Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Tíminn - 03.05.1950, Síða 4

Tíminn - 03.05.1950, Síða 4
4 TÍMINN, miðvikudaginn 3. maí 1950 95. blað Erlendar og innlendar skrúðjurtir Eftir GUÐMUND DAVÍDSSON Vist er það vel til fallið, að skreyta Austurvöll á sumrin, með blómjurtum, sem ræktað ar eru meðfram gangsttigum vallarins. Gróðursetningu jurtanna verður að endur- taka á hverju ári, því að ræt- ur þeirra lifa ekki í jarðveg- inum yfir veturinn. Mætti þetta verða til þess að örva menn, sem eiga lóðir kringum hús sin í bænum, til að prýða þær með blómjurt- um, betur en gert er, þar sem svo hagar til, og góð skilyrði eru fyrir hendi. Blómjurtir, sem eru gróð- ursettar á Austurvelli,eru all ar útlendar. En hversvegna er gengið framhjá íslenzkum jurtum? Hvaða ástæða er til að láta þær rýma sæti fyrir hinum erlenda gróðri? Ég geri ekki ráð fyrir að það sé vegna lítilsvirðingar manna á íslenzkum blómjurtum, held ur muni það stafa af því, að þær þykja ekki eins skraut- legar, ekki eins áberandi, eða nógu „fínar“ og hinar er- lendu tegundir. Hvarvetna á ísienzkri jörð, þar sem jurtir eru gróðursettar til prýði, ætti að láta íslenzkar blóm- jurtir skipa heiðursess. Inn- lendar villiblómajurtir geta að visu ekki jafnast á við hin ar erlendu með sterku lit- skrúði, eða glæsilegu útliti, en þær Jiafa þolað íslenzka veðráttu frá ómunatíð og skreytt bæði úthaga og rækt aða jörð, um land allt, þar' sem einhver gróður gat á annað borð þrifist. Þær má skoða sem drotningar ís- lenzka jurtagróðursins. Ættu menn að virða þær sam- kvæmt því. Lítilsvirðing fyrir ýmsum íslenzkum blómjurtum virðist oft áberandi hjá fólki og lýs. ir ekki yfirleitt velvild þess á jurtagróðri landsins. Ætti hann þó helzt að njóta vernd ar og umhyggju almennings. ■Mætti benda á ótal dæmi því til sönnunar. Algengt er t.d. að fullorðið fólk snuðrar eft- ir blómjurtum, sem eiga að njóta vaxtarfrelsis úti á víða vangi, slítur þær upp, að því er virðist, einungis til þess að kreista þær til dauða í lófa sínum og kastar þeim svo frá sér eins og hverju öðru skrani. Lautir og brekkur ná- lægt þjóðvegum, skreyttar allskonar villijurtum, nota vegfarendur oft sem áninga- staði og hvildarstaði, verða jafnan fyrir þungum búsyfj- um, að þessu leyti. Viðskiln- aður við slíka bletti er oft hörmulegur. Kastar þó tólf- unum þegar allskonar rusl og sorp er þar skilið eftir, til viðbótar því spelli, sem unn- ið er á gröðrinum. í annan stað er það algengt að full- orðið fólk hvetur börn til að slíta upp blómjurtir úti á víðavangi, jafnóðum og þær springa út á vorin. Börnun- um er þó oft gefið í skyn að þannig eiga þau að láta sér þýkja vænt um blómgrasið. Ég hefi oft séð 6—9 ára börn - slíta upp jurtir reita þær í sundur, tætlu fyrir tætlu og kasta þeim svo. Hvers má vænta af sömu börnum, þeg- ar þau verða fullorðnír menn og fara fyrir alvöru að skifta við hlómjurtaríkin i náttúru landsins. Komi skemmdar- fýsnin líka niður á dýralifinu eins og oft vill verða, getur hún orðið til mikils tjóns fyr ir land og lýð. í sambandi við erlenda skrýðjurtarækt á Austurvelli hefði eflaust verið auðvelt að venja þangað íslenzkar villi- býflugur, til að safna sér hun angi, sem hlýtur að Vjera gnægð af í blómunum. Þetta hefir ekki verið gert, en gat þó orðið til þess að minna fólkið á, að það væri komið þarna i námd við íslenxka náttúru. Enn er eitt, sem vel mætti stofna til hér í Reykjavík.