Tíminn - 07.07.1950, Blaðsíða 6

Tíminn - 07.07.1950, Blaðsíða 6
6 TÍMINN, föstudaginn 7. júlí 1950 146 blað \ * * TJARNARBÍD Vandamál læknisins (Ich klage an) Þýzk stórmynd, er fjallar um eitt erfiðasta vandamál læknanna á öllum tímum. Aðalhlutverk: PauIHartmann Heidemarie Hatheyer * Mathias Wieman. I Sýn# kl. 5, 7 og 9. Hrói höttnr hinn söngelski Æfintýraleg og spenn- andi söngmynd. Aðalhlutverk leikur og syngur einn af bestu söngv urum frakka Georges Guétary ásamt Jean Tissier Milan Parély. Sýnd kl. 5, 7 og 9. , BÆJARBÍD HAFNARFIRÐI Glitra daggir, grær fold Heimsfræg sænák mynd byggð á samnefndri verð- launasögu eftir Margit Söderholm. Aðalhlutverk: Mai Zetterling Alf Kjetlin Sýnd kl. 7 og 9. Sími 9184 IVáttúruIækninga- félagið (Framhald af 4. síSu.) hæfingar mínar, og hann svarar ekki fyrirspurnum mín um um mikilsverð atriði. Það er athyglisvert, að eng inn félagsmaður í Náttúru- lækningafélaginu leggur stjórn þess lið í þessum hild- arleik. Mér virðist þetta bera vott um toppmælda fyrirlitn ingu. Jónas læknir hefir skrif að eina grein. Hún er titlinga tíst, fædd andvana og með þeim dauðamörkum, að eng- inn les hana til enda. Björn veðurfræðingur hefir barið saman sfnar greinar með mikl um erfiðismunum. Þær eru tþkþrota, stórorðar í minn gíarð og fylltar vesölum til- íaunum til að gera Jónas lækn ir að píslarvotti í þessari viðureign. Gerir hann þetta aðe'ns til að skýla sinni and- legu nekt. Hjörtur heildsali hefir legið i felum og hvergi þorað fram í dagsljósið. Þetta eru nú sannkallaðir arlakar á ritvellinum. Þetta er sú aum asta þrenning, sem ég hefi átt i höggi við. Eg hefi ekki skorað á hana að^ganga til fangs við mig á ritvellinum, hefði ég fyrirfram vitað, að hún væri gædd svona lítilli dáð. Björn veðurfræðingur klifar á því í greinum sín- um, að Jónas læknir hafi gef ið mér heilsuna. Leyfíst mér að spyrja: Er verið að telja eftir þær ráðleggingar, sem Jónas læknir gaf mér á sínum tíma. Eg trúi verðurfræðingn um til ýmsra skemmtilegra hluta, af kynningu minni við hann. Eg trúi Jónasi Krist- Jánssyni lækni ekki til lítil- mennsku og allra sízt til svo botnlausrar lítilmennsku, að telja slíkt eftir, enda þótt skorizt hafi I odda milli okk- ar. Samboðnast finnst mér honum, samkvæmt stöðu hans og stétt, og samkvæmt hans eigin persónulegu virð- ingu, að gleðjast yfir því, hafi hann verið svo heppinn að hitta á hið rétta ráð. Bezt hefði verið fyrir Jónas lækni, að ekkert hefði verið á þetta minnst. Það er með öllu óskylt þvl máli, sem við höf- um deilt um. ELDURINN eimi nm Þegar kötturinn er ekki heima , Afar fyndin dönsk gam- anmynd. • Aðalhlutverk: Gerda Neumann Svend Asmunssen Ulrik Neumann Sýnd kl. 5, 7 og 9. Áttræður. (Framhald af 3. síðu.) enn sama ósérhlifnin og vilja festan til að leggja fram lið sitt og krafta og enn sama öryggið og æðruleysið þótt á móti kaldi. Og svo vonum við sveitungar hans, vinir hans og samherjar allir, að verði enn um langa hríð. Sveitungar hans halda hon um samsæti í dag, til að hylla hann og þakka honum störf hans og mun þar verða mann margt mjög. Margir munu þeir einnig utan sveitarinn- ar, sem þar vildu vera með. En vinir hans og samherj- ar senda honum og heimili hans úr fjarlægð, hugheilar hamingjuóskir á þessum merkisdegi hans, með þökk fyrir samstarf og vináttu. Hann er áttræður í dag en ungur þó. Sveinbjörn Högnason. Dýrtíðin. (Framhald af 5. siðu.) vissulega að herða og á einu sviði erum við sennilega ver staddir í þessum efnum en flestir aðrir, en það er í húsnæðismálunum. Þar er sannarlega þörf rótækra að- gerða og svo er víðar. En það breytir ekki þvi, að rétt er að vita, hvernig ann- arsstaðar er ástatt og álíta ekki hlut sinn verri en hann er. X+Y. GAMLA BID Faldi fjársjóð- urinn (Vacation in Reno) Sprenghlægileg og spennandi ný amerísk gamanmýnd frá RKO Radio Pictures. Aðalhlutverk: Jack Haley Anne Jeffreys Iris Adrian Morgan Conway. AUKAMYND: LET’s MAKE RHYTHM með Stan Kenton og hljóm- sveit. — Sýnd ki. 5, 7 og 9. Júlí-hefti er komið út. Forsiðumynd: Örn Clausen. Ástin sigraði að lokum, ástar- saga. Eftir tuttugu og tvö ár, ást- arsaga. Sakleysi, smásaga eftir Bal- zac. Ástarsaga ftá miðöldum, eft- ir Mark Twain. Framhaldssagan: Syndir feðr anna. (Kvikmyndin verður sýnd í Austurbæjarbíó). Draumaráðningar. í kistulokinu. Danslagatextar. Tónlistarsíðan. Stjörnukabarettinn fer út um land. Bezti glæpamannaleikarinn í Hollywood. Fyrir konur: Elskar þú hann ennþá? (15 samvizkuspurn ingar). Flugsíðan. 