Tíminn - 16.04.1950, Síða 2
TIMINN, sunnudaginn 16. apríl 1950
83. blað
'Jrá kafi til keiia
mt
í nótt:
Næturlæknir er í læknavarðstof-
unni, sími 5030.
Næturvörður er í Laugavegs-
apóteki, sími 1616.
Næturakstur annast Hreyfill,
sími 6633.
Útvarpið
Útvarpið í dag :
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 11,00 Morguntónleikar (plötur).
14,00 Guðþjónusta í kapellu Há-
skólans, við setningu 5. landsþings
Slysavarnafélags íslands (séra Jón
Thorarensen). 15,15 Miðdegistón-
leikar: a) Vladimir Rosing syng-
ur (plötur. b) 15,30 Útvarp frá
síðdegistónleikum í Sjálfstæðis-
húsinu ‘ (Qaarl Billich, Þorvaldur
Steingrímsson og Jóhannes Egg-
ertsson leika). 16,15 Útvarp til ís-
lendinga erlendis: Fréttir. — Er-
indi Margrét Indriðadóttir frétta-
maður). 19,80 Tónlekar (plötur).
20,20 Samleikur á fiðiu og píanó
(Þórarinn Guðmundsson og Fritz
Weisshappel). 20,35 Erindi: íslands-
viðskipti Englendinga á 15. og 16.
öld. (Björn Þorsteinsson cand.
mag.). 21,00 Kirkjutónlist (plötur).
21,15 Ávarp um almennan bæna-
dag (Sigurgeir biskup Sigurðsson).
21,30 Tónleikar (plötur). 22,05 Dans
lög (plötur). 23,30 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
Fastír liðir eins og venjulega.
KI. 20,20 Útvarpshljómsveitin (Þór-
arinn Guðmundsson stjórnar). 20,45
Um daginn og veginn (Þorvaldur
Garðar Kristjánsson lögfræðing-
mh. 21,05 Einsöngur (Sigurður Ól-
afsson): Lög eftir Ingunni Bjarna
dottur. 21,20 Erindi: Sauðfjárrækt
— girðingar — skógrækt (Ólafur
Sigurðsson bóndi á Hellulandi).
21,35 Tónleikar (plötur). 21,50 Frá
Hæstarétti (Hákon Guðmundsson,
hæstaréttarritari). 22,10 Létt lög
(plötur). 22,30 Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
S.Í.S. — Skipadeild.
Arnarfell er á Hólmavík. Hvassa
felí fór frá Neapel í gær áleiðis
til Cadiz.
Eimskip:
Brúarfoss var væntanlegur til
Reykjavikur síðdegis í gær frá
Akranesi. Dettifoss kom til Hull 14.
apríl, fer þaðan til Hamborgar og
Reykjavíkur. Fjallfoss er væntan-
legur til Reykjavikur í dag frá
Stykkishólmi. Goðafoss fór frá
Antwerpen í gær til Leith og
Reykjav.íkur. Lagarfoss var vænt-
anlegur til Reykjavíkur kl. 22,00 í
gærkvöldi. Selfoss fer væntanlega
frá Heroy í Noregi í dag til Reykja
víkur. Tröllafoss átti að fara frá
New York 14. apríl til Baltimore
og Reykjavikur. Vatnajökull var
væntanlegur til Palermo í gær frá
Tel-Aviv.
Ríkisskip.
Hekla er á Austfjörðum á norð-
urleið. Esja er í Relkjavík. Herðu-
breið var á Djúpavogi síðdegis i
gær. Þyrill er í Reykjavík. Ár-
mann fór frá Reykjavík síðdegis
í gær til Vestmannaeyja.
Einarsson & Zoéga.
Foldin hefir væntanlega komið
til Palestínu í gær. Lingestroom er
í Amsterdam.
Jöröin Borgir
V Jörðin Borgz'r á Skógarströnd ey til sölu og ábúðar
I; frá næstu fardögum. Jörðinni fyl^ja góð laxveiðiskil-
■; yrði.
*; Upplýsingar gefa eigandi jarðarinnar, Jósep Einars-
s son, Borgum og Elías Þorsteinsson, Keflavík.
