Tíminn - 07.07.1950, Side 5

Tíminn - 07.07.1950, Side 5
146. blað TÍMINN, föstudaginn 7. júll 1950 5 Fösíud. 7. jtífí Síldarverðið Eins og skýrt var frá í blað inu í gær, hefir stjórn síldar- verksmiðja ríkisins nú gert tillögur sínar um bræðslu- síldarverðið í sumar. Sam- kvæmt þeim kaupa síldarverk smiðjurnar málið fyrir kr. 65,00 og er það kr. 25,00 hærra en í fyrra. Þá verður þeirri reglu fylgt áfram, að þeir út- gerðarmenn, sem þess óska, geta lagt inn síldina og feng ið strax greidd 84% af áætl- unarverðinu eða kr. 55,00 fyr ir málið, en afganginn siðar eftir því, sem afkoman kann að verða hjá verksmiðjunum. Bæði fultrúar Alþýðuflokks ins og Sósialistaflokksins í verksmiðjustjórninni komu með yfirboðstillcgur um hærra verð. Fulltrúar komm- únista, lagði til að verðið yrði kr. 75,00, en fulltrúi Al- þýðuflokksins, að það yrði kr. 65,00—75,00 eftir þvi hve mikill síldaraflinn yrði. Það hefði vissulega verið æskilegt, að hægt hefði ver- ið að ákveða síldarverðið hærra en meirihluti verk- smiðjustjórnarinnar hefir lagt til. En þess ber að gæta 1 þvi sambandi, að einnig verð ur að hugsa um rekstraraf- komu síldarverksmiðjanna og ekki má tefla á svo tæpt vað, að þar sé stefnt í óefni. Al- veg sérstaklega er ástæða til að benda á það í þessu sam- bandi, að með hinum frægu verksmiðjubyggingum, sem kenndar eru við „nýsköpun- arstjórnina“ og Áka Jakobs- son, hefir síldarverksmiðjum ríkisins verið bundinn baggi, er óhj ákvæmilega verður þess valdandi, að nú og á næstu árum verður að ákveða síldarverðið til útvegsmanna og sjómanna mun lægra en ella hefði þurft. Þessa mega sjómenn og útvegsmenn vel minnast, er kommúnistar tala af mestum fláttskap um vel- vilja sinn í garð útvegsins. Þá virðist það ekki óvið- eigandi í sambandi við þessi yfirboð kommúnista og Al- þýðuflokksins, að -þessir að- ilar væru spurðir um það, hverjar hefðu orðið tillögur þeirra um síldarverðið, ef krónan hefði ekki verið lækk uð í vetur. í fyrrasumar var Alþýðuflokkurinn því fylgj- andi að síldarverðið yrðið á- kveðið kr. 40,00 en síðan hef ir verðlag lækkað erlendis á ýmsum síldarafurðum. Sam- kvæmt því hefði þurft nú að ákveða bræðslusíldarverðið undir kr. 40,00. ef hliðsjón hefði verið höfð af verðákvörð unni 1 fyrra og engin gengis- lækkun hefði átt sér stað. Hversu mikil síldveiði myndi hafa orðið í sumar, ef bræðslu sildarverðið hefði verið tals- vert innan við kr. 40,00? Svarið við þessari spurnigu upplýsir það til fullnustu, að gengislækkunarinnar var ekki aðeins þörf vegna þorsk veiðanna, heldur engu sfður vegna síldveiðanna. Þær hefðu stöðvast alveg eins og þorskveiðarnar, ef ekki hefði verið gripið til gengislækkun arinnar. Gengislækkunin var þann- ig óhjákvæmileg neyðarráð- ERLENT YFIRLIT: Keppnin um Antarktis Rússar hafa nii bæst í hópinn os* g'cra kröf nr til réttinda þar. Fyrir nokkru sendi rússneska stjórnin ríkisstjórnum átta landa, þ. e. Bandaríkjanna, Bretlands, Frakklands, Noregs, Ástralíu, Argentínu, Chile og Nýja-Sjálands, orðsendingu varðandi Antarktis, hið mikla jöklaland, sem liggur umhverf- is suðurheimskautið. 