Tíminn - 28.06.1950, Blaðsíða 8
„A FÖRMMf VECI« I DAG
Sjórinn og tómstundirnar
íslenzka landsliðið gegn Dönum
hefir verið valið
Landskeppnin í fr jálsum í)»r«»ttum við Dani
verður n. k. niánmlag og þriðjjudag
Sá íþróttaviðburður, sem beðið er með mestri eftirvænt-
ingu af íslenzkum íþróttaunnendum, verður n. k. mánu-
dags og þriðjudagskvöld, en það er landskeppnin við Dani
í frjálsum íþróttum. Þetta verður án efa mjög skemmtileg
keppni og ef að líkum lætur munu íslendingar bera sigur
úr býtum með nokkrum stigamun. Undirbúningsnefndin,
sem sér um keppnina, skýrði blaðamönnum í gær frá til-
högun landskeppninnar og ýmsu varðandi hana. Þá var
cinnig skýrt frá hverjir væru í landsliðinu.
Landsliðin verða skipuð
eftirfarandi mönnum:
100. m.
ísland; Haukur Clausen,
Hörður Haraldsson, Ásmund-
ur Bjarnason (varam.).
Danmörk: Knud Schibsbye.
200 m.
ísland: Hörður Haraldsson,
Haukur Clausen. Ásmundur
Bjarnason (varam.).
Danm.: Knud Schibs'bye,
John Jacobsen.
400. m.
ísland: Guðmundur Lárus-
son, Ásmundur Bjarnason.
Magnús Jónsson (varam.).
Danm.: Frits Floor, Fred-
lev Nielsen.
800 m.
ísland: Pétur Einarsson.
Magnús Jónsson. Eggert Sig-
urlásson (varam.).
Danm.: Gunnar Nielsen,
Eiik Jörgensen.
1500 m.
ísland: Pétur Einarsson,
Stefán Gunnarsson. Kristján
Jóhannsson (varam.).
Danm.: Erik Jörgesen, Poul
Nielsen.
5000 m.
ísland: Kristján Jóhanns-
son, Stefán Gunnarsson. Óð-
inn Árnason (varam.).
Danm.; Aage Poulsen, Rich.
Greenfort.
110 m. grind.
ísland: Örn Clausen, Hauk-
ur Clausen. Ingi Þorsteinsson
(varam.).
Danm.: Erik Nissen, Helge
Fals.
400 m. grind.
ísland: Reynir Sigurðsson,
Ingi Þorsteinsson. Traust
Eyjólfsson (varam.).
Danm.: Torben Johannes-
sen, Albert Rasmussen.
Hástökk:
ísland: Skúli Guðmunds-
son, Sigurður Friðfinnsson.
Örn Clausen (varam.)
Danm.: Erik Nissen.
Langstökk:
ísland: Torfi Bryngeirsson,
(Framhatá á 7. slOu.)
Norr. gestirnir komnir
úr Norðurlandsförinni
Amerísku nylon-baðfötin
þykja bezt nú á dögum. Kost-
ir þeirra eru taldir vera, að
þau hlaupa ekki víð vætu og
þo?‘na á örfáum mínútum. •
Stórþjófnaður
í Reykjavík
Um siðastliðna helgi var
stórþjófnaður framinn í
Reykjavík. Var farið inn um
ótryggar bakdyr að skrif-
stofum fyrirtækisins O.
Johnson & Kaaber, teknir
lyklar úr illa læstum skáp og
peningaskápur opnaður. Var
stolið þaðan sjötíu þúsund
krónum.
Rannsóknarlögreglan hafði
í fyrradag í haldi mann, sem
grunaður var um þennan
verknað, en honum hefir nú
verið sleppt, þar eð ekkert
benti til þess, við nánari
rannsókn, að hann væri að
þessu valdur eða ætti hlut-
deild í þjófnaðinum.
Húnvetnskar konur
í hópferð um
Suðurland
Kigning og dimmviðri kom í veg fyrir
^lývatn.SNvcitarför þeirra
Frá fréttaritara Tímans á Akureyri.
Norrænu samvinnufrömuðirnir komu til Akureyrar á
sunnudagskvöld og gistu á Hótel K. E. A. á mánudagsnótt.
Ekkert varð úr Mývatnssveitarferð vegna rigningar og þoku.
I»eir komu til Reykjavíkur aftur í gærkvöldi.
Með gestunum í Norður-
landsförinni voru Vilhjálm-
ur Þór forstjóri, Óli Vil-
hjálmsson, framkv.stj. Sam-
bandsins í Kaupmannahöfn
og nokkrir starfsmenn S.Í.S.
Á mánudagsmorgun fóru
gestirnir í kirkju, og ávarp-
aði séra Pétur Sigurgeirsson
gestina nokkrum orðum. Ein
ar Kristjánsson, óperusöngv-
ari söng nokkur lög við undir
ieik Jakobs Tryggvasonar.
Ætlað var að fara þann dag
til Mývatnssveitar, en veður
var slæmt, rigning og þoka,
svo að hætt var við það. Gest
irnir skoðuðu ýmis fyrirtæki
samvinnumanna á Akureyri
og síðdegis var ekið fram i
Eyjafjörð og síðan austur i
Vaglaskóg. Þar var snæddur
kvöldverður í Brúairlundi í
boði K.E.A. Stjórnaði Jakob
Frímannsson, kaupfélagsstj.,
hófinu. Margar ræður voru
fluttar og töluðu m. a. full-
trúar frá öllum Norðurlönd-
unum. Stóð hófið fram eftir
kvöldi og var síðan ekið heim
til Akureyrar í sæmilega
björtu veðri. Var falleg sýn
yfir Eyjafjörð.
f gær héldu gestirnir til
Reykjavíkur sumir með fiug-
vélum en aðrir með bifreið-
um. —
Til Reykjavíkur komu í
gærkvöldi 30 konur úr Þver-
árhreppi í V.-Húnavatnssýslu
Konurnar eru á skemmti-
ferðalagi um Suðurland og
lögðu þær af stað frá Vestur-
IIópi í gærmorgun.