V.V.V.V.V.V.,.,.,.V.,.V.,.V/.VAV.V.V.V.,.V.V.,.V.V.V. .
S.K.T.
Árnað heilta
Hjónaband.
í gær voru gefin saman í hjóna-
band hjá lögmanni ungfrú Helga
Ólafsdóttir frá Eyri i Svínadal og
Gunnar Sigurgeirsson frá Hömlu-
holtum, Hnappadalssýslu.
Hjónaefni.
Nýlega opinberuðu trúlofun sína
ungfrú Vilborg Guðjónsdóttir, Lyng
um, Meðallandi og Magnús H.
Stephensen, Hringbraut 76, Reykja-
vik.
Afmæli.
Sextugur er í dag Gunnlaugur
Hallgrímsson frá Dalvík. Hann er
nú til heimilis að Njálsgötu 86
hér í bæ.
Messur í dag:
Fríkirkjan:
Mecsað kl. 2 e. h. Ferming —
Sr. Þorsteinn Björnsson.
Laugarneskirkja.
Messað á morgun kl. 2 e. h. (Ferm
ing). Síra Garðar Svavarsson.
Barnaguðþjónusta kl. 10 f. h.
Hallgrímskirkja.
Messað kl. 11 f. h. Próf. Sigur-
björn Einarsson. Messað kl. 5 e. h.
Síra Sigurjón Árnason.
Dómkirkjan:
Messað kl. 11 f. h. (Ferming).
Síra Bjarni Jónsson. Messað kl. 2.
(Ferming). Síra Jón Auðuns.
Nesprestakall:
Messa í kapellu Háskólans kl.
2. e. h. Síra Jón Thórarensen.
ornum vec^i
Iðnaður sveitanna
Nýju og gömlu dansamir 1 Q. T.-
húsinu sunnudagskvöld kl. 8 —
Húsinu lokað kl. 10.30.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 6.30.
■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■■■■■■■■■■■■■ ■ • ■ ■ ■■■■■■■■ ■■■■■■ ■ ■
SKÁTAKAFFI \
í dág 16. apríl verður hið árlega Skátakaffi í Skáta- ;■
heimilinu.
Á boðstólum verður: Kaffi — Mjólk — Heimabak-
aðar kökur — og brauð — Kaffisalan hefst kl. 3. *;
Kvikmyndasýning, smá leikþættir og söngur veröur jí
kl. 2 og kl. 5. — Aðgöngumiðar að henni verða seldir
við innganginn og kostar kr. 3,00. ;■
Um kvöldið klukkan 8,30, heldur kaffisalan áfram í ;■
stóra salnum og verður þá dansað. í;
HLJÓMSVEIT SPILAR lmm
Kvenskátafélag Reykjavíkur. *||
SUMARFAGNAÐUR
STUDENTAFÉLAGSINS
! í verður haldinn að Hótel Bdrg síðasta vetrardag, mið-
V vikudaginn 19. apríl n. k., og hefst kl. 21.00.
DAGSKRÁ:
1. Rœða: sr. Bjarni Jónsson.
2. Gluntasöngur: Ágúst Bjarnason
og Jakob Hafstein.
3. DANS.
Aðgöngumiðar verða seldir að Hótel Borg (gengið
um aðaldyr) á morgun, mánudag og á sama tíma þriðju
dag, ef eitthvað verður þá óselt.
Öllum stúdentum’ er heimill aðgangur, en félags-
menn í Stúdentafélaginu, sem framvísa skírteinum sín-
um, njóta hlunninda við aðgöngumiðakaup.
Samkvæmisklæðnaður.
Stjórn Stúdentafélags Reykjavíkur.