1 orðsend ingu þessari fór stjórn Sovét- ríkjanna fram á, að henni yrði tryggð full hlutdeild í stjórn þessa landssvæðis og framtíð þess yrði ekki ráðið til lykta, án samþykkis hennar. Ekkert af umræddum löndum hefir enn svarað orðsendingu Sovétríkjanna, enda má vel vera, að þau beri saman ráð sín áður. Annars fer því fjarri, að þau séu að öllu leyti sam- mála um skiptingu Antarktis, því að innbyrðisdeila stendur milli þeirra um einstök svæði þess. Það er því enn alveg á huldu hvernig framtíðar- ráðum Antarktis . verður hátt- að. Átta ríki eða öll framan- greind ríki, sem Rússar skrif- uðu hafa helgað sér viss land- svæði þar, en ekki fengið neina formlega viðurkenningu á þeim yfirráðum sínum. Kröfur um yfirráð á Antarktis. Það gerir deiluna um Ant- arktis erfiðari úrlausnar, að ekki er hægt að styðjast við nein fordæmi. Á norðurpólssvæðinu, sem hefir verið mun betur kannað, hefir ekkert land fund ist og fordæmi er því ekki að fá þaðan. Þó hefir það nokkru sinnum komið til orða, þótt formlega hafi ekki verið frá því gengið, að finndist land á norðurpólssvæðinu skyldi það tilheyra því ríki, er væri næst því í suðri. Þessa reglu vilja nú ýms ríki heimfæra upp á Antarktist. Þó getur það orð- ið erfitt í sambandi við þann hluta Antarktis, sem liggur suð ur af Suður-Ameríku. Chile og Argentína gera nú kröfur til þessa hluta Antarktis, en Bret ar hafa yfirráð á Falklands- eyjum, sem liggja á milli megin lands Suður-Ameríku og Ant- arktis. Við hliðina á þessu um- deilda hluta Antarktis er land- þvæði það, sem Norðmenn hafa tileinkað ‘sér. Vesturhluti þess snýr að opnu Atlantshafinu, en austurhluti þess teygir sig upp að Suður-Afríku, sem engar kröfur hefir gert í sambandi við Antarktis. Hinsvegar krefst Ástralía umráða yfir allri strandlengju Antarktis, sem er suður af Ástralíu eða snýr að Indlandshafi. Þó hefir hún und anskilið lítinn skika á þessu svæði, en hann hafa Frakk- ar helgað sér. Þá krefst Nýja-Sjáland þess hluta Ant- arktis, er snýr að suðurhluta Kyrrahafs. Enn er þá éftir nokk ur skák af Antarktis, sem Banda ríkin gera nú tilkall til. • Eyðilegt land. Fljótt á lltið virðast þessar yf irráðakröfur næsta fufðulegar.1 Antarktis er að vísu stórt land eða í kringum 5 milljón fer- j milur að flatarmáli. Hinsvegar er ekki annað vitað en það sé nær allt jökli hulið og því ólik- j legt, að þar geti nokkurntíma j orðið byggð. Hálent er með ströndum fram og er meðal- J hæð strandfjallanna talin vera um 6000 fet, en víða ná þau allt að 15,000 feta hæð. Nær aldrei rignir á Antarktis og snjókoma er þar furðu litil. Gróður er enginn, nema mosi á einstaka stað, landdýralíf ekk- ert, en nokkuð af sjófuglum og allmikið af ýmsum sel- og hval- tegundum. - Annars er landið enn lítt rannsakað, og sá orð- rómur hefir komist á kreik, að Þjóðverjar hafi á stríðsárunum fundið þar allstórt autt land- svæði og hafzt þar við. Marga vísindaleiðangra er nú verið að undirbúa til rannsókna á Ant- arktis og nokkrir eru þegar komnir þangað. Áður fyrr hafa margir rann- sóknarleiðangrar verið farnir til Antarktis. Fyrir og eftir síð- ustu aldamót var það mikið keppikefli landkönnuða, að verða fyrstir á suðurpólínn. Ár- ið 1911 kepptu þeir um þennan vegsauka Bretinn Robert F. Scott og Norðmaðurinn Roald Amundsen. Amundsen varð hlutskarpari. Hann dró norska fánan þar að hún 11. desem- ber 1911, en Scott kom þang- að ekki fyrr en 18. janúar 1912. Á heimleiðinni fórst Scott og fylgdarmenn hans, en líkin fundust, ásamt dagbók Scotts, en