Komu þær við á Hreða-
vatni og héldu þaðan til Þing
valla um Kaldadal. í dag mun
svo ferðinnl haldið áfram
austur i Árnes- og Rangár-
vallasýslu. Á fimmtudag
koma þær svo aftur til
Reykjavíkur og mun þá Hún-
vetningafélagið halda þeim
kaffisamsæti f Tjainatcafé
um kvöldið. Stjórn félagsins
væntir þess, að sem flestir
Húnvetningar mæti í samsæt
ið. —
Ritari fríkirkjusafnaðarins
í Reykjavík kærði biskup
fyrir prestastefnunni
Málinu var vísað frá, og formanni frí-
kirkjjnsafnaAarstjórnar ókunuugl um
þetta bréf
Prestastefnunni, sem nú er nýlokið, barst nýstárlegt plagg,
er undirritað var af ntara stjórnar fríkirkjusafnaðarins
í Reykjavík og skr.fað á pappír stimplaðan fríkirkjusöfnuð-
inum. Var það í fyrirspurnarformi, en í rauninni kæra á
hendur biskupi landsins fyrir afsk.pti hans af deilum innan
fríkirkjusafnaðarins í vetur.
Þessu máli var vísað til
prófasta þeirra, er presta-
stefnuna sátu, en var síðan
vísað frá, þar eð þjóðkirkj-
unni væri óviðkomandi deilu-
mál innan íríkirkjusafnaða.
Auk þess hefir prestastefn-
an ekki dómsvald yfir bisk-
upi. Var jafnframt vítt á-
stæðulaus og órökstudd kæra
á hendur biskupi.
Biskup landsins hefir í
rauninni engin afskipti haft
af átökunum innan fríkirkju
safnaðarins í Reykjavík. Þeg
ar leitað var til kirkjumála-
ráðuneytisins um staðfest-
ingu á stofnun óháða frí-
kirkjusafnaðarins, var sú um
sókn send biskupi til um-
sagnar. En hann svaraði þvi,
að sinnar staðfestingar gerð-
ist ekki þörf, þar sem trúar-
bragðafrelsi rikti i landinu.
Hins vegar þyrftí forstöðu-
maður safnaðarins að fá staö
festingu ráðuneytisins, svo
að söfnuðurinn yrði undan-
þeginn kirkjugjöldum til þjóð
kirkju eða háskóla. Þegar
söfnuðurinn hafði fullnægt
settum reglum og venjum um
nýjan söfnuð, veitti kirkju-
málaráðuneytið forstöðu-
manni hans staðfestingu. og
(Framhald á 7. slOu.)
ll•l■lllllllllllUll(llllllllMM•m>mlllllllUlmMt•
Brezka stjórnin
hélt velli
Umræðunnl um Schu- í
man-áætlunina lauk í \
brezka þinginu í gær, og:
talaði Churchill síðastur [
áður en atkvæðagreiðslan j
I um traustyfirlýsinguna til j
handa stjórninni fór fram. i
Þeirri atkvæðagreiðslu j
| lauk svo, að brezka stjórn i
= in bar sigur úr býtum með
309 atkvæðum gegn 289.
Rússneskt síldveiði-
skip í landhelgi
Skipið konist undan, en sklldi eftir rek-
netin ««*' í þeim voru um 30 tuniiur síldar
Um klukkan 16,15 í fyrradag sá íslenzkt varðskip rúss-
neskt síldveiðiskip um 300 lestir að stærð að veiðum út af
Digranesi sem er milli Bakkafjarðar og Héraðsflóa. Hafði
skipið reknet úti.
Sigldi varðskipið að
grynnsta netinu og geröi stað
arákvörðun, og reyndist það,
vera 0,1 sjómílu innan við
landhelgislínu. Er þetta mið-
að við gömlu landlelgislín-
una, því að hið nýja friðun-
arsvæði hefst ekki fyrr en við
Langanes.
Snúa sér að skipinu.
Sneri varðskipið þá út að
rússneska skipinu en auðséð
var, að reknetin rak nær
landi. Gaf varðskipið hinu
rússneska skipi stöðvunar-
merki, en það sinnti þvi ekki,
heldur yfirgaf netin og hélt
j til hafs. Elti varðskipið og
skaut nokkrum aðvörunar-
skotum, en skipið sinnti þeim
eigi að heldur.
Eftirförinni hætt.
Klukkan 16,40 hætti varð-
skipið eftirförinni og sneri
aftur inn til netjanna. Gerði
það staðarákvörðun við
dýpsta netið og reyndist það
þá vera 0,25 sjóm. innan land
helgislínu. Hin netin lágu öll
grynnra. Voru netin 30—40.
Varðskipið tók inn netin og
voru í þeim um 30 tunnur
síldar. Hélt varðskipið siðan
til Seyðisfjarðar i fyrrakvöld
skilaði netunum og gaf yf-
irvöldunum skýrslu um málið.
Fyrstu síldarfréttirnar.
Þar sem um 30 tunnur síld-
ar voru í netum rússneska
skipsins er ljóst að nokkur
síld er á þessum slóðum, og
eru þetta raunar fyrstu síld-
arfregnirnar sem berast að
norðan og austan.