10 spurningar. Krossgáta og ráðning á kross gátu júníheftis. Húsmæðrasiðan: Kaldur mat ' ur. — íslenzk tízkumynd. Skáksiðan: Ritstj. Sveinn Kristinsson. Bridgesíðan. Íþróttasíðan: Viðeyjammd- menn. Fyrir unglinga: Myndasagan Daniel Boone. Kostar aðeins 5.00 kr. gerlr ekki boS A undan sérl Þelr, sem eru hyggnlr tryggja strax hjá Samv'Lnniitryggingum Bergnr Jónsson Málaflutningsskrifstofa Langaveg 65, sími 5833 Heima: Vitastíg 14. Auglýslngasími Tlmans cr 81300. JOHN KNITTEL: FRÚIN Á GAMMSSTÖÐUM ---------------- 49. DAGUR ------------------------- um okkar hefði aldrei borið saman, uglan þín. Nú er hún orðin húsmóðir á Gammsstöðum, og því megum við ekki gleyma. — Ég get óskað henni til hamingju, sagði Fríða. En ég gleymi því ekki, hver hún var. Fríða tróð svartri silkiblússu niður í p'lsið, fitlaði við brjóstnæluna sína og elti mann sinn til brúðhjónanna. — Röthlisberger, sagði Teresa ofurlítið hrærð. Hvar eru þau, öll hin? — Öll hin? — Já. Lénharður, Kasmír, Kristján, Fritz Mahder og kona hans, Joggi og Karli gamli? — Fritz Mahder? — Já. Sérstaklega hann. — Hún vill vita, hvar Fritz Mahder sé, sagði Röthlisberger forviða við konu sína. — Hann — dóninn sá! — Hann er ekki eins slæmur og þið haldið kannske, sagði Teresa. Mig langar til þess að sjá hann og Hermínu. — Guð mnn góður. Ekki er hægt að bjóða þess konar íólki í brúðkaupsveizlu. — Hvað viltu? spurði Anton Möller konu sina, er hann heyrði ávæning af því, sem hún var að segja við Fríðu og Röthlisberger. — Ég var bara að spyrja eftir hinu fólkinu á Gammsstöð- um. — Hinu fólkinu? — Já. Stúlkunum og vinnumönnunum. — Já, hvar er hitt fólkið? hrópaði Anton Möller. — Það er úti í garðinum, svaraði Röthlisberger. — Ég fer út og tala við það á eftir. Komdu, Teresa. Þarna kemur Soffía og lögfræðingurinn hennar. Hann gekk á móti Soffíu. Andlit hennar var enn torrætt og svipbrigðalaust og augnaráð hennar kalt og þóttafullt. — Pabbi, sagði hún, og hreimurinn í rödd hennar duld- ist ekki. Nú hefi ég eignazt nýja móður. En hvað á ég að segja við hana? — Soffía, sagði hann ástúðlega og tók utan um hana. Vertu nú ekki vandræðaleg. Ég skal fúslega játa, að þetta er erfið aðstaða. En þú verður þó að unna gömlum föður þess að njóta hamingju. Semdu frið við hana og kysstu hana. Líttu bara á! Sérðu ekki, hvað hún er sakleysisleg? Honum varð litið til Gottfreðs. — Gottfreð! Gottfreð! Og þú líka! Farið þið öll til hennar og kyssið hana. Þau gengu t’l Teresu, sem hafði heyrt síðustu orð Antons Möllers. En þau mega ekki kalla mig mömmu, sagði hún. Þau verða að kalla mig Teresu. — Heyrðir þú, hvað hún sagði? — Já, sagði Soffía. Þá kalla ég þig Teresu. Þú ert líka tveimur árum yngri en ég. Það væri skrítiö, ef ég kallaði þig mömmu. Teresa brosti, svo að spékoppar mynduðust í kinnunum og skein á hvitar tennurnar. — Þú ert góð, Soffia. Ég veit, að mér mun þykja vænt um þig. Þær kysstust. Felix kyssti hana líka. Og hann lét smella hátt í, svo að fólk veitti þvi síður athygli, hve vandræðalegur hann var, og fólk skellihló. Nú var röðin komin að Gottfreð. En hann kyssti Teresu ekki á munninn, heldur tók hönd hennar, bar hana að vörum sér og hvíslaði: Mamma. Þetta túlkaði bezt tilfinningar hans. Hvílíkur ýndisþokki var ekki þessari stúlku gefinn! Hvílíkum töfrum var hún ekki gædd! Og þótt undarlega væri til þessa brúðkaups stofnað, gaf það aðeins auðugu ímyndunarafli hans byr undir vængi. Teresa lét hann kyssa hönd sína, en henni gazt illa að feimni hans. — Anton, sagði hún við mann sinn. Ég ætla að kyssa drenginn þinn. Ég er hreykin af þér, Gottfreð S'xtus. Hún tók utan um hálsinn á honum og kyssti hann inni- lega, til góðrar skemmtynar öllum vðistöddum. Jóhann Timm veitingamaður stóð uppi á stigapallinum. Hann var snöggklæddur og hafði brett upp hvítar skyrtu- ermarnar, og hann hafði látið á sig hreina svuntu. Hann beið þess, að gestirnir gengju í stóra salinn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.