum. Það hef-
ir lokið byggingu hraðfrysti-
húss og verið er nú að byggja
íbúðarhús fyrir kaupfélags-
stjóra. Nú verður ekki leng-
ur hjá því komizt að byggja
verzlunarhús, þvi að starf-
semi félagsins er vaxin upp
úr húsastakknum fyrir löngu.
Hinn nýi kaupfélagsstjóri,
Karl Hjálmarsson, sem kom
að félaginu fyrir tveim ár-
um, er mjög ötull maður og
vel látinn, og hefir verzlun
héraðsmanna við kaupfélag-
iff vaxið mjög hin síðari ár.
iii vopn s
baráttunni við kommúnista
Marshall ræddi vift íréttamenn í gær á
tve^g'ja ára aímæli MarshaliSijálparinnar.
Marshall, fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkjanna ræddi
í gær við fréttamenn í tilefni þess, að þann dag voru tvö
ár liðin síðan Truman forseti undirritaði lög þau, sem stað-
festu efnahagshjáip til Evrópulanda, en Marshall var upp-
haísmaður og aðalhvatamaður þeirrar áætlunar.
Marshall lagði áherzlu á
það í viðtalinu, að nú mætti
ekki hætta við hálfnað verk,
og Bandaríkjamenn mættu
ekki minnka hjálpina frá því,
sem verið hefði, og ekki held-
ur miða hana eingöngu við
matargjafir til Evrópu. Mest
riði á að veita endurreisn at-
vinnulífsins í hinum ýmsu
löndum sterka hjálp.
Marshall sagði ennfremur,
að þessi áætlun væri sterk-
asta vopn hinna lýðfrjálsu
þjóða gegn útbreiðslu komm-
únismans, og í þeirri baráttu
mætti ekki láta deigan síga,
því að hún væri hatrömm og
áköf, þótt hún væri ekki háð
með vopnum.
Fjórum bónaðar-
námskeiðum lokið
Undanfarnar vikur hafa
ráðunautar Búnaðarfélags ís-
land haldið fjögur búnaðar-
námskeið á Austurlandi, og
er þeim nú lokið. Á námskeiö-
um þessum mættu þeir ráðu-
nautarnir Páll Zóphóníasson,
Ragnar Ásgeirsson, Björn
Bjarnarson og Bragi Stein-
grímsson, dýralæknir.
MáIfundah<V|>eir
F.U.F.
Málfundahópur F.U.F. held
ur fund í Edduhúsinu á
þriðjudagskvöl kl. 8,30.
Rætt verður um, hvort ís-
land hafi möguleika sem
ferðamannaland. Frummæl-
andi verður Björn Guðmunds
Þingið verðnr að
taka ákvörðun
Deveze formaður frjálslynda
flokksins í Belgíu fór til Sviss
um síðustu helgi og ræddi við
Leopold Belgíukonung um þá
tillögu, sem Deveze hefir bor-
ið fram, aö konungi verði
leyft að hverfa heim til þess
að afsala sér vödum. Konung
ur ítrekaði þá yfirlýsingu sína
að hann mundi ekki fallast
á neina breytingu á því sem
áður hefði verið ákveðið í
þessum málum, og yrði belg-
íska þingið nú að skera úr
um heimkomu hans eins og
því bæri skylda til og mundi
hann hlíta úrskurði þess.
Fræðslufundur FUF.
á miðvikudaginn
Félag ungra Framsóknar-
manna í Reykjavik hefir í vet
ur gengizt fyrir fræðslufund-
um um ýms málefni, sem
efst eru á baugi.Næsti fræðslu
fundur verður næstk. mið-
vikudagskvöld í Edduhúsinu
kl.8,30 um stjórnarskrármálið
Þórarinn Þórarinsson rit-
stjóri flytur framsöguerindi.
Þar sem vænta má mikillar
aðsóknar, eru menn hvattir
til að mæta stundvíslega, til
að fá sæti. Á eftir framsögu-
erindinu verða frjálsar um-
ræður. Öllu Framsóknarfólki
er heimill aðgangur meðan
húsrúm leyfir. —
Nauðsyn að halda fjár-
skiptum áfram.
— En er nýi fjárstofninn
ekki í sýkingarhættu frá öðr-
um landshlutum, sem ekki
hefir verið skipt í?
