Tíminn - 14.04.1950, Page 4

Tíminn - 14.04.1950, Page 4
4 TÍMINN, föstudaginn 14. apríl 1950 81. blaS Harðindi og uppbætur Tíminn 11. marz síðastlið- inn flytur eftir Jens þennan grein, sem hann teluir sig rita vegna greinar eftir mig, sem birtist í ísafold 14. febr. í vet- ur, um málshreyfingu þá á Alþingi að veita bændum I styrk vegna harðindanna síð- | asta vor. Ég mælti eindregið j á móti slíkri styrkveitingu, en Jens er ákveðinn með henni.! Þegar svo ólík sjónarmið eru I fyrir hendi, tel ég rétt að um j þau sé fjallað. Jafnvel þótt mér virðist Jens þessi að sumu leyti, í rithætti sínum þannig, að ekki sé hægt að taka hann alvarlega. Ég held mig fast við það að ríkissjóður eigi aldrei að veita hinum framleiðandi atvinnu- vegum rekstursstyrki. Á þeim atvinnuvegum byggir þjóðin fyrst og fremst fjárhagsaf- komu sína, og þess vegna hljóta þeir að verða að standa á eigin fótum, annars er hin fjárhagslega bygging þjóðar- innar á sandi reist. Með styrk- veitingu, á þessu sviði, verður jafnan dregið úr ábyrgðar- vitneskju framleiðendanna. En hún er nokkurskonar barlest eða öryggi framleiðsl- unnar. Hitt er annað mál að bæði sjávarútvegurinn og landbún aðurinn, eiga sjálfir að hafa Sina tryggingarsjóði, til að styðjast við, í vondu árferði. Gagnvart landbúnaðinum er slíkur sjóður til og heitir Bjargráðasjóður. Hann hefir tekjur sínar í tillögum svefta- sjóöanna, út um land. Þenn- an sjóð ætti að eíla mjög, því að honum er ætlað að mæta skakkafölium í hallæri land- búnaðarins. Bændur sýna nú orðið lofsverða viðleitni til þess að eignast sjálfir vara- sjóði, hver á sínu búi. En það eru heyfyrningar þeirra. Þær hafa á síðari árum aukið mjög öryggi landbúnaðarins og siðasta harðæri mun vissu- iega verða til eflingar þeirri framkvæmd bænda. Þyrfti sjávarútvegurinn að efla hlið stæða framkvæmd. Sú leið, sem nú er farin og líka 1939 að fella krónuna, til þess að rétta við framleiðsl- una til sjávarins, virðist mér, satt að segja, illfær og geti ekki margendurtekist. Hún veikir þjóðina út á við, trufl- ar starfsháttu í landinu og leggur byrðar á herðar land- búnaðinum og öllum inn- flutningsviðskiptum. Sjávar- útvegurinn verður að byggja sig upp sjálfur, fjárhagslega og skipulega. Það getur ekki gengið í framtíðinni að hann hafi til umráða meginhluta af veltufé þjóðarinnar og svo hana alla og aðra atvinnu- vegi að bakhjalli ef illa geng- ur. En því var ekki gengi krón- unnar hækkað í veltiárunum eftir 1940? í grein minni hélt ég því fram að bændur hefðu kom- ist — þrátt fyrir mikla skerð- ing á arði búanna — léttilega út úr harðindunum «síðastl. vor, á móti þvi sem varð reynslan árið 1920. Um það segir Jens: „Hvaðan þessi bóndi hefir fengið rök, seni þessi fullyrð- ing hans styðst við, er mér ókunnugt. En helzt er að skilja á grein hans, að hún styðjist við hans eigin hroka.