Tíminn - 28.06.1950, Page 1

Tíminn - 28.06.1950, Page 1
Ritstjóri: | | Þórarinn Þórarinsson | Fréttaritstj&ri: Jón Helgason Útgefandi: | Framsóknarflokkurtnn | aMnfHiiiiiiiiiiiiiiiniiiimiiiiHimiiiiiimiiiiiuiiuii | Skrifstofur i Edduhúsinu § Fréttasimar: 81302 og 81303 AfgreiOslusími 2323 Auglýsingasími 81300 Prentsmiöjan Edda IHIHHIIIIHIIIIimillllllHllllimilHIIHHIHHHHHHIir 34. árg. Reykjavík, miðvikudaginn 28. júní 1950. 138 blað Bandaríkjamenn skipa flugher sín- um og flota aö styðja Suður-Kóreu Soí.ja einnig öflnga flotadeild til varnar Formosu, auka Iirrsíyrk á Filippseyjum og veita Frökkum meiri stuðning í Indó-Kína Síðdegis í gær birti Truman Bandaríkjaforseti yfirlýs- ingu þess efnis, að hann hefði skipað flugher og flota Bandaríkjanna að fara þegar til liðs við stjórn lýðveldisins í Suður-Kóreu. Einnig hefði hann skipað svo fyrir, að 7. flotadeild Bandaríkjanna tæki sér stöðu við Formosa og verji hana gegn hugsanlegri árás frá meginlandinu. — Her- sveitir Suður-Kóreu hafa nú hrakið her Norður-Kóreu nokk- uð aftur og var aðalvíglínan í gærkvöldi 15—25 km. norð- an við Seoul. Yfirlýsing Trumans. Truman Bandaríkjaforseti hélt fund eftir hádegi í gær í Hvíta húsinu með yfir- mönnum hersins, ráðherrum og leiðtogum þingflokkanna. Að þeim fundi loknum gaf hann út yfirlýsingu sína, og er aðalefni hennar á þessa ieiö: „Öryggisráð S. Þ hefir skip að her Norður-Kóreu að hverfa tafarlaust norður fyr- ir 38. breiddargráðu. Þetta hefir ekki verið gert. Þessu hefir ekki verið hlýtt. Örygg- isráðið hefir einnig heitið á liðsinni allra þjóða i S. Þ. að veita aðstoð sína til þess að binda endi á vopnaviðskiptin. Aí þessum sökum hefi ég skip að flugher og flota Banda- ríkjanna að veita stjórn S - Kóreu alla aðstoð. Árásin á Suður-Kóreu tek- ur af ailan efa um það, að kommúnistar ætla nú ekki að láta nægja lengur fyrri að- ferðir í yfirgangi sínum við hinar óháðu þjóðir, heldur ætlar að beita vopnaðri árás og stríði. Vegna þess, að innrás kommúnista á Formosa væri bein ógnun við öryggi Kyrra- hafslandanna og Bandaríkin, krefjast kringumstæðurnar sérstakra aðgerða á þessu svíði. Þess vegna hef ég skip að 7. flotadeild Bandaríkj- anna að taka sér stcðu við Formosa og verja eyna hverri árás. Eg hef einnig mælzt til þess við stjórnina á Formos, að hún hætti öllum árásum j lofti og á sjó á meginlandið. Eg hef einnig mælt svo fyr ir, að herstyrkur Bandaríkj- anna á Filippseyjum verði aukinn og stjórn Fílippseyja veitt meiri hernaðarhjálp. Samtímis hef ég gert ráðstaf- anir til þess, að franska hern um í Indó-Kina verði veitt meiri hjálp, og sérstök hern- aðarnefnd verður send þang- að til að skipuieggja varnir. Eg hef falið Austin, fuhtrúa Bandaríkjanna i öryggisráð- inu, að skýra frá þessu síðasta skrefi Bandarikjanna." Þessi yfirlýsing var sam- tímis í gær send öllum þjóð- um í S. Þ. Stefnubreyting. Talið er að Bandaríkin hafi með þessum síðustu aðgerð- um breytt nokkuð um stefnu