Það er að koma á fót ræktuðu ís- lensku jurtasafni á einhverj um hentugum stað i bænum, eða í grend við hann, og safna þangað sem flestum islenzk- um jurtategundum til rækt- unar. Er hér verkefni fyrir skólafólk, að hefja undirbún ing að þessu máli og koma því í framkvæmd. Er kominn tími til að leggja niður þann sið, íSem lengi hefir tíðkast, að safna jurtum til ferging- ar, og nota þær síðan við nám i skólum. Á einni viku gæti nemandi lært meira af lif- andi blómjurtum úti í nátt- úrunni en á heilu ári og af þurkuðu jurtasafni inni í hús um. Jurtasöfnun til fergingar getur haft þann ókost, að út- rýmt verði einstökum jurtum með öllu. Margar tegundir af íslenzkum jurtum vaxa ekki nema á örfáum stöðum á land inu, sumar jafnvel ekki nema á einum eða tveimur stöðum, og þá fá eintök á stað. Hætt er því við, að þær verði al. dauða, því að safnarinn er hirðulaus og miskunarlaus gagnvart náttúrulífinu, og skeytir engu þó að hann hrifsi í hönd sér síðasta jurta díntakið, sem til er á land- inu. Að þessu leyti — og á mörgum öðrum sviðum, er náttúrulíf landsins i hers höndum og gert réttlaust. Sumstaðar erlendis banna sveitabændui grasasöfnurum jurtatinslu á iörðum sínum í því skyni að vernda fágætar jurtir, sem kynnu að vaxa þar Sveitabændur hér á landi ættu að fara að þeirra dæmi. Guðm. Davíðsson Fasteignasölu- miðstöðin Lækjargötu 10 B. Sími 6530 Annast sölu fasteigna, skipa, bifreiða o. fl. Enn- fremur alls konar trygging- ar, svo sem brunatryggingar, innbús-, líftryggingar o. fl. 1 umboðA Jón Finnbogasonar hjá SJóvátryggingarfélagi ís- lands h. f. Vlðtalstimi alla virka daga kl. 10—5, aðra tíma eftir samkomulagL REYKJAVÍKURMÓTIÐ: K.R. vann Víking 5:1 Fram vann Val 1:0 Reykjavíkurmótið í knatt- spyrnu í meistaraflokki hófst 23. apríl með leik milli K.R. og Víkings. Mótið var sett með viðhöfn. Fyrst gengu lið- in, sem þátt tóku í mátinu, fylktu liði, undir íslenzkum fána, inn á- völlinn. Þá setti Sveinn Zoega mótið með stuttri ræðu. Lúðrasveit Reykjavíkur lék nokkur. lög fyrir leikinn og eins í hálf- leik. Síðan hófst fyrsti knatt spyrnuleikur ársins. Leikur K.R. og Víkings. Veður var mjög hagstætt til keppni, er leikurinn fór fram, enda var hann all- sæmilegur. Fyrri hálfleikur var mjög jafn og bæði liðin sýndu góð tilþrif og betri en maður hefir átt að venjast í fyrstu leikjum undanfarinna ára. Tvö mörk voru skoruð í þessum hálfleik. Það fyrra skoraði Gunnar Guðmanns- son fyrir K.R., er 30 mínútur voru af leik, en Bjarni Guðna son jafnaði, fyrir Víking, rétt fyrir hálfleikslok. í byrjun seinni hálfleiks fengu bæði liðin góða mögu- leika til að skora, sérstak lega Víkingur, er fékk þrjú afargóð tækifæri en misnot. aði þau öll. Er líða tók á hálf leikinn náði K.R. algjörlega yfirhöndinni, sem orsakað- ist af mun betra úthaldi. Tókst þeim að skora 4 mörk. Fyrsta skoraði Gunnar, ann- að Sigurður Bergsson, þriðja