Tíminn - 30.04.1950, Blaðsíða 2
2
JÍMINN, sunnudaginn 30. apríl 1950
94. blað
L-.^-^TLarxjTim^rnj^ra, -
hafi til heiía j
S.K.T.
Nýju og gömlu dansamlr 1 G. T.-
húsinu sunnudagskvöld kl. 8 —
Húsinu lokað kl. 10.30.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 6.30.
í nótt:
Næturlæknir er í læknavarðstof-
vnni, sími 5030.
Næturvörður er í Iðunnar apó-
teki.
Næturakstur annast Hreyfiil,
simi 6633.
Út^arpid
í'tTarpið í dag:
Pastir liðir eins og venjulega.
Ki. 11,00 Messa í Dómkirkjunni;
ítrmingarguðþjónusta (séra Bjarni
Jonsson, vígslubiskup). 12,15 Dag-
skrá listamannaþingsins: íslenzk
tcn'.ist. 13,15 Erindi: Um landhelgis
málið (Júlíus Havsteen, sýslumað-
ur). 15,15 Miðdegistónleikar: a)
Eimöngur: Lotte Lehmann syng-
v.r (p ötur). b) 15,30 Útvarp frá
siðdegistónleikum i Sjálfstæðishús-
:'nu (Carl Billich, Þorvaldur Stein-
grlmsson og Jóhannes Eggertsson,
leika). 16,15 Útvarp til íslendinga
eriendis; Fréttir. — Erindi (Vil-
hiá'.mur S. Vilhjálmsson, rithöf-
unör.i). 18,30 Barnatími (Hildur
Kr.lraan). 20,20 Dagskrá listamanna
þinrrins: 1) Tónleikar fyrir klari-
n:tf og píanó eftir Jón Þórarinsson
(Grnnar Egilsson og Rögnvaldur
S'gurjcnsson, leika). 2) 2C,35 Erindi:
Fysta list mannsins (Björn Th.
Bjcrns on, listfræðingur). 3) 21,00
Tón'.eíkar: a) Tvö sönglög eftir
Fmii Thoroddsen (Birgír Halldórs
son syngur). b) Tvö sönglög eftir
J7.;ö:n Franzson (Magnús Jónsson
syn-'ur). 4) 21,15 Upplestur skálda
rithöíunda og leikara. 5) Útvarps-
kcrinn syngur lög eftir íslenzka
höfunir>, Róbert Abraham stjórn-
ar). 22,05 Danslög (plötur) 23,30
Dagskrárlok.
Ctvsrpið á morg'un:
Fastir liðir eins og venjulega.
KI. 20 20 Hátíðisdagur verkalýðsfé-
laeanna: Ávörp (Steingrímur Stein
þórsson. félagsmálaráðherra, Helgi
Hannesson, forseti Alþýðusam-
hand" íslands og Ólafur Björnsson
formaður Bandalags starfsmanna
rik's cg bæja). 20,50 „En á morgun
rennur rftur dagu?‘, leikrit eftir
Ncrd? I Grieg, í þýðingu Sverris
Krist 'á"«sonar. Leikstjóri Þorsteinn
Ö. Stenhensen. Leikendur: Brynjólf
ur Jchor.nesson, Regína Þórðar-
clótttr. Herdis Þorvaldsdóttir, Ein-
ft Fál'son, Ævar Kvaran, Gestur
Pálsscn, Valdimar Helgason, Jón
Aði's. Vslur Gíslason, Haraldur
P'ö nsscn Lárus Pálsson, Þorsteinn
ö. Ft°rhcnsen, Ingibjörg Steinsdótt
i”. Ste'ndó” Hjörleifsson, Anna
Gvðmrndsdóttir, Baldvin Halldórs-
son o 'I '2.4r Fréttir og veðurfregn
To„nsjög ípiötur). — 24,00
Dagckrárlck.
Hvar eru skLpm?
RíJ;'e«kip.
Hsk'a cr væntanleg til Reykja-
víkur árdegis i dag að vestan og
norosn. Esja fór frá Reykjavík í
Eærkvöid austur um land til Siglu
íjarðar. Herðubreið er á Aust-
fjörðvm á norðurieið. Skjaldbreið
er á Kúnaflóa á suðurleið. Þyrill
vcr vmt-n’egur til Reykjavíkur í
mc cun Armann var í Vestmanna-
eyjum í gær.
S.I.S. — Sltipadeild.
Arnarfell er á leið til Grikklands.
