Tíminn - 04.05.1950, Blaðsíða 2
2
TÍMINN, fimmtudaginn 4. maí 1950
96. blaö
| Qfá kafi tii keifa
í nótt:
Næturlæknír er í læknavarðstof-
vnni, s tr.i 5030.
Næturvjrður er í Lyfjabúðinni
IJunn, s'mi 7911. .
Næturakstur annast Hreyfill,
sítr.i G5J3.
ÚNarp/ð
('tv-T-niA ■ iiag:
(Fasíir li'ir eins og venjulega.)
19.30 Þingfréttir. — Tónleikar.
20.25 Ðagfkrá listamannaþingsins:
1) Tónlt.krr: Þrjú lög fyrir fiðiu
og píani eítir Helga Pálsson
(Björn viafrson og Árni Kristjáns
son leikr). 2) 20.40 Erindi: Fáein
orð um li-.tdsns (frú Sif Þórz).
3) 20.55 Upplestur skálda, rithöf-
unda cg lcikara. 4) 21.30 Sönglög
eftir Árssl Snorrason (Guðrún
tors.cinr-ó-tir syngur). 5) 21.40
L'pplest. r. • 22.10 Dagskrá lista-
nianri'þlnsrins: ísl. tónleikar
(plStur).
Hvar eru s/czp/a?
Rikisskip.
Hekla fór frá Reykjavík kl. 21
í gætkvöldi vectur um land til Ak-
ureyrar. Esja' er á leið frá Aust-
fj'rðum iii Aku: eyrar. Herðubreið
v.-.r á Bakkifirði í gærmorgun.
SUjaldbrsiJ fer frá Reykjavík ki.
12 á hádegi í dag tii Snæfellsnes-
hufná, Gl.fjarðar og Flateyjar.
Þyrili var í Hvalflrði í gær.
S I.S. — Skipadeild.
Arnirfell cr væntanlegt til Or-
an á föstudag. Hvassafell er á Ak-
ureyri.
Eimskip
Brúar.oss fór frá Kaupmanna-
hc.fn í gær tií Gautaborgar. Detti-
foss er i Reykjavík. Fjallfoss er
i Halifax. Goðafoss er i Hull, fer
þaðan U1 Rottardam og Antwerp-
en. Lagarfcss er í Reykjavík. Sel-
íoss er í Reykjavík, fer i kvöld
vestur og norður. Tröllafoss er í
Reykjav.k. Vatnajökull er á Spáni.
Dido væntamegur til Reykjavík-
ur í gær.
B/öð og tímarit
Læknabladið
34. árg. 9.—10. tbl., gefið út af
Læknafélagi Reykjavíkur, er 30
bis. að stxið og er efni þess: Um
líkamshæð íslendinga og orsakir
til breytinga á henni, eftír Jón
Steffensen. Meðfædd blinda og
aðrar van'kapanir af völdum
rauðra hunda, eítir Kristján
Sveinsson. Greinar úr erlendum
læknar.tum.
Úr ýmsum áttum
Aíhugasemd.
Vegna £re;n;.r í blaðinu 27. apríl
s.l. um starfserri Búnaðarsam-
b.?nds Kjalarnesþings vill búfjár-
ræktarráðumutur sambandsins
láta þcss gsti5, að reksturskostnað
ur sá, tem blaðið getur um að
verði v.ð væntan ega tæknifrjóvg-
unarstöö sainbanieins (107 þús.
kr.), er mióacur vð íyrsta starfs-
ár stöðvarinnar. Eftir að starfsemi
stcðvar.nnar hefir náð hámarki,
Sturlu cg Beníný. Þriðja umferð
ætiaður 150 i-ú . kr. miðað við
núverandi verðijg.
Minníngarsjódur ÖIúu Möller.
Mun.ð minningarcjóð Öldu Möll-
er leikko.au. Tek ð á móti fram-
lögum i sjólinn á söfnuaariista á
skrifstofu blaðsias.