í utanríkismáium og séu á- kveðin i því að berjast til þrautar gegn frekari land- vinningum Rússa í Asíu. Þau munu þó ekki senda land- her til Kóreu, nema það reyn ist flugher og flota ofurefli að hrekja hersveitir kommún ista norður fyrir 38. breidd- argráðu. Engin aukin her- kvaðning hefir átt sér stað í Bandaríkjunum sjálfum. Tillaga í öryggisráðinu. Á fundi öryggisráðsins í gær kvöldi fluttu Bandaríkin til- lögu þess efnis, að ráðið skor aði á öll ríki í S. Þ. að veita hverja þá aðstoð er þau mega I til að stöðva bardagana í Kór eu. Attlee forsætisráðherra Breta lýsti því yfir i gær- kvöldi, að brezka stjórnin mundi styðja þessa tillögu Bandarikjanna. Her Norður-Kóreu hörfar. í fyrrakvöld voru hersveitir Norður-Kóreu komnar aiveg að Seoul og jafnvel talið, að þær væru komnar suður fyr- ir borgina. Það reyndist þó ekki svo, nema einstaka skrið drekasveit, sem var einangr- eru þau í vernd bandarískra fhigvéla og herskipa. Meðai þeirra er eitt norskt skip með 600 erlenda menn. Stjórnin kyrr í Seoul. Stjórn Suður-Kóreu hefir alitaf haldi kyrru fyrir í Seoul, þrátt fyrir miklar or- ustu rétt utan við borgina. (Framhald á 2. síðu.) Síðustu fréttir Mc.Arthur, hernámsstjóri í Japan tilkynnti í gærkveldi, að flugvélar og herskip Banda ríkjanna hefðu þegar hafið hernaðaraðgerðir í Kóreu óg við strendur skagans. Þegar fundur cryggisráðs- ins hófst í gærkveldi mætti fulltrúi Rússa ekki til fundar. Franska stjórnin hefir til- kynnt að hún muni styðja til lögu Bandaríkjanúa í örygg- isráðinu. Engar fregnir höfðu borizt í gærkveldi um sam- þykktir ráðsins á þessum fundi. Kappleikur KFUM- Boldklub og Vals Kappreiðar Sleipnis S. 1. laugardag hélt hesta- mannafélagið Sleipnir í Ár- nessýslu kappreiðar að Sel- fossi. 23 hestar voru reyndir Talsverður stormur var og myndi betri árangur hafa naðst ef veðrið hefði verið betra. SkeSð. Úrslit urðu þessi: Á skeiði 250 m. varð fyrstur Fengur á 26.4 sek., eigandi Sigurberg- 'ur Runólfsson, Reykjavik. Annar varð Blesi á 28,3 sek., eigandi Sigurbjartur Guð- mundsson, Reykjavík. AIls kepptu 7 hestar í skeiði en allir aðrir hlupu upp en þess- ir tveir. Stökk. Úrslit 300 m. stökki: Fyrst- ur varð Hjáhnur 22,7 sek., eigandi Gísli Brynjólfsson, Haugi, Árnessýslu. Annar (varð Glaður á 24,3, eigandi 1 Magnús Hannesson, Hvera- , gerði. Þriðji varð Glói á 24.7 eigandi Steinn Einarsson, Eyrarbakka. Folahlaup. Folar. sex vetra og yngri í 250 m. stökki. — Fyrstur varð Trausti á 19,2, eigandi Bjarni Ársælsson frá Bakkakoti, Rangárvöllum.’ Annar varð Máni á 20,4 sek.. eigandi GisH’ Brynjólfsson, þriðja Gola á 20,8, eigandi Einar Guðmunds son, Túni, Árnessýslu. Auk þess var haldin gæða- keppni og var, keppt um skjöld útskorinn eftir Rikarð Jónsson. í gæðakeppninni sigraði Blakkur Gísla Bjarna sonar frá Selfossi. Togaraverkfall yfirvofandi Verkfall á togurunum er nú yfirvofandi og mun það hefjast á laugardaginn, ef ekki nást sættir áður. Sjómannaféljög þau, er ná til togaramanna, sögðu fyrir nokkru upp samn- ingum sínum frá 1. júlí að telja, og eru ekki komn- ir á nýir samningar. Samn ingaumieitanir hófust fyr- ir síðustu helgi, en ekki varð samkomulag um ann að en lelta til sáttasemj- ara ríkisins. uð og tekin. I gærmorgun hóf I her Suður-Kóreu gagnsókn I og í gærkveld var aðalvíglin- • an ná nær 200 km. breiðu I svæði um 20 km. norðan við borgina. Loftorustur. Allmiklar loftorustur hafa átt sér stað, og hafa Suður- Kóreumenn skotið niður 3 flugvélar af rússneskri gerð. Bandarískar flugvélar skutu einnig niður 4 rússneskar fhigvélar, er þær reyndu að tefja flutninga á bandarisk- um borgurum til Japan flug- leiðis. Einnig hafa nokkur skip lagt af stað frá Kóreu tll Japan með útlendinga og Góður gestur á ferð C. O. P. Christiansen, skóla stjóri í Friðriksborg og áður kennari í Askov, er kominn hingað til lands í stutta heim sókn. Dvelur hann á heimili Friðriks Ásmundssonar Brekk an og komi hans að Selja- vegi 29. Mun hann taka þar á móti gömlum nemendum og vinum í kvöld kl. hálf-níu. IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIHIIIIIIIII*l*llll*llll*llllHIIHHIHl ~ ~ i Samkoma Fram-1 1 sóknarmanna I I í Vík | | Næsta laugardag, 1. júlí, 1 | halda Framsóknarmenn í | I Vestur-Skaftafellssýslu 1 | samkomu í Vík í Mýrdal. | 1 Þar flytur Hermann Jón- | I asson, landbúnaðarráð- | | herra, og Jón Gíslason, al- | \ þingismaður, ræður. Einn- | 1 ig mun hinn kunni og vin- | | sæli söngvari, Guðmundur | | Jónsson, syngja. Að lokum 1 | verður dansað. | Skaftfellingar, f jölmenn I I ið á þessa samkomu og I ! gerið hana glæsilega og á- | [ næg'julega. I Dönsku K.F.U.M. knatt- spyrnumennirnir koma hing- að flugleiðis klukkan fimm í dag. Fyrsti leikur milli ís- lendinga og Dananna fer svo fram í kvöld og leika þeir við Val. Liðin eru þannig skipuðj Per Krogh, Börge Blom, Th. Thomsen, Preben De Fries, Helge Ahlen, Erik Dennung, fyrirliði, Hans P. Nielsen, Kjeld Christensen, Bent Dyhr Rich. Krlstensen, Jörgen Hilborg. I Sveinn Helgason. Ellert Sölva j son, Gunnar Gunnarsson, Halldór Halldórsson, Guð- mundur Elísson, Sigurhans Hjartarson, Einar Haildórs- son, - Gunnar Sigurjónsson, Jón Þórarinsson, Sigurður Ólafsson, fyririiði, Örn Sig- urðsson. Fiskimálaráðstefnu Norðurlanda lokið Fulltrííar lýsa vanþókntm sinni á untmæl- um biaðsins „Verdcas GsiHg“ um Íslendinga Fiskimálaráðstefnu NorSurlanda í Lysekil 1 Sviþjóð er lokið. Af íslands hálfu voru þar mættir Árni Friðriksson, fiskifræðingur, Hans G. Andersen þjóðréttarfræðngur og Davíð Ólafssen fiskimálastjóri. Davíð Óiafsson kom til ís- lands um s. 1. helgi. Samkvæmt upplýsingum frá Davið Ólafssyni sátu 100 fuUtrúar ráðstefnuna og voru flestir frá Svíþjóð, 33 talsins. Á ráðstefnunni voru m. a. rædd þessi mál: Fisk- merkmgar, ofveiðar, flot- varpan, fiskneyzla heimila, útflutningur og markaðir og (Framhald á 7. síðu.J

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.