Tíminn - 04.05.1950, Blaðsíða 1

Tíminn - 04.05.1950, Blaðsíða 1
Skrit*tofvr i Edduhúsinu > Frtttaaimar: 11302 og 81303 AfgreiSslusími 2323 A*glýsingaslml 81309 PrentsmiOjan Edda 34. árg. Reykjavík, fimmtudaginn 4. maí 1950 96. blað FÖRUNEYTI ALI KHANS Á KEFLAVIKURVELU Föruneyti Liequat Ali Khan forsætisráðherra Pakistan gisti næturlangt á flugvellinum í Keflavík. Á myndinni sjást: frú forsætisrádherrans fyrir miðju, við lilið hennar til vinstri er utanríkisráðherra Pakistan. Annar frá vinstri er Vaughan herforingi við hlið Gribbons flugvallarstjóra. Myndin var tekin er hópurinn hafði lokið kvöldverði á flug- Jaröfræöilegar þyngdarmæl ingar geröar á Suðv.-landi » , Franski Grænlandsleilians'urimt lánaði iæki til fto^s molian forystumonn hans stóáu hér við á dögunum. Eitt af verkefnum franska Grænlandsleiðangursins, undir stjórn Paul-Emilc Vicíors, sem hér kom við á leið sinni til Grænlands, eru þyngdarmælingar. Hefir leiðangurinn með- ferðis tvö nákvæm tæki til slíkra mælinga. Samstarf við Frakka. Meðan leiðangurinn stóð' liér við fóru íslenzká' vís- indamenn fram á samstarf við Frakkana um þyngdar- mælingar hér á landi. Frakk arnir tóku þeirri málaleitan mjög vel og á föstudaginn og laugardaginn var eftir ósk- um íslenzku vísindamann- anna mælt á svæðinu frá Reykjavík austur í Þykkva- bæ og frá Keflavík til Grinda víkur, eöa alls á um 30 mæli- stöðum. bæði í sambandi við jarðhit- ann og eins í sambandi við brotlínur og almenna bygg- ingu landsins, en vöntun á tækjum hefir gert það ókleift Þeir, sem standa að sam- starfinu af íslendinga hálfu eru Gunnar Böðvarsson, yf- irmaður jarðborana ríkisins, Trausti Einarsson prófessor og Þorbjörn Sigurgeirsson, framkvæmdarstjóri Rann- sóknarráðs rikisins. Eru þeir (Framhdld á 7. síðu.) vallarhótelinu, en á eftir fóru gestirnir í ökuferð um nágrcnni flugvallarins. Ljm.,P. Th. Niðurstöður óknnar enn. Islendingar fá 2,1 miljón dollora Ef nahagssamvinnust j órn- in 1 Washington hefir nýlega ákveðið að veita íslandi 2. 100.000 dollara, sem jafngilda 34.272.000 krónum. Hefir ísland þar með feng- Ið úthlutað af efnahagssam- vinnustjórninni 7 milljónum doiiara fyrir árið 1949—’50, en samtals nema framlögin 15.3 milljónum dollara frá byrjun Marshall-áætlunar- innar. — 3. maí 1950. Afli glæðist hjá togurum á Kant- inum Eftir fregnum í gær að dæma er kominn ágætur afli hjá togurum á kantinum við Jökuldjúpið. Togarar hér í Reykjavik, sem ætlað var að setja í slipp, eru sumir að hætta við það og hverfa aft- ur á veiðar. Höfðu sumir þeirra kvatt skipshafnir sín- ar um borð í gærkvöldi til að búast á veiðar. Hvassafell afferm- ír salt við Eyjaf jörð. Hvassafell er komið til Ak- j ureyrar úr för frá Ítalíu og j Spáni. Hefir það meðferðis saltfarm til hafna við Eyja- fjcrð, og hófst saltsins í gær. j Skemmtisam- j I koma F.U.F. í | jjj f - i Arnessýslu j I Félag ungra Framsókn- I | ar manna í Árnessýslu i | heldur skemmtisamkomu í I i Tryggvaskála að Selfossi ? 1 næsta laugardag kl. 9 síðd. \ \ Jafnframt því sem þetta i | er almenn skemmtisam- | I \ koma ungra Framsóknar- ; | manna í Árnessýslu, er i i það kveðjuskemmtun mál = I fundanámskeiðsins, sem i \ starfað hefir á vegum fé- \ \ lagsins á Selfossi í vetur \ j j með miklum dugnaði og l j glæsileik. f Samkoman hefst með j j því, að Þorsteinn Eiríks- i j son skólastjóri flytur á- | | varp. Síðan verður spiluð j j Framsóknarvist. Menn eru | i beðnir að hafa með sér j I spil. Eitt skemmtiatriði er j I enn aðeins spurningar- j j merki. j Ungir Framsóknarmcnn | j í Árnessýslu, f jölmennið á j j þessa samkomu og endið i 'I hið myndarlega