Tíminn - 13.06.1950, Blaðsíða 6

Tíminn - 13.06.1950, Blaðsíða 6
6 TÍMINN, þriðjudaginli 13. júní 1950' 126. blað TJARNARBID Glitra daggii% grser fold Heimsfræg sænsk mynd N Ý J A B í □ ÍKonur daemdra I manna Athyglisverð og spennandi! amerísk mynd. Aðalhlutverk: Linda Darnell Michael Ouana Bönnuð börnum innan 16 ára Sýnd kl. 9. Carnival í Corsía Rica Hin bráðskemmtilega og fagra litmynd með: Dick Haynes - Vera Ellen -* Cesar Romero Sýnd kl. 5 og 7. Sala hefst kl. 11 f. h. TRIPDLI-BÍÚ Kósakka- foringinn Afar spennandi frönsk stór- mynd tekin úr lífi kósakkanna á sléttum Rússlands. Aðalhlutverk: Harry Daur Jean-Pierre Aumont Daniello Darrieux Sýnd kl. 5. 7 og 9. Síðasta sinn. Bönnuð börnum G-menn að verki MjÖg spennandi amerisk saka málamynd, byggð á sakamála- skáldsögunni „Gangs of New York“. — Danskur texti. Aðalhlutverk: Charles Bickford Ann Dvorak. Bönnuð börnum innan 16 ára. Sýnd kl. 7 og 9. Silfur í syndahæli Sýnd kl. 5. ‘ » n— i ■■■ n — f ii — o — O —1»—1 * í sts }j ÞJÓDLEIKHÚSID í dag kl. 8 BRtÐKAUP FIGAROS Frumsýning. U p p s e 11. ★ Á morgun kl. 8. BRÚÐKAUP FIGAROS UPPSELT ★ Fimmtud. kl. 8 BRÚÐKAUP FIGAROS UPPSELT ★ Aðgöngumiðar að 5. sýn- ingu á óperunni „BRÚÐKAUP FIGAROS“ 16. júní, seldir í dag frá kl. 13,15—20. Sími 80 000. Erlent yfirlit (Framhald af 3. stðu.) Duff studdi Taft til forsetakjörs 1948 og Taft er leiðtogi hægri manna í flokknum. Duff er samt sem áður talinn vera vinstri mað- TAFT HEFIR NÚ fengið keppi- naut sem forsetaefni flokksins þar sem er Mc Carthy, sem kaþólskir menn styðja. Stassen, sem er glöggur stjórnmáiamaður hefir séð það fyrir að hann geti aldrei orð ið forseti Bandaríkjanna með því að eiga heima í Minnesota. Hann heflr því flutt sig búferlum til Pennsylvaníu og er nú forstöðu- maður háskólans þar. En eins og menn vita, er Stassen kunnasti Snabbi Sérlega fjörug og hlægileg gamanmynd se mhjá öllum mun vekja hressandi og innilegan hlátur. Aðalhlutverkið Snabba hinn slóttuga leikur RELLYS ásamt Jean Tissier Jossette Daydé Sýnd kl. 5. 7 og 9. Blml um. nitler «j»’ Eva Rrann er vegna áskorana sýnd í dag kl. 5, 7 og 9. Siðar verður myndin send út. Bönnuð börnum innan 12 ára. Aðeins þetta eina sinn. BÆJARBÍÓ HAFNARFIRÐI „Rapsoily in blue44 Stórfengleg ný amerísk söngva og músikmynd er fjallar um ævi eins vinsælasta tónskálds Ameríku, George Gershwin. Aðalhlutverk: Robert Alda Joan Leslie Alexis Smith Sýnd kí. 9 Fuglaborgin Sýnd kl. 7. Sími 9184. GAMLA F3ÍÚ Mikið gcngur mi á Skemmtileg ensk kvikmynd gerð samkvæmt frægum gam- anleik eftir Bruno Frank og James Bridie. 1 Aðalhlutverk leika hinir vin- sælu leikarar Vivien Leigh Rex Harrison Sýnd kl. 5. 7 og 9. Sala hefst kl. 11 f. h. andstöðumaður flokksforustunnar 1 liði republika. Stassen hefir ástæðu til að vera ánægður með sigur þann, sem Duff hefir unnið, enda þótt hann styddi Taft 1948. DDuff hefir náð Pennsyl- vaníu allt í einu ur höndum flokks forustunnar. Hvaða áhrif sem þetta kann að hafa á forsetakosningarn ar 1952 hefir Dewey tapað þarna. Og Duff var fyrst og fremst á móti honum. Hann vildi kjósa Vanden- berg en snerist svo til fylgis við Taft af því að Stassen var vonlaus. Annars eru þeir Taft og Vanden- berg svo miklir andstæðingar sem verið getur í utanríkismálum. FRAMBJÓÐANDAVAL til öld- ungadeildarkosninga í Pensylvaníu þykir ef til vill ekki neitt stórmál fyrir norðurálfumenn. Þó er það raunverulega á þessum vettvangi, sem úr því er skorið, hvort Banda- rikin halda áfram stuðningi við Evrópuþjóðir, eftir að Marshall- tímanum er lokið. Þessar kosning- ar í Pennsylvaniú voru ósigur fyr- ir einangrunarsinna og tollmúra- menn. En Duff hefir ekki ennþá verið kosinn öldungadeildarmaður. Demo kratar í Pennsylvaníu hafa skemmt sér vel við þessar deilur 1 flokki republika. Keppinautur Duffs verð- ur öldungadeildarmaðurinn Myess. Hann hefir með sér verkalýðssam- tökin í Pittsburg. Og annar fylg- ismaður Trumans er í kjöri á móti Fine, Dilwarth frá Fíladelfíu. Hann vakti mikla athygli við kosning- arnar í Jiaust með því að sigra republika í þeirra sterkasta vígi Fíladelfiu. Republikar töldu sér þar á skrá 725 þúsund kjósendur en demókratar 300 þúsund. Samt fékk Dilwarth 100 þúsund atkvæða meiri hluta. En hvernig sem kosningarnar í Pennsylvaníu kunna að fara í haust mega þjóðir Vestur-Evrópu una vel við hvernig nú horfir í þessum málum. 