Evassafell c-r væntanlegt til Akur-
eyrar á miðvikudag frá Cadiz.
Eimskip
Brúarfoss fór frá Kaupmanna-
höfn 27. apríl til Gdynia. Detti-
foss er í Reykjavík. Fjallfoss er í
Halifax N. S. Goðafoss fór frá
Reykjavík 28. apríl til Vestmanna-
eyja, Hull, Rotterdam og Antwerp-
en. Lagarfos er í Reykjavík. Trölla
foss var væntan'.egur til Reykja-
vikur í morgun. Selfoss er í Reykja
vík. Vatnajökull er á Spáni. Dido
lestar áburð Noregi til Reykja-
víkur.
Einarsson, Zoéga & Co.
Foldin er á leið til Englands frá
Miðjarðarhafinu. Lingestroom er i
Færeyjum.
Úr ýmsum. áttum
Gjöf til Þjóðleikhússins.
I Lúðvíg Guðmundsson, skólastjóri
tilkynnti þjóðleikhússtjóra í gær,
að hann gæfi Þjóðleikhúsinu högg
myndina „Maður og kona“ eftir
i Tove Olafsson.
{ Mynd þessi, sem er höggvin í
grástein, er nú á listsýningu Lista
mannsaþinsins 1950. Að sýningu lok
inni verður myndin afhent Þjóð-
ieikhúsinu.
!
Falleg gjöf til Menning-
arsjóðs Þjóðleikhússins.
í gær kom hinn ungi leikari Val-
ur Gústafsson, er leikur litla dreng
inn í kvikmynd Óskars Gíslasonar
„Síðasti bærinn í dalnum", og af-
henti sjóðnum að gjöf, eitt þúsund
krónur, sem voru fyrstu og einu
launin, sem honum hafði áskotn-
ast fyrir leikstarfsemina.
Áætlun Sameinaða.
Sameinaða gufuskipafélagið hef-
ir nú gefið út prentaða áætlun fyr-
ir ferðir m. s. Dr. Alexandrine milli =
Kaupmannahafnar, Færeyja og
íslands. Gildir áætlunin til Sept-
emberloka.
í byrjun júní hefjast háifsmán-
aðarferðir milli Kaupmannahafnar
og Reykjavíkur. Fer skipið annan
hvern laugardag frá Kaupmanna-
höfn og Reykjavík. Einnig er áætl-
unin prentuð í vasaútgáfu og verð
ur hún afhent þeim, sem þess óska
á afgreiðslu félagsins í Tryggva-
götu.
1111111111111111111111111111111tii iii iiiiiiiii1111111111iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiii«iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiii>iinia
| Málverkasýning
I Asgeirs BjarnjDÓrssonar
opin í dag frá klukkan 11—11
. Síðasti dagur sýningarinnar
iiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiinii 111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 ■1111111111111111111111111111111111111111111111111111
Innanfélags kappglíma
hjá UMFR fór lram 17. þ. m. í
B-flokkum. Glímt var í 3 flokkum
alls kepptu 15 drengir.
í 1. fl. sigraði Hafsteinn Daníels-
son, annar Reynir Bjarnason og
þriðji Jónas Jóhannsson.
í II. fl. sigraði Baldur Sigurgeirs
son, annar Þórður Þórðarson og
þriðji Pétur Sveinsson.
í III. fl. sigraði Hávarður Há-
varðsson, annar Sævar Björnsson
og þriðji Jakob Jónatansson.
Unnendum glímunnar skal bent
á að glíman stóð yfir aðeins í
tæpa klukkustund og sýnir það að
með góðri stjórn er hægt að láta
flokkaglímur standa stutt yfir.
Bráðlega mun fara fram kapp-
glíma í A-flokkum og eru það
menn, sem lengra eru komnir í
glímunni.
íþróttablaðið,
apríl 1950 flytur: Á skiðum heima
og erlendis. Landsflokkaglíman
1950. Nýtt fjör á skautum. Evrópu
meistaramótið. Landskeppni milli
íslendinga og Dana. Kvæði Mán-
aðarins. Islenzk glíma. Á grasafjaili.
íróttir erlendis. Fyrsta landskeppni
Islendinga í handknattleik. Knatt-
spyrnan í Brazilíu o. fl.