“ Atliiigasomd við groin oftir Jons í Kaldalóni. Rök mín eru þessi: Arið 1920 drapst fjöldi vorlamba um land allt og töluvert af fullorðnu fé. Þá var meiri erfiðleikum háð að ná í fóður- bæti og hann þá margfalt dýrari en nú, samkvæmt verði afurðanna. Þá þurfti marga I dilka til að borga með eina tunnu af fóðurbæti. Þá vissi ég þess dæmi að fjárstofninn ; át sig allan upp í fóðurbæti. Eða með öðrum orðum, þótt bóndinn þá legði inn eða seldi allt sauðféð haustið 1920. { hrökk það ekki fyrir fóður- . bætisskuldunum frá vorinu. Auk þess áttu bændur þá litl- j ar innieignir í verzlunum, en nú töluverðar. Með því sem vanhöldin á síðasta vori urðu lítil samanborið við þau, sem þá urðu. Er því hér mjög ó- j líku saman að jafna. Ég ber ekki á móti því að vorharðindin síðustu hafa valdið bændum miklu tjóni. I En ég mun aldrei þurfa að, fyrirverða mig fyrir þann „hroka“ að halda því fram, j að bændur og landbúnaöur- j inn sé nú orðið gæddur því1 sjálfstæði og öryggi að geta staðist þetta áfall, án sér- stakrar styrkveitingar úr rík- issjóði; þar sem þá heldur ekki er um auðugan garð að gresja og öllum ber okkur að reyna að efla ríkissjóðinn. Jens segir: „Það mun enda fyrst hafa verið nú á stríðs- árunum að bændur margir náðu sér upp fjárhagslega eftir vorharðindin 1920.“ — Þar gengur hann fram hjá því stóra atriði að í 9 ár eða frá 1930 til 1938 neyddust bændur til að selja búsafurðir sínar undir framleiðslukostn- aðarverði. Til dæmis 1932 fengu bændur hér í héraði um átta krónur til jafnaðar fyrir dilka sína, eða Vt verðs. Því að þá var framleiðslukostnað- arverð þeirra 24 krónur. Helzt er að skilja á grein Jens að hann miði ályktanir sínar við afkomu bænda í hans sveit, á síðastliðnu vori, því að hann segir: „Víðast hér á bæjum.“ En ég hefi haldið mig við landbúnaðinn og bændur um land allt. Og þegar einstakar sveitir verða mjög illa úti, þá á Bjargráða- sjóður að hlaupa undir bagga með þeim. Hann segir: „Það fór því svo að margir bændur misstu mörg og sumir mest af lömbum sínum,“ og „þegar bóndi, sem á 100 ær, missir um 80 af lömbum sínum.“ Þetta vita allir að er tilfinn- anlegt. Langvarandi húsvist, með lambfé, veldur ávalt einhverjum vanhöldum í lömbunum. En svona mikil vanhöld hljóta að stafa af fóðurskorti eða einhverju lambafári eða þá fágætri handvömm. Fyrir öllu slíku þurfa bændpr jafnan að vera á verði. En nú skellir Jens skuldinni á vorharðindin og verður þá helzt að skilja að svona mikil vanhöld hafi stafað af fóðurskorti. Annars er fullerfitt að taka trúanlegt sumt af þvi, sem Jens segir. T. d. þetta: „Ærnar báru í tugatali á bæ daglega, var ekki ósjald- an að 8 til 12 og upp í 20 lömb voru slorblaut i einni bendu, hvert um annað þvert og ærnar, mæðurnar í sömu bendunni, svo að engin leið var að vita hvaða lamb hver ærin átti þegar komið var í húsin.“ Nú segir hann að ærnar á bæjunum séu 100—200. Ég hefi fengist við að hirða lambfé í hálfa öld eða vel það og þekki ekki svona fyrir- brigði. Að ekki fleiri ær geti borið í tugatali daglega og að engin leið sé að vita undan hvaða ám hin nýfæddu lömb séu. Enn segir Jens: „Kuldinn var sá heimur, sem viðblasti þeim vesalings smálömbum sem þá í fyrsta sinni augum litu hina víðu náttúru í byrj- un júnímánaðar og hélzt svo til miðs júní að stormurinn hreykti þessum nýfæddu harðgerðu lífverum ofan af hól og barði, niður í fyrstu lautina eða afdrepið, sem fyr- ir varð, þar sem hún lagðist og lúrði í frosnu skjólinu og beið oft þess að krókna niður og deyja úr kulda.