Tíminn - 07.07.1950, Qupperneq 2
2
TÍMINN, föstudaginn 7. júlí 1950
146 blaS
I nótt
Næturlæknir' er í læknavarð-
stofunni sími 5030.
Næturvörður er í Ingólfs
apóteki, sími 1330
Útvaroið
Föstudagur 7. júlí
• 8.30—9.00 Morgunútvarp.
— 12.10—13.15 Hádegisútvarp.
15.30—16.25 Miðdegisútvarp.
— 16.25 Veðurfregnir. 19.25 Veð
urfregnir. 19.30 Tónleikar: Har-
monikuiög (piötur). 19.45 Aug-
iýsingar. 20.00 Fréttir. 20.30
Útvarpssagan: „Ketillin“ eftir
V/ilÍiam Heinesen; X. (Vil-
hjálmur S. Vilhjálmsson rit-
höfundur). 21.00 Tónleikar
(plötur). 21.05 Frá útlöndum
(Jón Magnússon fréttastjóri).
21.20 Auglýst síðar. 22.10
Fréttir og veðurfregnir. 22.20
Vinsæl lög (plötur). 22.30 Dag-
skrárlok.
Hvar eru skipin?
Ríkisskip.
Hekla fór frá Reykjavík kl.
21 í gærkvöldi til .Glasgow
Esja kom til Reykjavíkur í gær-
kvöld að austan og -norðan.
Herðubreið er á Austfjörðum á
norðurleið. Skjaldbreið er á
Breiðafirði. Þyrill var á Siglu-
firði í gær. Ármann fer frá
Reykjavík síðdeais í dag til
Vestmannaeyja.
Eimskip.
Brúarfoss er í Reykjavík.
Dettifoss fer frá Reykjavík kl.
12.00 á hádegi í dag 6.7. til Hull,
Rotterdam og Antwerpen. Fjall
foss fór frá Leith 3.7. til Halm-
stad í Sviþjóð. Goðafoss fer frá
Reykjavík 5.7. til Hamborgar
Gullfoss kom til Kaupmanna-
hafnar í morgun 6.7., og fer
þaðan 8.7. til Leith og Reykja-
víkur. Lagarfoss fór frá Akra-
nesi 29.6. til New York. Selfoss
er í Borgarnesi. Tröllafoss fór
frá New York 30.6. til Reykja-
yíkur. Vatnajökull er í Kefla-
vík. Fer væntanlega frá Reykja
vík í kvöld 6.7. til New York.
Sambandsskip.
M.s. Arnarfell er í Sölvesborg.
M.s. Hvassafell er í Reykjavík.
Tímaritið
Allt til skemmtunar og fróð-
leiks, júlíhefti, er nýkomið út."
Af efni þess má nefna sögurnar:
Ástin sigrar að lokum, Eftir 22
ár, Sakleysi eftir Balzac, Ástar-
saga frá miðöldum eftir M.
Twain. Þá er tónlistarsiða,
flugsíða, húsmæðrasíða, skák-
síða, bridgesíða og íþróttasíða.
Myndasagan Daniel Boone og
fjöldi annara greina eru í
tímaritinu bæði til fróðleiks og
skemmtunar.
Flugferðir
Loftleiðir h.f.
Innanlandsflug: 1 dag er
áætlað að fljúga til Vestmanna
eyja kl. 13,30, til Akureyrar kl.
15,30. Auk þess til Isafjarðar og
Siglufjarðar.
Á morgun er áætlað að fljúga
til Vestmannaeyja, Akureýrar,
Isafjarðar. Auk þess til Isafjarð-
ar , Patreksfjarðar og Hólma-
víkur.
Utanlandsflug: Geysir er í
Grænlandsflugi.
1 fyrrasumar fluttu vélar flug
félagsins LOFTLEIÐIR H.F.
leiðangursmenn danska vísinda
mannsins dr. Lauge Koch írá
Danmörku til Grænlands, en
dr. koch hefir bækistövar á
Ella-ey við austurströnd Græn-
lands, og vinnur þar að rann-
sóknum ýmiskonar.