Menn'n^ar- og rn.nnfngar-
sjóður kvenna
hefir opna skrlístofu á Skál-
holtsstíg 7, alla fimmtudaga kl.
Vorið er komið og vortízkan aðal
umræðuefni hins veikara kyns. Af
mörgum fallegum sköpunarverkum
tízkumeistaranna er þessi hvíta
blússa, sem unnið hefir aðdáun
allra. Á daginn má nota við hana
fellt pils og jakka, en á kvöldin má
nota hvítt silkipils.
4—6. Sjóðurinn heíir úthlutað
48.750 þúsund kr. í námsstyrki og
vinnur alhliða að aukinni mennt-
un kvenna.
Landsliðskeppnin.
Önnur umferð í skákkeppninni
var tefld í Þórskaffi í fyrrakvöld
og fóru leikar þannig: Baldur
vann Hjálmar Tehódórsson. Jafn-
tefii gerðu þeir Bjarni og Ásmund
ur og Jón og Lárus. Biðskákir
urðu hjá Margeir og Guðmundi
Ágústssyni, Guðjóni M. og Gilfer,
Sturlu og Benóný. Þri.ja umferð
var tefld í gærkvöldi.
Sykurskammtur í maí.
Vegna fkemmda á sykurfarmin-
um, sem kom hingað til landsins
fyrir skemmstu, er aðeins heim-
ilt að afgreiða sykur út á sykur-
reitina nr. 14, 15 og 16, ásamt nr.
11, 12 og 13, sem voru í gildi í
síðasta mánuði. Reitir nr. 17, 18
og 19 eru því ekki í gildi í þessum
mánuði.
Garðar og lóðir hreinsaðar.
Nú er tími til kominn að fara
að hreinsa burt rusl. sem safnazt
hefir í húsagörðum yfir veturinn
og legið undir snjó eða á kafi í
for. Tilkynning til húseigenda í
Reykjavik um að hafa lokið hreins
un fyrir 15. þ. m. er því tímabær.
Sumrinu er ekki betur fagnað
en með því að hafa bæinn hrein-
an og snyrtilegan eins og bezt er
á kosið. Því miður er svo háttað
um Reykjavík, að erfitt er að laga
til, svo sambærilegt sé við borgir
á Norðurlöndum, nema þá í ein-
staka hverfum.
í nýju hverfunum eru víða komn
ir snyrtilegir garðar, sem að jafn-
aði eru vel hirtir, og eru þeir til
heiðurs húseigendum og ánægju
þeim, er um götuna ganga.
Tvaer plágur.
(Framhald af 8. síðuj.
vatni þótt allmikið sé veitt
af þeim.
Fátt er svo með öllu illt . . .
En fátt er svo með öllu illt,
að ekki fylgi nokkuð gott, og
má það ef til vill segja um
minkinn, þótt skaðræðisvarg
ur sé. í Laugardalnum var
orðið mikið um rottu. Hafði
hún flutzt þangað með vör-
um í sambandi við hinar
miklu byggingarframkvæmd-
ir þar, og breiddist hún ört
út við hin góðu líffskilyrði.
Nú hefir minkurinn ráðizt á
rottuna og hefir hún minnk-
að að mun síðan hann kom.
En minkurinn er mikill vá-
gestur, hann er landplága, og
ég tel hann og mæðiveikina
verstu plágur landbúnaðarins
síðustu áratugina, og ég get
ekki með vissu sagt um það,
hvor muni vera verri, segir
Páll að iokum.
Ársþing iðnrekenda 1950.
Framhaldsaðalfundur
Félags íslenzkra iðnrekenda
hefst í dag kl. 3,30 í Tjarnarcafé.
Dagskrá: Iðnaðurinn og framtíðarstörf félagsins.
Atkvæðagreiðsla um tillögur. Nefndarálit.