vetrar- i j starf með f jölsóttri og i [ glæsilegri samkomu. Skotfélag Reykjavikiir. Framhaltísaðalfundur fyr- irhugaðs Skotíélags Revkja- I víkur verður haldinn í Tjarn- uppskipun 1 arkaffi í kvöld, og heíst kl. látta. Sumarveður norð- anlands í gær ! ,.Nú virðist sumarið vera komið til okkar,“ sagði frétta ritari Timans á Akureyri í símtali i gærkvöldi. í dag liefir verið dásamlegt veður, en það er raunar fyrsti góð- J viðrisdagurinn um alllangt (skeið. Undanfarið hefir snjó- ;að nokkuð á Norðurlandi, og j voru menn hræddir um að | vorharðindakafli væri í garð j genginn. Vonandi verður hann ekki lengri. Útför Guðjóns Samúelssonar Prófessor Guðjón Samúels- son, húsameistari ríkisins, sem lézt fyrir nokkrum dög- um, var borinn til grafar frá Hallgrimskirkju í gær. At- hcfnin var öll mjög látlaus, en mjög hátiðleg. Biskupinn ytir íslandi, herra Sigurgeir Sigurðsson, flutti húskveðju í heimahúsum og bæn i kirkju. Þakkaði hann þar ih. a. hinn-rnikla skerf, sem hinn látni hefði lagt til þess, að ís- lenzka þjóðin eignaðist veg- leg hús fyrir trúariðkanir sin ar. Páll ísólfsson og Þórarinn Guðmundsson léku í kirkj- unni og karlakór söng. For- stjórar ríkisstofnana báru kistuna í kirkju, en frímúr- arar úr kirkju. Húsameistar- ar og byggingameistarar baru kistuna í kirkjugarð. — Sséra Sigurbjörn Einarsson jarðscng. Athöfninni var út- vurpað. Áður en hægt er að sjá til fulls niðurstöður mæling- anna verða að fara fram vissar hæðamælingar og síð- an reikningsleg úrvinnsla, sem hér verður unnið að i sumar. En af mælingunum er þó þegar hægt að sjá aö það væri mikill fengur fyrir frek- ari rannsóknir á undirgrunni landsins, að slíkt tæki sem þetta væri til hér á landi, svo að unnt yrði að færa út mælingarnar yfir aðra lands- hluta. Hafa að undanförnu verið í gangi tilraunir til að afla sliks áhalds, og ættu þessar mælingar að vera hvöt til þess að tækisins yrði a^l- að sem fyrst. Þyngdarlögmálið breytilegt. Þyngdaraflið er örlítið breytilegt frá einum stað til annars og fer eftir byggingu 'jarðskorpunnar á hverjum stað. Mælingar á þyngdar- afli eru því mjög víða fram- kvæmdar erlendis bæði í sam bandi við olíuleit og málm- leit, og yfirleitt til að fá upp lýsingar um ýms atriði í bygg ingu undirgrunnsins. íslenzk um jarðeðlisfræöingum hefir lengi leikið hugur á að geta ráðist i slíkar mælingar hér, Aðalfundur K.E.A. hefst í dag . Aðalfundur Kaupfélags Ey- firðinga hefst á Akureyri í dag og stendur hann 2 daga. Á honum eiga sæti 178 full- trúar frá 24 félagsdeildum. Blaðið mun skýra nánar frá fundinum á morgun. Karfavinnsla hefst í Krossancsi. Eins og fyrr hefir verið frá sagt fóru Akureyrar togarar fyrir nokkru á karfaveiðar, og átti að bræða veiðina í Krossanesverksmiðjunni. — Nú mun bræðsla hefjast í verksmiðjunni eftir tvo daga, og eru nú komnir tveir skipsfarmar til vinnslu. Afli togaranna hefir verið sæmi- legur. Árni G. Eggertsson og frú koma í boði Eimskips í næstu viku Seint í næstu viku kemur hingað til lands Árni G. Eggertsson lögmaður frá Winnipeg, ásamt konu sinni, Maju, og dóttur þeirra hjóna. Þau hjón koma hingað til lands í boði Eimskipafélags íslands sem fulltrúar vest- ur-islenzkra hluthafa í til- efni af smíði Gullfoss hins nýja. Munu þau siðan fara með skipinu til meginlands Evrópu. Ásmundur P. Jóhannsson, byggingameistari og frú hans voru einnig boðin, en þau gátu ekki þegið boðið sökum heilsubrests Ásmundar, sem þó mun mjög nauðugt að hafna þessu heimboði og glata jafnframt tækifæri til þess að sjá enn einu sinni ættland sitt og æskuslóðir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.