“ Þetta er sömuleiðis ótrúlegt að lambær séu haföar úti á freðinni gróðurlausri jörð, þar til lömbin deyja úr kulda. — Annars þola lömbin ótrúlega mikinn kulda ef þau hafa nóga mjólk. — Við hér um slóðir þorðum ekki að sleppa hendinni af lambánum, fyrri en 15., 16. og 17. júní. Voru þá elztu lömbin orðin 6 vikna gömul. Dylgjur Jens um drembi- læti mitt, hroka og lítilsvirð- ingu gagnvart bændum eru órökstuddar getsakir hans í minn garð, sem ég leiði hjá mér að þessu sinni. 28. marz 1950. Jón H. Þorbergsson. Hugleiðing um skírnina Svar til Sigurðar Þórðarson- ar Egg, frá Magnúsi Run- ólfssyni Kæri Sigurður Þórðarson, ég held við stöndum nú nær hver öðrum. Mér sýnist, að við séum nú báðir sammála um, að fólkið, sem gerði iðrun við ræðu Péturs á hvítasunn- unni, hafi látið skirast til fyr- irgefningar syndanna og til að öðlast gjöf Heilags anda (Post. 2, 38) og menn íklœðist Kristi með því að skírast (Gal. 3, 27). Þá hefir skírnin sálu- hjálplegt gildi samkv. þessum ritningarorðum. En hún hefir það einnig samkvæmt hinum stöðunum, sem ég nefndi. En gagnar þessi' sáluhjálp- lega skírn ungbörnum? Já, reynslan sýnir, að Guð hefir gefið þeim Andann, er þannig voru skírðir, um aldaraðir. Ritningin kallar skírnina um- skurn Krists. Gyðingar um- skáru sveinbörnin 8 daga gömul. Þau voru tekin inn í sáttmálann. Skyldi umskurn Krists þá ekki megna það? Ég fer ekki frekar út í ein- stök atriði hér, en geri það í sendibréfi. Með vinarkveðjum. UNDANFARNAR VIKUR hefir allmjög verið rætt á Norðurlönd- um um ferðamann einn frá Ame- ríku. Maður sá er prestur og heit- ir Freeman. Fylgdarmaður hans var annar prestur, sænsk-amerísk- ur, Boze að nafni, þegar þeir fé- lagar komu til Noregs eftir að hafa dvalið um hríð í Svíþjóð, birti Dagblaðið viðtal við Boze. Hann sagði, að Freeman hefði læknað 500 manns í Stokkhólmi og 80 í Gautaborg og til Noregs var hann kominn til að lækna sjúka. BOZE SAGÐI, að fyrir þremur árum hefði Freeman verið veik- ur. Hann var með ólæknandi krabbamein og auk þess var hann hjartabilaður. Hann átti þá einsk- is að bíða nema dauðans. En kona hans bað fyrir honum og eitthvað baðst hann fyrir sjálfur. Svo var það einu sinni um há- bjartan dag, þegar þau voru bæði glaðvakandi, að þau sáu engil standa í stofunni hjá sér. Engill- inn sagði við Freeman, að hann væri heilbrigður og hann skyldi fara út í heiminn og lækna sjúka. Gæti hann aðeins gefið mönnum trúna, myndi ekkert verða honum til fyrirstöðu. FREEMAN VAR eina þrjá daga í Osló. Hann hafði langa fundi og fjölmenna. Síðasta daginn var öllu fremur um að ræða áheyrn en fund. Fó^c stóð langtimum sam- an í biðrööum og birtu blöðin myndir af marfnfjöldanum, sem ætla má að skipt hafi þúsundum. En lítt var látið af kraftaverkun- um. Tveimur dögum eftir að Dag- blaðið birti viðtalið við Boze, birti það einskonar viðtal við norskan leiktrúð, sem heitir Arnardo og þykir fremstur norskra sjónhverf- ingamanna. ARNARDO sagðist játa sig sigr- aðan. Sér þýddi ekkert að ætla sér að jafnast á við Freeman á fundum Hvítasunnumanna. Hins vegar sagðist hann ekki vera fjarri þvi, að ef til vill væri betri at- vinna fyrir sig að gera sin töfra- brögð drottni til dýrðar, enda þyrfti hann þá ekki að