Að fundarstörfum loknum, kl. 6,30, verður sameigin-
legur kvöldverður í Tjarnarcafé. Verður þá sýnd kvik-
mynd Vigfúsar Sigurgeirssonar frá iönaðardeild
Reykj avíkursýningarinnar.
Stjórn Félags íslenzkra iðnrekenda.
i
f
I
♦
♦
♦
;
ornum uec^i -
Skrúðgarðar og trjálundir
Maímánuður er byrjaður, og
væntanlega verður þess ekki langt
að bíða, að vorið rétti okkur hönd-
ina alla. Grænu nálarnar, sem eru
að burðast við að gægjast upp
úr moldinni, þrútna og gerast upp-
iitsdjarfari, því að sumarið fer í
hönd.
Vorið er tími mikilla og marg-
víslegra anna í byggðum landsins.
Víða eru til verka færri hendur en
skyldi, en margt, er að kallar. En
þrátt fyrir allt annríki við það,
sem ekki er unnt að vanrækja eða
slá á frest, langar mig til þess að
minna á eitt, sem stundum hefir
áður verið vikið að í þessum pistl-
um: Hefirðu ræktað skógarlund
við bæinn þinn?
Allir, sem ferðazt haía um byggð
ir landsins, vita, að í sumum sveit-
um eru skrúðgarðar eða skógar-
lundir við hvern bæ. Þar hefir lif-
að og starfað fólk, sem fann og
skildi gildi fagurs gróðurs við heim
ili sitt og hrifið aðra með sér. í
öðrum byggðarlögum sést hvergi
hrísla í skjóli við bæjarvegg. Flest
um mun finnast þar stórum kulda
legra heim til bæjar að líta, jafn-
vel_ þótt myndarbragur sé á öllu,
húsum og ræktun.
Skrúðgarður kostar ekki mikið
fé, en samt nokkurt. En skrúð-
garður kostar talsverða fyrirhöfn.
Og fyrst og fremst kostar skrúð-
garður vakandi umhyggju, ár frá
ári. Hann þarfnast hlúandi hand-
ar, verndar og vö-ízlu. En þá
munu líka fljótt teygjast laufgað-
ar greinar frá jörðu. og áður en
langt líður lykjast saman fagrar
krónur trjánna.
Bændur landsins og húsfreyjur
hafa í mörg horn að líta. En væri
samt ekki kleift að leggja í vor
grunninn að skrúðgarði, sem verða
mun til yndis og fegurðarauka um
mörg ókomin ár?
J. H.
AAatthías Sigfússon
opnar
Málverkasýningu
í Listamannaskálanum í dag kl. 2 eftir hádegi. Sýn-
ingin verður opin daglega frá kl. 11—23.
KAUPMENN - KAUPFÉLDG
Höfum ávallt fyrirliggjandi til afgreiðslu 1. flokks
gúmmískó. — Tryggið yður góða vöru. — Hringið í síma
80 300,
GÚMMÍIÐJAN
Grettisgötu 18, sími 80 300.
i
LISTAMANNAÞING 195G
FUNDUR
í II. kennslustofu Háskólans
á morgun, föstudagi, kl. 17. Umræðuefni:
1. Höfundalöggjöfin. Frummælandi Einar Ás-
mundsson hrm.
2. Önnur mál.
Góð bújörð
Jörðin Oddagarðar í Stokseyrarhreppi fæst til kaups
og ábúðar í næstu fardögum.
Á jörðinni er nýbygt steinhús, hlaða fyrir ca. 500
hestburði. fjós fyrir 10 kýr, tún og engjar að mestu
véltækt. Jörðin er 2y2 kilómetra frá Gaulverjarbæjar
vegi.
Allar nánir upplýsingar gefa ábúandi jarðarinnar
Guðrún Guðmundsdóttir og Árni Tómasson á Stokks
eyri.
Frestið ekki lengur, að gerast
áskrifendur TÍMANS