Samningar hafa nú enn tekist
mili Loftleiða og dr. Koch um
flutninga í sumar og er gert
ráð fyrir að fluttir verði rúm-
lega 100 leiðangursmenn frá
Danmörku til > Grænlands.
Hingað munu þeir koma með
Geysi millilandaflugvél Loft-
leiða, en héðan munu þeir fara
með ,,Vestfirðing“, Catalínuflug
bát félagsins. Verða þeir enn
fluttir til Ella-eyjar.
Fyrsti hópur leiöangurs-
manna þessara mun komá
hingað til Reykjavíkur frá
Danmörku 10. þ.m., en hinn
síðasti 19. júlí. Héðan verða
þeir svo fluttir jafnóðum og
veðurskilyrði leifa.
Úr ýmsum áttum
Lík finnst í hafi
Togarinn Hvalfell kom til
Reykjavíkur í fyrrinótt með lik
er fundist hafði 80 sjómílur
vestur af Snæfellsnesi. Líkið
Var allmikið skaddað. Rann-
sóknarlögreglan í Reykjavík
fékk líkið til athugunar.
Lát af völd-
um bílslyss
Síðastliðinn þriðjudag varð
maður að nafni Steingrímur
Benediktsson fyrir bifreið
hér i bænum og hlaut svi al-
varleg meiðsl af að hann lézt
af völdum slyssins í Land-
spítalanum í fyrradag.
Steingrímur heit'nn var frá
Siglufirði. Slysið vildi t’l á
Hverfisgötu á móts vð Gas-
stöðma.
Ef nahagsmálar áð-
stefnan í París
Fundur efnahagsmálastofn
unar Evrópu hélt áfram í Par
ís í gær. Stícker fjármálaráð-
herra Hollands var í forsæti.
Cripps, fjármálaráðherra
Breta flaug til Parísar í gær
'til að taka þátt í ráðstefn-
unni.
Ali Kahn í London
Ali Kahn forsætisráðherra
Pakistan, sem dvalið hefir í
Bandaríkjunum síðustu vik-
urnar í boði Trumans forseta
er kominn til London og mun
dvelja þar nokkra daga enn.
í gær var hann í boði brezku
konungsfjölskyldunnar og
mun verða það unz hann fer
heim til Indlands.
Nýtt hámarksverð á
kaffibæti
Innflutnings- og gjaldeiris
deild Fjárhagsráðs hefir á-
kveðið nýtt hámarksverð á
kaffibæti og verður það fram
vegis sem hér segir;
Heildsöluverð án söluskatts
kr. 7.28 do með söluskatti
Ilæringur.
(Framhald af 1. síðu.)
þeir, er kröfur hefðu á Hær-
ing, gætu ekki gengið að veð-
inu á leigutímanum og stöðv-
að rekstur í miðjum klíðum.
Sömuleiðis spurðist hann fyr-
ir um vátryggingu skipsins,
rekstararlán til starfrækslu á
Seyöisfirði, sktildir félagsins,
sem á Hæring og rekstrar-
kostnað við bryggju hér í
Reykjavík. Væri æskilegt, að
óbreyttir^ bæjarfulltrúar
fengju að sjá reikninga og
plögg Hærings. Loks tafdi
hann það mjög óvenjulegt, að
leigusali skyldi einn haía gert
áætlun um rekstur á Seyðis-
firði, en ekki Reykjavíkur-
bær, annar leigutakinn.
Einkaframtakið og
Hæringur.
Sú samningsgrein, þar sem
ákveðið væri, að ekki skyldi
greiða leigu af skipinu, liti vel
út á pappírnum. Kæmi ein-
hverjum kannske einkenni-
lega fyrir sjónir, að flokkur
einkaframtaksins skyldi ekki
heldur hafa leitað til annarra
en opinberra aðila um rekst-
ur skipsins, úr því að sjálft
félagið, sem á Hæring, réðst
ekki í að gera hann út. En ef
skoöað væri niður í kjölinn,
þá kæmi það sennilega ekki
af góðu. Áhætta væri svo mik
il og rekstur skipsins svo tví-
sýnn, að einkaframtak hefði
senniiega ekki verið ginn-
keypt fyrir þessum leigumála.