hann hafði haldið áfram að rita hana til nær hinstu stundar. Hvað veldur keppninni um Antarktis? Þau ríki, sem gera landakröf- ur í sambandi við Antarktis Vishinski, sem lætur nú einnig mál Antarktis til sín taka. byggja þær fyrst og fremst á því, að þau stundi þar hval- veiðar og þurfi að halda á að- stöðu í landi í sambandi við þær. M. a. tilgreina Sovétríkin hvalveiðarnar sem aðalatriði í áðurnefndri orðsendingu sinni. Þá minnast þau einnig á það, að mikilvægt sé að sem flest ríki geti haft þar aðstöðu til veðurþjónustu. Þessar tvær ástæður færa þau einkum fram til 'réttlætingar þeirrar kröfu, að framtíð Antarktis verði ekki ákveðin, án samráðs við þau. Þriðja ástæðan, sem mun eiga sinn þátt í landakröfum þessum, er sú, að ýmsir telja, að góðmálma muni vera að1 finna á Antarktis og geti ver- ið skilyrði til að vinna þá með góðum árangri. Meira styðst þetta þó við ágiskanir en örugg ar rannsóknir. Loks er sú ástæðan, að þýð- ingarmikið getur verið að geta haft bækistöðvar á Antarktis í ófriði og liggur sá grunur á, að þýzkir kafbátar hafi haldið þar til í síðari heimsstyrjöldinni. Ýms blöð telja, að það hafi ekki síst verið þetta sjónarmið, sem hafi komið Rússum til að senda umrædda orðsendingu. stöfun, eins og komið var, ef sjávarútvegurinn hefði ekki alveg átt að stöðvast. Illir stjórnarhættir og óhóf á liðnum gróðaárum gerðu óum flýjanlegt að þessi neyðar- ráðstöfun yrði gerð. Því er ekki að neita, að hún kemur að mörgu leyti hart við al- menning, en þó er það ekki nema lítilsvert hjá því, sem orðið hefði, ef stjórnarstefna undanfarinna ára hefði verið látin ganga sér til húðar og atvinnuvegirnir látnir stöðv- ast alveg. í blöðum kommúnista og jafnaðarmanna má nú lesa ítarlegar lýsingar á því at- vinnuleysi, sem er að skapast hjá ýmsum iðnstéttum vegna efnisskorts. Því miður eru þessar lýsingar að mestu eða öllu réttar. Þó er þetta ástand sem þær lýsa, ekki nema svipur hjá sjón samanborið við það, sem orðið hefði, ef út flutningsatvinnuvegirnir hefðu alveg stöðvast, eíns og orðið hefði, ef gengislækkun in hefði ekki verið gerð. Vegna hennar er nú einmitt von til þess, að síldveiðarnar kunni að geta bætt nokkuð úr þeim efnisskorti, er gjald- eyrisleysið veldur. Þannig sannast nú á margan hátt skammsýni þeirra, sem heldur kusu aðgerðarleysið og hrunið en þessa viðnáms- ráðstöfun þótt nokkrir örðug leikar geti fylgt henni í bili. Þetta væri fulltrúum stjórn arandstæðinga nær að hug- leiða en að koma fram með yfirborðstillögur í sambandi við síldarverðið. Þeir slá sig ekki til riddara með því né með því að mála afleiðingar gjaldeyrisskortsins dökkum litum. Hvortveggja minnir aðeins á það, að þeir höfðu ekki upp á annað að bjóða en það, sem gert hefði skort- inn miklu meiri og tilfinnan- legri. Raddir nábáanna Alþýðublaðið ræðir í gær um áróður kommúnista gegn kjarnorkusprengjunni, sem hafi þó haldið árásaröflunum í skefjum meira en nokkuð annað. Það segir síðan: „En það er einmitt þess vegna, sem „friðarávarp" þeirra leggur svo einhliða á- herzlu á það, að notkun kjarn orkuvopna í hernaði sé bönn- uð. Þeir vilja fá frjálsar hend ur til þess að ráðast á lýðræð- isþjóðirnar og þær þjóðir, sem með þeim standa — með skriðdrekum, sprengjuflugvél um, fallbyssum, vélbyssum, handsprengjum og öðrum morðtólum, sem