Ari Gíslason og síðasta mark- ið skoraði Steinar Þorsteins. son úr vítaspyrnu. Lið K.R. var heilsteypt og má segja að hvergi sé „gat“ á því. Bezti maður liðsins var ný- liðinn Sigurður Bergsson, einnig voru Gunnar, Stein- ar og Bergur markmaður ágætir. Hjá Víking var Helgi Eysteinsson beztur, en Gunn laugur og Bjarni áttu einnig ágætan leik. Dómari var Þrá- inn Sigurðsson. Leikur Fram og Vals. Erfitt er að dæma um getu þessara liða eftir þessum leik, því veður var mjög óhag stætt til keppni, rok og slyddu bylur, sem orsakaði að erf. itt var að greina knöttinn bæði fyrir leikmenn og áhorf endur. Bæði liðin virtust þó reyna að leika saman eftir því sem ástæður leyfðu. Fram liðið var öllu heilsteyptara og dugnaður og kraftur ein- kenndu liðið eins og undan- farin sumur. Varnarleik- mennirnir og framverðirnir voru beztu menn liðsins, einn ig v@ru Ríkharður og Óskar sæmilegir í framlínunni. Þrátt fyrir að Válur tap» aði þessum leik fengu þeir fleiri tækifæri til að skora, en tókst þó aldrei að setja mark og var það hreinúm klaufaskap að kenna stund- um. Liðið var allsæmilegt en nokkuð misjafnt. Beztir voru Sigurður Ólafsson, Sveinn, Halldór og Ellert. Einnig virð ist nýliðinn Gunnar Gunn- arsson, er lék á hægra kanti, mjög efnilegur, en hefir þó enn of miklar tilhneigingar til einleiks.Mark Fram í ieikn um skoraði Magnús Ágústs- son. Dómari var Þorlákur Þórðarson. H. S. SVBITABÚI hefir sent mér eftirfarandi bréf um innflutning bóka: „Undanfarið hafa ýmsir minnst á hinn tilfinnanlega skort er- lendra bóka og tímarita í hér- lendum bókabúöum. Nú síðast Þor valdur Garðar Kristjánsson í er- indi sínd „Um daginn og veginn“ 17. f. m., sem vonandi flestir hafa heyrt, er láta sig þessi mál nokkru s'kipta. Erindið var hið athyglis- verðasta og prýðilega rökstutt svo að vart verður betur gert. En þörf er á að halda málinu vakandi, og ættu því fleiri að láta til sín heyra um þetta mál en enn hafa gert. Vil ég víkja að nokkrum atriðum, sem þetta snerta, þótt tæplega verði komist hjá endurtekningum. Varla þarf að taka fram, að ég ræði þetta ekki frá sjónarmiði vís- indamanna né annarra þeirra, sem á sérfræðiritum þurfa að halda, heldur aðeins frá sjónarmiði al- mennra lesenda og þá einkum í dreifbýlinu. Á KREPPUÁRUNUM eftir 1930, sem sízt er ástæða til að gylla, var vissulega ekki auðveldara að afla gjaldeyris, en verið hefir til þessa. En á þessum árum var hægt að fá svo til hvaða bók, sem fá- anleg var á erlendum bókamarkaði. Fengist ekki tiltekin bók hér á landi, var auðvelt að panta hana, t. d. gegnum bókaverzlun hér. Þá leið urðu margir þeirra einmitt að fara, sem bjuggu úti á landi, og voru bókapantanir venjulega af- greiddar greiðlega. Meira að segja sjálft ríkisvaldið gerði sitt til að greiða fyrir innflutningi blaða og tímarita, þar sem það lét virðu- lega ríkisstofnun annast innflutn- ing á slíku fyrir þá, er þess ósk- uðu, auk þess, sem bóksalar fluttu inn og hafði svo lengi verið. NÚ ER ÖLDIN ÖNNUR. Aðrir geta dæmt um það betur en ég, 1 hvernig það er í bæjunum, en úti á landi má heita útiiokað að fá nokkra erlenda bók, og hefir svo raimar verið allt frá