borga skemmtanaskatt af tekjum sínum fremur en Freeman. VITANLEGA verður lítið fullyrt um Freeman, einlægni hans eða árangur, eftir blaðaskrifunum ein- um, en þau eru hinsvegar stað- reynd, sem vel má ræða. Eg vil að lokum vitna í grein, sem norska blaðið Várt Land birti eftir að Freeman var farinn úr landi. Várt Land er kristilegt blað og flytur stöðugt greinar og hugleiðingar um kristindóm og trúmál. En höf- undur þessarar greinar er lækna- nemi, sem heitir Thorleif Grant- Carlsen. CARLSEN ÞESSI segir, að það hefði verið farsælast fyrir allt kristilegt starf, að Freeman hefði verið neitað um að koma til Nor- egs. Lætin öll í kringum hann hafi spillt fyrir málstað trúaðra manna. Sjálfur segist höfundur vita af eigin reynslu um ýms dæmi, þar sem lækningamáttur einlægrar bænar og trúar hafi gert menn heilbrigða, en það sé staðreynd, jafnvel á þessum skynsemistím- um. Margur reyndur læknir viður- kenni slíkar staðreyndir. Sin per- sónulega trú á slík „kraftaverk“ sé óhagganleg. Samfara þessu hafi svo námið og reynslan kennt sér að hugsa rökrétt. Á ÞESSUM grundvelli kom Carlsen á fund Freemans. Ekki til að gagnrýna, því að allir erum við ófullkomnir. heldur í von um eitt- hvað, sem mætti styrkja trú sína, því að það er margt, sem ekki verð ur skilið nema skilningi trúarinnar. En Carlsen varð fyrir beiskum Vonbrigðum. Þarna fann liann hvorki frið né hvíld né áhrif heil- agrar andagiftar. Þar varð ókyrrð og æsing, svo að slík mót eru hættuleg öllum, sem eru tauga- veiiir. Þarna voru lamaðir menn born- ir inn og fatlað fólk staulaðist og tróðst á þessi mót. Þarna var fjöldi fólks, sem batt alla sína von við lækninguna. En Freeman sinnti einkum þeim, sem höfðu slæma heyrn eða sjón, en þó nokkra. Það var náttúrlega gott, en eng- an veginn það, sem mestu skipti. Og enginn var svo trúaður, að i hans augum ynni trúin sigur á þessum samkomum. LÆKNANEMINN endar grein sína með þeirri bón til þeirra, sem beri ábyrgð á þessu móti, að þeir iáti ekki slíkt koma fyrir aftur. Hann segist ekki fullyrða, að hér hafi allt verið svik og uppgerð. Guðs er dómurinn. En áhrifin hafl verið óheppileg fyrir alla þá, sem séu vinir trúar og andlegs lífs. Það er því ljóst, að Freeman hefir enga sigurför farið til Nor- egs og sú skoðun nær miklu víðar en til vantrúarmanna. Eitthvað svipað má segja ’ um komu hans til Danmerkur og það bera ekki allar heimildir honum sömu sögu og Boze úr Svíþjóðaríörinni. En jafnvel þó að einhver ófyrir- leitinn fjárplógsmaður reyni að gera sér helgustu tilfinningamál að féþúfu, afsannar það ekki neitt. Starkaður gamli. mammmBmmmammmmmmmmmmmBmmmmmmmmmmam Við þökkum öllum nær og fjær fyrir allan þann vil- hug og samúð, sem okkur var sýnd við jarðarför föð- ur okkar ANDRESAR ANDRESSONAR þann 1. apríl s.l. — En sérstaklega þökkum við öllu Hellnafólkinu fyrir allar þess miklu og góðu móttök- ur. — Sömuleiðis þökkum við Pétri Péturssyni á Mala- rifi fyrir þær góðu móttökur. sem okkur voru þar veittar. Ennfremur þökkum við bilstjórunum, Guð- mundi Einarssyni og Aðalsteini Jónssyni fyrir frá- bæran dugnað. Við biðjum guð að launa ykkur öllum. Börn hins látna.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.