— Jú, fé Húnvetninga og
Borgfirðinga hefir löngum
gengið saman suður á heið-
Bólusótt í
Skotlandi
Bólusótt kom fyrir nokkru
upp í Skotlandi og hafa alls
21 maður tekið hana. Ein
kona hefir látizt úr veikinni,
sem þó er talin væg. Um 60
þúsund. manns hafa látið
bólusetja sig gegn veikinni í
Skotlandi, og nú er komið til
Englands bóluefni til að bólu-
setja um 50 þúsund manns í
viðbót.
— Hvernig eruð þið staddir
í vegamálum?
— Sæmilega að því er telja
má. Þó vantar nú herzlumun
inn á, að vegur komist um-
hverfis Vatnsnes, en vonandi
verður það á næsta sumri.
Með honum næði saman
hringur vegakerfis um vest-
anverða sýsluna á því svæði,
sem sækir verzlun til Hvamms
tanga, og yrðu allir flutning-
ar þá miklu hagfelldari. Ef
mjólkurbú verður reist á
Hvammstanga, sem þegar hef
ir verið hreyft, yrði hægt að
ná til alls svæðisins um flutn
inga að og frá verzlunarstaðn
um í einni hringferð. Það
mundi og verða all-fjölfarin
ferðamannaleið, því að það
er fallegt og sérkennilegt á
Vatnsnesinu.
Annars vantar okkur nú
að fá bættan svokallaðan Ás-
bæjaveg, sem nú er sýsluveg-
ur. Þyrfti þá brú á Víðidalsá
gegnt Stóru-Borg. Þessi veg-
ur liggur fram hjá Borgar-
virki, sem nú er verið að end
Skólasundmótið hefst í
sundhöliinni í kvöld
Um 15 sveltir frá 9 skóluiu keppa.
í kvöld hefst í Sundhöllinni hið árlega sundmót skólanna,
sem stofnað er til af íþróttanefnd, bindindisfélaga í skólum
og sundkennurum framhaldsskólanna í Reykjavík.
Alls verða keppéndúr frá 9
skólum. Eru þeir þessir:
Héraðsskólinn að Laugar-
vatni, Menntaskólinn í Rvík,
Kvennaskólinn í Rvík, Gagn
fræðaskóli Austurbæjar, Gagn
fræðaskóli Vesturbæjar,
Gagnfræðaskólinn við Lind-
argctu, Kennaraskólinn,
Verzlunarskólinn og Iðnskól-
inn.
Frá sumum skólunum
keppa tvær sveitir. í boð-
sundi kvenna 10x33y3 m.
bringusund verður keppt um
bikar, sem framkvæmda-
stjórn Í.S.Í. gaf. Handhafi
bikarsins er nú héraðsskól-
inn að Laugarvatni.
í boðsundi karla 20x33 V3
m. bringusund verður keppt
um fálka úr keramik, sem
eigendur Njju blikksmiðj-
unnar gáfu. Handhafi fálk-
ans er nú Iðnskólinn í Rvík.
í boðsundi karla á sömu
vegalengd — frjáls aðferð —
verður keppt um bikar, sem
Helgi H. Eiríksson slcólastjóri
gaf. Handhafi bikarsins er
Iðnskólinn í Reykjavík.
U.M.F.R. vinnur
flokkaglímuna
Landflokkaglíman var háð
að Hálogalandi s. 1. sunnu-
dag. Sigurvegari i 1. flokki
varð Ármann J. Lárusson frá
U.M.F.R., sem er skjaldar-
hafi. Hlaut Ármann 4 vinn-
inga og lagði alla keppinauta
sina.
í 2. flokki sigraði Gunn-
laugur Ingason úr Ármanni
í 3. flokki var Sigurður Hall-
björnsson sigur úr býtum. í
drengjaflokki sigraði Þórður
Jónsson frá U.M.F.R..
Fegurðarverðlaun fengu
þessir: í 1. flokki Ármann J.
Lárusson, í 2. flokki Steinn
Guðmundsson, í 3. flokki Pét-
ur Sigurðsson og í drengja-
flokki fengu 3 fegurðarverð-
laun þeir Gauti Arnþórsson,
Eysteinn Þorvaldsson og Þórð
ur Jónsson. Keppendur voru
46 að tölu.