byrjun síð- ustu styrjaldar. í dreifbýlinu munu fáir hafa notið góðs af innflutn- ingi bóka á stríðsárunum. Svo að þeir, sem hafa þurft að sæta því að panta bækur fyrirfram, eru því búnir að búa við þetta ástand ær- ið lengi. Var þess vænst, að úr því rættist að stríðinu loknu, að svo miklu leyti, sem bækur væru fá- anlegar erlendis. En sem kunnugt er, virðast bóksalar nú eiga erf- itt með að taka tillit til óska ein- stakra manna, jafn vel um hve litla pöntun sem er að ræða. ER ÞÁ FURÐA, þó mörgum finn ist ástand þetta með öllu óvið- unandi? Menn segja ef til vill, að slíkt geti ekki varað lengi, og lagist bráðlega af sjálfu sér. En það skyldi þó ekki vera að þeir, sem gátu fengið sig til að takmarka innflutning bóka — ráðstöfunar sem ekki þótti forsvaranleg nokkr- um árum fyrr, þegar fullt eins örð- ugt var þó að afla gjaldeyris — að þeir séu liklegir til að halda fram sömu stefnu enn um sinn. Það virðist því full ástæða til að gefa framgangi þessara mála nán- ari gætur hér eftir, og vinna að því að fá þessu breytt. ATHUGUM ÞETTA ofurlítið nánar. Það liggur í augum uppi, eins og Þ. G. K. minntist á í er- indi sínu, að hið ritaða orð er eitt helzta tækið, sem ber uppi menninguna. Þess vegna eru líka með frjálsum menningarþjóðum lagðar sem minnstar hömlur á þennan menningarmiðil, og svo hef ir það verið um bókmenntaþjóð eins og oss, um langan aldur. Það mun einnig viðurkennt að til þess að þjóðleg menning dafni og þró- ist, hvar í landi sem er, en þó einkum með smáþjóð, sé nauðsyn- legt að hafa aðgang að menning- arlífi nágrannaþjóðanna, því æðrf mertning þrffst ekki einangtuð, og líku máli er að gegna um nú- tíma alþýðumenningu. Er auðvelt að rökstyðja það, en er svo al- kunnugt, að þess gerist ekki þörf. EF TIL VILL kynni annars ein- hver að halda því fram, að þjóð- legar bókmenntir séu bezt metnar af þeim, er lesa þær eingöngu. Ef það skyldi nú samt reynast svo, að ýmislegt í íslenzkum bókmennt um stæðist samanburð við hlið- stæðar bókmenntir erlendar, mundu þá þeir, er erlendar bókmenntlr lesa, vera líklegir til að meta minna hinar íslenzku eftir en áður? En auðvitað er það ekki aðalatriði í þessu máli, heldur hitt, að öðlast víðari sjóndeildarhring. fTÚVERANDI ÁSTAND, hvað snertir innflutning bóka, er, sem sagt, óviðunandi. Fyrir fjölmarga er það svo, að takmörkunin á bók- innflutningnum verkar ekki aðeins sem takmörkun á bókakaupum einstaklinga, að sínu leyti eins og á ýmsum skömmtunarvörum, heldur sem algert bann. En að fara hrein lega að skammta bækurnar, dettur líklega fáum í hug. Liggur í augum uppi sá reginmunur á þeim og almennum efnivörum, til afnota fyrir hvern einstakling, og sýnir það glöggt, hvilik fjarstæða það er að hindra innflutning bóka á sama hátt og þær“. Eg vildi gjarnan fara nokkrum orðum um pappírsinnflutning og útgáfustarfsemi við tækifæri. Starkaður gamli. Ég þakka öllum nær og f jær, er auðsýndu samúð og hjálp við andlát og jarðarför ÖSSURAR GUÐBJARTSSONAR frá Kollsvík Sérstakar þakkir til gamalla sveitunga. Sigurvin Össurarson fiERIST ASKUIFFMK H AB TfMANVM. - ÁSKRIFTASÍMI 2323.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.