Rússar hafa á að skipa og geta þeim í té látið — eins og þeir hafa nú ráðist á lýðveldið í Suður- Kóreu. Þeir vilja ekki þurfa að eiga það yfir höfði sér, að blóðugar árásir þeirra verði fyrr eða síðar stöðvaðar með kjarnorkusprengjum. Þess vegna heimta þeir í „friðar- ávarpinu" bann við notkun kjarnorkuvopna, en ekki neinna annarra! Rússar og leppríki þeirra eiga, með öðr- um orðum, vítalaust að fá að ráðast á aðrar þjóðir moð báli og brandi. Það kalla komm únistar frið. Aðeins hitt kalla þeir stríð, ef til varnar er snú- izt gegn árásum þeirra!" Þaö er vissulega af öðrum ástæðum en umhyggju fyrir friðnum, sem kommúnistar hamast gegn kjarnorku- sprengjunni. Dýrtíðin Það hefir á undanförnum árum margt verið rætt og rit að um hina sívaxandi dýrtíð hér á landi. Slíkt er ekki ó- eðlilegt, því að bæði verðlag og kaupgjald hafa farið ört hækkandi og lítið gert til að sporna gegn þeirri þró- un. í þessum umræðum hefir það hinsvegar gleymst, að mik il dýrtíð hefir verið og er í ýmsum löndum öðrum, svo að við erum engan veginn ein ir undir þessa sök seldir. Og það er þó alltaf ofurlítil bót í máli að vera ekki verri en aðrir. Fyrir þá, sem ferðast er- lendis, er að ýmsu leyti merki legt að bera saman verðlag hér heima og þar. Niður- staðan vill þá oft verða sú, að munurinn á verðlaginu hér og erlendis verður oft minni en menn eiga von á og oftast minni en munur- inn á kaupgjaldinu. Það sýn- ir, að þrátt fyrir hið háa verðlag hér, hefir kaupgeta almennings hér verið miklu meiri en víðast erlendis og er það í mörgum tilfellum enn, þótt fullt tillit sé tekið til gengislækkunarinnar. Þann- ig mun það enn taka íslenzk- an verkamann skemmri tíma að vinna fyrir mjög mörgum lífsnauðsynjum. eins og fatn- aði og matvælum, en stéttar- bræður hans á Norðurlönd- um og í Bretlandi, en þó eru lífskjörin þar betri en ann- ars staðar í Evrópu. Á sama hátt munu íslenzkir bændur sízt þurfa að láta fleiri mjólk urlítra eða kjötkg. fyrir til- búinn áburð eða vélar en stéttarbræður þeirra í um- ræddum löndum. Það væri ekki aðeins fróð- legt, heldur líka nauðsynlegt, að reynt yrði að fá sem itar- legastan samanburð á lífs- kjörunum hér og í nágranna- löndunum. Það er meira en sennilegt, að það myndi gefa okkur minni ástæðu til bar- lóms en við álítum okkur hafa nú. í þessu sambandi skal hér birt yfirlit, sem kom í dönsk- um blöðum í vor og átti að vera til leiðbeiningar fyrir danska ferðamenn um dval- arkostnað á ýmsum stöðum. Yfirliti þessu var ætlað að sýna hve lengi 500 kr. dansk- ar gætu enzt til sæmilegs og sambærilegs viðurværis fyr- ir ferðamenn í ýmsum lönd- um. Þetta yfirlit leit þannig út: 6—12 dagar París 6—12 — London 8—10 — Lissabon 8—10 — Aþena 10- -12 — Helsingfors 10—15 — Amsterdam 14—16 — Osló 14—16 — Stokkhólmur 14- -18 — Reykjavík 16—20 — Vin. Þetta yfirlit veitir ekki nema takmarkaðar upplýs- | ingar, en er nokkur vísbend- ing þó. Til þess er vissulega fyllsta ástæða að aflað sé öruggs og fullkomins saman- burðar um þetta, svo að við vit um hvar við stöndum og liver lífskjörin eru hér í saman- burði við það, sem annars- staðar er. Með þessu er ekki ætlunin að fegra neitt dýrtíðina hér eða draga úr því að unnið sé gegn henni. Þá sókn þarf (Framhald á 6. siðu.)

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.