Það, sem hér væri að gerast,
væri því i rauninni það, að
félagið Hæringur, sem Reykja
vlkurbær væri fjórðungsaðili
að, væri að koma af sér áhætt
unni og láta bæinn taka á sig
helming áhættunnar.
Hitt sagði Þórður, að væri
tvímælalaust fengur fyrir bæ
inn, að losna við Hæring úr
höfninni, og vonandi væri ár-
angur þessara fyrirætlana
yrði ekki verri en svo, að
Reykjavíkurbær slyppi við
nýjar álögur af þessum sök-
um.
Brást reiður.
Jóhann Hafstein brást reið
ur við þessum hógværu íyrir-
spurnum og skymsamlegu
varnaðarorðum. Flutti hann
ræðu um það, hversu glæsi-
lega horfði nú um rekst-
ur síldarverksmiðja, og vakti
það furðu, að hann, sem for-
maður stjórnar Hærings,
skyldi vilja láta slikt happ
sleppa úr hendi félags síns.
Fyrirspurnum Þórðar svaraði
hann sumum, en leiddi aðrar
hjá sér. Skuldir þær, sem
Hæringi hefðu safnazt við
bryggju hér, sagði hann tvær
milljónir, rekstrarlán væri
tryggt hjá Landsbankanum
og Sjóvátryggingarfélagið
hefði tekið að sér tryggingu
á skipinu í sumar, gegn ein-
um af hundraði af sextán
milljón króna tryggingarupp-
hæð.
7.50. Smásöluverð án sölu-
skatts í smásölu 8.28 do með
söluskatti kr. 9.00.
(Frá verðlagsstjóra)
iiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiii
Stjörnu-kabarettinn
sýnir næstu daga á Norður- og Austurlandi. |
Auk þess í Stykkishólmi, Akranesi og í Borg- I
arfirðinum.
2
Komið á sýningar STJÖRNU-KABARETTSINS og |
| njótið fjölbreyttar skemmtunar fyrir lágt verð,.
STJÖRNU-KABARETTINN
MMMiiiiiiiiuiiimiMMiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiin.imiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiMMiiiiiiiii
Frá Gagnfrœðaskólunum
í Reykjavík
Þeir unglingar, sem luku unglingaprófi s. 1. vor (fædd-
ir 1936,) og aðrir, sem óska eftir framhaldsnámi, fá
jskólavist í þriðjubekkjum Gagnfræðaskóla Austurbæj-
ar og Gagnfræðaskóla Vesturbæjar eftir þvi sem hús-
rúm leyfir. Skrásetning þessara nemenda fer fram í
skólunum dagana 10.—12. þ. m. kl. 4—7 síðd. Ef ekki
verður rúm fyrir alla, sem sækja, verður einkunn við
unglingapróf látin ráða.
Um skyldunámið (1. og 2. bekk) verður tilkynnt í
september.
Gagnfr.skóli Austurbæjar.
Sími 3745.
Ingimar Jónsson.
Gagnfr.skóli Vesturbæjar.
Sími 1387.
Guðni Jónsson.
Landsmót
Ltmdssamband hestamannafélaqa
verður haldið á Þingvöllum 6.—9. júlí. Þar verða sýnd
82 úrvalshross viðsvegar af landinu og um.40 afkvæmi
9 eldri stóðhestanna hefir dómnefnd þegar skoðað og
dæmt. — Sýndir verða
23 stóðhestar, tamdir
33 reiðhryssur
26 úrvalsgæðingar.
og 53 hestar taka þátt i kappreiðunum — 16 skeið-
hestar og 37 stökkhestar.
Mjög há verðlaun verða veitt.
Sýning og kappreiðar standa yfir fyrir almenning
bæði laugardag og sunnudag. — Það verður fögur
sjón að sjá sýningarhrossin og það verður líka lær-
dómsríkt.
Fjölmennið á Þingvöll.
Tjaldstæði fást hjá Þingvallaverði
Hornamúsík
Dans á kvöldin
— Ölvun bönnuð -
Landssamband hestamannafélaga
Fyrirliggjandi:
Alikálfakjöt
Nautakjöt
Kýrkjöt
Ærkjöt
Folaldakjöt.
Sími 2678.
Samband ísl. samvinnufélaga
Sími 2676