Jfc
ornum i/eai
Árekstrar og ökuníðingar
Atvinnubílstjóri er að aka heim
til sín, alllöngu eftir miðnætti, að
loknum löngum vinnudegi. Hann
beygir inn í götuna, þar sem hann
á heima, en í sömu svipan koma
| unglingar á flugaferð á nýjum
I einkabil föður síns, renna á bíl
I a.vinnubílstjórans og skemma bæði
ökutækin stórlega. Næstu daga sit-
| ui bílstjórinn atvinnulaus heima,
en vátryggingafélögin greiða tjón-
' ið á bílnum, að því leyti sem við-
' gerð verður við komið.
Þetta er ofur hversdagsleg saga.
Slíkir atburðir gerast næsta oft.
En einmitt það, hversu tíðir slíkir
atburðir eru, gefur fullt tilefni til
þess, að þessum málum sé gaum-
ur gefinn og rækilega tekið í taum
ana.
Eg fékk fyrir nokkru í hendur
niðurstöður af rannsókn, er götu-
lögreglan í Kaupmannahöfn gerði
á því, hverjir ættu sök á slysum
og bifreiðaárekstrum þar í borg.
, Su rannsókn leiddi í ljós, að sömu
( mennirnir áttu ískyggilega mikinn
þátt í þessum slysum, og dönsku
bljðín kröfðust þess mjög ein-
dregíð, að hert væri tökin á þess
um náungum, sem yilu .; vo miklu
tjóni á dýrum tækjum og stoínuðu
jafnvel lífi samborgara sinna oft
og tíðum í hina mestu hættu.
Eg veit ekki, hvort hér í Reykja-
vík hefir farið fram rækiieg og
traust rannsókn á því, að hve
mlklu leyti sömu menn kunna að
eiga sök á árekstrum, meiri og
minni háttar, á götum bæjarins
og vegum landsins. En ég hygg, að
það sé álit margra bílstjóra, að
allstór hópur manna, fyrst og
fremst úr flokki einkabílstjóra, aki
þannig að það horfi ekki til heiila.
Að öllu athuguðu mun það ekki
vanþörf, að þessi mál séu tekin
til rækilegrar íhugunar, einnig hér
á landi, og strangari ’gætur hafð-
ar á því, hvernig menn hlýða sett-
um reglum um akstur. Umferða-
slys eru orðin ískyggileg og al-
varleg, fjárhag okkar er ekki betur
komið en svo, að við megum illa
við að skemma eða jafnvel ónýta
hin dýrustu tæki, og bílstjórum
veitir ekki af, að vinnan sé sem
öruggust. Komi í ljós, að einstak-
ir menn séu valdir að mörgum
árekstrum, ber að taka hart á
slíku og svipta þá leyfi til þess
að stjórn þifreiðum. Þeir eru ekki
menn til þess. Öryggi samborgar-
anna og fjárhagsleg nauðsyn
krefst þess, að þeir heyi ekki svo
áhættusaman leik á götum og veg-
um.
J. H.
K.R.R.
I.S.I.
K.S.I.
I REYKJAVÍKURMÓTIÐ
♦
t 2 leikur Reykjavíkurmótsins fer fram í dag kl. 4,30
^ á íþróttavellinum. — Þá keppa:
FRAM—VALUR
♦ Dómari: Guðjón Einarsson.
^ Komið og sjáið spennandi leik.
♦ Nefndin.
♦
| SUMARFAGNAGUR j
Borgfirðingafélagsins *
verður í Sjálfstæðishúsinu fimmtudaginn 4. maí og ▲
hefst kl. 8,30 síðd. $
Til skemmtunar verður:
Einsöngur: Bjarni Bjarnason, læknir.
Leikþáttur eftir Þorstein Jósepsson. Leikstjóri
Klemenz Jónsson.
Kórsöngur: Borgfirðingakórinn. Stjórnandi
Jón ísleifsson.
D a n s .
Aðgöngumiðar seldir við innganginn frá kl. 8.
Stjórnin.
I
IÐGJALDAHÆKKUN
I
Iðgjöld til Sjqkrasamlags Reykjavíkur
hækka frá og með 1. maí í 20.00 kr. á mán.
Greinargerð fyrir þörfinni til þessarar
hækkunar hefir verið afhent blöðum og
útvarpi til birtingar.
Sjúkrasamlag Reykjavíkur
Jarðarför mannsins míns
EINAR ÞORGRÍMSSONAR, forstjóra,
fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 2. maí kl. 2
e. h. — Athöfninni verður útvarpað.
Elín Þorgrímsson.
GERIST ASKRIFEIVDUR AÐ
TÍMANIIM. - ASKRIFTASIMI 2323.