Eitt af því, sem ánægjulegast er
nú um þróun atvinnulífsins í sveit
unum, er það, hve iðnaður alls
konar er að færast þar í vöxt. Þess
er líka mikil þörf, því að víða eru
þar óleyst verkefni og nauðsyn
iðnaðarins vegna framleiðslu at-
vinnuveganna brýn. Á undanförn-
um árum hafa margvísleg verk-
stæði búin góðum vélum ve4-ið
stofnsett og leysa þau af hendi
hið mikilsverðasta starf. Má nefna
mörg dæmi um þetta. Vestur í
Dalasýslu hefir bóndi siett upp
vinnufatagerð og rekur hana af
miklum myndarskap. Hefir hann
fengið til þess vélar og vinnur að
iðn þessari með heimilisfólki sínu
o. fl. Framleiðsla hans hefir komið
á markað heima í sýslu hans og
þykir ágæt. Austur í Fljótshlíð er
byggfr yfir jeppabíla á nýju verk-
stæði, betur og ódýrar en á mörg-
um stærri verkstæðum í kaup-
stöðum, að því er talið er, á Hvols-
velli er nýrisið trésmíðaverkstæði,
þar sem ungir menn hafa myndað
félag um fyrirtækið og smíða hús-
gögn. hurðir, glugga o. fl. sem
skortur er á i nágrenninu. Þann-
ig mætti lengi telja. Kaupfélög og
búnaðarsambönd eru að setja upp
vélaverkstæði víða um land, víða
í félagi við einstaklinga, sem á
verkstæðunum vinna, og er þar
annazt um viðgerðir hinna mörgu
búvéla, sem landbúnaðurinn á nú
þegar nokkuð af, en þó allt of
lítið.
Eitt hið mesta vandamál heim-
ila í sveit á íslandi er hin mikla
vöntun á heppilegum húsgögnum
í hin mörgu og reisulegu hús, sem
hafa risið þar að undanförnu og
verða vonandi reist á næstunni.
Bændur hafa varla átt kost á
öðrum húsgögnum en dýrum og
óhenVugum húsgögnjum keyptum
i kaupstöðunum. En þarfir sveita-
heimilanna eru nokkuð aðrar í
þessum efnum en kaupstaðaheim-
ilanna, vegna annarra lífsskilyrða
og annarra atvinnuhátta. Það er
verkefni fyrir hina ungu smiði í
sveitum landsins að leysa það mál
en ættu þó að njóta opinberrar
aðstoðar 1 því efni. Búnaðarfélag
íslands eða annar aðili á þessum
vettvangi ætti með styrk ríkisins
að láta rannsaka og gera tillögur
um gerð fallegra og heppilegra
húsgagna fyrir sveitaheimili, og
síðan verða smiðir sveitanna að
stofna verkstæði, þar sem þeir
smíða húsgögn handa sveitaheim-
ilunum. Þegar eru spor stigin í
þessa átt og vonandi verður áfram
haldið á næstu árum.
íslenzk húsgögn jafnt í sveit og
kaupstað eru flest þunglamflleg og
klunnaleg. Sveitirnar ættu að hafa
forgöngu um að leiða nýjan smekk
í húsgagnagerð til öndvegis, og
getum við sótt fyrirmyndir um það
m. a. til Svía. Sveitaheimilin og
smiðir sveitanna eiga að smíða
lipur og létt húsgögn, þægileg í
notkun og stílhrein, helzt í ljós-
um litum.
A. K.
'JWm-m-
TILKYNNINGj
Innflutnings- og gjaldeyrisdeild Fjárhagsráðs hefir í||
ákveðið eftirfarandi hámarksverð á lýsi i smásölu: í;
í *■
í
Þorskalýsi % Itr kr. 5.25
do. % - — 3.00
Ufsalýsi % - — 5.75
do. % - — 3.25
1
Framangreint hámarksverð er miðað við innihald, ■;
en sé flaskan seld með, má verðið vera kr. 0.50 hærra £
á minni flöskunum og kr. 0.75 á þeim stærri.
Söluskattur er innifalinn í verðinu.
Reykjavík, 15. apríl 1950, í;
í
Verðlagsstjórinn ij
■ ■ ■ ■ ■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■
Tvær stúlkur
;■ óskast strax í eldhús Kleppsspítalans.
í; Upplýsingar hjá ráðskonunhi og í skrifstofu ■;
/, ríkisspítalanna. ‘
V.V.