'UtbreiiiÍ Tíntanif JOHN KNITTEL: FRÚIN Á GAMMSSTÖÐUIVI ---------------- 3D. DAGUR ------------------------ luddist inn til kúnna. Blótsyrði hrutu af vörum mannanna, sem stympuðust við hann, hnefar voru redidir á loft og skammirnar heyrðust langar leiðir. En of seint. Slysið var orðið. Belgur var viðbragðshraður. Og nú vagaði hann af frjálsum vilja á sinn bás. Fáeinir stórir og þungir dropar féllu á þakið. — Nú kemur það! Öll útsýn var skyndilega byrgð. Kolsvartur mökkurinn lagðist yfir allt, og ógurlegar drunur kváðu við í öllum áttum. Hún gekk að dyrúnum og snaraðist út í fárviðrið. Allir störðu agndofa á eftir henni. Lénharður gerði sig líklegan til þess að elta hana. Hann horfði litla stund á eftir henni, sneri svo við, steypti yfir sig stakki og gaut augurium reiði- lega til hins fólksins, sem glápti aulalega hvað á annaö. — Nú fer ég niður í dal og tala við húsbóndann, sagði Lénharður. Svo hvarf hann út í myrkrið og hljóp hratt niður brekk- una, i sömu átt og Teresa. Hann kallaði á hana með nafni, en köll hans drukknuöu í veðurgnýnum. Hann sá undir eins, að hann myndi ekki finna hana, nema hún hefði fylgt slóðanum, sem lá niður að Gammsstöðum. Stór haglkorn buldu á hattinum hans og lömdust í andlitið á honum. Loftið var þrungið megnri brunalykt, stormurinn öskraði í fjallaskörðunum og skýin lömdust um gnúpana með ógurlegum dyn. En Lénharður var sonur fjallabyggðarinnar og vanur vondum veðrum. Hann skálmaði ósmeykur niður brekkuna, og innan skamms var hann kominn niður í skóginn. Það hvein og brakaði*í trjánum kringum hann, en það, sem rak hann áfram, var máttugra en eldingarnar, sem kvistuðu trén, eins og þau væru sprek. Það var máttugra en kolmórauðir fjallalækirnir, sem steyptust niður hliðina með straumkasti og fossaföllum. Seint um nóttina sá hann ljósin í Gamms- þorpi í gegnum rigninguna, og loks náði hann Gamms- stöðum. Hann vakti húsbónda sinn og sagði honum for- málalaust, hvað gerzt hafði, og hvað hitt fólkið hafði sakað Teresu um. Anton Möller varð ofsareiður. Allir höfðu vitað eitt og annað um Teresu, en enginn hafði sagt honum neitt. Hann lét sækja Röthlisberger. — Hvers vegna hefir þú ekki sagt mér þetta? — Við héldum, að þér væri kunnugt um það. — Já, einmitt! Þið héldúð það! — Við áttum ekki að skipta okkur af því. — Þarna heyrir maður! Já, einmitt! — Og við vissurn ekki heldur, hvort það væri satt. — Hvort það væri satt? — Já. Allt, sem sagt er um stúlkuna frá Valais. Anton Möller missti alla stjórn á sér. Hann varð svo reið- ur, að bæði þrumaði og hegldi yfir Röthlisberger og Lén- harð. Hann jós yfir þá skömmum og bar þá öllum hinum verstu sökum. Loks yfirheyrði hann þá. Hvað vissu þeir um Teresu? Þeir vissu fátt með sannindum, en þeir höfðu heyrt sitt af hverju. Einn hafði sagt þetta og annar hitt, og það tíunduðu þeir allt. En hverjir höfðu sagt þeim þetta? Það töluðu allir um þetta. Þeir gátu ekki bent á neinn sérstakan frumkvöðul þessa orðróms. Hverjir væru þessir allir? Ja.... fólkið hérna í þorpinu. — Ekki nema það þó! Fólkið i þorpinu! Og mér einum er ekkert sagt. Dokið þið við, piltar. Reiðin var heldur tekin að sefast, en samt starði hann enn ógnþrungnu augnaráði á þá. — Hvar er hún sjálf? spurði hann allt í einu. Lénharður endurtók það, sem hann hafði þegar sagt um brottför hennar úr selinu. — Það er með öðrum orðum Fritz Mahder og kona hans og þau hin, sem eiga sök á þessu. Þá veit maður það! Hver hefir veitt þeim heimild til þess að reka á dyr nokkra manneskju, sem er í minni þjónustu og á mínu framfæri? Þessu líka hyski! Ekki vantar hjátrúna, þó að það þykist vera guðhrætt. Hlaupið þið undir eins af stað eins og fæt-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.